Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bresk stjórnvöld eyddu háum fjárhæðum í gallaðan hlífðarbúnað Bresk stjórnvöld ætluðu að brenna hlífðarbúnað að andvirði fjögurra milljarða punda sem var ýmist gallaður eða stóðst ekki kröfur stjórnvalda. Þetta segir eftirlitsnefnd breska þingsins um ríkisútgjöld sem kannar nú hvernig stendur á því að ríkið hafi eytt eins miklu og raun ber vitni í ónothæfan búnað. 13.6.2022 16:30
Więcej zgłoszeń dotyczących zmarłych ptaków Islandzki Urząd ds. Żywności i Weterynarii (MAST) otrzymuje liczne doniesienia o martwych dzikich ptakach, które umierają najprawdopodobniej z powodu ptasiej grypy. 13.6.2022 15:54
Fjármálaáætlun og aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar teknar fyrir á þinginu Alls voru 23 mál á dagskrá þingsins í dag en tólf mál stóðu eftir klukkan þrjú, þar á meðal umræða um fjármálaáætlun næstu fimm ára og fjáraukalög 2022. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í nokkurn tíma en aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar verða einnig til umræðu. 13.6.2022 15:45
Fyrstu gæludýr úkraínskra flóttamanna koma til landsins í dag Tekið verður á móti tveimur hundum á nýrri einangrunarstöð Matvælastofnunar á Kjalarnesi í dag. Hundarnir tveir eru fyrstu gæludýrin í eigu flóttafólks frá Úkraínu sem tekið er á móti en von er á fleiri dýrum á komandi vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu Matvælastofnunar í dag. 13.6.2022 15:08
Strætisvagn ók á gangandi vegfaranda Ökumaður strætisvagns ók á gangandi vegfaranda á Sæbraut í Reykjavík fyrr í dag. Að sögn slökkviliðs hlaut vegfarandinn tvo skurði á höfði og var fluttur á slysadeild. Hann hafi að öðru leyti borið sig vel. 13.6.2022 15:05
Enn að eiga við Covid-19 Enn er dálítill fjöldi að greinast með Covid og segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Covid ekki lokið. Nú séu það mest ferðamenn sem greinist, þá sérstaklega þau sem fari til Bandaríkjanna. Hann telur það þó geta breyst þar sem ekki er lengur þörf á því að sýna fram á neikvætt PCR-próf á leið þangað. 13.6.2022 14:37
Segir umræðuna á samfélagsmiðlum ósanngjarna Leikkonan Amber Heard segir að samfélagsmiðlar hafi leikið sig grátt varðandi réttarhöld í meiðyrðamáli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni. Hún var nýverið dæmd til að greiða Depp tæpa tvo milljarða króna í skaðabætur. 13.6.2022 14:32
Volkswagen sótt til saka fyrir þrælahald í Brasilíu Stjórnvöld í Brasilíu hafa gefið út ákæru á hendur þýska bílaframleiðandandum Volkswagen fyrir að hafa um langt árabil haldið fólki í þrælkun á stórum búgarði sem fyrirtækið átti og rak í Brasilíu. Þeir sem reyndu að flýja þrælkunina voru oft og iðulega drepnir. 13.6.2022 14:31
Telja fullvíst að viðvörunin hafi verið villuskilaboð Í nótt var rauðu neyðarstigi lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna farþegaþotu PLAY sem var að koma inn til lendingar. Kerfi vélarinnar sendi viðvörun um að vandamál væri með varaeldsneyti en forsvarsmenn telja fullvíst að um villu hafi verið að ræða. Til stóð að sama vél færi til Parísar í dag en fluginu hefur verið frestað til morguns því verið er að ganga úr skugga um að ekkert sé að vélinni. 13.6.2022 14:25
Fjöldi tilkynninga vegna dauðra fugla Matvælastofnun eru enn að berast fjölmargar tilkynningar um dauða villtra fugla vegna fuglaflensunnar. 13.6.2022 13:59
Bolsonaro fetar slóðir Trumps Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur ítrekað mælst með minna fylgi en mótframbjóðandi sinn í komandi kosningum. Þrátt fyrir það hefur hann ítrekað haldið því fram að muni hann tapa kosningunum í október, verði það vegna umfangsmikils kosningasvindls. Nú virðist forsetinn hafa fengið herinn með sér í lið. 13.6.2022 13:58
Skima milljónir eftir hópsmit á skemmtistað Allir íbúar Chaoyang-hverfisins í Peking verða skimaðir eftir að Covid-19 hópsmit kom upp á skemmtistað í hverfinu. Íbúar hverfisins eru rúmlega þrjár milljónir talsins. 13.6.2022 12:47
Segir viðbúið að fleiri greinist en óttast ekki sprengingu Þriðja tilfelli apabólunnar hefur nú greinst hér á landi en sóttvarnalæknir segir viðbúið að fleiri tilfelli komi upp. Fyrstu tvö sýnin hafa ekki enn verið send út til greiningar þar sem apabóla er í flokk með sýkingavöldum sem gætu nýst í hernaði og sendingar bundnar ströngum reglum. Vonir eru bundnar við að hægt verði að senda þau út í dag. 13.6.2022 12:17
Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. 13.6.2022 12:17
Czerwony alarm na lotnisku w Keflavik Wczoraj wieczorem ogłoszono czerwony alarm na lotnisku. Powodem były problemy na pokładzie samolotu, który przyleciał z Malagi. 13.6.2022 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni en þriðja tilfelli apabólunnar kom upp hér á landi um helgina. 13.6.2022 11:37
NATO æfir kafbátahernað við Íslandsstrendur Herskip frá sex NATO-ríkjum taka þátt í kafbátaleitaræfingu sem fram fer í Norður-Atlantshafi næstu tíu daga. Æfingin fer að mestu leyti fram á hafsvæðinu við Noreg en að hluta til innan þess loftrýmissvæðis sem Ísland annast. 13.6.2022 11:33
Mývetningar tilheyra nú Þingeyjarsveit Sameinað sveitarfélag Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar hefur hlotið heitið Þingeyjarsveit. Þetta var ákveðið á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar en meirihluti þátttakenda valdi heitið í ráðgefandi skoðanakönnunum sem gerðar voru meðal íbúa. 13.6.2022 11:02
Blíðviðri og ekkert lúsmý Sólin kemur til með að leika við Austfirðinga næstu dagana ef veðurspár ganga eftir. Blíðu á Austurlandi fylgja jafnan margir gestir á tjaldsvæðum á svæðinu og er því undirbúningur á fullu á tjaldsvæðunum í Atlavík og Höfðavík. 13.6.2022 10:44
MeToo-bylgja skellur á skipverjum í Danmörku og Svíþjóð Fjöldi kvenna sem vinna á sjó í Danmörku og Svíþjóð hafa greint frá kynferðislegu ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir við störf sín. Starfsmaður Maersk í Danmörku var beðin um að ræða sjálf við meintan geranda sinn til að leysa mál þeirra. 13.6.2022 10:42
Þriðja tilfelli apabólu greinist á Íslandi Á laugardaginn greindist þriðja apabólusmitið hér á landi. Um er að ræða karlmann á miðjum aldri sem búsettur er á höfuðborgarsvæðinu. 13.6.2022 09:28
Aflýstu flugi tuttugu mínútum fyrir áætlaða brottför Flugi flugfélagsins Play frá Keflavík til Gautaborgar var aflýst í morgun, tuttugu mínútum fyrir brottför. 13.6.2022 08:30
Sterkt bandalag vinstriflokka ógnar meirihluta Macron Miðjubandalag Emmanuels Macron Frakklandsforseta og bandalag vinstri flokka sem leitt er af Jean-Luc Mélenchon virðast nær hnífjöfn eftir fyrstu umferð frönsku þingkosninganna sem fram fóru í gær. 13.6.2022 08:01
Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. 13.6.2022 07:45
Hefur nú setið á valdastóli næstlengst allra þjóðhöfðingja Elísabet II Englandsdrottning hefur nú setið á valdastóli næstlengst allra þjóðhöfðingja í mannkynssögunni. Frá og með deginum í dag hefur nú verið drottning í sjötíu ár og 127 daga, en einungis Loðvík XIV, konungur Frakklands á sautjándu og átjándu öld, sat lengur á valdastóli eftir að hafa tekið við krúnunni fjögurra ára gamall. 13.6.2022 07:37
Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. 13.6.2022 07:13
Væta um landið sunnan- og vestanvert en þurrt norðaustantil Veðurstofan spáir suðlægum áttum og vætu um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustantil. 13.6.2022 07:13
ESB heldur sig við bensín- og díselbíla bann Nýlega kaus Evrópuþingið um að halda áætlun um bann við sölu bensín og dísel bíla frá og með árinu 2035. Upprunalega plön um bannið voru kynnt í júlí í fyrra og hafa þau nú verið staðfest. 13.6.2022 07:01
Þrír handteknir fyrir ógnandi framkomu og hótanir Þrír menn voru handteknir af lögreglu í nótt á þremur ólíkum stöðum og vistaðir í fangageymslu fyrir ógnandi framkomu og hótanir. Fyrst var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í Hafnarfirði sem var mjög æstur og hafði verið að ógna fólki. Lögregla handtók hann og setti í fangaklefa sökum ástands. 13.6.2022 06:47
Rautt neyðarstig á Keflavíkurflugvelli í nótt Lýst var yfir rauðu neyðarstigi á Keflavíkurflugvelli í nótt þegar farþegaþota á leið frá Malaga til Keflavíkur lenti í vandræðum. Vélin lenti í Keflavík klukkan rúmlega hálf tvö í nótt og neyðarstigi aflétt í kjölfarið. 13.6.2022 06:16
Miðjubandalag Macrons með flest þingsæti eftir fyrstu tölur Fyrri umferð þingkosninga fór fram í Frakklandi í dag. Miðjubandalag Emmanuels Macron Frakklandsforseta leiðir eftir fyrstu tölur með 25,2 prósent atkvæða en flest spáð þingsæti. Bandalag vinstri flokka fylgir fast á hæla miðjuflokkanna með 25,6 prósent atkvæða en öllu færri spáð þingsæti en bandalag Macrons. 12.6.2022 23:50
Mögnuð upplifun á Skrímslasetrinu á Bíldudal Það er mögnuð upplifun að koma inn í Skrímslasetrið í Bíldudal því þar er hægt að sjá sjóskrímsli, sem hafa lifað með þjóðinni í gegnum aldirnar, auk þess að fræðast um sögu skrímslanna. Fjörulalli reyndi meðal annars að lokka ófrískar konur með sér í sjóinn. Magnús Hlynur leit við á safninu. 12.6.2022 22:12
Fólki verði frjálst að semja um tæknifrjóvgun að öllu leyti Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að fólki verði gefið rúmt samningsfrelsi þegar kemur að tæknifrjóvgun. Á dögunum greindi kona frá því að kynfrumum látins eiginmanns hennar hafi verið eytt, þvert á vilja þeirra beggja. Frumvarpi um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun er ætlað að girða fyrir slík atvik. 12.6.2022 21:42
Mannréttindi og mannslíf mikilvægari en „pólitískar fantasíur gamals manns“ Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Rússneskir ríkisborgarar komu saman við rússneska sendiráðið til að mótmæla valdastjórn Pútíns í tilefni dagsins en sterkustu vopnin eru á þessum tíma orðin. 12.6.2022 21:20
Furðar sig á afstöðu Vinstri grænna: „Þetta er hrikaleg afturför“ Fyrrverandi umhverfisráðherra Samfylkingarinnar í stjórn með Sjálfstæðisflokknum segir breytingar í nýrri rammaáætlun mikla afturför og telur ljóst að Vinstri græn hafi verið beitt þrýstingi. Þingflokksformaður Vinstri grænna reiknar með að rammáætlun verði samþykkt á Alþingi þrátt fyrir andstöðu innan flokksins. 12.6.2022 19:32
María er fundin María Bjarnadóttir, sem leitað var frá um klukkan 10 í morgun, er komin í leitirnar heil á húfi. 12.6.2022 19:21
Miklar tafir á Borgarfjarðarbrú vegna elds í bíl Eldur komst í bíl á Borgarfjarðarbrú með þeim afleiðingum að umferð suður um Borgarnes nánast stöðvaðist. Bílaröð náði langt upp fyrir Borgarnes. 12.6.2022 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í kvöldfréttum Stöðvar 2 gagnrýnir Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra áætlanir stjórnarflokkanna varðandi rammaáætlun þrjú. Stjórnarandstaðan fékk fyrst að sjá endanlegt álit meirihlutans á föstudag en afgreiða á áætlunina ásamt fjölmörgum öðrum málum fyrir þinghlé á fimmtudag. 12.6.2022 18:01
Umferðin gengur hægt en gengur þó Umferðin frá hátíðarsvæðinu á Granda hefur gengið hægt í dag. Hún hefur gengið hægast yst á tanganum á meðan bílastæði innar hafa verið að tæmast. 12.6.2022 16:27
Komust að samkomulagi um herta byssulöggjöf Hópur öldungadeildarþingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjaþings hafa komist að samkomulagi um drög að nýju frumvarpi varðandi byssueign. Enn á eftir að skrifa frumvarpið en líklegt þykir að stuðningur sé við samkomulagið í öldungadeildinni. 12.6.2022 15:52
Veitti innsýn í lífið í Rússlandi þessa dagana Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segir að í Moskvu gangi lífið sinn vanagang fyrir íbúa borgarinnar. Þó sé ljóst að viðskiptaþvinganir bíti og að eftirlit með borgurum hafi verið hert. 12.6.2022 15:03
„Við munum ekki hika við að berjast“ Wei Fenghe, varnarmálaráðherra Kína, gagnrýndi Bandaríkin harkalega í ræðu sem hann hélt á öryggisráðstefnu Asíu- og Kyrrahafsríkja í Singapúr í morgun. Hann sakaði Bandaríkin um að reyna að halda aftur af framþróun Kína og einangra landið. 12.6.2022 15:01
Ætla að leyfa kannabis í lækningaskyni Allt bendir til þess að notkun kannabis í lækningaskyni verði innan skamms leyfð á Spáni, en það er nú þegar leyft í tæplega helming ríkja Evrópusambandsins. Læknir sem styður lögleiðingu slíkra lyfja segir algerlega fáránlegt að afstaða fólks til þessa lyfs skuli fara eftir því hvort það sé hægri- eða vinstrisinnað. 12.6.2022 14:30
Varð fyrir geimgrjóti og skemmdist lítillega Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, opinberuðu í vikunni að James Webb geimsjónaukinn varð nýverið fyrir smáu geimgrjóti sem skemmdi einn af speglum hans. Skemmdirnar eru þó sagðar koma lítið niður á gæðum mynda spegilsins. 12.6.2022 14:01
Forsetinn varð sjóveikur um borð í Óðni Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að sjóferð með varðskipinu Óðni frá Reykjavíkur til Grindavíkur í gær hafi verið kaflaskipt. 12.6.2022 13:27