Fleiri fréttir Skaut 12 börn til bana í grunnskóla í Brasilíu Þungvopnaður 24 ára gamall maður ruddist inn í grunnskóla í borginni Rio de Janeiro í Brasilíu í gærdag og skaut 12 börn til bana áður enn hann framdi sjálfsmorð. Um var að ræða fyrrum nemanda í skólanum. 8.4.2011 07:28 Leki kominn að öðru kjarnorkuveri í Japan Vatnsleki er kominn upp við annað kjarnorkuver í Japan. Um er að ræða Onagawa kjarnorkuverið í norðurausturhluta Japans en lekinn úr því hófst í kjölfar jarðsskjálfta upp á 7,4 á Richter sem reið yfir Japan í gærdag. 8.4.2011 07:25 Kínverjar framleiða fyrstu klámmyndina í þrívídd Kínverjar hafa riðið á vaðið og framleitt fyrstu þrívíddarklámmyndina í fullri lengd. Byrjað er að sýna myndina í Hong Kong og er fullt hús á hverri sýningu. 8.4.2011 07:22 Óttast að glæpagengi séu að reyna að útvega sér skotvopn Lögreglumenn í öllum umdæmum, þar sem seld eru skotvopn í sportvöruverslunum, hafa verið beðnir um að vara seljendur við að menn, sem tengjast glæpahópum, kunni að reyna að komast yfir skotvopn í verslunum þeirra með ólöglegum hætti. Jafnvel með vopnuðum ránum í verslununum. 8.4.2011 07:18 Fáir taka afstöðu til flokkanna Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn bæta við sig fylgi en stuðningur við Samfylkinguna og Framsóknarflokkinn dalar samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. 8.4.2011 06:45 Jóhanna sló á sáttahönd atvinnulífsins Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sló sáttatillögu Samtaka atvinnulífsins um lausn í sjávarútvegsmálum út af borðinu með afgerandi hætti á aðalfundi samtakanna í gær. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, lýsti furðu sinni á afstöðu ráðherra en samtökin hafa sett niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem skilyrði fyrir gerð kjarasamninga. 8.4.2011 06:30 Send heim í fjárlagadeilu Leiðtogar demókrata og repúblikana á Bandaríkjaþingi hafa fram á síðustu stundu ekki náð samkomulagi um fjárlög ársins. 8.4.2011 06:00 Tímamótadómur yfir Baldri Guðlaugssyni 8.4.2011 05:
Sjá næstu 50 fréttir
Skaut 12 börn til bana í grunnskóla í Brasilíu Þungvopnaður 24 ára gamall maður ruddist inn í grunnskóla í borginni Rio de Janeiro í Brasilíu í gærdag og skaut 12 börn til bana áður enn hann framdi sjálfsmorð. Um var að ræða fyrrum nemanda í skólanum. 8.4.2011 07:28
Leki kominn að öðru kjarnorkuveri í Japan Vatnsleki er kominn upp við annað kjarnorkuver í Japan. Um er að ræða Onagawa kjarnorkuverið í norðurausturhluta Japans en lekinn úr því hófst í kjölfar jarðsskjálfta upp á 7,4 á Richter sem reið yfir Japan í gærdag. 8.4.2011 07:25
Kínverjar framleiða fyrstu klámmyndina í þrívídd Kínverjar hafa riðið á vaðið og framleitt fyrstu þrívíddarklámmyndina í fullri lengd. Byrjað er að sýna myndina í Hong Kong og er fullt hús á hverri sýningu. 8.4.2011 07:22
Óttast að glæpagengi séu að reyna að útvega sér skotvopn Lögreglumenn í öllum umdæmum, þar sem seld eru skotvopn í sportvöruverslunum, hafa verið beðnir um að vara seljendur við að menn, sem tengjast glæpahópum, kunni að reyna að komast yfir skotvopn í verslunum þeirra með ólöglegum hætti. Jafnvel með vopnuðum ránum í verslununum. 8.4.2011 07:18
Fáir taka afstöðu til flokkanna Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn bæta við sig fylgi en stuðningur við Samfylkinguna og Framsóknarflokkinn dalar samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. 8.4.2011 06:45
Jóhanna sló á sáttahönd atvinnulífsins Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sló sáttatillögu Samtaka atvinnulífsins um lausn í sjávarútvegsmálum út af borðinu með afgerandi hætti á aðalfundi samtakanna í gær. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, lýsti furðu sinni á afstöðu ráðherra en samtökin hafa sett niðurstöðu í sjávarútvegsmálum sem skilyrði fyrir gerð kjarasamninga. 8.4.2011 06:30
Send heim í fjárlagadeilu Leiðtogar demókrata og repúblikana á Bandaríkjaþingi hafa fram á síðustu stundu ekki náð samkomulagi um fjárlög ársins. 8.4.2011 06:00
Samningagerðin kostaði yfir 300 milljónir króna Kostnaður Íslands af gerð nýjustu Icesave-samninganna er yfir 300 milljónir króna. Mikill meirihluti þeirrar fjárhæðar er tilkominn vegna ráðgjafar og vinnu erlendra sérfræðinga en innlendi kostnaðurinn nemur fáeinum tugum milljóna. 8.4.2011 04:45
Framlengt á föður og frænda Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum, sem grunaðir eru um kynferðisbrot gegn dreng á áttunda árinu, til 14. apríl næstkomandi. Úrskurðurinn er á grundvelli rannsóknarhagsmuna, en lögreglan mun eiga eftir að rannsaka talsvert magn gagna sem fundust í tölvum mannanna. 8.4.2011 04:30
Fjórtán ár fyrir árás á föður sinn Þorvarður Davíð Ólafsson hefur verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann réðst á föður sinn, Ólaf Þórðarson, og veitti honum lífshættulega áverka. Ólafur hlaut alvarlegan heilaskaða og hefur dvalið á Grensásdeild. Ákæruvaldið segist ekki vita til þess að þyngri dómur hafi fallið fyrir tilraun til manndráps. Slíkir dómar hafa verið í kringum fimm ár. 8.4.2011 04:00
Minntist fórnarlambanna í tilfinningaþrunginni ræðu Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, hélt tilfinningaþrungna ræðu í kvöld þegar hún minntist fórnarlambanna í skotárásinni í Rio de Janeiro í morgun. Að minnsta kosti 13 eru látnir eftir að karlmaður hóf skothríð í grunnskóla í borginni. Maðurinn svipti sig lífi í kjölfarið. 7.4.2011 23:47
Dómurinn yfir Baldri gefur tóninn Jón Þór Ólason, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands, segir dómstóla hafa sent í dag ákveðin skilaboð með dómnum yfir Baldri Gunnlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. „Hann er mjög þungur. Þetta er tveggja ára fangelsi og síðan er þarna líka upptaka á hárri fjárhæð. Það sem er merkilegast við hann er að þarna er í fyrsta sinn verið að dæma á grundvelli ákvæðis um innherjasvik sem kom í fyrsta sinn í lög frá 1989,“ sagði Jón Þór í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld. 7.4.2011 22:45
Talið að áhorfsmet falli Nú styttist óðum í hið konunglega brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Talið er að allt að tveir milljarðar manna um allan heim muni fylgjast með brúðkaupinu í beinni útsendingu í sjónvarpi eða á netinu. Þetta sagði talsmaður breska forsætisráðuneytisins í samtali við Reuters-fréttastofuna í dag. Um 750 milljónir manna fylgdust með brúðkaupi Díönu og Karls Bretaprins árið 1981, en talið er að áhorfsmet verði slegið. 7.4.2011 22:09
Vigdís greinir frá ákvörðun sinni á meðal framsóknarmanna "Ég er búinn að taka ákvörðun og hún verður kynnt í ræðu minni á flokksþinginu á morgun,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Hún hefur að undanförnu íhugað að bjóða sig fram gegn Birki Jóni Jónssyni varaformanni flokksins á flokksþingi framsóknarmanna sem hefst formlega á morgun og stendur til sunnudags. Á laugardaginn fer fram kosning í embætti formanns, varaformanns og ritara. 7.4.2011 20:45
Neita að hafa haldið stúlku í kynlífsþrælkun í 18 ár Hjón á sextugsaldri í Kaliforníu neita að hafa rænt 11 ára stúlku árið 1991 og haldið henni í kynlífsþrælkun í 18 ár. Maðurinn, sem er dæmdur kynferðisbrotamaður, mun hafa nauðgað stúlkunni sem ól honum tvö börn. 7.4.2011 20:30
Ekkert ferðaveður á Mýrdalssandi Ekkert ferðaveður er á Mýrdalssandi en þar er óveður og mikið sandfok, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 7.4.2011 20:15
Mikið spurt um lóðir í Kópavogi Formaður bæjarráðs Kópavogs segir mikið spurt um lóðir í bæjarfélaginu. Frá áramótum hafa Kópavogsbæ borist 11 umsóknir um lóðir fyrir sérbýli og átta umsóknir um fjölbýlishúsalóðir. 7.4.2011 20:10
Reiði í Brasilíu vegna siðblinds kvikindis Að minnsta kosti 13 eru látnir eftir að maður hóf skothríð í grunnskóla í Ríó De Janeiro. Árásarmaðurinn er einn hinna látnu. Talið er hann sé fyrrverandi nemandi við skólann sem tekur nemendur frá 10 til 15 ára aldurs. 7.4.2011 19:56
Á annan tug innherjasvikamála til rannsóknar Á annan tug innherjasvikamála eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Brot Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, eru stórfelld að mati Héraðsdóms, en hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik þegar fyrsti dómurinn í málum sérstaks saksóknara féll í dag. 7.4.2011 18:59
Fylgishrun kemur formanni VG ekki á óvart Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að fylgishrun ríkisstjórnarflokkanna komi ekki á óvart. Hann segir að niðurstaðan í Icesave muni ekki hafa áhrif ríkisstjórnarsamstarfið. 7.4.2011 18:46
Gætu beitt sér gegn Íslandi innan EES Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, telur að Bretar og Hollendingar muni beita sér gegn Íslandi innan Evrópska efnahagssvæðisins verði Icesave samningarnir felldir í Þjóðaratkvæðagreiðslu. 7.4.2011 18:36
Hæstiréttur sýknaði afann Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann sem héraðsdómur hafði dæmt í 10 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barnabarni sínu. Hæstiréttur telur að frásögn stúlkunnar hafi verið á reiki og tekið talsverðum breytingum frá einni skýrslu til annarrar. Að auki hafi framburður hennar ekki verið stöðugur innbyrðis í skýrslutökunum, einkum við aðalmeðferð málsins, enda hafi hún verið þráspurð um atvik og í sumum tilvikum hafi spurningarnar verið leiðandi. Þá telur Hæstiréttur að framburður bræðra stúlkunnar hafi að nokkru sama marki brenndur og af þeim sökum var maðurinn sýknaður. Einn dómari, Garðar Gíslason, af fimm skilaði sératkvæði og vildi staðfesta dóm héraðsóms. 7.4.2011 18:24
Ný könnun: 52% segja nei 52% prósent þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Gallup ætla að greiða atkvæði gegn Icesave-lögunum á laugardaginn en 48% ætla að segja já. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem greint var frá í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 7.4.2011 18:04
Pabbinn og frændinn áfram í gæsluvarðhaldi Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 7.4.2011 17:57
Landsdómur kostar 113 milljónir Áætlaður kostnaður við landsdóm á þessu ári er 113,4 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Meirihluti Alþingis ákvað á síðasta ári að kalla landsdóm saman sem sækir nú mál á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins. Í svari Ögmundar kemur einnig fram að ef meðferð málsins verður ekki lokið á þessu ári gæti einhver kostnaður lagst til á næsta ári. 7.4.2011 17:25
Þriggja ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir brot gegn fötluðum bróðurbörnum sínum, dreng og stelpu. Þar með mildaði hann dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um eitt ár. 7.4.2011 16:49
Ari Teitsson varaformaður stjórnlagaráðs Ari Teitsson fulltrúi í stjórnlagaráði var í dag kjörinn varaformaður ráðsins. Áður hafði Salvör Nordal verið kosin formaður. Annar fundur ráðsins var haldinn í dag og má fylgjast með honum í beinni útsendingu á netinu. 7.4.2011 16:06
Salvör kjörin formaður stjórnlagaráðs Salvör Nordal var í dag kjörin formaður stjórnlagaráðs en ráðið hittist á sínum öðrum fundi í dag. Kosið var á milli hennar og Þorvaldar Gylfasonar en þau fengu flest atkvæði þeirra átta sem tilnefnd voru til embættisins. Fór svo að Salvör sigraði. 7.4.2011 15:37
Harður árekstur á Nýbýlavegi Hörð aftanákeyrsla varð um þrjúleytið á gatnamótum Nýbýlavegar og Þverbrekku. Nýbýlavegur var lokaður á tímabili til austurs vegna þessa. 7.4.2011 15:30
Maður á svörtum skutbíl reyndi að lokka barn við Sæmundarskóla Nemanda í Sæmundarskóla í Grafarholti var boðið upp í svartan skutbíl af ókunnugum manni í dag. Umræddur nemandi var að bíða eftir því að vera sóttur í skólann og beið á gangstéttinni við Gvendargeisla. Í bréfi sem skólastjóri Sæmundarskóla hefur sent til foreldra og forráðamanna barna í skólanum segir að barnið hafi brugðist hárrétt við, hlaupið í burtu og sagt starfsmanni skólans frá atvikinu. Haft var samband við lögreglu og málið unnið í samstarfi við hana. Talað var við alla nemendur áður en þeir fóru heim úr skólanum og brýnt fyrir þeim að fara ekki undir neinum kringumstæðum uppí ókunnuga bíla Undanfarnar vikur hafa borist fjölda tilkynninga um að maður eða menn á svörtum eða dökkum bíl hafi boðið börnum upp í bíl hjá sér. Lögregla hefur vegna þessa aukið eftirlit við skóla, og er þar með bæði merkta og ómerkta lögreglubíla. 7.4.2011 15:17
Umboðsmaður Alþingis snuprar biskup fyrir stöðuveitingu Umboðsmaður Alþingis telur að annmarkar hafi verið á skipan prests við Garðaprestakall á dögunum. Hann telur þó ólíklegt að annmarkarnir leiði til ógildingar á ákvörðuninni og að það sé dómstóla að fjalla um hugsanlega bótaábyrgð. 7.4.2011 15:16
Huðnan Snotra bar tveimur höfrum Huðnan Snotra varð fyrst huðna að bera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þetta árið. Hún bar tveimur gráflekkóttum höfrum 5. apríl. Snotra sinnir móðuhlutverkinu vel en hafurinn Klettur sem er faðir kiðlinganna fylgist með úr hæfilegri fjarlægð. Nemendur í 6. bekk Korpuskóla voru staddir í vinnumorgni í garðinum þegar Snotra bar. Krakkarnir fylgdust spennt með milli þess sem þau sinntu morgunverkum í útihúsunum af stakri prýði. Burðurinn gekk vel og Snotra kom kiðlingunum í heiminn án aðstoðar. 7.4.2011 15:11
Umferðin hefur dregist mikið saman Umferð í mars var 15,5 prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Mælingar Vegagerðarinnar sýna þetta. Þá dróst akstur saman um 18,1 prósent. Akstur er reiknaður sem umferð á dag margfaldað með lengd vegkafla. Vegagerðin segir að svo mikill samdráttur í umferð og akstri sé fáséður og einsdæmi frá því að byrjað var að taka saman tölurnar árið 2005. 7.4.2011 15:00
Stór skjálfti í Japan - varað við flóðbylgju Stór jarðskjálfti, 7,4 stig á Ricther reið yfir Japan í dag. Skjálftinn átti upptök sín undan ströndum Miyagi héraðs að því er fram kemur hjá CNN fréttastofunni. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út og er talið að bylgjan gæti orðið um meter á hæð. Því eru íbúar hvattir til að færa sig frá ströndinni. Tæpur mánuður er liðinn frá því risaskjálfti, níu stig, reið yfir sama svæði með skelfilegum afleiðingum. 7.4.2011 14:57
Þrettán létust í skotárás í brasilískum skóla Að minnsta kosti þrettán liggja í valnum eftir að byssumaður hóf skothríð í skóla í Rio De Janeiro í Brasilíu í dag. Árásarmaðurinn er á meðal hinna látnu en óljóst er hvort hann hafi fallið fyrir kúlum lögreglunnar eða hvort hann hafi framið sjálfsmorð að ódæðinu loknu. 7.4.2011 14:39
Kynferðisafbrot fararstjórans misfórst hjá félagsþjónustunni Fararstjórinn sem var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita 16 ára stúlku kynferðislega, hafði áður beitt hana kynferðislegri misneytingu. Þá var málið tilkynnt til félagsyfirvalda bæjarfélagsins en samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hlaut kæran ekki frekari framgang vegna misskilnings starfsmanna félagsþjónustunnar. 7.4.2011 14:37
Lögreglan leitar að tvíburaníðingi Breskur barnaníðingur sem var á flótta í Evrópu var í gær handtekinn af frönsku lögreglunni. Hann hafði verið látinn laus úr fangelsi en var á skilorði sem bannaði honum að fara úr landi. Hann lagði þá á flótta ásamt tvíburabróður sínum, sem einnig er eftirlýstur fyrir sömu sakir. Lögreglan breska hefur farið fram á að maðurinn verði framseldur til Bretlands en tvíburabróðursins er enn leitað. 7.4.2011 14:24
Á níunda hundrað kosið í dag Alls hafa 870 manns kosið utankjörfundar í Reykjavík í dag. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram í Laugardalshöll. Í heild hafa rúmlega 15000 manns kosið utankjörfundar hingað til. Þar af eru um 10 þúsund í Reykjavík. 7.4.2011 14:21
Banki "hrekkir" Guðmund á Núpum: Þarf að greiða 87 milljónir Guðmundur A. Birgisson, yfirleitt kenndur við Núpa, var í dag dæmdur til þess að greiða Nýja Landsbankanum 87 milljónir sem hann hafði fengið að láni frá bankanum. Um var að ræða viðskiptasamning um reikningslánalínu sem var gerður árið 2007 en alls fékk hann 95 milljónir lánaðar. 7.4.2011 13:55
Bjarni segir að ríkisstjórnin verði að boða til kosninga Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að fylgishrun Já-hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave skýrist fyrst og fremst af óvinsældum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin þurfi að boða til kosninga til að ná fram málefnalegri niðurstöðu í atkvæðagreiðslunni um Icesave. 7.4.2011 13:43
Aðeins þeir fá póst sem skráðir eru á póstkassa Næstu daga mun Pósturinn senda bréf á flest heimili landsins fyrir utan fjölbýlishús, eða um 55 þúsund heimili, þar sem tilkynnt verður að frá 15. maí næstkomandi verða aðeins afhentar sendingar sem stílaðar eru á þá sem merktir eru á lúgu eða póstkassa heimilisins. Þessi vinnuregla hefur ávallt verið viðhöfð til íbúa fjölbýlishúsa og verður því engin breyting þar á. Pósturinn vill tryggja að allir landsmenn fái eingöngu þann póst sem þeim er ætlaður. Margir þekkja það áreiti og fyrirhöfn sem hlýst af því að fá annarra manna póst inn á sitt heimili og einnig ef póstur berst ekki til réttra aðila. Því er mikilvægt að allir íbúar heimilisins séu vel merktir til að póstur berist til þeirra og sé ekki endursendur til sendanda. Með þessari bréfasendingu vill Pósturinn tryggja að réttar sendingar berist í réttar hendur en Póstinum berast reglulega kvartanir vegna missendinga. Ein af mörgum ástæðum missendinga er sú að margir fá póst fyrrum húseiganda sem gleymt hefur að tilkynna flutning en sá misskilningur er algengur að nóg sé að tilkynna eingöngu flutning til Þjóðskrár heldur verður einnig að senda tilkynningu til Póstsins. Pósturinn vill með þessu átaki tryggja að landsmenn fái eingöngu þann póst sem þeim er ætlaður. 7.4.2011 13:39
Þarf sex hárgreiðslumenn Hin tilvonandi prinsessa Kate Middleton ætlar ekki að ganga með úfið hár inn kirkjugólfið 29. apríl næstkomandi, því hún hefur ráðið heila sex hárgreiðslumenn til að sjá um hárið sitt þennan merkisdag. 7.4.2011 13:30
Keppa um tilnefningu til Emmy-verðlauna „Við reiknum með að tugir milljóna muni horfa á frumsýninguna og svo endursýningarnar,“ segir Hinrik Ólafsson hjá kvikmyndafyrirtækinu Pro Film. Í kvöld verður heimildarmyndin Into the Volcano frumsýnd á bandarísku fræðslurásinni National Geographic. Myndin er 50 mínútur að lengd og kryfur íslenska jarðfræði til mergjar. Við sögu koma íslenskir vísindamenn á borð við Harald Sigurðsson og Freystein Sigmundsson, en áhugi á íslenskum eldfjöllum óx gríðarlega þegar Eyjafjallajökull lamaði allar flugsamgöngur í Evrópu. 7.4.2011 13:15
Sunneva og Snorri Páll sýknuð Þau Sunneva Ása Weisshappel og Snorri Páll Jónsson voru sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en þau voru ákærð fyrir að óhlýðnast tilmælum lögreglunnar og svo átti Snorri að hafa hrækt á lögreglumann. 7.4.2011 13:14