Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Áhöfn togskips grunuð um ólöglegar veiðar Íslenskt togskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs svæðis austur af Glettingi um hádegisbil í gær. 8.9.2021 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um framhald sóttvarnaaðgerða en ráðherrar í ríkisstjórninni sögðust í gær vongóðir um að létt yrði á aðgerðum fyrr en seinna. 8.9.2021 11:32
37 greindust með Covid-19 innanlands í gær 37 greindust með Covid-19 í gær. 544 eru í einangrun og 930 í sóttkví. 8.9.2021 10:53
Foreldrar Þórhildar: „Báðum Guðna Bergsson aldrei um trúnað varðandi upprunalega tölvupóstinn“ Foreldrar Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur segjast aldrei hafa beðið Guðna Bergsson, þáverandi formann Knattspyrnusambands Íslands, um að halda trúnað um fyrsta tölvupóstinn sem sendur var á sambandið vegna máls Þórhildar og Kolbeins Sigþórssonar landsliðsmanns. 8.9.2021 10:36
Grunaður um að hafa lokkað dreng upp í bíl og brotið á honum Landsréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir karlmanni á sjötugsaldri sem er grunaður um að hafa í ágúst lokkað fjórtán ára dreng upp í bílinn sinn og brotið á honum. Karlmaðurinn var handtekinn sama dag og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Meðal gagna málsins eru samskipti í farsíma þar sem umræður eru af kynferðislegum toga. 8.9.2021 10:33
Þrettán í sóttkví eftir smit hjá starfsmönnum Heilsustofnunar í Hveragerði Alls hafa þrettán verið sendir í sóttkví eftir að tveir starfsmenn Heilsustofnunar í Hveragerði greindust með Covid-19 í gær. 8.9.2021 09:59
Hlaupið náð hámarki sínu en á eftir að skila sér í byggð Dregið hefur úr rennsli Skaftár við Sveinstind og mælist það nú um 1.100 rúmmetrar á sekúndu miðað við hámarksrennsli í gæt upp á um 1.500 rúmmetra á sekúndu. Hlaupvatn á enn eftir að skila sér niður farveg Skaftár og áhrif þess á byggð eiga því eftir að koma í ljós. 8.9.2021 09:48
Umhverfisstofnun varar við áhrifum innkirtlatruflandi efna Verða sáðfrumur í karlmönnum horfnar eftir 20 ár? spyr Umhverfisstofnun í tilkynningu á vefsíðu sinni þar sem fjallað er um innkirtlatruflandi efni í umhverfinu. 8.9.2021 09:44
Greinilegt að kvika streymi enn úr eldstöðinni Þó hálfgert goshlé hafi staðið í tæpa viku við Geldingadali er greinilegt að enn streymi einhver kvika upp á yfirborðið við eldstöðina. Ótímabært er að velta upp möguleikanum á að gosinu sé að ljúka. 8.9.2021 09:11
Halda vitnaleiðslur yfir starfsfólki Play vegna horfinna flugrekstrarhandbóka WOW Héraðsdómur Reykjaness hefur fallist á að halda vitnaleiðslur yfir fjórum einstaklingum tengdu flugfélaginu Play vegna meintrar óheimilar notkunar Play á flugrekstrarhandbókum WOW air. 8.9.2021 08:40
Lengja opnunartímann í bólusetningu til klukkan 19 á morgun Á morgun verður opið í bólusetningar frá kl. 10 til 19 á Suðurlandsbraut 34. Með þessu vonast Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu til að fleiri sjái sér fært að mæta. 8.9.2021 07:34
Skilja ekkert í orðum Katrínar um Hvalárvirkjun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vonar að Hvalárvirkjun verði ekki að veruleika og segir framkvæmdina eins og hún líti út í dag umtalsvert stærri en þá sem var á teikniborðinu þegar hún var færð í nýtingarflokk rammaáætlunar. Talsmenn VesturVerks skilja ekkert í orðum forsætisráðherrans. 8.9.2021 07:00
Fyrrverandi starfsmaður forsetaembættisins kærir samstarfsmann fyrir kynferðislega áreitni „Þessi mál hafa tekið gríðarlegan toll,“ segir fyrrverandi starfsmaður forsetaembættisins sem bjó á Bessastöðum en hefur nú kært kynferðislega áreitni af hálfu samstarfsmanns til lögreglu. 8.9.2021 06:47
Fjölbreytt verkefni: Skemmdarverk, óspektir og ölvunarsvefn Það er óhætt að segja að verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi verið nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt. Í miðborginni var maður handtekinn vegna innbrots og þjófnaðar, kona handtekinn vegna óspekta og lögregla kölluð til eftir að ökumaður ók bifreið sinni á ljósastaur. 8.9.2021 06:28
„Ég er að varpa ljósi á sannleikann“ Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segist vera að varpa ljósi á sannleikann með umdeildri Facebook-færslu þar sem hann birti brot úr skýrslutöku yfir þolanda í ofbeldismáli. Starfsfólk Stígamóta sé farið að velja leikmenn í íslenska landsliðið. Ef almenningur sé hættur að treysta yfirvöldum þá sé samfélagið komið á mjög slæman stað. 8.9.2021 06:01
Árnar á Eskifirði hamdar með steyptum stokkum Fimm ár sem renna í gegnum Eskifjarðarbæ eru að missa náttúrulega farvegi sína og flæða í framtíðinni um steypta stokka, með framkvæmdum sem kosta vel á þriðja milljarð króna. Tilgangurinn er að verja byggðina fyrir ofanflóðum. 7.9.2021 23:10
Þakkar lífsgæðum landsbyggðarinnar í túnfæti Reykjavíkur fyrir mikinn vöxt Íbúum Hveragerðis hefur fjölgað um hátt í fimmtung á þremur árum og tvö hundruð íbúðir eru nú í byggingu til að mæta þeirri fjölgun. Bæjarstjórinn reiknar með að bæjarbúar verði orðnir fimm þúsund eftir tíu ár, en þeir voru 2.777 um áramótin síðustu. 7.9.2021 22:17
Ekið á hjólreiðamann í miðborginni Karlmaður um fimmtugt slasaðist þegar ekið var á hann á horni Tryggvagötu og Geirsgötu í miðborg Reykjavíkur síðdegis í dag. 7.9.2021 21:59
Tvöföld ánægja: Afastrákurinn var íbúi númer tuttugu þúsund Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, upplifði sannkallaðan tímamótadag fyrir skemmstu, þar sem hann eignaðist dótturson, sem síðar reyndist hafa verið tuttugu þúsundasti íbúi Reykjanesbæjar. 7.9.2021 21:20
Um 104 þúsund fjár slátrað hjá SS á Selfossi Sauðfjárslátrun hófst hjá Sláturfélagi Suðurland á Selfossi í morgun en um 104 þúsund fjár verður slátrað þar næstu vikurnar. Illa hefur gengið að fá fólk til starfa í sláturtíðinni. 7.9.2021 20:31
Höfnuðu eina tilboðinu og bjóða út flugstöðina á ný Isavia hefur hafnað eina tilboðinu sem barst í viðbætur og breytingum á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Stefnt er á að bjóða út verkið á ný. 7.9.2021 20:23
Vilja nýjan vararíkissaksóknara eftir að hann líkaði við umdeilda Facebook-færslu Stígamót hafa skorað á dómsmálaráðherra að skipa nýjan vararíkissaksóknara eftir að hann brást við umdeildri færslu á Facebook þar sem upplýsingar úr lögregluskýrslu í ofbeldismáli Kolbeins Sigþórssonar koma fram. 7.9.2021 20:00
Bjarni með pálmann í höndunum samkvæmt könnun Formaður Sjálfstæðisflokksins er með pálmann í höndunum við myndun nýrrar ríkisstjórnar samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Ríkisstjórnin héldi velli og Miðflokkurinn næði ekki inn manni. 7.9.2021 19:46
Myndband tekið úr lofti sýnir kraftinn í hlaupinu Hægt hefur á vextinum í rennsli Skaftár við þjóðveg 1 það sem af er degi. Reiknað er með að núverandi hlaup vari lengur en fyrri hlaup úr eystri katlinum, sem getur orsakað meiri útbreiðslu í byggð. 7.9.2021 19:27
Svandís segir hilla undir fjöldasamkomur Heilbrigðisráðherra segir hilla undir að hægt verði að heimila stórar fjöldasamkomur. Mögulega verði slakað á sóttvarnareglum áður en þær sem nú eru í gildi renni út á föstudag í næstu viku. 7.9.2021 19:21
Fallið frá tvöföldun vanrækslugjalds Ákvæði um tvöföldun svonefnds vanrækslugjalds óskoðaðra ökutækja hefur verið fellt úr reglugerð um skoðun ökutækja.Grunnfjárhæð gjaldsins verður óbreytt. 7.9.2021 18:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðherra segir hilla undir að hægt verði að heimila stórar fjöldasamkomur. Mögulega verði slakað á sóttvarnareglum áður en þær sem nú eru í gildi renna út á föstudag í næstu viku. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 7.9.2021 18:11
Eitraðar pillur milli frambjóðenda Pallborðsumræður frambjóðenda reyndust eldheitar og ljóst að skammt er í kosningar, spennustigið var hátt. 7.9.2021 17:27
Fækkaði um þrjá í þjóðkirkjunni Alls voru 229.714 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um þrjá einstaklinga frá 1. desember. 7.9.2021 16:33
Vill efla frekar samstarf Norðurlanda í öryggis- og utanríkismálum Guðlaugur Þór Guðlaugsson utanríkisráðherra undirstrikaði á fjarfundi með norrænum kollegum sínum í gær mikilvægi þess að fylgja eftir tillögum um þróun samstarfs Norðurlandanna í utanríkis- og öryggismálum. 7.9.2021 16:05
Eldur um borð í Norrænu við bryggju á Seyðisfirði Eldur kviknaði um borð í vélarrúmi Norrænu sem liggur við bryggju á Seyðisfirði á fjórða tímanum í dag. Áhöfnin í Norrænu slökktil eldinn áður en slökkviliðið á Seyðisfirði mætti á vettvang. 7.9.2021 15:34
Teknir með Oxycontin við komuna til landsins Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stóðu þrjá erlenda karlmenn að tilraun til smygls á hátt í þrjú þúsund Oxycontin-töflum við komu á Keflavíkurflugvöll í síðasta mánuði. 7.9.2021 15:24
Skútu leitað sem hélt frá Eyjum fyrir um mánuði Alþjóðleg leit stendur nú yfir að hollensku skútunni Laurel sem hélt frá Vestmannaeyjum áleiðis til Grænlands fyrir um mánuði. Einn maður er um borð í skútunni. 7.9.2021 14:50
Búist við að flóðið nái yfir stórt svæði Mikið hefur hægt á vexti Skaftárhlaupsins við Sveinstind síðan í gærkvöldi en búist er við að vatn flæði yfir stórt svæði á næstu dögum. Mikil úrkoma á svæðinu auk hlaups úr vestari katlinum geri að verkum að flóðasvæðið sé mettað af vatni sem auki líklega útbreiðslu hlaupsins. 7.9.2021 13:19
Birgir, Ásmundur og Þórhildur Sunna mættust í Kosningapallborðinu Reikna má með því að hart verði tekist á í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14 í dag þegar fulltrúar þriggja flokka sem bjóða fram til Alþingis koma saman. 7.9.2021 13:03
Klúður að hafa regnbogann ekki með í skipulagi nýs Skólavörðustígs Mikil óánægja ríkir meðal hinsegin fólks um áætlun Reykjavíkurborgar að færa Regnbogafánann af Skólavörðustíg vegna áætlana um framkvæmdir á göngugötunni. Borgarfulltrúi meirihlutans segir það hafa verið mistök að hafa kynnt áætlanir án þess að hafa fundið Regnboganum nýtt heimili áður. 7.9.2021 13:01
Stærstu samtök lækna standi varla undir því að teljast fagfélög Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir vesöld Landspítalans á ábyrgð þjóðar sem hafi kosið að velja sér leiðtoga sem hafi vanrækt heilbrigðiskerfið áratugum saman. Hann segir forstjóra Landspítalans gera það besta úr þeim spilum sem honum séu gefin. Stærstu samtök lækna í landinu standi varla undir því að teljast fagfélög enda sé áherslan á kjarabaráttu en ekki betri heilbrigðisþjónustu. 7.9.2021 12:41
Aukinn stuðningur við móttöku flóttafólks Tæp 40% landsmanna eru þeirrar skoðunar að fleira flóttafólk ætti að fá hæli hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun MMR. 35% svöruðu því til að fjöldi flóttafólks væri hæfilegur, en 26% þótti of margt flóttafólk fá hér hæli. 7.9.2021 12:38
Miðflokkurinn aldrei staðið tæpar Miðflokkurinn er í mikilli hættu að detta út af þingi samkvæmt nýrri Maskínukönnun sem gerð var fyrir fréttastofu. Þar mælist flokkurinn með 4,5 prósenta fylgi. Sósíalistar eru á siglingu, með 7,9 prósenta fylgi. 7.9.2021 12:17
„Það vantar mikið upp á umræðu um utanríkismál hér á landi“ „Það vantar mikið upp á umræðu um utanríkismál hér á landi. Raunar ekki bara í samfélaginu heldur líka á þinginu. Það er mjög takmörkuð umræða í þingsal um utanríkismál. Við sjáum nú í aðdraganda kosninga hvað flokkarnir ræða lítið alþjóðamál.“ 7.9.2021 11:53
Á von á minnisblaði: Ráðherra segir forsendur til að ráðast í tilslakanir „Þetta gengur vel, þetta lítur bara mjög vel út; þróun faraldursins... og þessi bylgja er á öruggri niðurleið,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi nú í þessu. 7.9.2021 11:46
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðu mála í Skaftárhlaupinu og heyrum í sérfræðingum um þau mál. 7.9.2021 11:32
25 greindust innanlands Alls greindust 25 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 68 prósent. Átta voru utan sóttkvíar, eða um 32 prósent. 7.9.2021 10:50
Sjómenn slíta viðræðum: „Vilja eignast Ísland og auðlindir okkar án þess að greiða fyrir það“ Stéttarfélög sjómanna slitu í gær kjaraviðræðum sínum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Viðræður hafa átt sér stað í nokkra mánuði en kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá því í lok 2019. 7.9.2021 10:14
Hefur farið í 100 sýnatökur: „Get haldið þessu áfram fram í rauðan dauðann“ Það væri heiður að vera sýnatökukóngur Íslands, segir leikarinn Jóhannes Haukur sem fór í sína eitt hundruðustu skimun á föstudag. Hann segist vanur sýnatökupinnanum og gæti haldið þessu áfram fram í rauðan dauðann. 7.9.2021 10:03