Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bréf Póstsins kostuðu tæpa milljón Bréf sem Íslandspóstur sendi á heimili landsmanna í síðasta mánuði vegna fyrirhugaðra breytinga á útburðarþjónustu kostuðu fyrirtækið um 960 þúsund krónur. Í kostnaðinum felst efniskostnaður við um 60 þúsund bréf, umslög, prentun og ísetning. Kostnaður við útburð er undanskilinn í tölunni. Í bréfunum var tilkynnt að frá 15. maí yrði hætt að bera út póst til þeirra sem ekki væru með nafn sitt sýnilegt á bréfalúgu eða póstkassa heimilis síns. Pósturinn hefur nú frestað breytingunum. 23.5.2011 05:00
Fundu tíu grömm af amfetamíni Í gærkvöldi handtók lögreglan á Eskifirði ungan mann í Fjarðabyggð grunaðan um fíkniefnamisferli. Í fórum hans fundust fíkniefni. Vegna rannsóknar málsins var maðurinn vistaður í fangageymslu í nótt og leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Austurlands í morgun þar sem gerð var karfa um húsleit á heimili mannsins, sem var samþykkt. 22.5.2011 21:38
Sérstakt teymi miðlar upplýsingum til erlendra fjölmiðla Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Íslandsstofu, rekur Hálendismiðstöðina við Hrauneyjar og Hótel Rangá. Einungis 18 klukkutímum eftir að gosið hófst höfðu 50 ferðamenn afbókað gistingu hjá honum. 22.5.2011 20:07
Lítil hætta á hlaupi Á annað hundrað lögreglu- og björgunarsveitarmenn að störfum á gossvæðinu. Ástand á nærliggjandi bæjum er nokkuð gott miðað við aðstæður að sögn Almannavarna. Vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands segir litla hættu vera á hlaupi í Skeiðará vegna gossins. 22.5.2011 20:01
Magnús Tumi: Ómögulegt að spá fyrir um framhaldið Mikill sprengikraftur hefur verið í eldgosinu í Grímsvötnum og þétt öskufall allt frá Kirkjubæjarklaustri að Skeiðarársandi. Þegar mest lét þeyttust allt að 20 þúsund tonn af gosefni á sekúndu frá eldstöðinni. Goskrafturinn hefur ívið dvínað í dag, en jarðvísindamenn segja ómögulegt að spá fyrir um framhaldið. 22.5.2011 19:10
Allur heimurinn forvitinn um gosið Gosið í Grímsvötnum hefur vakið mikla athygli erlendis enda aðeins rúmt ár síðan flugsamgöngur lágu niðri í Evrópu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 22.5.2011 18:45
Reiðubúin ef allt fer á versta veg Talsmenn flugfélaganna segja með öllu óljóst hvert tjón félaganna af gosinu er, en þeir hafa ekki orðið varir við miklar afbókanir. Þeir segja að hugsanlega verði hægt að fljúga til og frá landinu á morgun. 22.5.2011 18:45
Mörg hótel hálftóm Talsmaður ferðaþjónustunnar segir mikið í húfi að flug komist af stað sem fyrst. Nærri gosstöðvunum standi margir gististaðir hálftómir, og þar hafi menn þungar áhyggjur af framhaldinu. 22.5.2011 18:45
Þykkt öskulag á Klaustri Þykkt öskulag liggur yfir öllu á Kirkjubæjarklaustri. Myndatökumaður og fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem eru þar telja að öskulagið geti verið um tveggja sentimetra þykkt. Egill Aðalsteinsson myndatökumaður tók þessa mynd af Nissan Sunny bifreið á Klaustri. Norðaustan átt er yfir landinu og því má búast við að Reykvíkingar verði eitthvað varir við öskufall í kvöld. Selfyssingar og Hvergerðingar eru þegar orðnir varir við öskuský. 22.5.2011 17:59
Ferðamenn komnir í leitirnar Ferðalangarnir fjórir sem björgunarsveitarmenn hófu að leita að í dag eru komnir í leitirnar. Ferðamennirnir fóru frá Höfn í Hornarfirði á tveimur bílum í morgun og var ekki vitað um ferðir þeirra. Komið hefur í ljós að þeir óku austur á firði þar sem þeir dvelja nú á Egilsstöðum. 22.5.2011 17:53
Vísindamenn halda á Vatnajökul Jarðvísindamenn eru á leið austur að Skálafellsjökli en þeir ætla ásamt liðsmönnum Hjálparsveitar skáta í Reykjavík að gossvæðinu í Grímsvötnum á Vatnajökli. Hópurinn fer á snjóbíl hjálparsveitarinnar sem ber heitið Boli. Boli hefur verið í biðstöðu þar sem jarðvísindamennirnir, sem eru þrír ásamt tæknimanni, hafa þurft að bíða af sér öskufall á Kirkjubæjarklaustri. 22.5.2011 17:29
Vatnajökull var svartur í dag Hann var svartur Vatnajökullinn þegar Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður og Jónas Margeir Ingólfsson fréttamaður flugu yfir jökulinn í dag. 22.5.2011 17:17
Öskuna leggur um allt á Kirkjubæjarklaustri Það hefur verið ótrúlegt magn af ösku á Kirkjubæjarklaustri og í sveitum þar í kring vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fólki hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra vegna öskufallsins og huga vel að búfénaði. Umhverfisstofnun greindi frá því í dag að stofnunin hefur virkjað viðbúnaðarstöðu vegna gossins. Stefnt er að því að svifryksmælir verði kominn upp á Kirkjubæjarklaustri á morgun. Smelltu á "Horfa á myndskeið með frétt“ til að skoða myndir sem Gísli Berg tók í dag frá Kirkjubæjarklaustri. 22.5.2011 16:49
Um 200 íþróttamenn komast ekki til landsins Tæplega 200 erlendir gestir áttu að koma til Reykjavíkur í dag vegna Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna. Keflavíkurflugvöllur lokaði eftir að eldgosið í Grímsvötnum hófst og því hafa gestirnir ekki komist til landsins í dag. 22.5.2011 16:29
Ferðalangarnir komnir í leitirnar - aðrir fjórir týndir Ferðalangarnir sem sagt var frá fyrr í dag og áttu að vera týndir á gossvæðinu eru í góðu yfirlæti á Gullfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Hinsvegar hafa nú borist fregnir af fjórum öðrum ferðalöngum sem ekki er vitað hvar eru staddir. 22.5.2011 16:20
Fylgjast vel með heilsu fólks Viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) hefur í dag verið í sambandi við stjórnendur heilsugæslustöðvanna á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Rangárþingi. Í tilkynningu frá HSu segir að Læknar og hjúkrunarfræðingar séu á öllum stöðvunum til að sinna nauðsynlegri þjónustu í samstarfi við almannavarnarnir og fleiri. 22.5.2011 16:10
Gosmökkurinn í 10 kílómetra hæð Gosmökkurinn frá gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um tíu kílómetra hæð, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofu Íslands. Mest var hæðin um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni. Gosmökkurinn mældist í 13-15 kílómetra hæð í hádeginu. 22.5.2011 16:08
Ögmundur og Jóhanna heimsóttu samhæfingarmiðstöðina "Það var mjög traustvekjandi að sjá hve vel smurð þessi vél er og samhæfir kraftarnir,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann fór, ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að skoða aðstæður í samhæfingamiðstöðinni í Skógarhlíð vegna eldgossins. 22.5.2011 16:08
Lítið brot mála gegn lögreglu endar í dómi Afar lítill hluti kæra almennings á hendur lögreglumönnum endar með dómsuppkvaðningu. Þetta sýna tölur yfir slík mál frá árunum 2005 til 2009. Fréttablaðið sagði frá því í vikunni að lögregluvarðstjóri hefði verið ákærður fyrir líkamsárás af gáleysi, en hann ók óvart á ungan mann sem hafði reynt að flýja undan honum á bíl með þeim afleiðingum að ungi maðurinn fótbrotnaði. Formaður Landssambands lögreglumanna og ritstjóri lögreglublaðsins hafa gagnrýnt málið og sagt að það sé erfitt fyrir lögreglumenn að sitja undir því að vera gerðir persónulega ábyrgir fyrir svona atvikum. 22.5.2011 16:00
Bjarga búfénaði frá öskufallinu Heimamenn hafa í dag verið að bjarga búfénaði í nágrenni við gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Þessi bóndi á Hörgslandi var að bjarga hestinum sínum þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara bar að garði fyrir stundu. Gríðarleg svifryksmengun er vegna öskufallsins. 22.5.2011 15:26
Icelandair fellir niður flug á morgun Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga í fyrramálið verður fellt niður vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum, sem hefur lokað fyrir flugumferð um Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða flug til Frankfurt, Parísar, Amsterdam, London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Osló, Bergen/Þrándheims, Stokkhólms og Helsinki. Áður hafði Icelandair aflýst öllu flugi síðdegis í dag. 22.5.2011 15:10
Fjölmiðlamenn á Vatnajökli Hópur fjölmiðlamanna fór með þyrlu á Vatnajökul í grennd við gosstöðvarnar í Grímsvötnum í dag. Þar á meðal var Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, sem myndaði það sem fyrir augun bar. Í myndasafninu sem fylgir þessari frétt má sjá gosstrókinn frá Grímsvötnum í bland við jökulinn. 22.5.2011 15:04
Leita fjögurra ferðamanna á gossvæðinu Björgunarsveitamenn eru byrjaðir að grennslast eftir fjórum ferðamönnum sem fóru í morgun á tveimur bílum frá Höfn áleiðis að sveitabæ vestan Kirkjubæjarklausturs þar sem þeir hugðust gista en þeir hafa ekki skilað sér þangað. Björgunarsveitir aka nú veginn á milli til að kanna hvar fólkið er niðurkomið en talið er að það sé á eða við þjóðveginn, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 22.5.2011 14:57
Gestir að yfirgefa Islandia Hótel Gestir á Islandia Hótelinu að Núpum, í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur, eru að yfirgefa hótelið vegna öskufalls frá gosinu. Þau munu njóta aðstoðar björgunarsveitamanna. Viðbragðsaðilar vegna gossins voru að dreifa rykgrímum og gleraugum nú rétt í þessu þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var staddur við hótelið. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur þá sem eru í nágrenni við gosstöðvarnar til að halda sig innandyra. Þurfi þeir nauðsynlega að vera úti eru þeir hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu. 22.5.2011 14:16
Ekki búist við hlaupi Staðfest hefur verið að gosið í Grímsvötnum er í sjálfri öskjunni nærri þeim stað þar sem gaus árið 2004. Þetta kemur fram á heimasíðu veðurstofunnar. Síðast hljóp úr Grímsvötnum árið 2010 og hefur lítið vatn safnast þar saman og þunnur ís er á öskjunni. Þegar gaus á sama stað árin 1998 og 2004 urður jökulhlaup nokkru eftir að gosið hófst en ekki er talið að samsvarandi aðstæður séu uppi nú. Því er ekki búist við jökulhlaupi að því er fram kemur á heimasíðu veðurstofunnar. 22.5.2011 14:05
Föst vegna ösku - aftur Norska blaðið Aftenposten greinir frá tveimur vinkonum sem báðar sátu fastar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli fyrir rúmu ári. Önnur í New York og hin í Stokkhólmi. Nú eru ferðaplön þeirra aftur í uppnámi. Ástæðan. Þær ákváðu að skella sér í sumarfrí á Íslandi. Vinkonurnar heita Randi Roaldsnes og Karen Sofie Haraldsen. Þær eru hér ásamt þrettán vinum í skemmtiferð og hafa það bara gott - eða kjempefint, eins og segir í greininni. 22.5.2011 14:05
Fréttaskýring: Mengun sem verður að rannsaka Árið 2006 hóf Orkuveita Reykjavíkur rekstur Hellisheiðarvirkjunar sem leiddi af sér aukinn styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti á höfuðborgarsvæðinu. En hvað er brennisteinsvetni og stafar fólki ógn af auknu magni þess í andrúmsloftinu? Töluverð umræða hefur verið um möguleikann á skaðlegum áhrifum brennisteinsvetnis í gufu frá jarðhitavirkjunum allt frá því að rekstur Hellisheiðarvirkjunar hófst í október 2006. Áberandi lykt, oft kölluð hveralykt, berst í meiri mæli yfir íbúabyggðir þegar vindur stendur af þeim tveim jarðhitavirkjunum sem standa næst byggð á höfuðborgarsvæðinu, en það eru austlægar og suðaustlægar áttir. 22.5.2011 14:00
Ekkert amar að búfénaði austan við gosstöðvarnar Búfjárráðunautur heimsótti í dag bændur frá Höfn í Hornafirði og austur að Skaftafelli. Ekkert amar að búfénaði á því svæði en ekki er búið að kanna ástandið vestur af gosstöðvunum. Samkvæmt upplýsingum úr samhæfingarmiðstöð Almannavarna er svartamyrkur frá Kirkjubæjarklaustri og að Freysnesi. Verið er að vinna við að koma fólki til aðstoðar eins og hægt er og hafa allar aðgerðir gengið vel. 22.5.2011 13:44
Síminn stoppar ekki hjá upplýsingafulltrúum „Ég held að það sé vægt til orða tekið að segja að hann hringi stanslaust," segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, en upplýsingafulltrúar ýmissa fyrirtækja og stofnana hafa staðið í ströngu við að upplýsa umheiminn um stöðu mála vegna eldgossins í morgun. 22.5.2011 13:38
Ómar hefur aldrei farið eins varlega Ómar Ragnarsson segist fyllast óttablandinni virðingu fyrir gosinu í Grímsvötnum. Hann sér samt enga ástæðu til þess að loka flugvöllum. 22.5.2011 13:28
Um 200 lögreglu- og björgunarsveitarmenn að störfum Almannavarnir leggja mikla áherslu á að fólk sé ekki á ferli á svæðinu þar sem öskufall er. Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu. Um tvö hundruð lögreglu- og björgunarsveitarmenn eru nú að störfum á gossvæðinu. 22.5.2011 13:23
Brynvarðir trukkar á leið á svæðið Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu koma mikið við sögu í aðstæðum á borð við þær sem nú eru á gosstöðvunum og þeim svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitarmenn séu aðallega að aðstoða bændur á svæðinu með búfénað sinn auk þess sem þeir dreifi rykgrímum og manni lokunarpósta þar sem vegum hefur verið lokað. 22.5.2011 13:22
Gosmökkurinn 13 til 15 kílómetrar Gosmökkurinn úr gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um 13 til 15 kílómetra hæð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Mest var hæðin á mekkinum um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni og á tímabili þegar fór mökkurinn niður í 10 kílómetra. Nú um hádegið virðist gosið hafa tekið kipp. Gosórói er nokkur á svæðinu en engir stærri jarðskjálftar hafa þó mælst. 22.5.2011 13:02
Hádegisfréttatími Stöðvar 2 Hægt er að horfa á aukafréttatíma Stöðvar 2 sem fór í loftið klukkan 12 hér í fréttinni. 22.5.2011 13:01
Viðvarandi lokun getur haft alvarleg áhrif Talsmaður ferðaþjónustunnar segir að viðvarandi lokun flugvalla geti haft alvarleg áhrif á greinina. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ferðaþjónustunni hafi brugðið í brún þegar gosið hófst í gær, enda stutt síðan greinin stóð í stórræðum þegar gaus í Eyjafjallajökli í fyrra. Hún segir hins vegar að bæði stjórnvöld og Íslandsstofa hafi brugðist hratt við að koma upplýsingum til alþjóðlegra fjölmiðla. 22.5.2011 12:56
Iðnaðarráðherra innlyksa á Höfn Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra boðaði til viðbragðsfundar í ráðuneytinu klukkan hálf ellefu í morgun, en þar voru samankomnir þeir sömu og sáu um viðbrögð við síðasta gosi á opinberum vettvangi. 22.5.2011 12:31
Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður. 22.5.2011 12:23
Hótelgestir komast hvorki lönd né strönd "Hér er bara mjög leiðinlegt ástand,“ segir Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir, hótelstjóri, á Islandia Hótel að Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. "Það hefur verið mikið mistur frá því á miðnætti og núna sjáum við ekki bílana sem standa fyrir utan.“ 22.5.2011 11:32
Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús. 22.5.2011 11:12
Fjöldahjálparstöðvar opnaðar Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilinu á Klaustri og Hofgarði fyrir þá sem treysta sér til að fara á þá staði. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að hafa samband við nágranna sína og veita hver öðrum stuðning, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. Búið er að virkja hjálparsíma RKÍ 1777. 22.5.2011 10:53
Yfir tuttugu konur ákærðar Einn karlmaður og 23 konur voru í gær ákærð í Falun í Svíþjóð vegna barnakláms. Karlmaðurinn sendi konunum, sem eru á aldrinum 37 til 70 ára, myndir og myndbönd sem sýndu meðal annars börn beitt grófu kynferðislegu ofbeldi. 22.5.2011 10:45
Haldið sofandi Drengurinn sem var fluttur á gjörgæsludeild Barnaspítala Hringsins í gærdag eftir sundlaugarslys á Selfossi er enn í lífshættu. Hann er öndunarvél og haldið sofandi. 22.5.2011 10:39
Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi. 22.5.2011 10:39
Öllu flugi innanlands aflýst Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu. 22.5.2011 10:14
Blindir leita til umboðsmanns Blindrafélagið gagnrýnir harðlega úrskurð úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála um ferðaþjónustu fyrir lögblinda í Kópavogi. Bærinn segir blindan pilt eiga að njóta sams konar aksturþjónustu og aðrir fatlaðir og hafnar að taka þátt í leigbílukostnaði hans. 22.5.2011 10:00