Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björg tekur við af Flosa hjá Starfsgreinasambandinu Björg Bjarnadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og mun hefja störf 1. október næstkomandi. Alls bárust þrettán umsóknir um stöðu framkvmædastjóra. Björg tekur við starfinu af Flosa Eiríkssyni, sem hefur sinnt starfinu frá árinu 2018. 27.7.2022 15:53
Dómsmálaráðuneytið rannsakar aðild Trumps að áhlaupinu á þinghúsið Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur til rannsóknar aðild Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta að tilraunum til að snúa við niðurstöðu forsetakosninganna þar í landi árið 2020. Alríkissaksóknarar eru sagðir hafa spurt vitni beint út í hegðun forsetans fyrrverandi í tengslum við málið. 27.7.2022 15:40
Skipafélög fara sér hægt við að hefja kornútflutning frá Úkraínu Skipafélög eru varkár varðandi útflutning á korni frá Úkraínu sem enn hefur ekki hafist þrátt fyrir samkomulag Rússa og Úkraínumanna fyrir milligöngu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Rússar hafa í tvígang gert loftárásir á Odessa eftir að samkomulagið var undirritað og siglingaleiðir eru krökkar af tundurduflum. 27.7.2022 15:22
Höfundur Gaia-kenningarinnar er látinn Breski vísindamaðurinn James Lovelock sem þekktastur er fyrir Gaia-kenninguna lést í gær. Hann fæddist þann 26. júlí árið 1908 og lést því á 103 ára afmælisdaginn. 27.7.2022 14:50
Mjög sérstök framkoma að greiða ekki laun fyrir helgina Formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu segir það mjög sérstaka framkomu af hálfu Fjársýslu ríkisins ef rétt reynist að hún hafi brugðið frá venjunni með því að greiða ekki út laun fyrr en fyrsta virka dag mánaðar. Forstöðumaður mannauðs- og launasviðs Fjársýslu ríkisins segir stofnunina ávallt hafa greitt laun með sama fyrirkomulagi. 27.7.2022 14:24
Ekki meiri uppbygging utan höfuðborgarinnar síðan 2008 Fleiri íbúðir hafa ekki verið í byggingu utan höfuðborgarsvæðisins síðan árið 2008. Uppbyggingin er þar af mest á Suðurlandi þar sem meira en 1.100 íbúðir eru nú í byggingu og hafa aldrei verið fleiri. 27.7.2022 14:15
Askja może szykować się do wybuchu W ciągu ostatniego roku, naukowcy zarejestrowali regularne unoszenie się ziemia wokół wulkanu Askja. Od tego czasu ziemia uniosła się o 35 centymetrów. 27.7.2022 14:13
Netþrjótarnir þaulskipulagðir í Landsbanka-svikum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með röð netglæpa til rannsóknar en óprúttnir aðilar hafa á undanförnum vikum sett upp skuggavefsíður, sem líkjast meðal annars heimasíðu Landsbankans, sem eru til þess gerðar að ræna peningum af fólki. 27.7.2022 13:40
Árásargjarni apinn fundinn og drepinn Heimamenn í borginni Yamaguchi í Japan höfðu uppi á apa, sem hafði ráðist á tæplega fimmtíu manns í borginni, og drápu hann. Talið er að aðrir apar úr hóp hans séu þó enn lausir og hafa árásir haldið áfram eftir að apinn var drepinn. 27.7.2022 13:34
Bryggja í Reykhólahöfn gaf sig og hrundi í sjóinn Stór hluti bryggju Reykhólahafnar gaf sig og hrundi í sjóinn í morgun. Framkvæmdir stóðu yfir við höfnina en að sögn sveitarstjóra mun Vegagerðin framkvæma bráðabirgðaviðgerð nú upp úr hádegi. Hún segir heppilegt að höfnin hafi hrunið um nótt en vitað var að úrbóta væri þörf. 27.7.2022 13:07
Oskarżony o usiłowanie zabójstwa W Sądzie Okręgowym w Reykjaviku zostanie dziś rozpatrzona sprawa dziewiętnastoletniego mężczyzny, który został oskarżony o usiłowanie zabójstwa. 27.7.2022 13:02
Þúsundir kúa flattar út og urðaðar með rusli eftir að hafa drepist úr hita Þúsundir nautgripa sem drápust vegna hitabylgju í Bandaríkjunum í júní voru urðaðir í landfyllingu í Kansas. Rotnandi hræin voru fyrst flött út með þungavinnuvélum áður en þau voru urðuð með almennu rusli. 27.7.2022 12:19
Búin að tilkynna skemmdarverkin á hinsegin fánanum til lögreglu Grafarvogskirkja hefur tilkynnt skemmdarverk sem gerð voru á hinsegin fána fyrir framan kirkjuna til lögreglu. Krotað hefur verið í tvígang yfir regnbogann á seinustu dögum sem er ætlað að vera til marks um samstöðu með réttindabaráttu hinsegin fólks. 27.7.2022 12:18
W Reykjaviku taniej jest zaparkować odrzutowiec niż samochód Za pięciodniowy parking w centrum Reykjaviku zapłacić trzeba 39 000 isk. 27.7.2022 12:16
Búist við áframhaldandi landrisi Landris við Öskju mælist nú mest um 35 sentimetrar. Náttúruvársérfræðingur segir að búist sé við áframhaldandi landrisi sem geti endað með eldgosi og er óvissustig almannavarna í gildi á svæðinu. 27.7.2022 12:00
Druslugangan segir töf á viðbrögðum ekki merki um aðgerðaleysi eða meðvirkni Stjórn skipulagsteymis Druslugöngunnar segir töf á viðbrögðum, vegna umræðu um einn skipuleggjenda á samfélagsmiðlum, ekki merki um aðgerðaleysi eða meðvirkni. Það sé miður að hún hafi verið túlkuð þannig en skipuleggjendur göngunnar séu sjálfboðaliðar og hafi ekki haft tíma til að bregðast fyrr við umræðunni. 27.7.2022 11:58
Mikil óánægja með drög að frumvarpi um einn sýslumann Umsagnir í samráðsgátt um drög dómsmálaráðherra að frumvarpi til laga um sýslumann eru ekki jákvæðar. Til að mynda segir Sýslumannafélag Íslands skorta að málið sé unnið á faglegum forsendum. 27.7.2022 11:53
Allt á floti á Selfossi Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suður- og Suðausturland í dag vegna úrhellis. „Það er allt á floti“ segir eigandi tjaldsvæðis á Selfossi, sem fer einna verst út úr rigningunum í dag. Vegagerðin hefur talsverðar áhyggjur af brú á hringveginum vegna vatnavaxta. 27.7.2022 11:49
Símatímar falla niður vegna manneklu Símatímar heilsugæslulækna Heilbrigðisstofnun Vesturlands falla niður í dag vegna manneklu. Í símsvara Heilbrigðisstofnunarinnar er beðist velvirðingar á því að símatímarnir falli niður. 27.7.2022 11:44
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um vatnsveðrið sem gengur nú yfir en gular viðvaranir eru víða í gildi vegna þess. 27.7.2022 11:39
Greiða milljarða dala vegna ópíóðasölu Teva og Actavis Ísraelski lyfjarisinn Teva hefur komist að sátt utan dómstóla um að greiða 4,25 milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar um 585 milljörðum króna, í sáttagreiðslur fyrir hlut sinn í ópíóðafaraldrinum svo kallaða vestanhafs. 27.7.2022 11:24
Spánverjar rýmka reglur fyrir erlent verkafólk Spánverjar samþykktu á þriðjudag lagabreytingar sem rýmka reglugerðir fyrir erlent verkafólk án tilskilinna leyfa í von um að færa þúsundir verkafólks úr svartri atvinnu inn á opinberan vinnumarkað og koma reglu á atvinnugreinar sem glíma við manneklu. 27.7.2022 11:09
Sesselja Lind ráðin hjúkrunardeildarstjóri Sesselja Lind Magnúsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á útskriftardeild aldraðra L2 á Landakoti. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítala. 27.7.2022 11:03
Kviknaði í vinnubíl við Tjarnargötu Eldur kom upp í vinnubíl við Tjarnargötu í miðbæ Reykjavíkur í dag. Slökkviliðið er búið að slökkva eldinn en er enn við störf á vettvangi. 27.7.2022 11:00
Ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna stunguárásar við Prikið Mál nítján ára karlmanns verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa stungið mann á þrítugsaldri fyrir framan skemmtistaðinn Prikið í apríl síðastliðnum. 27.7.2022 10:48
Sérfræðingar ósammála um veður helgarinnar Tvær helstu langtímaveðurspár, sem veðurfræðingar styðjast almennt við, sýna gjörólíka spá um verslunarmannahelgina. Ein spáin reiknar með því að lægð gangi yfir landið á meðan önnur býst ekki við neinni lægð. 27.7.2022 10:42
Óljóst hvort brúin við Jökulsá standi af sér vatnsflauminn Búast má við miklum vatnavöxtum á sunnanverðu landinu í dag vegna mikillar rigningar og er óljóst hvort bráðabirgðabrú við Jökulsá á Sólheimasandi standi af sér vatnsflauminn. 27.7.2022 10:11
Vara við falskri vefsíðu Landsbankans Landsbankinn varar við svikum sem hafa átt sér stað að undanförnu í nafni bankans. Töluvuþrjótar hafa stofnað vefsíðu, keimlík vefsíðu Landsbankans, þar sem fólk hefur misst háar upphæðir fjár, haldandi að það væri að skrá sig inn á heimabankann sinn. 27.7.2022 10:05
Stjórnarskrárbreyting veitir forseta Túnis nær alræðisvald Nýsamþykkt stjórnarskrárbreyting í Túnis veitir forseta landsins nær alræðisvald innan stjórnkerfisins. Margir óttast að landið sé að færast aftur til einræðis. 27.7.2022 08:52
Telur sig hafa borið kennsl á Somerton-manninn Prófessor við Háskólann í Adelaide telur sig hafa borið kennsl á mann sem hingað til hefur alltaf verið kallaður Somerton-maðurinn. Í rúm sjötíu ár hefur engum tekist að komast að því hver maðurinn er en málið er eitt það dularfyllsta í sögu Ástralíu. 27.7.2022 08:17
Óvenjumikill rishraði við Öskju Landris við Öskju mælist nú mest um 35 sentimetrar. Veðurstofa Íslands segir rishraðann vera óvenjumikinn miðað við sambærileg eldjöll í heiminum. 27.7.2022 07:43
Ódýrara að leggja einkaþotu en bíl Það er ódýrara að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli en bíl í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur. Fimm daga stæði á Reykjavíkurflugvelli kostar 35.485 fyrir einkaþotu. 27.7.2022 07:27
Náinn ráðgjafi Orban segir upp vegna nasískrar ræðu Náinn ráðgjafi Viktors Orban forsætisráðherra Ungverjalands og vinkona hans til áratuga hefur sagt upp störfum eftir umdeilda ræðu sem Orban hélt í Rúmeníu á dögunum. Zsuzsa Hegedus segir að ræðan hafi verið nasísk og því hafi henni ekki verið sætt áfram í störfum sínum fyrir forsætisráðherrann. 27.7.2022 07:25
Þáttastjórnandi kappræðanna féll í yfirlið Hætta þurfti útsendingu á leiðtogakappræðum breska íhaldsflokksins á milli þeirra Rishi Sunak og Liz Truss í gær þegar þáttastjórnandinn féll í yfirlið. 27.7.2022 07:06
Skýring á brotthvarfi Herbert Diess frá Volkswagen Group Ákvörðun um uppsögn Herbert Diess, framkvæmdastjóra Volkswagen Group kom mörgum í opna skjöldu. Raunveruleg ástæða þess að hann var að endingu látinn taka pokann sinn var sú að eina verkefnið sem var eftir á borði hans síðan í desember síðastliðnum, olli talsverðum seinkunum á kynningum rafbíla eins og Porsche Macan, Artemites verkefni Audi og Bentley rafbílum. Diess var enn yfir hugbúnaðardeildinni CARIAD sem virðist hafa verið síðasta hálmstráið. 27.7.2022 07:01
Í erfiðleikum með að greiða upp strandveiðibát vegna ósanngjarns kerfis Smábátasjómaður á Raufarhöfn segir strandveiðikerfið ógna byggðum á Norðaustur- og Austurlandi. Sonur hans keypti bát fyrir tímabilið í sumar en gat lítið sem ekkert veitt og á nú í miklum erfiðleikum með að greiða hann upp. 27.7.2022 07:01
Haugarigning á Suðurlandinu og gul viðvörun í gildi Útlit er fyrir hellidembu á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gular viðvaranir eru enn í gildi vegna úrkomu sunnantil á landinu og hvassviðris á Miðhálendinu og verða fram á kvöld hið minnsta. 27.7.2022 06:59
Kraftmikill jarðskjálfti að stærðinni sjö á Filippseyjum Að minnsta kosti tvö eru látin eftir að kraftmikill jarðskjálfti að stærðinni sjö reið yfir á Filippseyjum í nótt. Upptök jarðskjálftans voru á norðanmegin á stærstu eyju landsins um 300 kílómetra frá höfuðborginni Manila. 27.7.2022 06:50
Ekki víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn Á mánudag tilkynnti rússneska fyrirtækið Gazprom að flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna myndi skerðast niður í 20 prósent. Að sögn bandarískra embættismanna hefur gas minnkun Rússa verið þeirra „versti ótti.“ Umræður vegna aukinnar kjarnorkunotkunar séu á næsta leyti og ekki sé víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn. 26.7.2022 23:41
Parhúsin á Fáskrúðsfirði tekin út af heimasíðu leigufélagsins Framkvæmdastýra og stjórnarformaður Bríetar leigufélags segja parhús sem voru til leigu á vegum félagsins hafa verið tekin út af heimasíðu þess og verðlagningin verði skoðuð. Leiga parhúsanna var 352 þúsund krónur á mánuði án hita og rafmagns. 26.7.2022 21:01
Aðgerðir viðbragðsaðila vegna sprengjuhótunar hafi gengið afbragðsvel Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir aðgerðir viðbragðsaðila á Keflavíkurflugvelli, vegna sprengjuhótunar um borð í flugvél á leið frá Frankfurt til Seattle, hafa gengið afbragðsvel. Enn sé ekki vitað hver hafi borið ábyrgð á hótuninni. 26.7.2022 20:46
Litla sveitabúðin hefur slegið í gegn í Svarfaðardal Hjónin á bænum Völlum í Svarfaðardal kalla ekki allt ömmu sína þegar um verslun og viðskipti er að ræða því þau eru með litla sveitabúið á hlaðinu hjá sér þar sem hægt er að fá allskonar sælkeravörur úr ræktun þeirra. Bleikja er líka ræktuð í tjörn á bænum. 26.7.2022 20:03
Læknanemar í Michigan gengu út í mótmælaskyni Tugir læknanema við Michigan háskóla í Bandaríkjunum gengu út af sinni eigin hátíðarathöfn á dögunum vegna fyrri ummæla próferssors við háskólann um þungunarrof. 26.7.2022 19:44
Staðan í þjóðarbúskapnum farin að minna á fyrri verðbólgutíma Almennur kaupmáttur gæti átt eftir að rýrna um allt að fimm prósent frá ársbyrjun og fram að gerð nýrra kjarasamninga fyrir næstu áramót að mati hagfræðings hjá Landsbankanum. Staðan í efnahagsmálum nú væri farin að minna á stöðuna eins og hún var fyrir gerð þjóðarsáttarsamninganna fyrir rúmlega þrjátíu árum. 26.7.2022 19:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rýrnun kaupmáttar frá ársbyrjun og fram að gerð nýrra kjarasamninga fyrir næstu áramót gæti endað í allt að fimm prósentum. Heimir Már ræðir við hagfræðing hjá Landsbankanum sem skýrir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2, kl. 18:30. 26.7.2022 18:00