Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar 26. október 2026 07:32 Fyrsta alþjóðlega gagnaverið tók til starfa hér á landi fyrir um fimmtán árum þegar Verne hóf rekstur á Reykjanesi. Aðspurðir um ástæðuna fyrir því að Ísland hefði orðið fyrir valinu sögðu forsvarsmenn fyrirtækisins að hér væru kjöraðstæður fyrir slíka starfsemi, meðal annars þar sem gagnaverið yrði drifið af endurnýjanlegri raforku, hér væri hentugt loftslag til kælingar búnaðarins og hér væri tæknilæst og hámenntað starfsfólk. Eftirvæntingin var mikil og stjórnvöld vísuðu í að nýr kafli í iðnsögu Íslands væri að hefjast. Gagnaverin á Íslandi eru vel til þess fallin að þjónusta starfsemi sem krefst mikillar reiknigetu. Fyrirtæki sem nýta sér þjónustu gagnaveranna í dag starfa í heilbrigðis-, lyfja- og fjármálageiranum, í bílaiðnaði og við veðurrannsóknir svo örfá dæmi séu tekin. Hinar miklu tækniframfarir í gervigreind opna svo á mikla möguleika til aukinnar framleiðni, hvert sem litið er. Til þess þarf mikla reiknigetu og gagnaverin hér á landi hafa beint sjónum sínum í auknum mæli að fyrirtækjum sem sérhæfa sig í gervigreind. Eftirspurn eftir reiknigetu heldur áfram að aukast. Alþjóðlega orkustofnunin IEA spáir því að raforkunotkun gagnavera muni tvöfaldast til ársins 2030. Aðgengi að orku er því orðin ein helsta forsenda frekari uppbyggingar. Þetta hefur áhrif á staðarval gagnavera. Í Bandaríkjunum hafa meðal annars verið byggð gasorkuver í grennd við gagnaver með það að markmiði að stytta biðtíma. Í Evrópu hefur meiri áhersla verið lögð á að auka endurnýjanlega orkuvinnslu og finna staðsetningar sem henta raforkukerfinu vel. Sem dæmi reis fyrsta gagnaver Google í Finnlandi í bænum Hamina þar sem áður var pappírsverksmiðja. Ísland ekki sjálfsagt val Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim fimmtán árum sem liðin eru frá gangsetningu gagnavers Verne á Íslandi. Eftir að atNorth og Borealis bættust við starfa hér á landi þrjú stór alþjóðleg gagnaversfyrirtæki. Öll eru þau með starfsemi á Reykjanesi, en árið 2018 var gagnaver Borealis á Blönduósi opnað og árið 2023 gagnaver atNorth á Akureyri. Því er oft haldið fram að eftirspurn eftir raforku á Íslandi sé endalaus, en það er ekki rétt. Það er ekki sjálfsagt að Ísland verði fyrir valinu þegar gagnaver og önnur fyrirtæki í orkusækinni starfsemi kjósa sér stað fyrir starfsemi sína. Fyrirtækin starfa í alþjóðlegri samkeppni en völdu að fjárfesta hér á landi að vel ígrunduðu máli. Hér er ekki um neinar smáfjárhæðir að tefla. Áætlað er að fjárfestingar atNorth á Akureyri verði um 30 milljarðar króna. Það er sambærileg upphæð og rann til byggingar tónlistarhússins Hörpu. Gagnaverin gera langtímasamninga um kaup á raforku og eru jákvæð viðbót í flóru orkusækinna fyrirtækja á Íslandi. En verðmætasköpunin er ekki takmörkuð við raforkukaup. Á uppbyggingartíma skapast verkefni fyrir verktaka, verkfræðistofur og þjónustufyrirtæki og þegar rekstur hefst verða til föst störf. Þá eru ótalin þau afleiddu áhrif sem starfsemi gagnavera hefur haft á stafræna innviði landsins. Sem dæmi hefur fjarskiptaöryggi Íslendinga stóraukist vegna gagnastrengja sem fylgja auknum umsvifum gagnavera. Góð fyrirtæki eru góðir grannar Við Íslendingar höfum úr takmörkuðum auðlindum að spila og þurfum að nýta þær sem best. Við viljum laða hingað fyrirtæki sem skapa mikil verðmæti, okkur öllum til hagsbóta. Uppbygging gagnavera á Íslandi er þegar farin að skila sér í stórauknum útflutningstekjum og fjárfesting í gagnaverstengdum iðnaði náði nýju meti á öðrum ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Við viljum að fyrirtæki sem starfa á Íslandi séu góðir nágrannar og leggi sitt af mörkum til samfélagsins. Það eru gagnaverin þegar farin að gera. Á Hringborði norðurslóða sagði forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Gunnar Gunnarsson, að gagnaver atNorth væri fyrsta stóra atvinnuuppbyggingin í bænum í áratugi. Þá var uppbygging gagnaversiðnaðar á Íslandi umfjöllunarefni haustfundar Rafal á dögunum. Það var ánægjulegt að heyra hversu mikla áherslu gagnaversfyrirtækin leggja á samstarf við fræðasamfélagið um að mennta starfsfólk framtíðarinnar og á að nýta sérþekkingu innlendra verktaka. Fuse, nýtt félag á vegum Rafal sem styður við uppbyggingu og rekstur gagnavera, er gott dæmi um hversu mikil áhrif greinin er farin að hafa á íslenskt atvinnulíf. Til þess að raungera þau tækifæri sem birtast í frekari uppbyggingu gagnaversiðnaðar hér á landi þarf orku. Við þurfum jafnframt að vera bæði framsækin og hagsýn við þróun flutningskerfisins. Þannig getum við haft mikil áhrif á framvinduna og skapað frjóan jarðveg fyrir orkusækin verkefni, samfélaginu öllu til hagsbóta. Hjá Landsvirkjun er nú runnið upp stærsta framkvæmdatímabili í sögu fyrirtækisins og við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar með því að styðja við spennandi tækifæri, þar á meðal í gagnaversiðnaði. Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tinna Traustadóttir Gagnaver Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun