Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar 26. október 2026 18:32 Enn á ný lætur Útlendingastofnun til skarar skríða og góðmennskan og kærleikurinn úr þeim ranni er eins og áður nánast ótæmandi brunnur réttlætis, réttsýni, fjölbreytileika og almennar manngæsku. Takk, Útlendingastofnun, fyrir að vernda Ísland fyrir fjölfötluðu barni með klofinn hrygg og vatnshöfuð. Sómi Íslands, sverð og skjöldur. Já, enn á ný koma tíðindi frá Útlendingastofnun sem fá mann til að trúa æ minna á lífið en öllu meira á illskuna og tilgangsleysið sem henni verður alltaf samferða. Nú á að vísa úr landi tæplega þrítugri konu frá Venesúela og tveimur börnum hennar, þrettán ára unglingsdóttur og fimm ára gömlum syni hennar, sem er fjölfatlaður og mjög alvarlega veikur. Eða eins og segir í frétt RÚV: „Rúmlega þrítugri konu frá Venesúela, Leidy Díaz, hefur verið vísað frá landinu ásamt börnum sínum tveimur. Leidy Díaz á dótturina Rachell, 13 ára, og soninn Elian sem er fimm ára. Elian er fjölfatlaður, með klofinn hrygg, vatnshöfuð, og notar hjólastól. Þeim er gert að sæta endurkomubanni til Íslands.“ Af hverju er þessi hryllingur látinn viðgangast, spyr ég í fáfræði minni. Hvers vegna er verið að fremja þetta illvirki hér á þessu friðsama landi þar sem allt er til alls nema jafnvægi í veðráttunni. Við þessu illvirki er ekkert rökrænt svar; kerfið er fyrir löngu orðið lifandi afl sem hafnar og hlær og hendir fólki út. Enginn ber ábyrgð því enginn er raunverulega vondur heldur bara kerfið, lögin og allt það stöff, þið vitið. En það er fólk á bak við þessar ákvarðanir og það fólk er fært í því að koma sér undan ábyrgð því það er bara að vinna vinnuna sína. Það tekur enginn ábyrgð því til þess að bæta bölið er vænlegt að benda í aðra átt. Og það virkar alltaf á Íslandi. Hins vegar er málið í raun og veru einfalt: Það snýst ekki um heimsmálin, það snýst ekki um Trump og Pútín, ekki heldur um stýrivexti, verðbólgu né vindmyllur: Málið snýst um eitt og ekkert annað, mannkærleika! Og haldi einhver að mannkærleika sé að finna hjá Útlendingastofnun þá ætla ég að vísa aftur í frétt RÚV um málið, en þar segir á einum stað: Í greinargerð Jóns [Sigurðssonar, lögmanns Leidy Diaz, innskot höfundar]frá því í fyrra kom fram að Útlendingastofnun tæki ekkert tillit til fötlunar drengsins í niðurstöðu sinni. Orðrétt stóð: „Ekki er að finna svo mikið sem einn bókstaf af umfjöllun í hinum kærðu ákvörðunum um stöðu hans sem fatlaðs einstaklings. Enga tilvísun er að finna til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þrátt fyrir að umræddur samningur hafi verið fullgiltur hér á landi og að til standi að lögfesta hann. Þetta er grundvallaratriði sem er nauðsynlegt að taka tillit til í sambandi við allar kröfur og málsástæður kæranda og er um að ræða gríðarlega alvarlegan galla á málsmeðferð og ákvörðunum Útlendingastofnunar.“ Þetta mál og niðurstaða þess er hneysa fyrir allt sem gott og eðlilegt getur talist hér á landi; hér er ætlunin að keyra í gegnum kerfið af fullri hörku brottrekstri lítillar fjölskyldu þar sem yngsti meðlimurinn býr við ofboðslega skert lífsgæði. Er þetta ekki illska? Til að reyna að koma skikki á þessi hryllilegu vinnubrögð Útlendingastofnunar þá biðla ég hreinlega til manneskju sem ég ber mikla virðingu fyrir og hef mikla trú á. Hún heitir Kristrún Frostadóttir og er forsætisráðherra okkar Íslendinga. Hún hefur staðið sig með miklum sóma sem forsætisráðherra. Ég biðla líka til hennar af þeirri ástæðu að hún er valdamesta manneskja Íslands. Því ætla ég í lok þessarar fátæklegu greinar að biðja þig, Kristrún Frostadóttir, að gera eitthvað í þessum málum sem koma reglulega upp hjá Útlendingastofnun: Komdu skikki á þessa stofnun og færðu henni mögulega smá mannkærleika, því ekki veitir af. Hættum að henda fötluðu fólki úr landi. Nú er komið að þér, Kristrún! Höfundur er rithöfundur og bókmenntafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun