Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Veiran mallað í samfélaginu: Sá sem braut sóttkví kom til landsins fyrir rúmum tveimur vikum Kórónuveirusmit sem greindist á leikskólanum Jörfa á föstudagskvöld má rekja til sóttkvíarbrots á landamærum um mánaðamótin. Yfirlögregluþjónn segir að flestir sem brjóti sóttkví séu búsettir á Íslandi en með erlent ríkisfang. Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, átta utan sóttkvíar. 18.4.2021 19:31
Miðflokkurinn nálægt því að þurrkast út af þingi Miðflokkurinn er nálægt því að þurrkast út af Alþingi samkvæmt nýrri könnun og mælist með einungis 5,3% fylgi. Fylgið hefur dregist saman um rúman helming frá síðustu kosningum. 18.4.2021 18:31
Öll sem voru á Íslenska barnum 9. apríl fari í skimun Einstaklingur sem smitaður var af kórónuveirunni sótti Íslenska barinn í miðbæ Reykjavíkur föstudaginn 9. apríl. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu barsins nú síðdegis þar sem gestir barsins þann daginn eru hvattir til þess að fara í skimun. 18.4.2021 18:12
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kórónuveirusmit á leikskólanum Jörfa má rekja til sóttkvíarbrots á landamærum um mánaðamótin. Þrettán greindust með veiruna innanlands í gær. Við förum ítarlega yfir stöðuna á kórónuveirufaraldrinum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við Víði Reynisson, yfirlögregluþjón hjá almannavörnum. 18.4.2021 18:03
Katrín um sóttkvíarbrot: „Við erum að herða eftirlit“ Þegar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra var spurð út í það í Víglínunni hvort ítrekuð dæmi um sóttkvíarbrot væru ekki tilefni til að endurskoða reglur á landamærunum sagði hún að verið væri að herða eftirlit með fólki. 18.4.2021 18:00
Annar starfsmaður smitaðist á undan og veiran fengið að „malla“ Talið er að starfsmaður á leikskólanum Jörfa í Reykjavík sem greindist fyrst smitaður af kórónuveirunni á föstudag hafi smitast af öðrum starfsmanni leikskólans. Sá hafi einnig mætt með einkenni til vinnu í síðustu viku og veiran því fengið að „malla“ einhvern tíma inni á leikskólanum. 18.4.2021 16:41
Foreldrar um hópsmitið á Jörfa: „Ég held að margir séu reiðir en við höfum öll gert mistök“ Móðir fimm ára drengs á leikskólanum Jörfa sem greindist með covid-19 um helgina tekur ástandinu af æðruleysi og er þakklát að sonur hennar sé ekki mikið veikur. Hún segir nokkra reiði ríkja meðal foreldra eftir að í ljós kom að smit sem upp kom á leikskólanum megi rekja til brots á reglum um sóttkví en allir geti lent í því að gera mistök og allir geri sitt besta. 18.4.2021 16:17
Fimm fluttir á sjúkrahús eftir harða aftanákeyrslu Fimm voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir harða aftanákeyrslu á Vesturlandsvegi við Esjuberg um klukkan tvö í dag. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. 18.4.2021 15:40
Skora á borgarstjórn að falla frá áformum um lækkun hámarkshraða Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, mótmælir harðlega áformum meirihluta borgarstjórnar um að lækka hámarkshraða á öllum götum í umsjá borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði. Fulltrúaráðið heldur því fram að áformin muni að óbreyttu ýta umferðinni frekar inn í íbúðahverfi sem verði til þess að ógna umferðaröryggi allra vegfarenda, líkt og það er orðað í tilkynningunni. 18.4.2021 15:07
„Það eru að verða algjör vatnaskil í baráttunni við veiruna“ „Við erum við krossgötur núna. Það eru að verða algjör vatnaskil í baráttunni við veiruna þegar að okkur er að takast núna á næstu vikum að bólusetja alla viðkvæmu hópana, allar eldri kynslóðirnar og koma framlínufólkinu öllu í bólusetningu. Maí og júní eru eins konar úrslitamánuðir hjá okkur til þess að stórauka bólusetningar með auknum fjölda í hverri viku og þetta breytir auðvitað allri vígstöðu í málum. Að því leytinu til er allt að breytast,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. 18.4.2021 14:24
Tveir íslenskir hestar felldir vegna skæðrar veiru Skæð herpesveira sem herjað hefur á hesta í Evrópu hefur greinst í íslenskum hestum á að minnsta kosti fjórum búgörðum í Þýskalandi. Þurft hefur að fella tvo íslenska hesta vegna sjúkdómsins sem veiran veldur, að því er fram kemur í tilkynningu Landssamtaka íslenska hestsins í Þýskalandi. 18.4.2021 13:29
Farfuglarnir streyma til landsins – sumir örmagnast Farfuglar streyma nú til landsins í þúsunda tali eins og lóur, spóar, stelkar, þúfutittlingar og maríuerla. Það tekur á fyrir fuglana að fljúga svona langt og eru margir við það að örmagnast þegar þeir koma til landsins. 18.4.2021 13:04
Smitið á Jörfa rakið til sóttkvíarbrots á landamærunum Smitið sem greindist á leikskólanum Jörfa á föstudag má rekja til sóttkvíarbrots á landamærunum. Þetta segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna. 18.4.2021 12:32
Rökræddu stöðuna í stjórnmálum: „Eigum að ná miklu meiri árangri sem sjálfstæð þjóð“ Íslenskir stjórnmálamenn standa sig betur á krepputímum og stjórnvöldum er vel treystandi til að takast á við áföllin af völdum heimsfaraldurs innanlands að mati Guðna Ágústssonar. Þorsteinn Pálsson vill hins vegar hefja gjaldmiðlasamstarf við Evrópusambandið samhliða endurreisn ríkisfjármála. 18.4.2021 12:11
Býst við fjölgun í sóttkví: „Þetta er bakslag“ Þrettán greindust með kórónuveiruna í gær og voru átta utan sóttkvíar. Víðir Reynisson segir að um bakslag sé að ræða. Ekki séu öll kurl komin til grafar og býst hann við að þeim fjölgi sem þurfa í sóttkví. 18.4.2021 12:02
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Þrettán greindust með kórónuveiruna í gær og voru átta utan sóttkvíar. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að um bakslag sé að ræða. Ekki séu öll kurl komin til grafar og býst hann við að þeim fjölgi sem þurfa í sóttkví. Við ræðum við Víði og stöðu faraldursins í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 18.4.2021 11:41
Þrettán greindust innanlands og átta utan sóttkvíar Þrettán greindust með Covid-19 innanlands í gær. Fimm þeirra voru í sóttkví. Af þessum þrettán tengjast tíu þeirra leikskólanum Jörfa við Hæðagarð í Reykjavík. 18.4.2021 11:08
Ekkert sérstakt ferðaveður að gosstöðvunum í dag Ferðaveður að gosstöðvunum í Geldingadölum er ekkert sérstakt í dag. Spáð er suðvestan tíu til fimmtán metrum á sekúndu fyrir hádegi en bætir nokkuð í vindinn eftir hádegi. Hægist um aftur í kvöld en búast má við éljum í allan dag að því er segir í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. 18.4.2021 10:48
Allir starfsmenn Íslensks sjávarfangs í skimun eftir að tveir starfsmenn smituðust Allir starfsmenn Íslensks sjávarfangs í Kópavogi, um hundrað manns, verða skimaðir fyrir kórónuveirunni eftir að tveir starfsmenn greindust smitaðir í fyrradag. 18.4.2021 10:45
Bandaríkin og Kina vinna saman í loftslagsmálum Ráðamenn í Kína og Bandaríkjunum segjast hafa komið að samkomulagi um að takast á við veðurfarsbreytingar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ríkin eru efst á lista ríkja sem losa hvað mestan koltvísýring út í andrúmsloftið. 18.4.2021 09:45
Tilkynning um eld sem reyndist vera rómantísk kvöldstund Slökkvilið á vakt á öllum fjórum stöðvum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang þegar tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi í nótt. Nágranni hafði orðið var við eldbjarma í íbúð og ekki þótti duga minna til en að senda allt tiltækt slökkvilið á staðinn. 18.4.2021 09:42
Sprengisandur: Pólitíkin, öldrunarþjónusta, ríksreksturinn og störf úti á landi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjá Kristjáns Kristjánssonar verður á sínum stað á Bylgjunni að loknum fréttalestri klukkan tíu. Þátturinn í dag verður fjölbreyttur að vanda og fær Kristján til sín góða gesti. 18.4.2021 09:30
Inntaka í ritlist að verða sama eldraun og í læknisfræði Þær eru árvissar átakanlegar sögurnar sem heyrast af þeim sem ítrekað sækja um sama háskólanám hér á landi en hafa ekki erindi sem erfiði. 18.4.2021 09:01
193 km hraða og nýkominn með bílpróf Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl í Reykjavík sem mældist á 193 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 80 kílómetrar. Ökumaður bílsins var ekki orðinn átján ára gamall og því var foreldrum hans og barnavernd gert viðvart um ofsaaksturinnn. 18.4.2021 07:05
Ingibjörg Ólöf í fyrsta sæti og Líneik Anna í öðru Ingibjörg Ólöf Isaksen, framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar, hlaut flest atkvæði í forvali Framsóknarmanna í Norðausturkjödæmi og mun leiða lista flokksins í næstu kosningum. Líneik Anna Sævarsdóttir þingmaður hafnaði í öðru sæti, en hún sóttist eftir oddvitasæti. 17.4.2021 23:44
Smitum fjölgar á leikskólanum Jörfa: Starfsfólk, börn og foreldrar í sóttkví fram á föstudag Fleiri starfsmenn á leikskólanum Jörfa í Reykjavík hafa greinst með kórónuveiruna í dag eftir starfsmaður þar greindist með veiruna í gær. Starfsmaðurinn fór veikur heim á fimmtudag og voru rúmlega tuttugu börn og allt starfsfólk á einni deild sett í sóttkví. 17.4.2021 21:17
Nemandi í Sæmundarskóla greindist með veiruna Nemandi í 2. bekk í Sæmundarskóla í Grafarholti greindist með kórónuveiruna. Allir nemendur árgangsins eru nú í sóttkví. 17.4.2021 21:10
Segir aumingjaskap að beina þvingunaraðgerðum gegn almennum borgara Alþjóðastjórnmálafræðingur segir það aumingjaskap af hálfu kínverskra stjórnvalda að beina þvingunaraðgerðum gegn almennum borgara hér á landi. Um sé að ræða ágreining sem eigi að ræða á vettvangi stjórnmála. 17.4.2021 20:31
Mikil ánægja með einu hestasundlaug landsins Mikil eftirspurn er eftir því að komast með hesta í einu hestasundlaug landsins þar sem hestarnir fá þjálfun og endurhæfingu í lauginni. Eftir sundsprettinn fara hestarnir í sérstakan þurrkklefa og fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í lauginni. 17.4.2021 20:04
Guðmundur Ingi leiðir VG í Kraganum Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mun leiða lista Vinstri grænna í Suðurvesturkjördæmi. Rafrænu forvali flokksins lauk nú síðdegis og varð Guðmundur Ingi þar hlutskarpastur með 483 atkvæði, en hann hefur verið utanþingsráðherra frá stjórnarmyndun. 17.4.2021 18:38
Hundrað í skimun eftir að smitin voru rakin til matvælafyrirtækis Verið er að skima hundrað starfsmenn matvælafyrirtækis eftir að tvö kórónuveirusmit sem greindust í gær voru rakin til þess. Smitin greindust utan sóttkvíar og eru tugir nú í sóttkví, sem gætu orðið fleiri ef fleiri reynast smitaðir. 17.4.2021 18:29
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýtt gosop opnaðist við Fagradalsfjall í dag, sem gæti breytt hraunflæði. Sérfræðingar urðu í fyrsta sinn varir við opið áður en það myndaðist. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.4.2021 18:22
„Ef ég vissi hver hálfvitinn væri þá myndi ég kæra“ „Skömmin var aldrei hjá mér. Skömmin er aldrei hjá þeim sem treystir. Skömmin er hjá þeim sem brýtur trúnaðinn og traustið,“ segir söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson í samtali við Vísi. 17.4.2021 17:33
Nýtt gosop opnaðist í gígjaðrinum Nýtt gosop opnaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á þriðja tímanum í dag. Opið er lítið og opnaðist á milli gíganna sem fyrir eru, á skilgreindu hættusvæði. 17.4.2021 15:52
Dagar bílastæðaklukkunnar á Akureyri senn taldir: Gjaldskylda hefst í lok sumars Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum í miðbæ Akureyrar. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi í lok sumars. Þannig mun tími bílastæðaklukkunnar á Akureyri, sem ökumenn hafa jafnan haft sýnilega í bílrúðum á Akureyri, renna sitt skeið. 17.4.2021 14:46
Segir aðgerðir Kínverja í samræmi við skilningsleysi þeirra á réttarríkinu Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir aðgerðir Kínverja í samræmi við skilningsleysi þeirra á réttarríkinu og öllum þeim grundvallarréttinum sem undir það heyra. Nefndin mun ræða mál Kínverja á næstunni. 17.4.2021 14:00
Tugir þurfa í sóttkví vegna smitanna í gær Tugir þurfa að fara í sóttkví í tengslum við þau tvö smit covid-19 sem greindust innanlands í gær. Víðir Reynisson minnir á mikilvægi þess að fólk fari í sýnatöku finni það fyrir minnstu einkennum og hvetur atvinnurekendur til að vera duglega til að miðla upplýsingum til erlends starfsfólks um hve auðvelt sé að komast að í sýnatöku. 17.4.2021 13:29
Ólafur Laufdal byggir tíu lúxus svítur í Grímsborgum Ólafur Laufdal, veitingamaður í Grímsborgum í Grímsnesi lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir heimsfaraldur og nánast enga erlenda ferðamenn því hann er að fara að byggja tíu lúxusvítur fyrir 400 milljónir króna. 17.4.2021 13:04
Úrskurður siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan endanlegur og verður ekki áfrýjað Siðanefnd Ríkisútvarpsins hefur svarað bón Helga Seljan fréttamanns, sem krafðist þess að úrskurður nefndarinnar í máli hans verði endurupptekinn, á þá leið að það sé ekki hægt. Nefndin kveðst ekki hafa neinar forsendur til að endurupptaka úrskurðinn, hann sé því endanlegur og verði ekki áfrýjað. 17.4.2021 12:08
22 börn auk starfsfólks leikskólans Jörfa í sóttkví 22 börn og allri starfsmenn á einni deild leikskólans Jörfa í Reykjavík eru í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp hjá starfsmanni á leikskólanum. Smitið greindist í gær og er óvíst hvort leikskólinn getur verið opinn að sögn Bergljótar Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Jörfa. 17.4.2021 11:36
Veðjað á að hugsanlegur fundur Putíns og Bidens verði í Tékklandi eða á Íslandi Efnt hefur verið til veðmáls þar sem talið er líklegast að fundur leiðtoga hinna fornu stórvelda verði haldinn í Tékkalandi en Ísland kemur þar fast á hæla. 17.4.2021 11:32
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag heyrum við í formanni utanríkismálanefndar um yfirlýsingu kínverska sendiráðsins í gær. 17.4.2021 11:30
Tveir greindust innanlands og hvorugur í sóttkví Tveir greindust með Covid-19 innanlands í gær og var hvorugur í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Einn greindist á landamærum. 17.4.2021 10:58
Mengun mun berast yfir Vatnsleysuströnd Gasmengun frá gosstöðvunum á Reykjanesi mun berast til norðurs í dag, miðað við spár, og þá einkum yfir Vatnsleysuströnd. Þeir sem leggja leið sína að gosstöðvunum eru hvattir til að fylgjast með loftgæðamælingum og leiðbeiningum frá almannavörnum. 17.4.2021 09:22
Golffár á Fróni og nú þegar slegist um rástímana Áhugi á golfinu hefur ekki verið eins mikill í annan tíma á Íslandi. Þó tímabilið sé ekki hafið og nú sé svokallað vetrargolf stundað, sem áður var bara meðal þeirra hörðustu, eru allir rástímar sem í boði eru upp bókaðir og biðlistar í að komast í klúbbana. 17.4.2021 08:00