Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigmundur Ernir er nýr ritstjóri Fréttablaðsins Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri Fréttablaðsins og aðalritstjóri útgáfufélagsins Torgs ehf., sem rekur Fréttablaðið, DV, Markaðinn og Hringbraut. Hann tekur við aðf Jóni Þórissyni sem hefur starfað sem ritstjóri frá haustinu 2019. 3.8.2021 11:58
Vegkantur sem gaf sig líklega ástæða þess að rútan valt Vegkantur sem gaf sig er talinn vera ástæða þess að rúta, með fjölda íslenskra og erlendra ferðamanna innanborðs, valt í Biskupstungum í gær. Betur fór en á horfðist og enginn slasaðist alvarlega, að sögn yfirlögregluþjóns. 3.8.2021 11:34
Þrír laumufarþegar um borð í skipi Eimskips Lögregluþjónar handtóku þrjá menn sem komu sem laumufarþegar um borð í skipi Eimskips frá Danmörku í dag. Mennirnir hafa verið færðir í fangaklefa. 3.8.2021 11:24
Stærsta bylgjan til þessa: Bólusetningar hafa ekki leitt til hjarðónæmis Við erum nú stödd í stærstu bylgju Covid-19 frá því að faraldur kórónuveirunnar skall á heimsbyggðinni. Víðtækar bólusetningar virðast hins vegar draga úr alvarlegum veikindum og hlutfall innlagna er lægra en áður. 3.8.2021 11:19
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar heyrum við í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni vegna stöðunnar í kórónuveirufaraldrinum. Greinum frá bólusetningum sem hófust á ný í morgun og í þetta skiptið fyrir kennara og starfsmenn skóla sem voru bólusett með Jansen bólefninu fyrr í vor. 3.8.2021 11:10
108 greindust smitaðir af Covid-19 og sjötíu utan sóttkvíar Að minnsta kosti 108 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 70 utan sóttkvíar og 38 í sóttkví við greiningu. 3.8.2021 10:43
Svona var 187. upplýsingafundurinn vegna Covid-19 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11. 3.8.2021 10:27
Bíða eftir hver áhrif mannamóta helgarinnar verða Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, gerir fastlega ráð fyrir því að smittölur gærdagsins verði á svipuðu róli og undanfarna daga. Hann segir að það verði áhugavert að sjá hvaða áhrif ferðalög og mannamót verslunarmannahelgarinnar muni hafa á faraldurinn. 3.8.2021 09:10
„Lengi lifi byltingin, sem byrjar í hjarta sérhvers manns“ Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi Pírati, segist ekki hafa gengið í Sósíalistaflokkinn til að gefa kost á sér til þingsetu í aðdraganda kosninga. Hún segist þvert á móti vilja taka þátt í að móta framtíðina í fylkingu fólks sem sé ekki „fast í viðjum kjörtímabila“ og vakni bara til lífs þegar kosningar eru í vændum. 3.8.2021 08:23
Ónæmisörvun kennara og skólastarfsmanna hefst í dag Kennsla í leikskólum hefst víða í dag eftir hefðbundna sumarlokun í júlímánuði og þá hefst jafnframt í dag seinni bólusetning kennara og starfsmanna skóla sem fengu bóluefnið frá Janssen á vordögum. 3.8.2021 06:28
Rúðubrot og ölvunarakstur á rafmagnshlaupahjóli Laust fyrir miðnætti í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um rúðubrot í skóla í Vesturbænum. Í ljós kom að búið var að mölva rúður í mörgum gluggum. 3.8.2021 06:07
Hinsegin dagar hefjast á morgun Hinsegin dagar 2021 hefjast með málningu hinsegin fánalita á Ingólfsstræti, milli Laugavegar og Hverfisgötu klukkan 12 á morgun, þriðjudag. Málun regnboga er hefðbundið upphaf Hinsegin daga í Reykjavík. Þema Hinsegin daga í ár er Hinsegin á öllum aldri. 2.8.2021 22:59
Bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir hana sprungna Eggert Eyjólfsson, bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að bráðamóttakan sé ekki í stakk búin að taka á móti nema einum alvarlega slösuðum sjúklingi í kvöld. 2.8.2021 22:49
Oddaverjar virðast hafa grafið gríðarstóra hella fyrir bústofninn Hellir sem fornleifafræðingar rannsaka núna í Odda á Rangárvöllum var í notkun á tíma Sæmundar fróða og er elsta staðfesta dæmi um manngerðan helli á Íslandi. Gríðarleg stærð hans vekur athygli og bendir til að Oddaverjar hafi staðið fyrir miklum búrekstri. 2.8.2021 22:22
Spilar golf með vinstri en er rétthent Kylfingar standa orðlausir þegar þeir sjá Alexöndru Eir Grétarsdóttur frá Stokkseyri spila á völlum landsins því hún slær höggin sín með vinstri hendi þrátt fyrir að vera rétthent. 2.8.2021 21:11
Kalla starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags og opna nýja Covid-deild Einn liggur í öndunarvél á Landspítalanum vegna Covid-19 og er það í fyrsta sinn sem sjúklingur hefur þurft á slíkri aðstoð að halda í þessari fjórðu bylgju faraldursins. Unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á spítalanum og hefur þurft að kalla starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags. 2.8.2021 20:06
Rútuslys í Biskupstungum Rúta á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Rafting keyrði út af vegi í Biskupstungum á Suðurlandi. Um fimmtíu manns voru í rútunni. 2.8.2021 19:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar segjum við frá því að unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á Landspítalanum, en kalla hefur þurft út starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags. 2.8.2021 18:15
Rannsaka andlát mannsins sem lést eftir handtöku Héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á andláti karlmanns eftir handtöku í austurbæ Reykjavíkur í gær. Skýrslutökur fóru fram í dag auk þess sem læknisfræðileg rannsókn fer fram í vikunni. 2.8.2021 18:08
„Það er náttúrulega verslunarmannahelgi og maður á að hafa það örlítið gaman“ Gestir tjaldsvæða halda nú heim á leið eftir vel heppnaða verslunarmannahelgi. Þetta segir umsjónarmaður tjaldsvæðis á Suðurlandi sem kveðst ánægður með helgina. Rólegra var á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri í gær en dagana á undan. 2.8.2021 17:44
Einn í öndunarvél með Covid-19 Tveir sjúklingar liggja á gjörgæsludeild Landspítalans með Covid-19. Annar þeirra var settur í öndunarvél í gær. Fimm voru lagðir inn með sjúkdóminn síðasta sólarhring. 2.8.2021 14:03
Átta hundruð nýjar íbúðir byggðar í Vogunum Mikil uppbygging á sér nú stað í Sveitarfélaginu Vogum á Suðurnesjunum því þar eru að hefjast framkvæmdir við byggingu á átta hundruð nýjum íbúðum. Íbúar sveitarfélagsins í dag eru um þrettán hundruð. 2.8.2021 13:08
Tvöfalt fleiri reyndust smitaðir í Herjólfi Þrjátíu ferðamenn eru komnir í farsóttahús eftir að hafa greinst með kórónuveiruna um borð í Herjólfi. Hópurinn hafði áður gert tilraun til að ferðast til Vestmannaeyja en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn, segir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður húsanna. 2.8.2021 13:07
Draumur rættist í gær: „Það væri nú gaman að prufa þetta einu sinni með fólki“ Þetta var algjör heiður, segir Magnús Kjartan Eyjólfsson um brekkusönginn sem hann stýrði í fyrsta sinn í gær. Hann segir upplifunina stórkostlega og væri tilbúinn til að stýra söngnum aftur að ári. 2.8.2021 13:00
Fjölga starfsfólki í vikunni vegna álags Álag er á starfsfólki sýnatökuhússins við Suðurlandsbraut, en langar raðir í sýnatöku virðast nú daglegt brauð. Verkefnastjóri skimana segir að von sé á fleira starfsfólki í næstu viku. 2.8.2021 12:44
Hafa kallað inn fólk úr sumarfríum til að bregðast við fjölgun Covid-tengdra sjúkraflutninga Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fór í fimmtíu Covid-tengda sjúkraflutninga á síðasta sólarhring. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir fjölda flutninganna í takt við fjölgun smita en fólk hefur verið kallað inn úr sumarfríum til að bregðast við auknu álagi vegna veirunnar. 2.8.2021 11:55
67 greindust smitaðir innanlands Að minnsta kosti 67 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 36 utan sóttkvíar og 31 í sóttkví við greiningu. 2.8.2021 11:00
Talsverðar reykskemmdir eftir að kviknaði í risíbúð í Hafnarfirði Eldur kviknaði á efstu hæð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði á fjórða tímanum í nótt. Viðbragðsaðilar voru kallaðir til um tuttugu mínútur yfir þrjú í nótt en sjáanlegur eldur var á efstu hæð húsnæðisins. 2.8.2021 07:13
Óánægja með brekkusönginn á samfélagsmiðlum Margir sem keyptu sér aðgang að streymi brekkusöngsins á Þjóðhátíð hafa lýst yfir óánægju með kaupin. 1.8.2021 23:42
Þyrlan sótti slasaða konu á Úlfarsfell Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konu sem slasast hafði lítillega á Úlfarsfelli í kvöld. 1.8.2021 22:22
Vonar að kindurnar í dalnum jarmi undir með sér Brekkusöngur á Þjóðhátíð fer fram í fyrsta sinn fyrir tómri brekkunni í kvöld. Hátt í sextíu manns hafa unnið að uppsetningu enda var ákveðið að bjóða upp á dagskrá í fullri stærð og svo getur fólk keypt sér aðgang að streymi. 1.8.2021 19:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunnin innanlands í gær þegar færri sýni voru tekin en dagana á undan. Samkomutakmörkunum er mótmælt víða um heim og fóru fjölmenn mótmæli fram í Ísrael í dag. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 1.8.2021 18:10
Lést í haldi lögreglu í nótt Maður í geðrofsástandi sem var handtekinn fyrir utan áfangaheimilið Draumasetrið lést í haldi lögreglu í nótt. 1.8.2021 16:56
Þyrla Landhelgisgæslunnar ræst út vegna mótorhjólaslyss Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í dag vegna mótorhjólaslyss sem átti sér stað í Árneshreppi. Einn einstaklingur slasaðist en ekki er vitað um líðan hans sem stendur. 1.8.2021 15:03
Nýtt farsóttarhús opnað í dag Nýtt farsóttarhús verið tekið í gagnið í dag þar sem hin eru yfirfull. Um er að ræða Hótel Storm í Þórunnartúni. 1.8.2021 14:56
Starfsmaður á Grund greindist smitaður Starfsmaður á hjúkrunarheimili Grundar við Hringbraut greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Hann vinnur á deildunum Litlu Grund og Minni Grund. 1.8.2021 14:44
Fimmtán farþegar Herjólfs greindust smitaðir Fimmtán farþegar sem voru um borð í Herjólfi í gær greindust smitaðir af kórónuveirunni. Um er að ræða erlenda ferðamenn sem fengu jákvæðar niðurstöður úr sýnatöku eftir að þeir komu til Vestmannaeyja. 1.8.2021 14:40
Reyndu að smygla sér inn á fullt tjaldsvæði Þrátt fyrir að verslunarmannahelgin hafi verið óvenjuleg í ár virðast Íslendingar hafa skemmt sér vel á tjaldsvæðum víða um land. Umsjónarmaður á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri segir talsverðan eril hafa verið þar í gærkvöldi og í nótt. 1.8.2021 13:31
Mótmæltu bólusetningum: „Ég vona að næst verði ég handtekinn með þér“ Hópur sem kallar sig Coviðspurnuna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli í gær þar sem bólusetningum og sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda var mótmælt. Hópurinn hefur nú boðað til „stórmótmæla“ fyrir framan heilbrigðisráðuneytið á fimmtudag. 1.8.2021 13:30
„Ég held að við getum ekki farið að hrósa neinu happi“ Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir að færri sýni hafi verið tekin í gær en dagana á undan og því of snemmt að hrósa happi. Mikið álag er á símaveri Covid-19 göngudeildarinnar. 1.8.2021 11:57
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir að færri sýni hafi verið teki í gær en dagana á undan og því of snemmt að hrósa happi. Mikið álag er á símaveri Covid-19 göngudeildarinnar. 1.8.2021 11:49
83 greindust innanlands Að minnsta kosti 83 greindust með kórónuveirusmit hér innanlands eftir sýnatökur í gær. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 42 í sóttkví en 41 utan sóttkvíar við greiningu. 1.8.2021 11:00
Síðasta myndin úr vél Johns Snorra Síðasta myndin úr GoPro-myndavél Johns Snorra Sigurjónssonar, sem hann var með á sér á K2 þegar hann fórst þar í byrjun febrúar, hefur verið birt á netinu. Sajid Sadpara, sonur Ali Sadpara, sem fórst með John í leiðangrinum, náði GoPro-myndavélinni úr jakka Johns þegar hann fann lík göngumannanna á mánudaginn var. 1.8.2021 10:20
Allt farið vel fram í Vestmannaeyjum um helgina Verslunarmannahelgin hefur farið afskaplega vel fram í Vestmannaeyjum. Varðstjóri lögreglunnar á svæðinu segir fólk almennt glatt og skemmtilegt. 1.8.2021 10:19
Kári Stefánsson og Gunnar Smári mæta í Sprengisand Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. 1.8.2021 09:47