Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skipverjum létt að málinu sé lokið en furða sig á refsingunni Skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni sem smituðust af Covid-19 í veiðiferð um borð í skipinu er létt að máli vegna veikinda þeirra sé lokið en óvissan hefur verið þeim þungbær. Einhverjir þeirra séu þó undrandi á dómi skipstjóra togarans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða. 16.1.2021 09:30
Segir aðgerðir á landamærum ekki geta verið mildari Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir að einhvern veginn þurfi að girða fyrir að fólk geti komist hjá því að sæta sóttkví. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær að frá og með deginum í dag yrði skylda fyrir þá sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli. Þeim sem neita verður meinaður aðgangur að landinu. 16.1.2021 07:59
Sveimandi lægð stjórnar veðri helgarinnar Veðri helgarinnar er stjórnað af lægð sem sveimar um landið. Sökum nálægðar hennar við landið er veður fjölbreytt á landinu, austlæg átt og rigning austanlands framan af degi en breytilegar áttir í öðrum landshlutum. 16.1.2021 07:38
Líkamsárás, iPad-þjófnaður og fjársvik Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás á Seltjarnarnesi skömmu fyrir klukkan tvö í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 16.1.2021 07:29
Barðstrendingar fá ekki skólann sinn opnaðan Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir ekki standa til að opna aftur grunnskólann á Barðaströnd. Sveitarfélagið skoði hins vegar að bjóða foreldrum yngstu barnanna upp á þjónustu dagforeldra í sveitinni svo ekki þurfi að aka þeim yfir fjallveg. 15.1.2021 23:30
Ingibjörg Sólrún segist spennt fyrir nýju starfi hjá SÞ í Írak Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi ráðherra og Alþingismaður, hefur verið skipuð sem staðgengill fulltrúa António Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, í Írak. Hún segist spennt fyrir starfinu og verkefnunum sem því fylgja. 15.1.2021 21:00
Tvö þúsund leghálssýni óhreyfð í pappakössum vikum saman Tvö þúsund sýni úr leghálsskimunum fyrir krabbameini hafa legið vikum saman óhreyfð í pappakössum vegna skorts á samningum. Vonir standa til að hægt verði að senda sýnin í greiningu fljótlega í næstu viku. 15.1.2021 19:11
Seyðfirðingar fá aukna sálfræðiþjónustu Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur verið veitt 17 milljóna króna viðbótarfjárframlagi til þess að efla geðheilbrigðisþjónustu í þágu Seyðfirðinga vegna aurskriðanna sem féllu í desember. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. 15.1.2021 19:09
Segir nýjar reglur á landamærum auka fyrirsjáanleika í ferðaþjónustu Áætlun stjórnvalda um að koma á litakóðakerfi á landamærunum eykur fyrirsjánaleika ferðaþjónustunnar fyrir sumarið. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það mikilvægt skref að búið sé að svara ákalli ferðaþjónustunnar. 15.1.2021 18:48
Hluti Seyðisfjarðar rýmdur vegna mikillar úrkomu Lögreglustjórinn á Austurlandi í samráði við Ríkislögreglustjóra og Veðurstofu Íslands hefur ákveðið að rýma hluta Seyðisfjarðar vegna úrkomuspár. Stefnt er að því að rýmingu verði lokið klukkan tíu í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra. 15.1.2021 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allir sem koma til landsins þurfa nú að fara í tvöfalda skimun frá og með deginum í dag. Ástæðan er ítrekuð sóttkvíarbrot farþega. Við ræðum við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þessa ákvörðun hennar. 15.1.2021 18:00
Nýr varafulltrúi Guterres á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Írak Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur verið skipuð sérstakur varafulltrúi António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna, í Írak í Aðstoðarsendisveit samtakanna í Írak (UNAMI). 15.1.2021 17:51
Hæstánægður með skimunarskylduna og vonar að ræðan hafi hjálpað Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að ákvörðun heilbrigðisráðherra um að skylda alla í tvöfalda skimun á landamærum sé mikið ánægjuefni. Hann þakkar ríkisstjórninni fyrir skjót viðbrögð. Enn eigi þó eftir að útfæra framkvæmd reglugerðarinnar á flugvellinum. 15.1.2021 17:20
Fáum Pfizer-skammtana í næstu viku þrátt fyrir breytingar hjá fyrirtækinu Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að Ísland muni fá þá skammta af bóluefni Pfizer í næstu viku sem samið hafði verið um þrátt fyrir að fyrirtækið hafi tilkynnt um breytingar á afhendingaráætlun í Evrópu. 15.1.2021 16:44
Fá reglulega ábendingar um að grímulausum farþegum sé hleypt um borð Strætó hefur alls borist 151 ábending um ófullnægjandi grímunotkun vagnstjóra og farþega frá 5. október síðastliðnum. Snýr meirihluti ábendinganna að vagnstjórum eða 96 talsins og hefur fjöldi þeirra rétt rúmlega tvöföldast frá því í byrjun nóvember. 15.1.2021 16:08
Starfsmanni í Skarðshlíðarskóla sagt upp vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni Starfsmanni við Skarðshlíðarskóla hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Skólastjóri í Skarðshlíðarskóla hefur eftir lögreglu að ekkert bendi til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað innan veggja skólans eða í skólastarfi á vegum skólans. 15.1.2021 15:55
Slasaður vélsleðamaður hífður upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar Laust fyrir klukkan hálf tvö fékk Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um vélsleðaslys í Tröllaskaga nálægt Lágheiði. Viðbragðsaðilar á svæðinu voru ræstir út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar og þá var aðgerðarstjórn virkjuð á Akureyri. 15.1.2021 15:35
Bólusetningarvottorð tekin gild á landamærum Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögu vinnuhóps um vottorð, þess efnis að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og gefin eru út í EES/EFTA-ríki, verði tekin gild á landamærum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. 15.1.2021 15:27
Furðar sig á ákvörðun heilbrigðisráðherra og spyr hvað hafi eiginlega breyst Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar Alþingis telur stjórnvöld ekki hafa heimild í lögum til að skylda alla farþega sem koma til landsins í tvöfalda skimun, líkt og heilbrigðisráðherra tilkynnti í hádeginu. Helga Vala furðar sig á því að ráðherra telji sig hafa heimild til þess núna og spyr hvað hafi breyst frá því að málið kom til álita í síðustu viku. 15.1.2021 15:00
Segir leitt að missa 4×4 og hafnar ásökunum um harðlínustefnu „Okkur finnst mjög leiðinlegt að missa 4×4. Það eru mjög mörg mál sem við eigum sameiginleg og hagsmunir sem við eigum sameiginlega.“ Þetta segir Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, um ákvörðun Ferðaklúbbsins 4×4 að segja sig úr Landvernd. Hún hafnar ásökunum klubbsins um að Landvernd hafi rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd og markast af harðlínu. 15.1.2021 14:24
Eldri hjón hrepptu 17,6 milljóna vinning Hjón á efri árum unnu 17,6 milljónir króna í Víkingalottó á miðvikudag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá. 15.1.2021 14:16
Páll svarar sögusögnum um bólusetningar stjórnenda á Landspítalanum Forstjóri Landspítala, framkvæmdastjórn eða aðrir stjórnendur spítalans hafa ekki verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Þetta kemur fram í pistli Páls Matthíassonar forstjóra í dag, þar sem hann svarar sögusögnum um bólusetningu stjórnendateymisins. 15.1.2021 13:59
250 milljónir í nýtt grasæfingasvæði Fram í Úlfarsárdal Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að bjóða út framkvæmdir vegna nýs grasæfingasvæði fyrir knattspyrnuiðkun á íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdal. Þar verða tveir æfingavellir með vökvunarkerfi, en kostnaðaráætlun hljóðar upp á 250 milljónir króna. 15.1.2021 13:31
Litakóðunarkerfi á landamærum frá og með 1. maí Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að frá og með 1. maí verði tekið upp litakóðunarkerfi á landamærum. Áfram verði tvöföld skimun á landamærum fyrir rauð lönd en einstaklingar sem koma frá grænum og appelsínugulum löndum verður boðið upp á að mæta með neikvætt PCR próf og fara svo í staka skimun á landamærum. 15.1.2021 12:34
Allir verða skyldaðir í tvöfalda skimun frá og með deginum í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að tvöföld skimun á landamærum verði skylda frá og með deginum í dag. Val um tveggja vikna sóttkví við komu til landsins verður því afnumið. 15.1.2021 12:09
Lýsti strax þakklæti til íslensku þjóðarinnar Guðmundur Felix Grétarsson er einstaklega þakklátur þeim stuðningi sem hann hefur fengið frá íslensku þjóðinni. Þetta segir Sylwia Nowakowska Gretarsson, eiginkona Guðmundar, í samtali við fréttastofu. Tímamót urðu á miðvikudag þegar Guðmundur Felix undirgekkst ágræðslu á báðum handleggjum alveg upp við axlir og var aðgerðin söguleg í heimi læknavísindanna. 15.1.2021 12:05
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um væntanlegar breytingar á reglum á landamærum í tengslum við kórónuveirufaraldurinn og yfirlýsingu frá Pfizer sem barst í morgun um að bóluefnisskammtar sem hingað berast verði færri en áður var áætlað. 15.1.2021 11:36
Bein útsending: Hvernig bregst ríkisstjórnin við nýjustu tillögu Þórólfs? Ríkisstjórnin situr nú á reglulegum föstudagsfundi í Ráðherrabústaðnum. Samkvæmt heimildum Vísis eru aðgerðir á landamærum stóra mál fundarins og von á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherrar og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fari yfir stöðuna og kynni jafnvel breytingar á fyrirkomulagi á landamærum að fundi loknum. 15.1.2021 11:33
Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15.1.2021 10:56
Ekkert formalín í bóluefnum Pfizer og Moderna Ekkert formalín er að finna í bóluefnum Pfizer - BioNTech og Moderna við Covid-19 en efnið gæti verið að finna í öðrum bóluefnum sem munu innihalda óvirkjaðar veirur. 15.1.2021 10:52
Steingrímur gerir engar athugasemdir við sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka Steingrímur J. Sigfússon, forseti alþingis og fyrrverandi formaður Vinstri grænna, segist ekki hafa nokkrar áhyggjur af því þó ríkið selji hlut í Íslandsbanka. 15.1.2021 10:35
„Núna erum við að ljúka mjög erfiðri lotu“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að það sem standi upp úr fyrir honum í baráttunni við kórónuveiruna síðasta árið sé samstaða þjóðarinnar. 15.1.2021 08:20
Vara við mjög lúmskri hálku víða á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við „mjög lúmskri hálku“ víða á höfuðborgarsvæðinu. Er fólk hvatt til að fara varlega í umferðinni. 15.1.2021 08:01
Segja sig úr Landvernd vegna „öfga“ og „harðlínu“ Ferðaklúbburinn 4×4 hefur sagt sig úr Landvernd sem klúbburinn sakar um að hafa rekið stefnu undanfarin ár sem hafi verið öfgakennd, markast af harðlínu og farið langt út fyrir svið náttúruverndar. 15.1.2021 07:28
Gul viðvörun á Austfjörðum vegna mikillar rigningar Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. Viðvörunin tekur gildi klukkan eitt í nótt og stendur til klukkan þrjú síðdegis á morgun, laugardag. Þá á að draga úr úrkomuákefð. 15.1.2021 07:03
Þrír í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar Þrír karlmenn á þrítugsaldri voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 22. janúar á grundvelli vegna líkamsárásar aðfaranótt fimmtudags í miðbæ Reykjavíkur. 15.1.2021 06:14
Guðmundur Felix hefur gengist undir handaágræðslu Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi í vinnuslysi fyrir meira en tuttugu árum síðan, hefur nú fengið nýjar hendur eftir að hann gekkst undir aðgerð í Lyon í Frakklandi í dag. Aðgerðin stóð yfir í nærri 15 klukkustundir. 14.1.2021 22:04
Telur tillögu sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærum gríðarlega íþyngjandi Forstjóri Airport Associates telur það mjög brýnt að frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði samþykkt. Hann segir tillögu sóttvarnalæknis um að farþegar framvísi neikvæðu prófi á landamærum hafa gríðarlega íþyngjandi afleiðingar fyrir flugið. 14.1.2021 21:11
Leggur ein fram frumvarp um stjórnarskrárbreytingar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun leggja fram frumvarp um stjórnarskrárbreytingar á Alþingi þegar nýtt þing hefst. Hún ein mun leggja fram frumvarp en ekki tókst að komast að samkomulagi um sameiginlegt frumvarp meðal formanna flokkanna á þingi. 14.1.2021 20:21
Samfylkingin leggur til bráðabirgðaákvæði um tvöfalda skimun og sóttvarnahús Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur fram frumvarp á Alþingi á morgun með bráðabirgðaákvæðum við sóttvarnarlög sem myndu heimila að skylda fólk í tvöfalda skimun við landamærin eða tveggja vikna sóttkví í sóttvarnahúsi. Þá hefur formaður flokksins óskað eftir því að Alþingi verði kallað saman til fundar um málið strax á morgun. 14.1.2021 20:15
Ekki gefið að fyrirtæki geti skikkað alla í vímuefnapróf Forstjóri Persónuverndar segir ekki sjálfgefið að fyrirtæki geti skikkað allt sitt starfsfólk í skimun fyrir áfengi og fíkniefnum. Icelandair ætlar að taka slíka skimun upp fyrir allt sitt starfsfólk en forstjóri félagsins segir það verða gert í samningum við starfsfólk og stéttarfélög. 14.1.2021 20:01
Ekki talið að hreyfingar hafi orðið á jarðlögum á Seyðisfirði Ekki er talið að sprunga í skriðusári skriðunnar, sem féll þann 18. desember á Seyðisfirði, hafi stækkað en tilkynning þess efnis barst í dag. Hreinsunarvinna hafði verið í gangi á áhrifasvæði skriðunnar en henni var hætt af öryggisástæðum vegna mögulegrar hreyfingar í skriðunni. 14.1.2021 19:57
Píratar kalla eftir nýjum frambjóðendum Stefnt er að því að framboðslistar Pírata í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosninarnar í september liggi fyrir um miðjan mars. Auglýst hefur verið eftir frambjóðendum sem hafa nú rúman mánuð til að gefa kost á sér. 14.1.2021 19:37
Ekki hægt að skikka fólk í sóttvarnahús án lagastoðar Yfirlögregluþjónn í Leifsstöð segir marga hafa greinst með kórónuveiruna eftir að hafa hafnað sýnatöku á landamærum. Sterkur grunur leikur á að margir sem velja að fara í sóttkví ætli sér ekki að halda hana. Lögspekingur segir ekki hægt að skikka fólk til dvalar í sóttvarnahúsi án sérstakrar lagaheimildar. 14.1.2021 19:20
Segir að ráðist hafi verið á son sinn og honum svo vikið úr skólanum Móðir drengs sem ráðist var á í Borgarholtsskóla í gær segir að sonur sinn hafi sætt hótunum um mánaða skeið. Þær hafi byrjað eftir að hann stöðvaði árás annars drengs á unga stúlku. Hann hafi svo heyrt af því að til stæði að ráðast á sig með hnífi og kallað bróðir sinn til aðstoðar. 14.1.2021 19:11