Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sunna Sæmundsdóttir skrifar 25. október 2026 14:30 Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar. Vísir/Ívar Fannar Þó nokkrir hafa sett sig í samband við Bjarkarhlíð í kjölfar umdeilds sýknudóms Landsréttar í nauðgunarmáli að sögn teymisstýru úrræðisins. Niðurstaðan dragi úr vilja þeirra til þess að leita réttar síns.
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála eftir að sakfellingu héraðsdóms var snúið við og karlmaður sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Í dómi Landsréttar var meðal annars vísað til samskipta fólksins á Instagram og talið að af þeim mætti ráða að konan hefði mátt gera sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, áverka á höfði, tognun og heyrnartap. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir dóminn þegar hafa haft alvarlegar afleiðingar. „Það hafa nú þegar þó nokkrir þolendur hringt inn og bókað viðtöl vegna þess að þeir hafa bara upplifað í rauninni endurtekið áfall vegna þessarar niðurstöðu,“ segir Jenný. „Þetta dregur auðvitað úr trausti til réttarkerfisins og það hafa nokkrir þolendur hér haft orð á því að það taki því ekki að kæra, að þetta sé tilgangslaust og að þetta dómskerfi sé ekki fyrir þolendur heimilisofbeldis eða kynferðisofbeldis.“ Alvarlegum ofbeldismálum fari fjölgandi Á síðasta ári leituðu hátt í níu hundruð manns til Bjarkarhlíðar og Jenný segir að málum þar sem ofbeldið telst alvarlegt fari fjölgandi. „Alvarlegt ofbeldi er að aukast, kyrkingartökum fer fjölgandi, eltihrellahegðun er að aukast og þetta eru birtingarmyndir sem við viljum ekki að aukist vegna þess að þetta er yfirleitt þær birtingarmyndir ofbeldis sem segja til um það að mál fari á versta veg,“ segir Jenný. „Gerendur eru að ganga lengra og það er auðvitað vegna þess að afleiðingarnar eru engar fyrir þær. Hún segir málið til þess fallið að draga úr vilja þolenda til þess að leita réttar síns. „Og núna er verið að senda þau skilaboð til allra gerenda þarna úti að þeir geti í rauninni haldið ótrauðir áfram að nauðga og beita líkamlegu ofbeldi vegna þess að dómskerfið mun ekki taka á þessu.“
Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Dómsmál Dómstólar Tengdar fréttir „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Sambands- og kynlífsráðgjafi segir krakka fá kynfræðslu allt of seint, hún skipti sköpum þegar þeim sé kennt um mörk í kynlífi. Hugmyndir ungu kynslóðarinnar um kynlíf mótist of mikið af klámi. Dæmi séu um að foreldrar hafi tekið börn sín úr kynfræðslu en Eva vill að aldursviðeigandi kynfræðsla sem felist í fræðslu um mörk hefjist í leikskóla. 21. október 2026 20:50 Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Mun algengara er að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Nauðsynlegt sé að bregðast við með fræðslu. 21. október 2026 14:02 Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna. 19. október 2026 14:03 BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi. 19. október 2026 12:32 Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. 17. október 2026 16:49 Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun. 16. október 2026 08:45 Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
„Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Sambands- og kynlífsráðgjafi segir krakka fá kynfræðslu allt of seint, hún skipti sköpum þegar þeim sé kennt um mörk í kynlífi. Hugmyndir ungu kynslóðarinnar um kynlíf mótist of mikið af klámi. Dæmi séu um að foreldrar hafi tekið börn sín úr kynfræðslu en Eva vill að aldursviðeigandi kynfræðsla sem felist í fræðslu um mörk hefjist í leikskóla. 21. október 2026 20:50
Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Mun algengara er að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Nauðsynlegt sé að bregðast við með fræðslu. 21. október 2026 14:02
Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna. 19. október 2026 14:03
BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi. 19. október 2026 12:32
Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. 17. október 2026 16:49
Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun. 16. október 2026 08:45