Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómar styttir yfir mönnum sem nauðguðu unglingsstúlku Landsréttur hefur mildað dóm yfir tveimur Pólverjum á fertugsaldri sem sakfelldir voru fyrir að hafa nauðgað unglingsstúlku í Reykjavík í febrúar 2017. Lukasz Soliwoda og Tomasz Walkowski fengu tveggja ára fangelsisdóm en höfðu hlotið þriggja ára dóm í héraði. 11.12.2020 15:02
Áslaug Thelma áfrýjar málinu gegn Orku náttúrunnar Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í máli hennar gegn Orku náttúrunnar en það var niðurstaða dómsins að sýkna ON af ásökunum Áslaugar um ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamun. 11.12.2020 14:46
Viðar sakar Ólínu um „hálfstuld“ og hroðvirkni Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur fer ófögrum orðum um Lífgrös og leyndir dómar - Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing í nýjasta tölublaði Sögu, tímarits Sögufélags. Bókin kom út í fyrra við góðar undirtektir og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en Viðar sakar Ólínu meðal annars um „hálfstuld“ og hroðvirkni. 11.12.2020 14:34
Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu á Akureyri Lögregla á Akureyri ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra handtók mann í fjölbýlishúsi við Ásatún á Akureyri eftir umsátur á þriðja tímanum í dag. 11.12.2020 14:25
Pfizer-skammtar fyrir tíu þúsund manns væntanlegir um áramótin Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning við bóluefnaframleiðandann Pfizer. Samningurinn kveður á um 170 þúsund skammta til Íslands sem dugir fyrir 85 þúsund manns. Áætlað er að fyrstu skammtarnir frá Pfizer berist um áramót, alls rúmlega 21 þúsund skammtar sem duga fyrir 10.600 manns. 11.12.2020 13:48
Klasasmitið gerði útslagið en erum þó á svipuðu róli Sóttvarnalæknir segir klasasmit kórónuveirunnar sem kom upp í gær í búsetuúrræði fyrir hælisleitendafjölskyldur í Hafnarfirði hafa gert útslagið fyrir tölur gærdagsins. Þær séu þó á svipuðu róli og undanfarna daga en klasasmitið sýni hvað staðan sé viðkvæm. 11.12.2020 12:34
Hafa ítrekað bent á að sóttvarnir séu ekki í lagi Formaður hjálparsamtakanna Solaris segir það ekki koma á óvart að klasasmit hafi komið upp í búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samtökin hafi ítrekað bent á að sóttvörnum sé ábótavant í úrræðunum. 11.12.2020 12:11
Deila um tölur snýst raunverulega um umfang og forgangsröðun Framkvæmdakostnaður Reykjavíkurborgar vegna Óðinstorgs nam 60,6 milljónum króna samkvæmt svari fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar en heildarkostnaður framkvæmda á torginu og í nágrenni var 474 milljónir króna. 11.12.2020 11:45
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um hópsmit sem komið er upp á höfuðborgarsvæðinu en flytja þurfti átta í farsóttahús í framhaldinu. 11.12.2020 11:33
Einn bekkur í sóttkví í tengslum við klasasmitið Sextán nemendur og tveir kennarar Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði eru í sóttkví eftir að nemandi greindist með kórónuveiruna fyrr í vikunni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er nemandinn einn íbúa búsetuúrræðis fyrir fjölskyldur í Hafnarfirði, hvar klasasmit veirunnar hefur komið upp. 11.12.2020 11:31
78 prósent smitaðra á höfuðborgarsvæðinu Alls greindust tólf með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru allir nema einn í sóttkví. 11.12.2020 11:16
Klasasmitið rakið til búsetuúrræðis fyrir fjölskyldur í Hafnarfirði Klasasmit kórónuveirunnar sem komið hefur upp á höfuðborgarsvæðinu er rakið til búsetuúrræðis á vegum félagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar fyrir fjölskyldur sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. 11.12.2020 10:44
Markmiðið að uppbyggingin hefjist sem fyrst Tillögur að breytingum á miðbæjarskipulagi Akureyrar voru kynntar í gær. Breytingarnar miða að því að uppbyggingin geti hafist sem fyrst. 11.12.2020 10:32
Jón Finnbjörnsson og tveir aðrir sækja um Landsréttarstól Þrír sóttu um laust embætti dómara við Landsrétt sem auglýst var 20. nóvember síðastliðinn en um sóknarfrestur rann út 7. desember. 11.12.2020 09:48
Sex af tólf innanlandssmitum gærdagsins tengjast klasasmitinu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru ellefu í sóttkví. Af þeim sem greindust með veiruna í gær tengjast sex klasasmiti á höfuðborgarsvæðinu sem komið hefur upp í húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. 11.12.2020 09:23
Konur af erlendum uppruna vilja að borgin skoði mál Fjölskylduhjálpar Samtök kvenna af erlendum uppruna (W.O.M.E.N) hvetja Reykjavíkurborg til þess að krefjast gagnsærrar rannsóknar á starfsemi góðgerðarsamtakanna Fjölskylduhjálpar. 11.12.2020 08:41
Smitrakningarteymið stendur við tölur um smit Smitrakningarteymi almannavarna stendur við tölur sínar um smit í líkamsræktarstöðvum og sundlaugum sem fjölmiðlar, þar á meðal Vísir, greindu frá í fyrradag. 11.12.2020 07:51
Óvenju hlýtt miðað við árstíma „Nú þegar þetta er skrifað má greina tvær lægðamiðjur suður af landinu. Önnur staðsett 350 km suðsuðvestur af Reykjanesi, en hin 400 km suður af Ingólfshöfða. Báða hafa þær miðjuþrýsting um 970 mb. Staða veðrakerfa breytist lítið á næstunni og segja má að lægðasvæði suður af landinu stjórni veðrinu hjá okkur næstu þrjá daga eða jafnvel lengur.“ 11.12.2020 07:24
Leynileg upptaka af ólögráða stelpum í Mosfellsbæ Einstaklingur búsettur í Mosfellsbæ hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Er honum gefið að sök að hafa að kvöldi föstudags í maí í fyrra á heimili sínu í Mosfellsbæ stillt farsíma sínum upp inni á baðherbergi. 11.12.2020 07:01
Stal bók og réðst á öryggisvörð Upp úr klukkan hálfsjö í gærkvöldi var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Breiðholti. Að því er segir í dagbók lögreglu var þar maður að stela bók. 11.12.2020 06:26
Hópsmit á höfuðborgarsvæðinu og minnst átta smitaðir Minnst átta aðilar með staðfest kórónuveirusmit hafa verið fluttir með sjúkrabíl á farsóttarhús síðan klukkan átta í kvöld. Sex þeirra búa í sama húsnæðinu. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. 10.12.2020 22:28
Nýi sunnudagsbíltúrinn að fossinum Dynjanda Vestfirðingar eru að uppgötva fossinn Dynjanda á nýjan hátt, eftir að Dýrafjarðargöng voru opnuð. Formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga segir að það sé orðinn nýi sunnudagsbíltúrinn að aka að fossinum. 10.12.2020 22:04
Ljósaflökt í Vesturbænum: „Draugagangur, er einhver góður særingarmaður í Vesturbænum?“ Vesturbæingar urðu varir við undarlegt ljósaflökt fyrr í kvöld. Flest ljós í ljósastaurum Gamla Vesturbæjar flöktu í gríð og erg og furðuðu sig margir á þessu atviki á Facebook-síðunni Vesturbærinn. 10.12.2020 21:15
„Ríkisstjórnin hefði ekki tekið svona há lán ef ekki væru níu mánuðir í kosningar“ Fjárlög næsta árs markast af viðbrögðum stjórnvalda við áhrifum kreppunnar sem fylgir kórónuveirufaraldrinum. Þetta sagði Willum Þór Þórsson formaður fjárlaganefndar þegar hann mælti fyrir breytingartillögum meirihluta nefndarinnar við aðra umræðu um fjárlög á Alþingi í dag. 10.12.2020 20:00
Solaris hlaut Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Fundurinn Mannréttindi á tímum Covid-19 fór fram í dag á vegum Reykjavíkurborgar og voru Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar afhent. Hjálparsamtökin Solaris hlutu verðlaunin í ár og fá 600 þúsund krónur fyrir vikið. 10.12.2020 19:48
Fagnar því að vera laus af leigumarkaðnum Fyrstu hlutdeildarlánunum var úthlutað í dag en þeim er ætlað að aðstoða tekjulága við að kaupa sína fyrstu fasteign. Fyrsti lántakandinn fagnar því að vera loks laus af leigumarkaði og segir þetta mikið gæfuspor fyrir fjölskyldu sína. 10.12.2020 19:00
„Vá stendur fyrir dyrum“ Stjórnvöld hafa ákveðið að draga hraðar úr losun gróðurhúsaloftegunda miðað við það sem áður var ákveðið. Formaður Samfylkingarinnar segir að markmiðin séu ekki fjármögnuð og spyr hvort um sé að ræða ódýrt kosningaloforð. 10.12.2020 19:00
Lögmaður World Class gerir athugasemdir vegna „skrítinnar fréttar“ RÚV Gestur Jónsson, lögmaður líkamsræktastöðva World Class, sendi fréttastofu Ríkisútvarpsins athugasemd í kjölfar fréttar sem sýnd var í kvöldfréttatíma gærkvöldsins. Hann segir fréttina vera skrítna, og telur jafnvel að hún sé röng. 10.12.2020 18:11
Mikil aðsókn í sund og snjalllausnir í kortunum Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri íþróttamála hjá Reykjavíkurborg, segir að mikil aðsókn hafi verið í sundlaugar Reykjavíkur í morgun. Víða voru raðir þegar laugarnar opnuðu en þó sé aðsóknin ekki jafn mikil og hún var í byrjun maí þegar sundlaugar opnuðu eftir lokanir í fyrstu bylgju faraldursins. 10.12.2020 18:08
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar hittum við konuna sem var fyrst til að fá úthlutað úr nýjum lánaflokki hlutdeildarlána sem ætlað er að hjápa tekjulágum að eignast sitt eigið húsnæði. 10.12.2020 18:00
Formaður félags fanga ætlar á þing Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, hefur ákveðið að gefa kost á sér til framboðs fyrir Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum. Hann greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. 10.12.2020 16:09
Fíkn ekki leyst með lagasetningu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir spilafíkn ekki lagaða með lagasetningum heldur þurfi að hjálpa þeim sem glíma við slíkan vanda. 10.12.2020 14:45
Heilsugæslan: Það er ekki hægt að panta tíma í bólusetningu Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar nú á heimasíðu sinni að það sé ekki hægt að panta tíma í bólusetningu gegn Covid-19. Allir muni fá boð í bólusetningu þegar kemur að þeirra forgangshóp. 10.12.2020 14:30
Lemstruð og öskuill eftir heimsókn til sýslumanns Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er með glóðurauga, brákað kinnbein og mögulega brotinn ökkla. Hún kennir sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um ástandið á sér með því að vera með galandi slysagildru í afgreiðslusal. 10.12.2020 14:23
Lögreglan bankaði upp á í beinni útsendingu Lögregla bankaði upp á hjá Elísabetu Guðmundsdóttir lýtaskurðlækni fyrr í dag og boðaði hana til skýrslutöku vegna brots á sóttvarnarlögum. Atvikið átti sér stað á meðan Elísabet var í viðtali í beinni útsendingu á Harmageddon á X-inu 977. 10.12.2020 13:44
Víðir liggur heima með lungnabólgu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum er enn talsvert veikur og glímir við lungnabólgu eftir að hafa smitast af kórónuveirunni fyrir rúmum þremur vikum. Aðrir heimilismenn eru þó við góða heilsu, að sögn Rögnvaldar Ólafssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. 10.12.2020 13:30
Hertar sóttvarnir hafi dregið úr bjartsýni Gert er ráð fyrir um fimmtíu og sex milljarða króna meiri halla á næsta ári en kynnt var í fjárlögum í haust. Samkvæmt breytingatillögu meirihluta fjármálanefndar nemur hann nú um 320 milljörðum króna. 10.12.2020 12:21
Kona fékk ofgreiddar bætur, missti húsið og Tryggingastofnun uppskar 65 þúsund krónur Umboðsmaður Alþingis telur að Tryggingastofnun hafi ekki gætt meðalhófs við innheimtu í máli konu sem krafin var um endurgreiðslu á 590 þúsund krónum vegna ofgreiddra bóta. Stofnunin krafðist nauðungarsölu á fasteign í eigu konunnar sem boðin var upp og seld á 23 milljónir króna. 10.12.2020 11:53
Mun færri ávísanir á sýklalyf en fjölgun í ávísunum þunglyndislyfja Ávísunum á sýklalyf hefur fækkað um 24% samkvæmt könnun Landlæknisembættisins á heilsu og líðan landsmanna í Covid-19 faraldrinum. Þetta má þakka persónulegum sóttvörnum sem hafa dregið úr öðrum sýkingum. 10.12.2020 11:35
Samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda gæti orðið allt að 45 prósent Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að lágmarksframlag Íslands varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi fari að öllum líkindum úr 29 prósentum í 40 til 45 prósent innan þess sameiginlega markmiðs Noregs og ríkja Evrópusambandsins um að draga úr losun um 55 prósent til ársins 2030. 10.12.2020 11:28
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Fjórir greindust með kórónuveiruna í gær innanlands og þrír þeirra voru í sóttkví við greiningu. Við heyrum frá fundi þríeykisins í hádegisfréttum okkar klukkan tólf. 10.12.2020 11:27
Líkamsræktarstöðvar „hááhættustaðir“ á meðan sundlaugarvatn drepur veiruna Sóttvarnalæknir bendir á að líkamsræktarstöðvar séu víða flokkaðar sem „hááhættustaðir“ í Evrópu en smithætta í almenningssundlaugum sé talin „í meðallagi“. Engar vísbendingar séu heldur um að kórónuveiran geti smitast með vatni, auk þess sem sundlaugarvatn drepi hana. 10.12.2020 11:21
Fjórir greindust með veiruna innanlands í gær Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír af þeim sem greindust voru í sóttkví. 10.12.2020 10:51
Bein útsending: Matvælastefna Íslands kynnt Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra efna til kynningar á Matvælastefnu Íslands til ársins 2030. Þetta kemur fram í tilkynningu. 10.12.2020 10:46
Arnfríður þarf ekki að víkja sæti í málum Vilhjálms Arnfríður Einarsdóttir landsréttardómari þarf ekki að víkja sæti þegar Landsréttur tekur fyrir tvö meiðyrðamál vegna Hlíðamálsins svokallaða, þrátt fyrir að svo kunni að vera að eiginmaður hennar og mágur hafi lýst yfir neikvæðri afstöðu til Vilhjálms H. Vilhjálmsonar, lögmanns mannanna tveggja sem krefjast skaðabóta frá tveimur konum vegna ummæla þeirra í tengslum við Hlíðamálið. 10.12.2020 10:42