Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Banna Elvisum í Las Vegas að gefa fólk saman Fyrirtækið sem á ímyndarréttinn af söngvaranum Elvis Presley hefur sent kapellum í Las Vegas bréf þess efnis að þær eigi að hætta að láta Elvis-eftirhermur halda hjónavígslur. Um hundrað þúsund hjónavígslur fara fram í borginni ár hvert og kemur Elvis við sögu í fjölda þeirra. 31.5.2022 23:51
Hermenn og rússneskir málaliðar tóku hundruð af lífi í Malí Hermenn og málaliðar frá Rússlandi eru sagðir hafa tekið hundruð manna af lífi í bænum Moura í Malí í mars. Hermennirnir voru að elta vígamenn sem hafa verið umsvifamiklir á svæðinu um árabil. 31.5.2022 23:10
Þingmannssonur frá Akureyri sem hóf að ryðja Teigsskóg Ungur akureyskur þingmannssonur á trjákurlara er í raun sá sem byrjaði á því að ryðja Teigsskóg. Hann er langt kominn með að hreinsa burt allt það skóglendi sem þarf að víkja vegna vegagerðarinnar. 31.5.2022 22:30
Nokkur stórmál óafgreidd fyrir þinglok Aðeins fjórir þingfundadagar eru eftir af vorþingi samkvæmt starfsáætlun þingsins og enn bíða nokkur stór ágreiningsmál í nefnd eftir lokaumræðu. Fundað verður á morgun og á fimmtudag í þessari viku. 31.5.2022 20:40
Hæstaréttarlögmaður segir tjáningafrelsið hafa þanist út Hæstaréttarlögmenn hafa ýmist hneykslast á sýknudómi héraðsdóms yfir Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni eða sagt dóminn til marks um aukið tjáningafrelsi. 31.5.2022 20:01
Fjórir sögðu upp í dag: „Við erum búin að hrópa og kalla og biðja um hjálp“ Fjórir hjúkrunarfræðingar sögðu í dag upp störfum á bráðamóttöku vegna álags. Ein þeirra segir algjört ráðaleysi í heilbrigðismálum. Manneklan sé gríðarleg og hún telur ljóst að staðan eigi eftir að versna. Heilbrigðisráðherra segir að byggja þurfi upp innviði og styðja við þá takmörkuðu auðlind sem heilbrigðisstarfsfólk er. Mikil áskorun sé þó fram undan. 31.5.2022 19:36
Enginn skellt á eftir sér hurðum í Elliðaárdalnum Oddviti Pírata í borgarstjórn segir meirihlutaviðræður við Framsóknarflokk, Samfylkingu og Viðreisn um meirihlutasamstarf ganga vel. Í dag hafi velferðarmál, mannréttindamál og húsnæðismál meðal annars verið til umræðu. Hún hafi trú á að flokkunum muni takast að leysa úr eðlilegum álitaefnum á milli flokkanna. 31.5.2022 19:20
Meirihluti myndaður í Norðurþingi Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn undirrituðu í dag málefnasamning um meirihlutasamstarf flokkanna í Norðurþingi. Flokkarnir hlutu samtals fimm fulltrúa af níu í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. 31.5.2022 18:40
Rannsakandi Trumps beið afhroð Lögmaður sem tengist Demókrataflokknum var í dag sýknaður af ásökunum um að ljúga að rannsakendum Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI. Michael Sussmann var ákærður vegna rannsóknar Johns Durham á uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu sem Robert Mueller stóð að. 31.5.2022 18:38
„Draugagangur“ varð til þess að Guðni Th. birtist á sjónvarpsskjáum Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, voru báðar merktar sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, þegar þær voru í ræðustól í umræðum á Alþingi í dag. 31.5.2022 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hjúkrunarfræðingur sem sagði upp störfum á bráðamóttöku vegna álags segir algjört ráðaleysi í heilbrigðismálum hér á landi. Manneklan sé nú gríðarleg og viðbúið að staðan versni. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að bæta kjör og aðbúnað. 31.5.2022 18:05
Hækkunin er sú mesta frá hruni Á einu ári hefur fasteignamat húsnæðis hækkað um nærri tuttugu prósent. Hækkunin er sú mesta frá hruni. Forseti ASÍ segir á ábyrgð sveitarfélaga að hækkun fasteignamats verði ekki til að rýra kjör almennings. 31.5.2022 17:47
Apabóla greinist í Noregi Norskur ríkisborgari greindist í dag með apabólu eftir ferðalag í Evrópu. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist í Noregi. 31.5.2022 17:34
Hundrað manns látnir eftir regnstorm í norðaustur Brasilíu Tala látinna er komin upp í hundrað eftir regnstorm sem hrinti af stað flóðum og aurskriðum við borgina Recife í norðaustur Brasilíu. 31.5.2022 17:25
130 milljarða halli á ríkissjóði Afkoma ríkissjóðs var neikvæð um 130 milljarða króna í fyrra samanborið við 144 milljarða króna halla árið 2020. Ber hún þess merki að hagkerfið hafi enn verið að ná sér á strik eftir heimsfaraldur Covid-19 en afkoman var betri en áætlað var. 31.5.2022 16:18
Hyggjast banna sölu og innflutning á skammbyssum Ríkisstjórn Kanada, undir forystu Justin Trudeau forsætisráðherra, kynnti á mánudag nýja löggjöf sem bannar innflutning, sölu og kaup á skammbyssum. Búist er við því að lagafrumvarpið verði samþykkt í haust. 31.5.2022 15:50
Tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot Karlmaður sem hlaut tveggja ára fangelsisdóm fyrir stórfellt fíkniefnabrot þarf að afplána dóminn eftir að Landsréttur taldi ekki rétt hjá héraðsdómi að skilorðsbinda refsinguna. Þá var sýknu hans af ákæru um peningaþvætti snúið við. 31.5.2022 15:27
Sökk vegna fannfergis í miklu snjóveðri Talið er að báturinn Sigursæll KÓ 8 hafi sokkið í Hafnarfjarðarhöfn í febrúar vegna mikils fannfergis. 31.5.2022 14:40
Flugfreyjufélagið og Niceair gera með sér kjarasamning Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og hið akureyrska flugfélag Niceair hafa gert með sér kjarasamning fyrir flugfreyjur og -þjóna félagsins. 31.5.2022 14:30
Willum Þór að missa lykilleikmenn úr liðinu Hart var sótt að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á þinginu nú rétt í þessu, undir liðnum „störf þingsins“ vegna ófremdarástands á bráðamóttökunni. Helga Vala Helgadóttir reyndi að ná til ráðherra með líkingarmáli sem hún ætlar að hann skilji. 31.5.2022 14:05
Fasteignamat tekur mikið stökk á milli ára Þjóðskrá hefur gefið út fasteignamat fyrir árið 2023. Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9 prósent á milli ára, sem er umtalsvert meiri hækkun á milli ára en undanfarin ár. 31.5.2022 13:33
Lítil hrifning yfir nýrri landsliðstreyju: „Eins og úr lagerverslun á Tene“ Svo virðist sem að fáir séu hrifnir af nýrri landsliðstreyju Knattspyrnusambandsins sem fumsýnd var í gær. Puma hannaði treyjuna en KSÍ gerði samning við þýska íþróttavörurisann til sex ára árið 2020 og mun fyrirtækið því hanna nokkrar treyjur í viðbót fyrir landsliðin. 31.5.2022 13:12
ESB leitar leiða til að koma milljónum tonna af korni frá Úkraínu Leiðtogar Evrópusambandsins reyna í dag að finna leiðir til að koma rúmlega tuttugu milljón tonnum af korni frá Úkraínu sem Rússar hafa komið í veg fyrir að flutt yrðu út. Í gær náðist samkomulag um að Evrópusambandsríkin drægju úr innflutningi á olíu frá Rússlandi um 90 prósent fyrir áramót. 31.5.2022 13:11
„Fólk fer heim af vaktinni með nagandi samviskubit og eftirsjá“ Fyrrverandi yfirlæknir á bráðamóttökunni segir fregnir af uppsögnum starfsmanna vegna viðvarandi álags á bráðamóttöku mjög sorglegar. Lengi hafi verið látið vita af miklu álagi og með vaxandi flótta frá deildinni verði ástandið sífellt erfiðara. Hægt sé að bæta úr vandanum en til þess þurfi fjármagn og tíma. 31.5.2022 13:00
Farþegi rifbeinsbrotnaði á landgöngubrú Hríseyjarferjunnar Farþegi í Hríseyjarferjunni Sævari rifbeinsbrotnaði á landgöngubrú ferjunnar eftir að hnykkur kom á hana þegar verið var að hífa fiskikör í land í höfninni á Árskógssandi. 31.5.2022 12:55
Nadeszła pora deszczowa Najnowsze prognozy pogody Islandzkiego Biura Meteorologicznego pokazują, że na południu i zachodzie kraju przez najbliższe kilka dni można spodziewać się deszczowej pogody. 31.5.2022 12:51
Nowa kontrola w porcie Skarfabakki W porcie Skarfabakki zainstalowano nowe urządzenia do odprawy podróżnych, podobne do tych jakie są na lotnisku. 31.5.2022 12:49
Leigubílstjórinn undrast upptöku fimmtíu ára gamals máls Skýrslur voru ekki teknar af ökumanni og farþega í bíl, sem valt á Óshlíðarvegi árið 1973 með þeim afleiðingum að annar farþeginn lést, fyrr en tveimur og þremur mánuðum eftir slysið. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu sem fréttastofa hefur undir höndum. Bílstjórinn segir það ekki standast, ekki hafi liðið nema nokkrir dagar þar til skýrsla hafi verið tekin af honum. 31.5.2022 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á bílslysi sem varð á Óshlíðarvegi árið 1973 þar sem ungur maður lét lífið. 31.5.2022 11:39
Reykjanesbær braut ekki á mannréttindum hjólagarpsins Arnars Reykjanesbær braut ekki á mannréttindum Arnars Helga Lárussonar vegna slæms aðgengis fatlaðra að Duushúsinu og 88-húsinu í bænun. 31.5.2022 11:32
Tókst að bjarga Sindra GK í Sandgerðishöfn Slökkvilið á Suðurnesjum var kallað út eftir að tilkynnt var um að báturinn Sindri GK væri að sökkva í Sandgerðishöfn í gærkvöldi. Tókst þeim að dæla sjó úr bátnum og koma þannig í veg fyrir að báturinn sykki. 31.5.2022 11:32
Áætlað verðmæti þýfisins 43 milljónir króna Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrítugan karlmann í átján mánaða fangelsi fyrir fjölda þjófnaðar- og fíkniefnabrota. Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir 28 þjófnaðarbrot þar sem áætlað verðmæti alls þýfisins nam ríflega 43 milljónum króna. 31.5.2022 11:18
Fundu fjölda ganga undir ævafornu hofi í Andesfjöllum Hópur fornleifafræðinga fann net ganga undir Chavín de Huantar-hofinu í Andesfjöllunum í Perú. Hofið sjálft er talið meira en þrjú þúsund ára gamalt en gangarnir enn eldri. 31.5.2022 10:32
Leita svara um hæg viðbrögð lögreglunnar í Uvalde Rannsókn bandaríska dómsmálaráðuneytisins er sögð geta varpað ljósi á hvers vegna lögreglumenn biðu í klukkustund áður en þeir létu til skarar skríða gegn byssumanni sem myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í síðustu viku. Byrjað var bera fyrstu fórnarlömbin til grafar í gær. 31.5.2022 09:30
„Fyrir mitt leyti eru engin tímamörk í þessu“ Oddviti Framsóknarflokksins segir viðræður Framsóknarflokks, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar um málefnasamning ganga ágætlega. Það væri ekkert tiltökumál þótt viðræður klárist ekki fyrir fyrsta borgarstjórnarfund nýs kjörtímabils hinn 7. júní. 31.5.2022 08:01
Kveikt í bíl í Hafnarfirði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út þegar tilkynnt var um mikinn reyk sem lagði frá bíl við Gjáhellu í Hafnarfirði í gærkvöldi. 31.5.2022 07:38
Taívanir bregðast við flugi kínverskra herflugvéla Taívanir segjast hafa sent orrustuþotur á loft til að stugga við þrjátíu kínverskum herflugvélum sem höfðu farið inn fyrir lofthelgi eyjunnar í gær. 31.5.2022 07:28
Öflugasti fellibylur til að ná landi í maímánuði Fellibylurinn Agatha komst á spjöld sögunnar í gærkvöldi sem öflugasti fellibylur sem nokkurn tímann hefur náð landi í maímánuði, að sögn fellibyljamiðstöðvar Kyrrahafsins. 31.5.2022 07:22
Sólskinsveðrinu lokið í bili og vætutíð framundan Nú er sólskinsveðrinu lokið, í bili að minnsta kosti, og vætutíð framundan sunnan- og vestanlands. 31.5.2022 07:13
Vopnaleit og vegabréfaeftirlit á Skarfabakka Aðstöðu sem svipar til flugstöðvar hefur verið komið fyrir á Skarfabakka. Ástæðan er sú að farþegaskipti verða á skemmtiferðaskipum sem kallar á vopnaleit og vegabréfaeftirlit. Von er á 200 þúsund farþegum til landsins með skemmtiferðaskipum í sumar. 31.5.2022 07:01
Myndband: Mismunadrif útskýrt Mismunadrif er eitt af þessu sem margt fólk telur sig nú vita hvernig virkar, en margir eru í erfiðleikum með að útskýra fyrir öðrum. Eitthvað snýst á meðan annað er ekki að snúast, ekki jafn hratt hið minnsta. Myndband frá 1937 sem finna má í fréttinni er notað til að útskýra mismunadrif. 31.5.2022 07:00
Vaktin: Rússar að endurtaka fyrri mistök Hersveitir Rússa stjórna orðið um sjötíu prósentum af borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Harðir bardagar geysa í borginni og ríkisstjóri Luhansk segir að sigur Rússa þar gæti reynst þeim mikilvægur táknrænn sigur, þó að hernám Severodonetsk þjóni ekki miklum taktískum tilgangi. 31.5.2022 06:39
Gröfustjórinn segir að passa verði hverja þúfu í Teigsskógi Ein umdeildasta vegagerð landsins, lagning vegar um Teigsskóg, hófst í dag, nítján árum eftir að tillaga um þessa veglínu var fyrst kynnt. Þessi ellefu kílómetra vegarkafli á að verða tilbúinn í október á næsta ári. 30.5.2022 23:23
Grófu upp líkamsleifar til að skoða fimmtíu ára mál Líkamsleifar sem Lögreglan á Vestfjörðum gróf upp fyrir helgi eru af manni sem mun hafa farist í bílslysi á Óshlíðarvegi árið 1973. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson fannst látinn við bíl sem átti að hafa oltið niður af veginum en verið er að rannsaka hvort Kristinn hafi mögulega dáið með öðrum hætti. 30.5.2022 23:13
Þyrlan send til Eyja vegna þoku í Reykjavík Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt til að annast sjúkraflutning frá Vestmannaeyjum þar sem flugvél gat ekki sinnt útkallinu vegna þokunnar sem lá yfir Reykjavík í nótt. 30.5.2022 23:13