Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Um 14 þúsund kosið utankjörfundar Um það bil 14 þúsund manns hafa kosið utankjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave málið. Þar af eru um það bil níu þúsund sem kusu utankjörfundar í Reykjavík. Atkvæðagreiðslan um málið fer fram næstkomandi laugardag og lýkur á flestum kjörstöðum um klukkan tíu um kvöldið. Strax að henni lokinni hefst talning atkvæða. 7.4.2011 10:55
Mér leið hræðilega og ég hafði ekkert að borða "Ég kom með ömmu minni í síðustu viku þegar bardagamennirnir komu. Þeir sögðu konum og börnum að fara til kaþólsku trúboðsstöðvarinnar. Við höldum að þeir hafi haldið karlmönnunum eftir til að drepa þá. Mér leið hræðilega og ég hafði ekkert að borða. Ég varð að sofa úti. Ég hef engin föt, bara einar buxur. Þar sem Barnaheill - Save the Children gáfu okkur hrísgrjón í vikunni, hef ég eitthvað að borða núna," segir 14 ára drengur í Duekoué á Fílabeinsströndinni. Hættuástand breiðist nú út á Fílabeinsströndinni og staða barna versnar með degi hverjum. Stórfelldur flótti almennings gerir það að verkum að tugir þúsunda svelta og smithætta eykst. Barnaheill - Save the Children segja að ef ekki komi til stórfelld mannúðaraðstoð, geti sjúkdómar lagt af velli berskjölduð og vannærð börn. Í bænum Duekoué í vestri, þar sem meint fjöldamorð á hundruðum manna á að hafa átt sér stað, hafa að minnsta kosti 27 þúsund manns þurft að flýja, margir af þeim börn. Þau, og fjölskyldur þeirra, hafa leitað skjóls í og í kringum opinberar byggingar, eins og kirkjur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheill. Hvarvetna í landinu er brýn þörf fyrir mannúðaraðstoð. Í verslunarborginni Abidjan, hafa hatrömm átökin leitt til skorts á vatni, matvælum og lyfjum. Mörgum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum hefur verið lokað, eða hafa einangrast vegna átakanna, þar sem lyfjabirgðir eru litlar. Þegar áður en síðustu átök hófust í Abidjan, höfðu fjölskyldur ekki þau lyf sem þær þurftu eða aðgang að læknum til að hjálpa veikum börnum sínum. Móðir ein, sem flúði frá Abobo í Abidjan, sagði starfsfólki Barnaheilla - Save the Children að lyktin af líkum ylli henni enn, mörgum vikum eftir flóttann, höfuðverk en hún hefði engin lyf til að bæta úr því. Dóttir hennar var með hita og móðirin óttaðist að um malaríu væri að ræða en gat ekki fullvissað sig um það þar sem þær komust ekki á heilsugæslustöð. Í Bouaké í norðri, hefur flóð flóttamanna frá átökunum í Abidjan, leitt til þess að allt upp í 80 manns hafa þurft að deila einu húsi. Barnaheill - Save the Children segja að ef ekki komi til stórfelld mannúðaraðstoð, geti sjúkdómar lagt af velli berskjölduð og vannærð börn. Jafnvel áður en átökin hófust, lést eitt af hverjum tíu börnum á Fílabeinsströndinni fyrir fimm ára afmælið sitt, flest úr sjúkdómum sem auðveldlega má koma í veg fyrir, svo sem niðurgangur og malaría. 7.4.2011 10:40
Aðalfundur sauðfjárbænda haldinn í Harvard Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda verður settur í dag klukkan 13.00 í fundarsalnum Harvard á 2. hæð Hótels Sögu. Fundinn sækja um 50 fulltrúar aðildarfélaga samtakanna allstaðar að af landinu. 7.4.2011 10:34
Kabbalah kemur til Íslands „Við stefnum á að opna miðstöð í Reykjavík í sumar,“ segir Hermann Ingi Hermannsson, einn forsvarsmanna Kabbalah-samtakanna á Íslandi. Hermann hefur stofnað fyrirtæki í kringum Kabbalah, þessa þekktu og umdeildu dulhyggju 7.4.2011 10:30
Persónuvernd kærir Miðlun til lögreglunnar Persónuvernd hefur kært varðveislu Miðlun ehf., á persónuupplýsingum, sem safnað var við gerð könnunar á einelti ríkisstarfsmanna, til lögreglunnar. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar. 7.4.2011 10:09
Viðræður geta hafist í lok júní Eiginlegar aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins geta hafist í lok júní, að því er Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, sagði í yfirlýsingu í gær. „Þetta er metnaðarfull en framkvæmanleg tímaáætlun þegar allir aðilar eru staðráðnir í að halda áfram,“ segir í yfirlýsingunni. 7.4.2011 10:00
Enn er unnið að öflun gagna um öryggissveit Rannsókn á hvort öryggissveit bandaríska sendiráðsins í Reykjavík hafi brotið lög með eftirliti sínu með mannaferðum í og við sendiráðið stendur enn. Hjá embætti ríkissaksóknara er unnið að öflun gagna. 7.4.2011 10:00
Næsti áfangi í viðræðum Íslands og ESB hefst í sumar Stefan Fule stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að næsti áfangi í aðildarviðræðum Íslands og sambandsins gætu hafist í júní í sumar. 7.4.2011 09:49
Tveir milljarðar manna munu horfa á brúðkaupið Búist er við því að tveir milljarðar manna um allan heim muni verða límdir við sjónvarpsskjái eftir þrjár vikur þegar Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton ganga í það heilaga. Þá er talið að um 500 þúsund manns muni flykkjast út á götur Lundúnaborgar til að berja prinsinn og brúði hans augum. 7.4.2011 09:33
Svona er hinn fullkomni dagur - sjón er sögu ríkari Suma daga gengur hreinlega ekkert upp og allt virðist vonlaust. En stundum er eins og þú sért óstöðvandi og allt sem þú tekur þér fyrir hendur gengur fullkomlega upp. Félagarnir Thomas Becker and Sebastian Stahlhofen hjá Patience Productions tóku sig til og gerðu myndband sem á að endurspegla hinn fullkomna dag. Þó er heldur ólíklegt að nokkur lendi í því að allt gangi jafn ótrúlega vel og þarna sést. En sjón er sögu ríkari. 7.4.2011 09:30
Of miklar kröfur gerðar til ungra barna í skýrslutökum Mun meiri líkur eru á því að kynferðisbrotamenn verði ákærðir fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum, þegar framburður barnanna er greinargóður og þau geta greint skýrlega frá ofbeldinu. Aldur barnanna hefur mikil áhrif á ákæru og varða þær langflestar börn á aldrinum 12 til 14 ára. Einungis er ákært í 16 prósentum mála þegar börn á aldrinum 3 til 5 ára eiga í hlut. 7.4.2011 09:30
Ámælisvert að hunsa álit ESA Viðbrögð stjórnvalda við áliti ESA, eftirlitsstofnun EFTA, um stöðu Ríkisútvarpsins (RÚV) á fjölmiðlamarkaði eru með eindæmum daufleg, að mati Ara Edwald, forstjóra 365 miðla. „ESA krefst þess að stjórnvöld setji inn í fjölmiðlalögin, ekki bara lög um RÚV, grundvallarreglur sem gæta þarf að varðandi samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði,“ segir hann. 7.4.2011 09:00
Réttarhöld yfir Berlusconi: Fjölmiðlar sagðir valda tjóni Marokkóska stúlkan Karima El Mahroug segir að umfjöllun fjölmiðla hafi valdið sér miklu tjóni en heldur fast við fyrri yfirlýsingar sínar um að hafa aldrei sængað hjá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. 7.4.2011 09:00
Gæsluvarðhald framlengt yfir stórsmyglara Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem tekinn var með mikið magn af LSD og e-töflum á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði, var framlengt í Héraðsdómi Reykjaness í gær til 20. apríl. Maðurinn situr í einangrunarvist. 7.4.2011 08:30
Faðir og frændi neita báðir sök Mennirnir tveir, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróft kynferðislegt ofbeldi gagnvart dreng á áttunda ári sættu yfirheyrslum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í allan gærdag. Þeir neita báðir sök í málinu. 7.4.2011 08:00
Bensínþjófur enn á ferð á Akureyri Bensínþjófur var enn á ferð á Akureyri í nótt og líkt og þjófarnir í fyrrinótt, leitaði hann fanga í vélsleðum. 7.4.2011 07:58
Sáu fastan bíl í vefmyndavél Vegagerðarinnar Ökumaður fólksbíls hringdi í lögregluna á Akureyri í nótt og sagðist vera fastur í snjó á Öxnadalsheiði. 7.4.2011 07:55
Aðeins ein flugvél til afnota hjá Gæslunni Landhelgisgæslan hefur nú aðeins eina flugvél til afnota, sem stórskerðir möguleika á björgunarstörfum á hafi úti. 7.4.2011 07:52
Gaddafi sendi Obama sérkennilegt bréf Bandaríska stórblaðið New York Times hefur komist yfir sérkennilegt bréf sem Muammar Gaddafi leiðtogi Líbíu hefur sent til Barack Obama bandaríkjaforseta. 7.4.2011 07:50
Áhöfnin á Málmey óhress með að geta ekki kosið um Icesave Áhöfnin á frystitogaranum Málmey frá Sauðárkróki veltir því fyrir sér hvort þjóðaratkvæðagreiðslan um Iceve samninginn verði ekki ólögleg, þar sem ákveðnum hópi kjósenda sé gert ókleift að taka þátt í henni. 7.4.2011 07:49
Leita enn að 130 manns eftir að bát hvolfdi Leit sendur enn yfir að 130 Túnisbúum sem voru á bát á leið til Möltu þegar honum hvolfdi síðdegis í gærdag um 60 kílómetra frá strönd eyjunnar. 7.4.2011 07:45
Slá minjapeninga um konunglegt brúðkaup Konunglega kanadíska myntsláttan hefur ákveðið að gefa út sérstaka minjapeninga í tilefni af brúðkaupi þeirra Villiams prins og Kate Middleton í Bretlandi. 7.4.2011 07:41
Tveir karlmenn brutust inn og síðan út úr verslun Tveir karlmenn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt eru sekir um bæði innbrot og útbrot, auk þjófnaðar. 7.4.2011 07:38
Kínverjar ásaka þekktan listamann um fjármálaglæpi Kínverska lögreglan hefur hafið rannsókn á listamanninum Ai Weiwei vegna meintra fjármálaglæpa hans. 7.4.2011 07:37
Hafsbotnin færðist til um 24 metra í jarðskjálftanum í Japan Nýjar mælingar á vegum japönsku strandgæslunnar sýna að hafsbotninn hefur fluttst til um 24 metra skammt frá upptökum jarðskjálftans mikla fyrr í vetur. 7.4.2011 07:18
Umsagnir stöðva ekki sameiningarnar í bili Mikill meirihluti af umsögnum sem borgaryfirvöldum barst vegna fyrirhugaðra breytinga í skólakerfi Reykjavíkur er neikvæður gagnvart framkomnum hugmyndum. Umsagnirnar voru til umræðu á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og var tillögu minnihlutans um að draga tillögurnar til baka vísað frá. 7.4.2011 07:00
Meirihlutinn hafnar Icesave Meirihluti landsmanna ætlar að hafna Icesave-samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 54,8 prósent þeirra sem afstöðu tóku ætla að hafna lögunum en 45,2 prósent sögðust ætla að samþykkja þau. 7.4.2011 06:30
Barist var um byrgi Gbagbos Hörð átök voru í gær í Abidjan, stærstu borg Fílabeinsstrandarinnar, þar sem liðsmenn Alassane Ouattara, réttkjörins forseta, sóttu að Laurent Gbagbo, sem neitaði enn að láta af völdum. 7.4.2011 05:30
Mesta veltan í rúmlega þrjú ár Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók kipp í síðasta mánuði þegar 409 kaupsamningum var þinglýst. Samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands er þetta mesti fjöldi í einum mánuði frá febrúar 2008. 7.4.2011 04:00
„Hér skulu blása ferskir vindar“ Fyrsti formlegi fundur stjórnlagaráðs fór fram að Ofanleiti 2 í Reykjavík í gær. Ómar Ragnarsson, aldursforseti ráðsins, stýrði fundinum. „Hér skulu blása ferskir vindar,“ sagði hann í ræðu sinni. „Við lítum á okkur sem hlekk í keðju kynslóðanna og framvindu sögunnar.“ 7.4.2011 00:00
Auglýsingar fyrir 10 milljónir króna Áfram-hópurinn, sem berst fyrir samþykkt Icesave samningsins í kosningunum á laugardag, hefur varið tæpum tíu milljónum í auglýsingakostnað. Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna. 6.4.2011 23:30
Priyanka hreifst af matnum og sjónum Priyanka Thapa, nepölsk kona sem synjað var um dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi grét af gleði þegar ákveðið var að taka mál hennar fyrir aftur hjá útlendingastofnun, en til stóð að þvinga hana í hjónaband með sér mikið eldri manni í heimalandinu. Rætt var við hana í Íslandi í dag. 6.4.2011 23:00
Húkka sér bílfar á netinu Þótt enn megi sjá stöku ferðalang standa með útréttan þumal við þjóðveginn húkka flestir nútíma puttalingar bílfar á netinu. Á sama tíma sækjast ferðamenn á bílaleigubílum eftir farþegum með sér. 6.4.2011 22:30
Stuðningur við ríkisstjórnina hríðfellur Stuðningur við ríkisstjórnarflokkanna hríðfellur samkvæmt skoðanakönnun MMR og hefur tekið afar miklum breytingum frá kosningunum í apríl 2009. Líkt og fram kom fram fyrr í kvöld er Sjálfstæðisflokkurinn sá stjórnmálaflokkur sem nýtur nú langmest stuðnings. 6.4.2011 21:19
100 stór páskaegg gefins Í tilefni tíu ára afmælis Fréttablaðsins kynnir blaðið skemmtilegan afmælisleik til sögunnar. Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að svara einni laufléttri spurningu og skrá sig á slóðinni visir.is/frettabladid. 6.4.2011 21:00
Starf stjórnlaganefndar gekk furðu vel „Furðu vel verð ég að segja. Ég held að við höfum rennt alveg blint í sjóinn þegar að við hófum þetta starf og ekki gert okkur grein fyrir hvað beið okkar,“ segir Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, um vinnu og tillögur nefndarinnar sem lagðar voru fyrir stjórnlagaráð í dag á fyrsta formlega fundi ráðsins. Stjórnlagaráð hefur það verkefni að undirbúa frumvarp um breytingar á stjórnarskránni. Rætt var við Guðrúnu í Kastljósi í kvöld. 6.4.2011 20:53
Fer reglulega í útreiðatúra á kú Þegar foreldrar Reginu Meyer vildu ekki gefa henni hest fór hún ekki í fýlu eins og margir unglingar hefðu gert. Hún fór út í haga á bóndabænum þeirra í Þýskalandi og sótti kúna Lúnu. Það tók tvö ár fyrir þær að ná saman en núna söðlar Regína kúna reglulega og fer á henni í útreiðartúra. Lúna stekkur jafnvel yfir hindranir ef hún er í góðu skapi. Þetta hefur valdið nokkrum ruglingi í dýrheimum um hverskonar skepna Lúna er eiginlega. 6.4.2011 20:19
Ég skil ekki af hverju hann drap hana út af 19 þúsund krónum 24 ára Íslendingur, Lárus Freyr Einarsson hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð sem hann framdi í smábæ skammt frá Horsens í Danmörku. Hann og samverkamaður hans, sem fékk 12 ára fangelsi, hafa áfrýjað dómnum. 6.4.2011 19:46
Pabbinn verði áfram í varðhaldi Lögreglan hyggst fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa misnotað átta ára gamlan son sinn. Mikil vinna bíður lögreglu sem ætlar að rannsaka mörg þúsundir ljósmyndir sem fundust í tölvu mannsins. 6.4.2011 18:48
Meirihlutinn vill fella Icesave Icesave samningarnir verða felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardag. Tæplega fimmtíu og sjö prósent þjóðarinnar ætla að segja nei samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Algjör umsnúningur hefur orðið í afstöðu fólks til málsins á nokkrum vikum. 6.4.2011 18:30
Fá ekki ríkisborgararétt Hæstiréttur Frakklands hefur staðfest úrskurð um að börn sem fædd eru af erlendum staðgöngumæðrum fái ekki franskan ríkisborgararétt. Undirréttur hafði fellt dóm í máli tvíburasystra sem bandarísk staðgöngumóðir hafði fætt. Foreldrarnir voru franskir. Undirréttur neitaði að skrá systurnar í frönsku þjóðskrána en það er forsenda þess að þær fái ríkisborgararétt. Staðgöngumæðrun er bönnuð í Frakklandi, hvort sem er í góðgerðar eða ábataskyni. 6.4.2011 20:45
90% synjað um hæli Aðeins fimm hælisleitendur af 51 fengu hæli hér á landi í fyrra. Hælisleitandi sem beðið hefur í 15 mánuði eftir endanlegu svari segir að Ísland loki á fólk sem sé í vanda statt. 6.4.2011 20:01
Jóhanna og Dagur gefa flokksmönnum línuna „Hafni íslenska þjóðin samningnum mun það ekki verða til þess að deilan hverfi heldur eru allar líkur á því að deilan harðni og að framtíðarhagsmunum þjóðarinnar verði þar með stefnt í tvísýnu,“ segja Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, í tölvubréfi til flokksmanna. 6.4.2011 19:38
Kara fundin Kara Dröfn Ásgeirsdóttir sem lögregla lýsti eftir fyrr í dag er komin í leitirnar, en ekki var vitað um ferðir hennar síðustu þrjár vikurnar. 6.4.2011 19:12
Alþingi á ekki að gerast dómari í eigin sök Fyrsti formlegi fundur stjórnlagaráðs var haldinn í dag en ráðið hefur það verkefni að undirbúa frumvarp um breytingar á stjórnarskránni. Ómar Ragnarsson, aldursforseti ráðsins, setti fundinn en gert er ráð fyrir því að ráðið starfi í tvo til fjóra mánuði. 6.4.2011 18:57