Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. október 2026 08:21 Tólf klukkustundum eftir að eldur kviknaði í húsinu sögufræga hefur ekki enn náðst að slökkva eldinn. AP Enn logar eldur í Arnarhreiðri Adolfs Hitler, einu sögufrægasta húsi Þýskalands, eftir að kviknaði í því í gærkvöldi. Einn hefur verið handtekinn grunaður um íkveikju.
Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið í gang um níuleytið á staðartíma í gærkvöldi og þegar viðbragðsaðila bar að garði hafi húsið staðið í ljósum logum. Um 200 slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkviliðsstarfi vegna eldsins. Haft er eftir Lisu Maier, talsmanni lögreglu, í umfjöllun The Guardian að eldurinn sé erfiður viðureignar vegna staðsetningar hússins, sem er í 1.834 metra hæð. Boðað verði til blaðamannafundar seinna í dag vegna atviksins. Sjá einnig: Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Mynd úr vefmyndavél á svæðinu frá því í gær. bergfex.de Einn hefur verið handtekinn og yfirheyrður grunaður um íkveikju en eldsupptök eru þó enn óljós. Enginn er talinn hafa verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Á síðu hússins segir að því hafi verið lokað, sem og þjónusta við gesti, um ókominn tíma vegna mikils eldsvoða. Einn vinsælasti ferðamannastaður Þýskalands Húsið, sem heitir á þýsku Kehlsteinhaus, er staðsett á fjallinu Kehlstein í Bæjaralandi ofan við bæinn Berchtesgaden, sem er við Alparætur. Um er að ræða einn vinsælasta ferðamannastað Þýskalands. Það var byggt á árunum 1937 til 1938 sem sumarhús fyrir háttsetta nasista, þar á meðal Adolf Hitler. Hann er þó sagður hafa dvalið þar sjaldan, heldur hafi markmiðið með byggingunni verið að heilla erlenda gesti og diplómata. Húsið komst nokkuð óskaddað í gegnum seinni heimsstyrjöldina. Á síðustu árum hefur það verið notað sem safn um Þýskaland nasismans.
Þýskaland Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira