Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar 27. október 2026 08:32 Árið 1978 sendi ungt félag landvarða frá sér greinargerð þar sem varað var við „kvíðvænlegri þróun“. Árið áður höfðu 72.690 erlendir gestir sótt Ísland heim. Félagið hvatti stjórnvöld til að móta ferðamálastefnu sem í dag yrði kölluð sjálfbær. Það varaði við ágangi gesta á viðkvæma náttúru landsins og við utanvegaakstri, og lagði áherslu á að „Íslendingum [yrði] tryggð eðlileg og sjálfsögð landnot í fjölbreytilegri útivist“. Þessi málefni eru enn á forsíðum fréttamiðla og á vörum náttúruunnenda. Nú, 48 árum síðar, eru erlendir gestir sem koma til að njóta víðerna, fossa, fjalla og fjarða orðnir um 2,3 milljónir á ári. Landvarðafélag Íslands fagnar 50 ára afmæli 9. nóvember næstkomandi. Félagið var stofnað árið 1976 undir nafninu Félag gæslumanna Náttúruverndarráðs og Ferðafélags Íslands. Stofnendur voru 17 landverðir og skálaverðir sem höfðu starfað sumarið áður í Jökulsárgljúfrum, Skaftafelli og í skálum Ferðafélagsins. Markmiðin voru að gæta hagsmuna og kjara félagsmanna, „efla kynni og samstöðu þeirra innbyrðis“, enda langt á milli starfsstöðva, og „skipuleggja ferðir um landið þvert og endilangt“. Árið 1980 fékk félagið núverandi nafn. Félagið er enn hagsmunafélag sem berst fyrir betri kjörum, bættri vinnuaðstöðu, fleiri heilsársstörfum og aukinni menntun. En það hefur líka alltaf verið náttúruverndarfélag. Náttúruvernd var ekki meðal yfirlýstra markmiða í upphafi, en greinargerðin frá 1978 sýnir að hún varð strax hluti af stefnu félagsins. Öll útivist skilur eftir sig spor Við sem elskum náttúruna, þráum þau augnablik þegar við getum í rólegheitum fylgst með sólskríkju flögra um hraunið, rjúpu gæta óstýrilátra unga sinna, eða fundið fyrir smæð okkar frammi fyrir beljandi jökulfljóti og ægifegurð jökla og eldfjalla. Erlendir gestir sækjast eftir því sama, og sem gestgjafar viljum við sýna þeim landið okkar með stolti. En öll nýting náttúrunnar skilur eftir sig merki. Mest munar um borgir, landbúnað, stóriðju, virkjanir, veiðar og beit. En útivist, ljósmyndun, fuglaskoðun og gönguferðir skilja líka eftir sig spor, og á tímum samfélagsmiðla vega þau þungt. Fólk leitar lengra og á afskekktari staði til að „uppgötva“ náttúruperlur sem „enginn“ annar hefur séð eða upplifað. Það er eðlileg og skiljanleg hegðun. En án leiðsagnar er hætt við að við sitjum uppi með 2,3 milljónir sjálfskipaðra landkönnuða í anda Hirams Binghams, sem „uppgötvaði“ Machu Picchu árið 1911 þótt heimamenn hefðu alltaf þekkt staðinn. Gestir þurfa móttöku og leiðsögn. Oft þarf að kenna fólki að horfa á náttúruna, stýra upplifun þess, fræða og vekja forvitni, svo að virðing, góð umgengni og öryggi gleymist ekki. Að kenna fólki að sjá Landverðir starfa í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum um allt land. Þau fræða gesti um sögu og náttúru svæðisins, svara spurningum og leiðbeina, sinna öryggi og fyrstu viðbrögðum, vernda gróður, dýralíf og náttúruminjar fyrir ágangi, og þrífa þegar þarf. Fáir velja starfið án þess að vera náttúruunnendur. Bandaríski náttúruverndarfrömuðurinn Aldo Leopold skrifaði árið 1938 að útivist væri ekki náttúran sjálf heldur viðbrögð okkar við henni og að eina raunverulega framþróunin í útivist væri að efla skynjun fólks. Þetta gera landverðir. Með bros á vör og vilja til að deila þekkingu og leyndardómum staðarins vekja þau gesti til umhugsunar. Þau auka virðingu þeirra, ekki aðeins fyrir „fossinum“ eða „fjallinu“ sem fólkið kom til að sjá, heldur líka fyrir smávöxnum bergsteinbrjóti sem blómstrar við aðstæður sem myndu drepa flestar aðrar plöntur. Gestirnir læra jafnvel að umbera mýið sem sest í augun, þegar þeir skilja hversu mikilvægt það er fyrir fugla og fiska í viðkvæmum vistkerfum á hjara veraldar. Þegar fólk upplifir svæði í gegnum linsu sögunnar, vísindanna og þjóðtrúarinnar verður undrunin meiri en fegurðin ein. Heimsóknin verður dýrmætari og ber síður merki fjöldaferðamennsku. Þannig verður útivist sjálfbær: ekki aðeins með því að takmarka spor gesta, heldur með því að dýpka upplifun þeirra og virðingu fyrir náttúrunni. Framlína náttúruverndar Þetta er ekki séríslenskt. Alþjóðanáttúruverndarsamtökin (IUCN) lýsa landvörðum sem framlínu náttúruverndar. Á heimsþingi landvarða í Hyères í Frakklandi árið 2024 voru landverðir kallaðir starfsfólk í þágu heilbrigðis jarðarinnar. Alþjóðasamtök landvarða áætla að 1,5 milljónir landvarða til viðbótar þurfi á heimsvísu ef ríki heims eiga að ná markmiðinu um að vernda 30% lands og hafs fyrir árið 2030. Árið 2025 samþykkti heimsþing IUCN ályktun þar sem hvatt er til þess að landvarsla verði viðurkennd sem fagstétt hjá Alþjóðavinnumálastofnuninni. Landvarðastéttin á Íslandi hefur líka þróast. Fyrir hálfri öld var landvarsla sumarstarf á örfáum stöðum. Í dag starfa landverðir um allt land og verkefnin eru fleiri og flóknari. Starfið krefst þekkingar á náttúrufræði, sögu, öryggismálum og samskiptum við fólk frá öllum heimshornum. Næstu 50 ár Ef útivist á Íslandi á að vera sjálfbær þarf fjöldi landvarða að haldast í hendur við fjölda gesta. Það þarf fleiri heilsársstörf svo að þekking og reynsla haldist innan stéttarinnar. Það þarf að efla menntun landvarða og möguleika á þróun og vexti í starf. Það þarf einnig að hlusta á landverði, því líkt og fyrir hálfri öld sjá þeir hvert stefnir. Með hverjum gesti sem landverðir ræða við, hverju snýtubréfi og sígarettustubbi sem þau tína upp og hverjum stíg sem þau halda við vinna landverðir að verndun þjóðararfs okkar: okkar einstöku náttúru. Landvarðafélag Íslands hefur staðið vörð um þá vinnu í 50 ár. Verkefni næstu 50 ára er ekki minna. Höfundur er formaður Landvarðafélagsins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun