Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar 26. október 2026 09:00 Á síðustu árum hafa dunið yfir áföll í sjávarútvegi og fyrst og fremst af mannavöldum, ekki síst hjá útgerðum sem gera út báta í krókaaflamarki. Má þar nefna hækkun veiðigjalda og sífellt minnkandi línuívilnun, sem bitnar harðast á smæðstu útgerðunum. Rekstur krókaaflamarksbáta er niðurnjörfaður í höft og takmarkanir sem ekki þekkjast annars í aflamarkskerfinu. Takmarkanir sem draga verulega úr verðmætasköpun, skaðlegar fyrir þjóðina alla. Krókaaflamarksbátar mega, auk annarra hafta, eingöngu nota línu og handfæri, en engin önnur veiðarfæri. Þrátt fyrir allar takmarkanirnar þurfa viðkomandi útgerðir að bera sömu veiðigjöld eins og hinir stóru. Nú stendur til endurskoðun á byggðakerfi sjávarútvegs og búast má við að enn frekar verði skorið niður til línuívilnunar og hún jafnvel aflögð. Þar með verður búið að veita smæðstu heilsársútgerðunum náðarhöggið – sem leiðir auðvitað til enn frekari samþjöppunar í sjávarútvegi. En sárast er þó að horfa upp á atvinnumissi sjómanna og þeirra sem vinna við beitningu og uppstokkun á ársgrundvelli. Skerðing línuívilnunar nú og í fyrra hefur þegar valdið uppsögnum hjá fólki sem hafði trygga atvinnu nánast allt árið, en þó aðeins til þess að bæta rúmlega hálfum degi við strandveiðar. Það er mikill fórnarkostnaður. Og það eru mikil völd að geta tekið atvinnu af einni manneskju og færa annarri! Ljóst er að ef úr verður, og línuívilnun verður aflögð munu margar útgerðir leggja upp laupana. Leiðir til hagræðingar í krókaaflamarki eru allar lokaðar, frelsi til að velja sér veiðarfæri er ekkert og ýmsar aðrar takmarkanir og höft gilda um krókaaflamark, sem gilda ekki um aðra. Ég hvet ykkur því til að skoða leiðir til aukinnar hagkvæmni. Þar er einfaldast og hagkvæmast að auka veiðarfærafrelsi krókaleyfisbáta. Kostnaður við t.d. netaveiðar er aðeins brot af kostnaðinum við línuútgerð. Þar eru mikil tækifæri til verðmætasköpunar. Talsvert hærra meðalverð og miklu minni kostnaður og stærð bátanna hentar vel. Færri krónur í kostnað og fleiri krónur í þjóðarbúið. Um er að ræða gríðarlega hagsmuni fyrir alla þjóðina, ef hægt er að nýta 18% þorskkvótans betur. Ábyrgðarhluti hjá stjórnvöldum Það er grafalvarlegt ef stjórnvöld horfa framhjá tækifærunum sem eru fólgin í afnámi hafta í krókaaflamarkskerfinu. Stjórnvöld eru þá bæði að kasta verðmætum á glæ og drepa niður litlar útgerðir. Eyjólfur Ármannsson og Hanna Katrín Friðriksson, ég hvet ykkur til að standa vörð um smærri útgerðir með því að auka möguleika til vaxtar og þróunar með auknu veiðarfærafrelsi í krókaaflamarkskerfinu. Höfundur er smábátasjómaður og formaður Samtaka smærri útgerða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Á síðustu árum hafa dunið yfir áföll í sjávarútvegi og fyrst og fremst af mannavöldum, ekki síst hjá útgerðum sem gera út báta í krókaaflamarki. Má þar nefna hækkun veiðigjalda og sífellt minnkandi línuívilnun, sem bitnar harðast á smæðstu útgerðunum. Rekstur krókaaflamarksbáta er niðurnjörfaður í höft og takmarkanir sem ekki þekkjast annars í aflamarkskerfinu. Takmarkanir sem draga verulega úr verðmætasköpun, skaðlegar fyrir þjóðina alla. Krókaaflamarksbátar mega, auk annarra hafta, eingöngu nota línu og handfæri, en engin önnur veiðarfæri. Þrátt fyrir allar takmarkanirnar þurfa viðkomandi útgerðir að bera sömu veiðigjöld eins og hinir stóru. Nú stendur til endurskoðun á byggðakerfi sjávarútvegs og búast má við að enn frekar verði skorið niður til línuívilnunar og hún jafnvel aflögð. Þar með verður búið að veita smæðstu heilsársútgerðunum náðarhöggið – sem leiðir auðvitað til enn frekari samþjöppunar í sjávarútvegi. En sárast er þó að horfa upp á atvinnumissi sjómanna og þeirra sem vinna við beitningu og uppstokkun á ársgrundvelli. Skerðing línuívilnunar nú og í fyrra hefur þegar valdið uppsögnum hjá fólki sem hafði trygga atvinnu nánast allt árið, en þó aðeins til þess að bæta rúmlega hálfum degi við strandveiðar. Það er mikill fórnarkostnaður. Og það eru mikil völd að geta tekið atvinnu af einni manneskju og færa annarri! Ljóst er að ef úr verður, og línuívilnun verður aflögð munu margar útgerðir leggja upp laupana. Leiðir til hagræðingar í krókaaflamarki eru allar lokaðar, frelsi til að velja sér veiðarfæri er ekkert og ýmsar aðrar takmarkanir og höft gilda um krókaaflamark, sem gilda ekki um aðra. Ég hvet ykkur því til að skoða leiðir til aukinnar hagkvæmni. Þar er einfaldast og hagkvæmast að auka veiðarfærafrelsi krókaleyfisbáta. Kostnaður við t.d. netaveiðar er aðeins brot af kostnaðinum við línuútgerð. Þar eru mikil tækifæri til verðmætasköpunar. Talsvert hærra meðalverð og miklu minni kostnaður og stærð bátanna hentar vel. Færri krónur í kostnað og fleiri krónur í þjóðarbúið. Um er að ræða gríðarlega hagsmuni fyrir alla þjóðina, ef hægt er að nýta 18% þorskkvótans betur. Ábyrgðarhluti hjá stjórnvöldum Það er grafalvarlegt ef stjórnvöld horfa framhjá tækifærunum sem eru fólgin í afnámi hafta í krókaaflamarkskerfinu. Stjórnvöld eru þá bæði að kasta verðmætum á glæ og drepa niður litlar útgerðir. Eyjólfur Ármannsson og Hanna Katrín Friðriksson, ég hvet ykkur til að standa vörð um smærri útgerðir með því að auka möguleika til vaxtar og þróunar með auknu veiðarfærafrelsi í krókaaflamarkskerfinu. Höfundur er smábátasjómaður og formaður Samtaka smærri útgerða.
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun