Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gerir ekki kröfu um að Kolbeinn segi af sér eða fari í leyfi Formaður Vinstri grænna telur að Kolbeinn Óttarsson Proppé hafi tekið rétta ákvörðun með því að draga til baka framboð sitt í prófkjöri flokksins eftir að kvartað var undan hegðun hans til fagráðs flokksins. Hún telur þó ekki ástæðu til þess að hann fari í leyfi eða segi af sér þingmennsku. 12.5.2021 17:01
Geymslur þurfa ekki að greiða skaðabætur Héraðsdómur fyrst, svo Landsréttur og nú Hæstiréttur eru sammála um að fyrirtækið Geymslur sé ekki skaðabótaskylt vegna stórbrunans í Garðabæ í apríl 2018. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti dóm á neðri dómstigum. 12.5.2021 16:30
Segir aðkomu HÍ að rekstri spilakassa á ábyrgð stjórnvalda og skólans Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur kallað eftir því að Háskóli Íslands hætti rekstri spilakassa. Forseti Stúdentaráðs segir vandann aðallega felast í því að Háskólinn sé ekki nógu vel fjármagnaður af stjórnvöldum og gagnrýnir að skólinn þurfi að fjármagna starfsemi sína með rekstri slíkra kassa. 12.5.2021 16:12
Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar fjarlægð Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar hafa verið fjarlægð af hlaðvarpsveitum og YouTube-rás hlaðvarpsstjórnandans, eftir að beiðni þess efnis barst stafrænu auglýsingastofunni KIWI. 12.5.2021 16:11
Efna til hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um að finna nýrri sameiginlegri sundlaug bæjarfélaganna stað um miðbik Fossvogsdals í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla. 12.5.2021 15:59
Störf Sögu Ýrar „mjög óvanaleg hagsmunagæsla“ Lögmannafélag Íslands mun óska eftir upplýsingum um störf Sögu Ýrar Jónsdóttur lögmanns fyrir Sölva Tryggvason fjölmiðlamann. Félagið hefur eftirlitsskyldu og formaður þess telur framferði Sögu óvanalegt. 12.5.2021 15:54
Húsnæði starfsmannaleigunnar „alger bráðabirgðalausn“ Eigandi starfsmannaleigu sem er ákærður fyrir að stefna lífi og heilsu starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í iðnaðarhúsnæði án tilskilinna leyfa gaf óljós svör við aðalmeðferð málsins í dag. Tók hann ekki beina afstöðu til sakarefnisins og sagði að búseturýmin í húsnæðinu hafi verið alger bráðabirgðalausn. 12.5.2021 15:36
Tilkynntu mál Kolbeins ekki til lögreglu Mál sem tilkynnt var til fagráðs Vinstri grænna vegna hegðunar Kolbeins Óttarssonar Proppé þingmanns var ekki tilkynnt til lögreglu. Fagráðið mat það svo að málið væri ekki þess eðlis. 12.5.2021 14:57
Kristján Þór biðst afsökunar á brogaðri upplýsingagjöf ráðuneytisins Kristján Þór Júlíusson ráðherra vonast til að draga megi lærdóm af þeim mistökum sem voru gerð af hálfu ráðuneytisins; að mismuna í upplýsingagjöf aðgengi að skýrslu sem nú er til umfjöllunar. 12.5.2021 14:54
Bein útsending: Staða og horfur í sjávarútvegi og fiskeldi Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, hefur boðað til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra. Fundurinn hefst klukkan 14. 12.5.2021 13:59
„Eitt ljótasta mál sem ég hef séð á 30 ára ferli“ Sviðsstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir sakamál gegn eiganda starfsmannaleigunnar 2findjob eitt það ljótasta sem hann hefur séð á sínum 30 ára ferli. Mikil íkveikjuhætta var í húsnæðinu og ljóst að þar hefði getað orðið stórslys. Verkamenn bjuggu í litlum svefnkössum sem var staflað upp. 12.5.2021 13:31
Almannavarnastig vegna Covid-19 fært niður á hættustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnarlækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna COVID-19 frá neyðarstigi niður á hættustig. 12.5.2021 13:24
Fylgi Sjálfstæðisflokks fer úr 28,7 prósentum í 25,6 milli kannanna hjá MMR Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 25,6 prósent í nýrri könnun MMR, en var 28,7 prósent í þeirri síðustu. 12.5.2021 12:52
Bein útsending: Ísland ljóstengt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptastjóður standa fyrir kynningarfundi í dag um árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið er sagt hafa bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins. 12.5.2021 12:32
Fimmtungur barna stundar ekki tómstundir Ójöfnuður meðal barna hér á landi birtist helst í því að nærri fimmtungur þeirra fær ekki tækifæri til að stunda tómstundir og fleiri börn búa við þröngan kost en áður. 12.5.2021 12:08
Samfylkingin vill tvöfaldan persónuafslátt eftir atvinnuleysi og styrkja viðburði listafólks Samfylkingin mun í vikunni leggja fram þingsályktunartillögu með úrræðum gegn atvinnuleysi. Formaður flokksins segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar kjarklausar. 12.5.2021 12:07
Landlæknir hvetur alla til að uppfæra rakningarappið Á upplýsingafundi rétt í þessu kynnti Alma Möller landlæknir til sögunnar uppfærslu á smitrakningarappinu, sem felur í sér að nú geta símar „átt samskipti“ við aðra síma í nágrenninu með Bluetooth. 12.5.2021 11:41
Tveir greindust á Sauðárkróki í gær Tveir greindust með kórónuveiruna á Sauðárkróki í Skagafirði í gær, en alls eru nú tíu manns í einangrun í bænum. 12.5.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðunaá kórónuveirufaraldrinum hér innanlands en í máli sóttvarnalæknis í morgun kom fram að tveir hafi nú greinst með indverska afbrigði veirunnar á landamærunum. 12.5.2021 11:36
Íslendingar eiga heimtingu á einu verðmætasta frímerkta skjali heims Biblíubréfið, eitt verðmætasta frímerkta skjal í heimi, er í raun í eigu íslenska ríkisins, að mati Þjóðskjalasafns Íslands. 12.5.2021 11:31
Tveir greinst með indverska afbrigðið á landamærunum Tvö tilvik inverska afbrigðisins hafa fundist á landamærunum hérlendis og eru báðir einstaklingarnir nú í einangrun í sóttvarnahúsi. Á upplýsingafundi rétt í þessu sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir viðbúið að afbrigði í dreifingu erlendis bærust hingað. 12.5.2021 11:27
Fékk fyrst veður af kvörtunum vegna Kolbeins í gær Þingflokksformaður Vinstri Grænna segist ánægð með ákvörðun Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns VG, um að hætta við framboð vegna hegðunar gagnvart konum. Ákvörðunin, sem komið hafi á óvart, sé alfarið Kolbeins. Hún hafi fyrst fengið veður af kvörtunum vegna hans í gær. 12.5.2021 11:11
Æskilegra talið að Mogginn fjalli um efni skýrslu um sjávarútveginn en Kjarninn Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segir um ævintýralega ósvífni og mismunun að ræða er varðar upplýsingagjöf hins opinberra til ólíkra miðla. 12.5.2021 10:47
Þrír greindust innanlands í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir sem greindust voru í sóttkví, en einn var utan sóttkvíar. 12.5.2021 10:46
Bein útsending: Fundur Samfylkingarinnar – Verk að vinna – strax Frambjóðendur Samfylkingarinnar munu kynna nýjar tillögur sínar að „markvissum aðgerðum til að hraða ráðningum, auka virkni á vinnumarkaði, verja afkomuöryggi og leggja grunn að kraftmikilli endurreisn“ á fréttamannafundi sínum sem hefst klukkan 10:30. 12.5.2021 10:16
Svona var 180. upplýsingafundur almannavarna Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, fer yfir stöðu mála varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. 12.5.2021 10:10
Banna unglingsstúlku sem mótmælti Kreml að yfirgefa heimabæinn Dómstóll í Rússlandi bannaði nítján ára gamalli stúlku að yfirgefa heimabæ sinn í meira en tvö ár eftir að hún var sakfelld fyrir skemmdarverk. Stúlkan vakti mikla athygli þegar hún tók þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum árið 2019. 12.5.2021 09:42
Bein útsending: Drífa yfirheyrir Gunnar Smára Alþýðusamband Íslands stendur í aðdraganda Alþingiskosninganna í haust fyrir röð samtala við forystufólk flokkanna. 12.5.2021 09:35
Hildur stefnir ofarlega á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Hildur Sverrisdóttir, 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, ætlar að bjóða sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík í júní. Auk þess að vera varaþingmaður starfar Hildur sem aðstoðarmaður Þórdís Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunaráðherra. 12.5.2021 09:06
Sjálfstæðismenn halda prófkjör í Suðvesturkjördæmi Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurvesturkjördæmi ákvað að haldið yrði prófkjör þar fyrir Alþingiskosningarnar í haust. Mikill einhugur er sagður hafa verið um tillögu kjörnefndar þess efnis. 12.5.2021 08:49
Lokað á gosstöðvunum í dag vegna framkvæmda á gönguleið Lokað verður inn á gossvæðið í Fagradalsfjalli í dag vegna framkvæmda á gönguleið að gosstöðvunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. 12.5.2021 07:41
Í skoðun að breyta lánum ríkissjóðs til Vaðlaheiðarganga í hlutafé Til skoðunar er að ríkissjóður breyti hluta af lánum sínum til Vaðlaheiðaganga í hlutafé. Unnið er að endurfjármögnun skulda til að draga úr fjármagnskostnaði, sem setur strik í reikninginn þrátt fyrir að rekstur ganganna gangi vel. 12.5.2021 06:44
Átök og eldræða í borgarstjórn: „Sjálfstæðisflokkurinn er kýli á samfélaginu“ Átök brutust út á fundi borgarstjórnar í kvöld þegar rætt var um nýbirtan ársreikning Reykjavíkurborgar. Mikil spenna var milli fulltrúa minnihluta og meirihluta þar sem þeir fyrrnefndu gagnrýndu harðlega rekstrarniðurstöðu borgarinnar. 11.5.2021 23:32
Leitar sameiginlegra flata um framtíð hálendisvega Vegagerðin leitar nú málamiðlana milli þeirra sjónarmiða hvort ráðast eigi í uppbyggingu hálendisvega með bundnu slitlagi eða hvort halda eigi þeim sem mest óbreyttum sem jeppavegum. 11.5.2021 23:23
Átta sig á andlegu, fjárhagslegu og kynferðislegu ofbeldi Heimilisfriður, úrræði fyrir gerendur ofbeldis, sinnir nú næstum þrefalt fleiri viðtölum í hverjum mánuði en árið 2019. Allt að níutíu prósent gerenda eru sjálfir þolendur ofbeldis, að sögn sálfræðings Heimilisfriðar. 11.5.2021 22:00
Hérna vilja Almannavarnir ekki missa hraunið lengra Eldgosið í Fagradalsfjalli er núna tvöfalt öflugra en það hefur lengst af verið, samkvæmt nýjum mælingum Jarðvísindastofnunar. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu með að láta ryðja upp varnargörðum til að hindra að hraunrennsli fari í Nátthaga og ógni þar með Suðurstrandarvegi. 11.5.2021 21:31
Karen Elísabet sækist eftir þriðja sæti í Suðvestur Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, sækist eftir þriðja sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurvesturkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar. 11.5.2021 21:25
Tvö útköll vegna slysa í fjalllendi Björgunarsveit í Borgarfirði var kölluð út rétt fyrir klukkan átta í kvöld vegna konu sem slasaðist á fjallgöngu í Kvígindisfelli norðaustur af Hvalvatni. Á svipuðum tíma voru björgunarsveitir í Árnessýslu kallaður út vegna konu sem hafði slasast á göngu norðan við Hengilinn, innarlega í Skeggjadal. 11.5.2021 20:35
Dregur framboð sitt til baka í ljósi umræðu síðustu daga Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hefur ákveðið að draga framboð sitt til Alþingis til baka. Í Facebook-færslu sem hann birti fyrir skömmu setur hann ákvörðunina í samhengi við MeToo-umræðu síðustu daga. 11.5.2021 20:26
Sinubruni á Laugarnesi Slökkvilið hefur verið kallað út vegna sinubruna á Laugarnesi í Reykjavík. Ekki er um að ræða mikinn eld og vinnur slökkvilið nú að því að stýra eldinum að veginum að sögn aðstoðarvarðstjóra. 11.5.2021 19:26
Mikil samstaða í sóttvarnaaðgerðum í Skagafirði Vonir standa til að hægt verði að aflétta viðbótar samkomutakmörkunum í Skagafirði strax eftir helgi. Þrír greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær, þar af einn í sóttkví og var hann í Skagafirði. Forsætisráðherra var ein þeirra sem voru bólusettir í dag. 11.5.2021 18:52
Reglulegar eftirlitsferðir vegna eldhættu víða um land Lögregla og slökkvilið á þeim svæðum þar sem almannavarnastigi vegna hættu á gróðureldum hefur verið lýst yfir hafa aukið viðbúnað sinn og eftirlit vegna þess hve hættan á gróðureldum er nú mikil. Svæðið sem um ræðir nær allt frá Eyjafjöllum í austri og vestur að Breiðafirði. 11.5.2021 18:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma Stöðvar 2 verðum við í beinni útsendingu frá Hvaleyrarvati þar sem gróðureldar loguðu í dag. Einnig kviknuðu eldar í Grímsnesi og á Vatnsleysuströnd. Hættustigi hefur verið lýst yfir á Suður- og Vesturlandi. 11.5.2021 18:01
Segir að Íslendingurinn í Rauðagerðismálinu muni leita réttar síns „Þetta er enn eitt augljósa dæmið um hvernig lögreglan fer stundum offari í rannsóknum sínum og yfirlýsingum,“ segir Steinbergur Finnbogason lögmaður um rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu. 11.5.2021 16:56
Efnahagspakki vegna faraldursins samþykktur á Alþingi Frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra sem fela í sér ýmsar efnahagsaðgerðir vegna faraldursins voru samþykkt á Alþingi í dag. 11.5.2021 16:31