Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kristján Þór lang óvinsælasti ráðherrann Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er lang óvinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar samkvæmt nýrri könnun. Einungis níu prósent segjast ánægð með störf hans. 5.3.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kaup á nýju varðskipi, skjálftahrinan á Reykjanesi, dómur yfir menntamálaráðherra og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 5.3.2021 18:19
Enn rafmagnslaust í Grindavík Rafmagnslaust hefur nú verið í Grindavík í um fimm klukkustundir. Landsnet segist hafa komist fyrir bilun sem varð í tengivirki í Svartsengi en starfsmenn HS Veitna leita enn að orsökinni hjá sér. 5.3.2021 18:12
Ekki miklar líkur á eldgosi í núverandi ástandi Engar vísbendingar eru um að kvika færist hratt nær yfirborði á Reykjanesskaga og telur vísindaráð almannavarna ekki miklar líkur á eldgosi á meðan það ástand varir. Jarðskjálfti upp á allt að 6,5 að stærð er talinn á meðal líklegustu sviðsmynda í jarðskjálftavirkninni á svæðinu. 5.3.2021 17:26
Ný gögn staðfesta grunsemdir um að kvikan sé komin ansi nálægt yfirborði „Það sem þessir nýju líkanreikningar sýna okkur er að kvikan hefur náð ansi nálægt yfirborði í þessum kvikugangi og þetta er nánast lóðréttur kvikugangur sem liggur þarna á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis,“ segir Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Líklegt er að kvikan hafi náð upp á allt að tveggja kílómetra dýpi í jarðskorpunni. 5.3.2021 16:59
Samkomulag SA og ASÍ um breytingar á kjarasamningi Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gert breytingar á kjarasamningi aðila um lífeyrismál, en samningurinn er stofnskjal og bakhjarl lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. 5.3.2021 15:36
Rafmagnslaust í Grindavík Rafmagnslaust hefur verið í Grindavík og nágrenni síðan klukkan 13:14 þegar leysti út spennir í tengivirkinu í Svartsengi. Landsnet leitar að orsök bilunar, segir í tilkynningu. 5.3.2021 14:57
Nýtt varðskip sem fær líklega nafnið Freyja Ríkisstjórnin hefur fallist á tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að hafist verði handa við kaup á nýlegu varðskipi. Ástæðan er alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Kostnaður við viðgerð er talin nema meiru en sem svarar verðmæti skipsins eða um hundrað milljónum króna. 5.3.2021 14:23
Verjandinn segir Gunnar Jóhann í skýjunum Gunnar Jóhann Gunnarsson mun vera í skýjunum yfir að dómur yfir honum fyrir að hafa banað hálfbróður sínum hafi verið styttur úr þrettán árum í fimm. Þetta hefur norski vefurinn iFinnmark eftir verjanda hans. 5.3.2021 14:11
Í tveggja vikna varðhald vegna morðsins í Rauðagerði Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í tvær vikur vegna rannsóknar lögreglunnar á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar. 5.3.2021 12:15
Menntamálaráðherra tapaði í héraðsdómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, um ógildingu úrskurðar kærunefndar jafnréttisnefndarmála vegna ráðningar ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytið. 5.3.2021 12:12
Fleiri Reykvíkingar ánægðir með borgarstjóra en óánægðir Fleiri Reykvíkingar eru ánægðir með störf Dags B. Eggertssonar borgarstjóra en óánægðir. Dæmið snýst hins vegar við þegar horft er til landsbyggðarinnar. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu þar sem ánægja með störf borgarstjóra var könnuð. 5.3.2021 12:02
„Stórundarlegt“ að ekki hafi verið brugðist við Bæjarfulltrúi minnihlutans í Seltjarnarnesbæ telur stórundarlegt að bæjaryfirvöld hafi ekki enn brugðist við athugasemdum slökkviliðs vegna brunavarna á Eiðistorgi. Ólýðandi sé að eignir bæjarins séu að valda skemmdum á eignum bæjarbúa. Bærinn segir brunamál á Eiðistorgi í vinnslu. 5.3.2021 11:59
Reykjavíkurborg telur kristinfræðifrumvarp ekki til að auka víðsýni og efla mannskilning Reykjavíkurborg er „alfarið á móti þeirri nálgun að heiti námsgreinarinnar trúarbragðafræði verði breytt í kristinfræði og trúarbragðafræði og telur þá aðferð ekki til þess fallna að styðja við víðsýni og efla mannskilning.“ 5.3.2021 11:41
„Skjálftavirknin sýnir að þetta er ekkert búið” Skjálftavirknin á Reykjanesskaga sýnir að þetta er ekki búið, segir jarðeðlisfræðingur. Ekki eru merki um að gos séu að hefjast í dag en ómögulegt að spá fyrir um næstu daga. Um þúsund skjálftar hafa mælst frá miðnætti. 5.3.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Skjálftavirknin á Reykjanesskaga sýnir að atburðarásinni er ekki lokið. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. 5.3.2021 11:27
Enginn greindist með veiruna innanlands sjötta daginn í röð Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, sjötta daginn í röð. 5.3.2021 11:02
Skipuleggjendur sumarhátíða eru bjartsýnir á þróun mála Ef bólusetningar ganga jafn vel hérlendis og vonir standa til, eru skipuleggjendur bjartsýnir á að geta blásið til sumarhátíða. Þeir segjast þó hafa lært að gera ráð fyrir öllum mögulegum útkomum og eru við öllu búnir. 5.3.2021 10:10
Átti að vera í sóttkví en var að bíða eftir fari Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af karlmanni þar sem hann var staddur fyrir utan búð í Njarðvík vegna gruns um brot á sóttvarnarlögum. 5.3.2021 09:53
Vilja frelsa Dillonshús úr „Árbæjar-Gúlaginu“ Árni Snævarr, blaðamaður, Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, og Sif Sigmarsdóttir, rithöfundur og pistlahöfundur, segja Árbæjarsafn tímaskekkju nú þegar þétting byggðar sé „alfa og ómega“ í bæjarpólitíkinni í Reykjavík. 5.3.2021 09:03
Páfinn ætlar að stappa stálinu í kristna Íraka sem hafa átt undir högg að sækja Frans Páfi leggur leið sína til Íraks í dag þar sem hann mun hitta kristna Íraka. Þeim hefur fækkað gífurlega á undanförnum árum vegna ofbeldis í landinu og af ótta við ofbeldi gegn þeim. 5.3.2021 08:47
Helgarveðrið með hagstæðasta móti Í dag er útlit fyrir sunnan fimm til tíu metra á sekúndu með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig. 5.3.2021 07:43
Ákærðir fyrir að nauðga íslenskri konu á Kanaríeyjum Lögregluyfirvöld á Kanaríeyjum hafa ákært fjóra menn fyrir kynferðisbrot gegn 36 ára gamalli íslenskri konu. Eru mennirnir grunaðir um að hafa nauðgað konunni en þeir sitja allir í gæsluvarðhaldi og eiga ekki möguleika á að losna úr fangelsi gegn tryggingu. 5.3.2021 07:20
Gleymdist að geta Hauks í skýrslu þjóðaröryggisráðs Stjórnvöld hafa beðist afsökunar vegna villu í skýrslu þjóðaröryggisráðs þar sem fjallað er um hryðjuverkaógn. Í skýrslunni var ranglega tekið fram ekki sé vitað um neina Íslendinga sem hafi tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum í Írak og Sýrlandi. 4.3.2021 22:54
Molnaði úr veggjum í skjálftanum: „Fannst eins og sprengju hefði verið varpað á húsið“ Steypa molnaði úr veggjum og ryk féll úr lofti HS-orkuhallarinnar í Grindavík eftir jarðskjálfta upp á 4,2 sem reið yfir klukkan 19:14 í kvöld, einni mínútu áður en flautað var til leiks í viðureign Grindavíkur og Hattar í Domino‘s deildinni í körfubolta. 4.3.2021 22:48
Telur ráðherra hafa misskilið svar Landspítalans um greiningu sýna Yfirmaður meinafræðideildar Landspítalans segir að heilbrigðisráðherra hafi misskilið svar spítalans um hvort að hann gæti tekið að sér greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimun. Verið sé að skoða hvað þurfi til að deildin geti tekið greininguna að sér sem færist að öðrum kosti úr landi. 4.3.2021 21:39
Brunavarnir á Eiðistorgi í lamasessi: Íbúar sagðir verða fyrir tjóni vegna sinnuleysis bæjaryfirvalda Miklar brotalamir eru á brunavörnum á Eiðistorgi. Flóttaleiðir íbúa á eftirhæðum eru ekki fyrir hendi. Þeir hafa ekki getað sinnt nauðsynlegu viðhaldi og eru íbúðir farnar að skemmast. Þak í eigu Seltjarnarnesbæjar skapar stærsta vandann. Sveitarfélagið hefur ekkert aðhafst. 4.3.2021 21:01
Höllin í Grindavík skalf fyrir körfuboltaleik Jarðskjálfti upp á 4,1 sem skók Grindavík í kvöld fannst vel í HS-Orku-höllina rétt áður leikur Grindavíkur og Hattar í körfubolta hófst á áttunda tímanum í kvöld. Titringurinn náðist greinilega á mynd í útsendingu Stöðvar 2 frá höllinni. Upptökuna má sjá neðst í fréttinni. 4.3.2021 20:11
Telur símtöl Áslaugar Örnu ekki afskipti af rannsókn máls Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segist ekki telja að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi haft afskipti af rannsókn sakamáls hjá embættinu með tveimur símtölum á aðfangadag þegar lögreglan greindi frá því að ráðherra hefði verið á meðal gesta á samkomu þar sem sóttvarnareglur voru brotnar. 4.3.2021 19:53
Ný hraunflæðispá: Fjögur svæði þar sem gos gæti komið upp Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt nýja hraunflæðispá þar sem miðað er við þróun jarðhræringanna á Reykjanesi frá því í nótt. Spáin gerir nú ráð fyrir fjórum svæðum þar sem eldgos gæti komið upp. 4.3.2021 19:42
„Við verðum bara að vera undir allt búin“ Engin merki er að finna í nýjustu gögnum um að kvika sé að nálgast yfirborð á Reykjanesi. Aftur á móti er enn óljóst hvort jarðhræringarnar á svæðinu komi til með að líða hjá á næstu dögum eða hvort komi til eldgoss. 4.3.2021 19:21
Tilbúin til að virkja allt sem virkja þarf ef þörf krefur Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði eru tilbúin með allar viðbragðsáætlanir ef til eldgossins kemur. Bæjarstjórinn hefur hins vegar litlar áhyggjur og telur ólíklegt að hraun muni flæða inn í bæinn og hvetur til stillingar. 4.3.2021 19:04
Mannréttindadómstóllinn að gefa Íslandi falleinkunn Lögmaður fyrrverandi bankastjóra Landsbankans segir kerfið hafa fengið falleinkunn hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið hefur viðurkennt að fimm manns hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð í málaferlum eftir hrun bankakerfisins. 4.3.2021 19:00
Ekki vísbendingar um gos á næstu klukkustundum Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis. 4.3.2021 18:29
Óróasvæðið í beinni útsendingu Grannt er nú fylgst með svæðinu í kringum Keili á Reykjanesskaga vegna mögulegs gosóróa og jarðskjálftavirkni. Vísir er með tvær vefmyndavélar við Keili sem sýna óróasvæðið í beinni útsendingu. 4.3.2021 18:11
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við vandlega yfir stöðuna á Reykjanesi í viðtölum við helstu sérfræðinga, viðbragðsaðila og íbúa. 4.3.2021 18:00
Mikið verk fyrir höndum við uppbyggingu og lagfæringu Hreinsun rústa og björgun muna við Slippinn á Seyðisfirði er komin vel áleiðis eftir tjónið sem þar varð í aurskriðunum sem féllu á Seyðisfirði fyrr í vetur. Mikið verk er enn fyrir höndum við uppbyggingu og lagfæringu þrátt fyrir að nú sjái fyrir endann á hreinsunarstarfi. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Austurlandi. 4.3.2021 17:47
Gervitunglamyndir sýna ekki miklar breytingar Ný gervitunglamynd barst fulltrúum Vísindaráðs almannavarna rétt fyrir fund þeirra nú síðdegis. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur, segir myndina leiða í ljós að ekki séu miklar breytingar frá fyrri myndum. 4.3.2021 17:30
Konan sem lýst var eftir komin í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sjötugri konu sem síðast sást til í nágrenni við heimili sitt við Fjarðarás í Árbænum um hádegisbil í dag. 4.3.2021 16:29
Drónar mega fljúga og fjölmiðlar frjálsir á skjálftasvæðinu Banni við flugi dróna verður aflétt klukkan 19 í kvöld. Þá mega fjölmiðlar aftur vera á svæðinu án þess að vera í fylgd björgunarsveita. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. 4.3.2021 16:19
Myndu verja línuna með varnargörðum eða kælingu Ólíklegt er talið að eldgos á Reykjanesi myndi valda truflunum á raforkuflutningi Suðurnesjalínu á Reykjanesi miðað við nýtt áhættumat. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Ef útlit sé fyrir að hraun muni ógna háspennulínum verði tími til að grípa til aðgerða og verja línuna með gerð varnargarða eða kælingu með öflugum dælum. 4.3.2021 15:34
Ísland langefst á lista Riot Games Forsvarsmenn fyrirtækisins Riot Games lögðu áherslu á að vel væri haldið á sóttvörnum í landinu þar sem eitt stærsta rafíþróttamót yrði hýst. Starfsmenn Riot litu einnig til netaðstöðu enda væri það gífurlega mikilvægt fyrir mót af þessu tagi. 4.3.2021 14:59
Óttaslegin í stóru blokkinni í Grindavík og vilja annað Kristín María Birgisdóttir, upplýsingafulltrúi og markaðsstjóri Grindavíkur, segist vita um pólska íbúa í stóru blokkinni í Grindavík sem vilja ekki búa þar lengur. Nú ríði á að upplýsa pólska samfélagið og von sé á sérfræðingum frá Veðurstofu til að svara spurningum sem brenni á þeim. Túlkur verði fenginn til að auðvelda fræðsluna. 4.3.2021 14:05
Stuðningsfólk Viðreisnar líklegast til að fara í frí til útlanda á þessu ári 58,7 prósent Íslendinga segja ólíklegt eða útilokað að þeir fari í frí til útlanda á þessu ári samkvæmt könnun Maskínu sem unnin var fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. 16,1 prósent svarenda telja mjög líklegt eða alveg öruggt að utanlandsferð sé í kortunum. 4.3.2021 13:01
Evrópusamstarfið þungamiðjan en samskipti við framleiðendur alltaf í gangi Evrópusamstarfið er þungamiðjan í bóluefnakaupum Íslendinga að sögn forsætisráðherra. Stjórnvöld eiga þó áfram í samskiptum við framleiðendur innan þess og utan til þess að tryggja að bólusetning gangi eins hratt og mögulegt getur hér á landi. 4.3.2021 12:47