Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír ungir menn handteknir grunaðir um líkamsárás Þrír ungir menn voru handteknir á miðnætti í gær grunaðir um líkamsárás í Breiðholti. Mennirnir voru allir í annarlegu ástandi. Brutu þeir þá lögreglusamþykkt og fóru ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Þeir voru allir vistaðir í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 22.5.2021 07:19
Skora á SÍS að „hysja upp um sig buxurnar“ og stytta vinnuvikuna Starfsgreinasamband Íslands (SGS) segir að Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) og sveitarfélög vítt og breytt um landið hafi ekki sinnt því að innleiða styttingu vinnuvikunnar sem samið var um í kjarasamningum í fyrra. Sambandið segir sveitarfélögin fá „algera falleinkunn“. 21.5.2021 23:20
Boeing Max tekst á loft í fyrsta innanlandsfluginu Óvenju stór flugvél sinnti innanlandsfluginu nú síðdegis, 160 sæta þota af gerðinni Boeing 737 MAX. Þotan var fengin til að hlaupa í skarðið fyrir Bombardier Q400 vél, sem er í viðhaldi, en einnig til að létta á álagi vegna hvítasunnuhelgarinnar. 21.5.2021 22:44
Árekstur milli rútu og mótorhjóls Árekstur varð milli rútu og mótorhjóls á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar fyrir skemmstu. Enginn er alvarlega slasaður samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. 21.5.2021 22:11
Allt annað líf að fá að standa berskjaldaður andspænis kúnnunum Ætla má að veitingahúsa- og bareigendur landsins hafi margir hverjir séð tilefni til að gleðjast í dag yfir boðuðum tilslökunum á sóttvarnareglum. Það er Björn Árnason, eigandi Skúla Craft Bar, að minnsta kosti en hann segir það muna öllu að fá að afgreiða fólk grímulaus. 21.5.2021 21:15
Kristján Einar sýknaður af ákæru um líkamsárás Kristján Einar Sigurbjörnsson, unnusti söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur, var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás í Landsrétti. Dómi héraðsdóms í málinu var þannig snúið við en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Kristján Einar fyrir líkamsárásina í desember 2019. 21.5.2021 20:41
Týndur svifvængjaflugmaður sló kannski Íslandsmet Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var fengin til að svipast um eftir svifvængjaflugmanni í nágrenni við Hrafnabjörg, ofan við Þingvelli, í dag þar sem ekki hafði náðst í hann lengi. 21.5.2021 19:29
Vill skylda alla lögreglumenn til að sækja sálfræðiþjónustu Sautján lögreglumenn hafa fallið fyrir eigin hendi á síðustu þrjátíu árum. Formaður Landssambands lögreglumanna segir tölurnar sláandi og hyggst leggja til að lögreglumönnum verði gert skylt að sækja sálfræðiþjónustu með reglulegu millibili. Lögreglumaður segir það hingað til hafa verið litið á það sem veikleikamerki að viðurkenna vanmátt sinn. 21.5.2021 18:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hundrað og fimmtíu mega koma saman á þriðjudag og grímuskylda verður afnumin að hluta. Við fjöllum um afléttingar á sóttvarnaaðgerðum í fréttum okkar í kvöld og ræðum við heilbrigðisráðherra, forsætisráðherra og veitingamann en ætla má að sá geiri sé himinlifandi með þessar afléttingar. 21.5.2021 18:12
Hnepptu meintan stórsmyglara í varðhald með aðstoð spænsku lögreglunnar Lögreglan á Suðurnesjum telur sig vera með höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var framseldur til Íslands frá Spáni í marsmánuði. Fjórir til viðbótar voru handteknir vegna málsins sem lögregla flokkar sem skipulagða glæpastarfsemi. 21.5.2021 18:11
Hraunið komið yfir nýlagðan ljósleiðara Ljósleiðari var grafinn niður fyrir framan annan varnargarðinn á gosstöðvunum síðasta þriðjudag til að mæla áhrif hraunrennslis á ljósleiðara. Ljóst er að ef gosið heldur mikið lengur áfram mun hraun á endanum renna niður að Suðurstrandavegi en áður en það næði þangað myndi það renna yfir ljósleiðara Mílu sem hringtengir Reykjanesið. 21.5.2021 18:01
Verður ekki sendur aftur heim þar sem hann var pyntaður Hælisleitandi frá Sri Lanka, sem synjað var um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi í ágúst 2018, mun ekki þurfa að fara úr landi. Þetta dæmdi Landsréttur í dag. Maðurinn er talinn í verulegri hættu í heimalandi sínu en hann tilheyrir þar minnihlutahópi og segist hafa verið pyntaður í haldi yfirvalda. 21.5.2021 16:04
Fyrsta konan til að gegna stöðu skólastjóra Guðrún Inga Sívertsen hefur verið ráðin nýr skólastjóri Verzlunarskóla Íslands (VÍ) og tekur við af Inga Ólafssyni. Hún er fyrsta konan til að gegna starfinu í rúmlega 110 ára sögu VÍ og jafnframt fyrsti skólastjórinn sem hefur útskrifast úr skólanum. 21.5.2021 15:10
Steypusílóum verður breytt í gróðurhús Steypustöðinni á Sævarhöfða verður umbreytt í veitingastaði og og nýsköpunarmiðstöð verði verðlaunatillaga sem kynnt var í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur að veruleika. Þá verða steypusíló á svæðinu gerð að gróðurhúsum. 21.5.2021 15:00
Persónuvernd telur öryggisáhættu geta skapast við endurmerkingu leghálssýna við flutning milli landa Persónuvernd telur að mögulega muni reyna á álitaefni varðandi öryggi í tengslum við notkun danskra kennitalna og tengsl þeirra við íslenskar kennitölur, þegar leghálssýni eru flutt úr landi til rannsókna í Danmörku. 21.5.2021 14:57
Hætt verði að skima bólusetta og börn um miðjan júní Sóttvarnalæknir leggur til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra um sóttvarnaaðgerðir á landamærum að um miðjan júní verði hætt að skima bólusetta, fólk með vottorð um fyrri Covid-sýkingu og börn. Í júní eða júlí verði stefnt að því að breyta tvöfaldri skimun í einfalda skimun og íhuga að hætta henni í framhaldinu. 21.5.2021 14:43
Annmarkar í tölvukerfi aftra vottorðum fyrir blandaða bólusetningu Annmarkar í tölvukerfi Embætti Landlæknis hefur orðið til þess að fólk sem fengið hefur blandaða bólusetningu, það er eitt bóluefni í fyrri sprautu og annað í seinni, hefur ekki fengið bólusetningarvottorð hingað til. 21.5.2021 14:00
Áfram grímuskylda í Strætó Tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum og grímuskyldu munu ekki hafa áhrif á starfsemi Strætó. Áfram þurfa bæði farþegar og vagnstjórar að bera grímu. 21.5.2021 14:00
„Svakalegt að lesa um illviljann sem hér er afhjúpaður“ Hallgrímur Helgason rithöfundur fer háðulegum orðum um gervigrasrótarstarfsemi Samherja, segir þar illvilja ráða og sjúklegt hugarfar lítilla karla. 21.5.2021 12:38
Nefnd um þjóðaróperu klofnaði: Vinnan heldur áfram innan ráðuneytisins Ekki var full samstaða innan nefndar um stofnun þjóðaróperu. Meirihlutinn vildi að lagt yrði fram frumvarp til breytinga á lögum um sviðslistir og stofnun þjóðaróperu lögfest en minnihlutinn skilaði séráliti. 21.5.2021 12:32
Benedikt vildi efsta sætið en var boðið það neðsta Benedikt Jóhannesson, einn stofnenda og fyrrverandi formaður Viðreisnar, mun ekki taka sæti á lista flokksins fyrir komandi Alþingiskosningar. Uppstillingarnefnd bauð Benedikt, sem sóttist eftir að leiða einhvern lista flokksins á suðvesturhorninu, að taka neðsta sæti. 21.5.2021 12:09
Mál Benedikts Bogasonar fyrir allsherjarnefnd Páll Magnússon formaður allsherjar og menntamálanefndar telur fulla ástæðu til að ýmsum spurningum og álitaefnum er varða aukastörf hæstaréttardómara sé svarað. 21.5.2021 12:04
Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum og verður fyrirkomulag um tvöfalda skimun áfram óbreytt, að minnsta kosti til 15. júní. Er það meðal annars vegna þess að bólusettum á leið til landsins mun fjölga á næstunni. 21.5.2021 11:33
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um þær afléttingar sem taka gildi bæði innanlands og á landamærum í næstu viku. Hundrað og fimmtíu mega nú koma saman og grímuskyldan verður aflögð að miklu leyti. Enginn greindist smitaður innanlands í gær og aðeins einn á landamærum. 21.5.2021 11:31
Max-þota í fyrsta sinn í innanlandsflugi í dag Boeing 737 MAX flugvél Icelandair verður nýtt í innanlandsflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar seinnipartinn í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem MAX-þota er notuð í farþegaflugi til Akureyrar sem og á innanlandsleiðum, að sögn Ásdísar Ýrar Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair. 21.5.2021 11:09
150 mega hittast og almenn grímuskylda heyrir sögunni til 150 mega koma saman frá og með næsta þriðjudegi og fyrstu skref verða tekin í að aflétta grímuskyldu. Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra rétt í þessu. 21.5.2021 11:05
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. 21.5.2021 10:54
„Skæruliðadeild“ Samherja sögð hafa lagt á ráðin um pistlaskrif gegn RÚV og fleirum „Ég fékk skilaboð frá einum af skipstjórunum okkar Páli Steingrímssyni. Hann hefur verið mjög „aktífur“ að skrifa bæði í blöð og á samfélagsmiðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á einhver skrif.“ 21.5.2021 10:49
Svandís og Katrín kynntu breytingar innanlands og á landamærum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum sínum um aðgerðir innanlands. 21.5.2021 10:22
Losun frá íslenskum iðnaði dróst aðeins saman Stöðvun á starfsemi kísilvers PCC á Bakka í fyrra er talin meginástæða 1,8% samdráttar á losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði á Íslandi sem heyrir undir evrópsks viðskiptakerfis með losunarheimildir á milli ára í fyrra. 21.5.2021 10:00
Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim. 21.5.2021 09:06
Bein útsending: Uppbygging húsnæðis í Reykjavík til framtíðar Framtíðaruppbygging húsnæðis í Reykjavíkurborg verður til umræðu á fundi um grænt húsnæði klukkan 9 í dag. 21.5.2021 08:16
Vopnaður sverði á Laugaveginum: „Farðu heim til þín“ Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í síðustu viku vegna slagsmála á Laugavegi þar sem karlmaður ógnaði öðrum með sverði. Liðsmenn sérsveitarinnar handtóku þann sem bar vopnið eftir einhverja leit en hinn flúði af vettvangi. Hvorugur þeirra er talinn hafa slasast alvarlega. 21.5.2021 07:55
Lögregla rannsakar 97 milljóna tap einstaklings á netinu Lögregla hefur til rannsóknar mál einstaklings sem tapaði 97 milljónum króna á netsvikum. Að sögn Daða Gunnarssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, tapar eldra fólk stærri fjárhæðum. 21.5.2021 07:07
Handtóku meintan rafmagnshlaupahjólaþjóf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa brotist inn í verslun og stolið tveimur rafmagnshlaupahjólum. Þá voru tveir menn handteknir í póstnúmerinu 111 fyir húsbrot, eignaspjöll og hótanir. 21.5.2021 06:21
Hagatorg verði almenningsgarður í þágu skóla Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur segir að kallað verði eftir hugmyndum um þróun á hringtorginu risavaxna Hagatorgi í Vesturbæ. Þær hugmyndir eiga að tengjast Hagatorgi sem „almenningsgarðs eða almenningsrýmis.“ 20.5.2021 22:54
Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. 20.5.2021 22:31
„Ekkert endilega“ að hugsa um afléttingaráætlun stjórnvalda Sóttvarnalæknir hefur skilað inn tillögum að nýjum sóttvarnaaðgerðum til heilbrigðisráðherra og segist ekki bundinn af afléttingaráætlun stjórnvalda. 20.5.2021 21:57
Söguleg tímamót á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík Söguleg tímamót urðu á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík í dag þegar gefin var út sameiginleg yfirlýsing og aðgerðaráætlun í fyrsta skipti í tuttugu og fimm ára sögu ráðsins. Rússar tóku við forystu í ráðinu til næstu tveggja ára úr höndum Íslendinga á fundinum og segjast vilja standa vörð um frið og sjálfbærni á Norðurskautinu. 20.5.2021 19:41
Mikil spenna milli Rússa og Bandaríkjamanna í Hörpu Mikil spenna ríkti milli Bandaríkjamanna og Rússa á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík. Rússar gagnrýna NATO ríkin harðlega fyrir hernaðaruppbyggingu við landamæri Rússlands og vilja að yfirmenn herafla Norðurskautsráðsins taki á ný upp reglulega fundi. 20.5.2021 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Spenna ríkti milli Rússa og Bandaríkjamanna á sögulegum fundi norðurskautsráðs í Reykjavík í dag sem samþykkti sína fyrstu langtímaáætlun. Við fjöllum ítarlega um fundinn í kvöldfréttatíma okkar. 20.5.2021 18:04
Kærir Útlendingastofnun fyrir að svipta Palestínumann mat og húsnæði Lögmaður palestínsks flóttamanns hefur kært ákvörðun Útlendingarstofnunar um að svipta hann húsnæði og fæði til kærunefndar útlendingamála. Lögmaðurinn segir framferði stofnunarinnar með öllu ólögmætt. 20.5.2021 17:33
Fjórtán hafa misst þjónustu fyrir að gangast ekki undir Covid-próf Fjórtán einstaklingar hafa misst þjónustu á vegum Útlendingastofnunar eftir að hafa neitað að fara í Covid-19 próf þegar til stóð að senda þá úr landi. Þeir hafa nú misst húsnæði og fæðisgreiðslur á vegum Útlendingastofnunar. Stofnunin neitar því að aðgerðirnar brjóti gegn mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. 20.5.2021 16:46
Óháðir aðilar taka út alvarlegar aukaverkanir Landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Lyfjastofnunar hafa ákveðið að kalla til óháða aðila til að rannsaka andlát og myndun blóðtappa sem tilkynnt hafa verið til Lyfjastofnunar í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Teknar verða fyrir fimm tilkynningar sem borist hafa um andlát, ásamt fimm tilkynningum um myndun blóðtappa. 20.5.2021 16:06
Falla frá hugmyndum um leikskóla á Hagatorgi Borgarráð Reykjavíkur hefur fallið frá hugmyndum um að koma upp færanlegum leikskóla á Hagatorgi í vesturbæ Reykjavíkur. Þess í stað verði byggður upp almenningsgarður á torginu. 20.5.2021 15:00