Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Śmietnik na ulicach Reykjavíku Wielu mieszkańców z różnych obszarów Reykjavíku, skarży się z powodu śmieci leżących na chodnikach, które są rozdmuchiwane przez wiatr. 14.3.2022 13:41
Mál yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis fellt niður Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur fellt niður mál á hendur starfsmönnum yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis í kjölfar Alþingiskosninganna í september. Að minnsta kosti tveir starfsmenn yfirkjörstjórnar hafa fengið send bréf þess efnis. Þeirra á meðal Ingi Tryggvason, sem gegndi formannsstöðu, og Katrín Pálsdóttir sem sæti átti í yfirkjörstjórn. 14.3.2022 12:34
Rúta með 40 farþegum lenti utan vegar í Þrengslunum Björgunarsveitir voru kallaðar út skömmu fyrir hádegi vegna rútu sem hafnaði utan vegar í Þrengslunum en um borð voru 40 farþegar sem þurfti að aðstoða. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar segir auk þess að björgunarsveitarfólk hafi þurft að aðstoða ökumenn fleiri ökutækja á svæðinu. 14.3.2022 12:07
Pútín sagður reiður og líklegur til að stigmagna átökin Vladimír Pútín, leiðtogi Rússlands, er sagður vera reiður og pirraður og Bandaríkjamenn óttast að hann muni stigmagna átökin í Úkraínu vegna slæms gengis innrásar Rússa. Innrásin sem átti að taka nokkra daga hefur nú staðið yfir í tæpar þrjár vikur. 14.3.2022 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum höldum við áfram umfjöllun okkar um ástandið í Úkraínu. 14.3.2022 11:35
Sonur Sigga Storms kominn úr öndunarvél Sigurður Þ. Ragnarsson borgarfulltrúi og veðurfréttamaður með meiru segir stefna í kraftaverk en syni hans hefur verið haldið sofandi í tvo og hálfan mánuð vegna alvarlegrar líffærabilunar. 14.3.2022 11:31
Fær fimmtán milljónir vegna aðgerða lögreglu í fíkniefnamáli Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða manni fimmtán milljónir króna í skaðabætur vegna varanlegs miska, tímabundins atvinnutjóns og þjáninga sem hann varð fyrir af völdum aðgerða lögreglu í apríl 2010. 14.3.2022 11:14
Reykjavík í rusli Flestar endurvinnslutunnur í Reykjavík, þar sem íbúar reyna eftir föngum að safna saman pappa og plasti, eru sneisafullar enda eru vikur síðan þær hafa verið tæmdar. Það þýðir svo að óþrifalegt er orðið í höfuðborginni. 14.3.2022 10:56
Móðir og ófætt barn hennar létust í árás Rússa á fæðingarspítalann Þunguð kona og ófætt barn hennar létust á sjúkrahúsi í Mariupol eftir árás Rússa á fæðingar- og barnasjúkrahús í borginni 9. mars síðastliðinn. Þau létust bæði eftir að læknar reyndu að bjarga barninu í keisaraskurði í kjölfar árásarinnar. 14.3.2022 10:38
Engin virkni í kollagen sem ekki fæst úr hefðbundinni fæðu Vísindavefurinn birtir grein þar sem leitast er við að svara spurningunni hvort það liggi fyrir að kollagen sé eins hollt og gagnlegt og framleiðendur vilja vera láta. Svarið er: Nei. Kollagen sem fæðubótarefni er í raun algerlega sambærilegt við matarlím. 14.3.2022 10:17
Skaut þrjá heimilislausa menn í New York um helgina Lögregla í New York í Bandaríkjunum leitar nú manns sem skaut þrjá heimilislausa einstaklinga, og þar af tvo til bana, þar sem þeir lágu sofandi á götum borgarinnar um helgina. Lögregla hefur boðið 10 þúsund dali fyrir þann sem veitir upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins. 14.3.2022 08:14
Nokkuð um misheppnaðar innbrotstilraunir Nokkuð var um misheppnaðar innbrotstilraunir á höfuðborgarsvæðinu í gær ef marka má skeyti frá lögreglu. 14.3.2022 07:21
Óveður að skella á landið og appelsínugular viðvaranir Appelsínugular viðvaranir verða í gildi víða um land í dag og skellur óveðrið á um upp úr klukkan níu á Faxaflóa og Breiðafirði en skömmu síðar á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Miðhálendinu. 14.3.2022 07:15
BL hefur afhent þrjú þúsund rafbíla BL við Sævarhöfða afhenti í síðustu viku þrjú þúsundasta rafbílinn frá því að fyrirtækið hóf sölu rafbíla árið 2013. Bíllinn sem afhentur var er af gerðinni BMW iX Atelier xDrive40, sem er nýjasti fjórhjóladrifni jepplingurinn frá BMW. Bíllinn, sem hefur um 425 km drægni, er 326 hestöfl og getur dregið 2,5 tonn á dráttarkróki sem er mesta dráttargetan á rafbílamarkaðnum. 14.3.2022 07:00
Útskúfað úr ríki Guðs og standa ein eftir Ung kona sem var rekin úr söfnuði Votta Jehóva, hefur ekki fengið að hitta fjölskylduna sína í átta ár. Fyrrverandi meðlimir Vottanna lýsa gífurlegu andlegu ofbeldi eftir útskúfun, harðræði gegn börnum í söfnuðinum og hvernig það skorti fagleg úrræði og aðstoð eftir að hafa hætt í sértrúarsöfnuði. Þær kalla eftir því að ofbeldið, sem hefur verið látið viðgangast áratugum saman, hætti og að ríkið stígi inn í. 14.3.2022 07:00
Vaktin: Alþjóðadómstóllinn í Haag kynnir úrskurð á miðvikudag Átökin í Úkraínu hafa nú borist af alvöru til höfuðborgarinnar Kænugarðs en tveir létust og þrír særðust þegar fallbyssuskot hitti fjölbýlishús í norðurhluta borgarinnar í morgun. Eldur kviknaði í byggingunni en flestum var bjargað. 14.3.2022 06:54
Viðræður Úkraínumann og Rússa halda áfram og Bandaríkjamenn biðla til Kínverja Fulltrúar Úkraínu og Rússlands munu ræða saman í dag í gegnum fjarfundabúnað, segir Mykhailo Podoliak, ráðgjafi Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Talsmenn beggja þjóða hafa sagt eitthvað orðið ágengt, jafnvel þótt engar vísbendingar séu uppi um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé reiðubúinn til að slá af kröfum sínum. 14.3.2022 06:32
Birgir fann vel fyrir sprengingunni við Lviv Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var við hjálparstörf í borginni Lviv í Úkraínu í dag. Stór eldflaugaárás var gerð á herstöð nærri borginni í morgun og kveðst Birgir vel hafa fundið fyrir henni. Hann er nú kominn til Póllands og segir ástandið átakanlegt. 13.3.2022 22:46
102 ára ljóðskáld á Eyrarbakka Þrátt fyrir að Guðrún Valdimarsdóttir á Eyrarbakka sé orðinn 102 ára þá lætur hún ekki deigan síga þegar ljóð og kvæði eru annars vegar því hún þylur þau öll upp af mikilli innlifun. Hún segist ekkert finna fyrir því að vera orðin svona gömul. 13.3.2022 21:04
Rússar hafi beðið Kínverja um aðstoð Bandarískir embættismenn segja Rússa hafa beðið Kínverja um hernaðargögn frá upphafi innrásar Rússa inn í Úkraínu. 13.3.2022 20:15
Tæplega þrjú þúsund vildu undanþágu frá sóttvarnatakmörkunum Heilbrigðisráðherra hafa borist tæplega 3.000 fyrirspurnir og beiðnir um undanþágur frá samkomutakmörkunum síðan í febrúar 2020. Ráðherra segir að fjöldinn endurspegli ekki þann sem raunverulega fékk undanþágur frá reglunum. 13.3.2022 19:32
Engin úrræði fyrir þolendur ofbeldis og útskúfunar í ríkisstyrktum trúfélögum Engin fagleg úrræði eru til staðar fyrir fólk sem hættir í sértrúarsöfnuðum á Íslandi og segja margir fyrrverandi meðlimir að mikil þörf sé á slíku. Þingmaður segir skorta eftirlit með starfsemi trúarhreyfinga og að sóknargjöld séu barn síns tíma. Fyrrverandi meðlimir Votta Jehóva lýsa andlegu ofbeldi eftir útskúfun og harðræði gegn börnum í söfnuðinum. 13.3.2022 19:31
Bílvelta á Krýsuvíkurvegi Bílvelta varð á Krýsuvíkurvegi laust eftir klukkan 15 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu slasaðist enginn. 13.3.2022 19:02
Uggandi yfir nálægð herstöðvarinnar við NATO-ríki Rússar skutu á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun. Yfir 35 létust og 134 særðust í árás Rússa en herstöðin er aðeins 25 kílómetrum frá landamærum Póllands. 13.3.2022 18:26
Ógnarstórum höglum rigndi yfir íbúa í Vestmannaeyjum Gríðarlega stórum höglum rigndi yfir íbúa í Vestmannaeyjum í miklum éljagangi skömmu eftir klukkan 17 í dag. Veðurfræðingur segist aldrei hafa séð jafnstór högl hér á landi. 13.3.2022 18:13
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Á fjórða tug létust í árás Rússa á herstöð við landamæri Úkraínu og Póllands. Rússar fikra sig hægt og rólega nær Kænugarði. Páfinn bað Rússa í dag um að hætta árásum sínum, í nafni Guðs. 13.3.2022 18:01
Garðabæjarlistinn samþykkir framboðslista Garðabæjarlistinn samþykkti einróma framboðslista til sveitarstjórnarkosninga á félagsfundi fyrr í dag. Listinn er sameiginlegt framboð Vinstri Grænna, Samfylkingarinnar, Pírata auk annarra óháðra einstaklinga. 13.3.2022 17:20
Íslenskir dýralæknanemar hafa safnað milljónum króna fyrir flóttafólk Íslenskir dýralæknanemar í Slóvakíu standa fyrir söfnun fyrir úkraínskt flóttafólk í landinu og á landamærum úkraínu og Slóvakíu. Þegar hafa safnast ríflega fimm milljónir króna sem nemarnir hafa varið í ýmsar nauðsynjavörur, til að mynda hráefni í heimagerðar samlokur. 13.3.2022 16:56
Vara við aukinni hættu á krapaflóðum Veðurstofan varar við aukinni hættu á krapaflóðum á sunnanverðu landinu á morgun vegna óveðurs. Vitað er til þess að tvö slík hafi fallið á dögunum. 13.3.2022 16:15
Helgi Hlynur leiðir lista Vinstri grænna í Múlaþingi Helgi Hlynur Ásgrímsson leiðir framboðslista Vinstri grænna í Múlaþingi sem var samþykktur einróma á félagsfundi í dag. 13.3.2022 15:29
Segir Drífu hafa mistekist og spyr hvort ASÍ sé barn síns tíma Formaður VR segir forseta Alþýðusambandsins hafa mistekist að sætta sjónarmið innan verkalýðshreyfingarinnar þar sem hann segir eitraða menningu hafa þrifist í langan tíma. Hann segir mögulegt að ASÍ sé barn síns tíma og að verkalýðshreyfingin þurfi að endurhugsa aðkomu sína að sambandinu. 13.3.2022 15:05
Bandarískur blaðamaður drepinn nálægt Kænugarði Brent Renaud, fimmtugur blaðamaður og kvikmyndagerðarmaður frá Bandaríkjunum, var drepinn skammt frá Kænugarði í dag en Renaud hafði áður starfað fyrir miðla á borð við New York Times. Hann var þó ekki að störfum fyrir miðilinn þegar hann var drepinn. 13.3.2022 14:58
Fleiri viðvaranir gefnar út og þær víða orðnar appelsínugular Appelsínugular viðvaranir hafa nú verið gefnar út vegna stormsins sem spáð er á morgun en gular viðvaranir voru upprunalega gefnar út í morgun. Viðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir alla landshluta. 13.3.2022 14:18
Söguleg kosning Ásdísar í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir var kjörin oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi með afgerandi meirihluta. Aldrei í nútímasögu flokksins hefur nýliði hlotið aðra eins kosningu. 13.3.2022 13:52
„Maður þolir illa að tapa“ Ásmundur Friðriksson þingmaður segir það vonbrigði að hafa ekki náð inn á lista í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Rangárþingi ytra, þar sem hann sóttist eftir oddvitasætinu. Hann telur ýmsar ástæður fyrir slæmu gengi sínu. 13.3.2022 13:19
Efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið þó Rússar notuðu efnavopn Prófessor í stjórnmálafræði efast um að NATO myndi blanda sér í stríðið í Úkraínu ef Rússar myndu beita þar efnavopnum. Það þyrfti meira til að NATO færi í allsherjarstríð við Rússland. 13.3.2022 13:10
Nemendur Garðyrkjuskólans biðja um hjálp Nemendur eina Garðyrkjuskóla landsins hafa verulegar áhyggjur af framtíð skólans og vilja að hann verði gerður sjálfstæður skóli að ný en í dag er hann hluti af Landbúnaðarháskóla Íslands. Í haust stendur til að færa skólann undir Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. 13.3.2022 13:03
Geir er nýr forseti Landssambands Ungmennafélaga Sambandsþing Landssambands Ungmennafélaga (LUF) fór fram laugardaginn 12. mars síðastliðinn í Hinu Húsinu þar sem fulltrúar kusu nýja stjórn. Geir Finnsson, fulltrúi Uppreisnar - Ungliðahreyfingar Viðreisnar var kjörinn forseti. 13.3.2022 12:07
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Minnst 35 eru látnir og 57 særðir eftir loftárás rússneska hersins á herstöð Úkraínumanna skammt frá landamærum Póllands. Rússar virðast nú beina sjónum sínum að því að loka fyrir aðstoð NATO-ríkjanna til Úkraínumanna. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 13.3.2022 11:51
Þrumur og eldingar á Snæfellsnesi Þrumugarðaveggur gekk yfir Snæfellsnes í morgun og ríflega tuttugu eldingar mældust með tilheyrandi þrumum. 13.3.2022 11:42
Forsetinn byrjar bingó í Kolaportinu Kolaportsmessa dagsins verður sérlega hátíðleg en sjálfur forseti Íslands mun heiðra messugesti með nærveru sinni. Að lokinni messu mun forsetinn draga fyrstu kúluna í bingói sem er sérhannað til að kenna íslensku. 13.3.2022 11:08
Íranir grunaðir um loftárás á ræðismannsskrifstofu í Erbil Um tug flugskeyta var skotið á höfuðborg Kúrda í Írak, Erbil, í gær. Bandarískir embættismenn hafa Írana grunaða um árásina en flugskeytum var meðal annars beint að nýrri ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í borginni. 13.3.2022 10:29
Vissi að lögreglan fylgdist með honum vegna dularfulls leka Maður sem grunaður er um skipulagða glæpastarfsemi segir vinnubrögð lögreglu í máli sínu yfirdrifin og til skammar. Alvarlegur gagnaleki úr lögreglu síðasta sumar kom sér vel fyrir manninn, sem á langan brotaferil að baki. 13.3.2022 10:00
Verkalýðsmál, orkuþörf þjóðarinnar, varnarmál og aðgangur kvenna að áhættufjármagni Kristján Kristjánsson hefur Sprengisand dagsins með Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR. Hann er í nýjum pistlum harðorður í garð félaga sinna í verkalýðshreyfingunni, skýtur föstum skotum á ASÍ og marga aðra en hvað vakir fyrir honum með þessu háttalagi? 13.3.2022 09:56
Á fjórða tug látnir og varnamálaráðherrann sakar Rússa um hryðjuverk Skotið var á herstöð í Yavoriv, vestan við borgina Lviv í vesturhluta Úkraínu, í morgun en úkraínsk yfirvöld segja Rússa hafa verið að verki. Samkvæmt nýjustu tölum létust 35 og 134 særðust þegar tugum flugskeyta var skotið á herstöðina, sem er innan við 25 kílómetra frá landamærum Póllands. 13.3.2022 09:52