Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Framsókn bætir við sig manni Sjálfstæðisflokkurinn nær inn fjórum kjördæmakjörnum mönnum í Suðvesturkjördæmi, en lokatölur úr kjördæminu bárust um klukkan 8:50 í morgun. Framsókn bætir við sig öðrum kjördæmakjörnum manni og Vinstri græn missa einn kjördæmakjörinn þingmann. 26.9.2021 08:59
Stjórnmálamenn út, pítsur og súkkulaði inn Rís þá í okkur dagur eftir langa nótt, sagði skáldið… Ásýnd miðbæjarins var strax önnur þegar hjólað var til vinnu úr miðbænum og í Laugardal á sjöunda tímanum, þegar tekið var að grána fyrir fyrsta degi nýs pólitísks veruleika á Íslandi að afloknum þingkosningum 2021. 26.9.2021 08:31
Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Framsókn bætir við sig manni en Miðflokkur og Samfylking missa menn Framsóknarflokkurinn bætti við sig þriðja kjördæmakjörna þingmanninum í Norðvesturkjördæmi og er stærsti flokkurinn eftir að lokatölur fyrir birtar á áttunda tímanum í morgun. 26.9.2021 08:02
Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Framsókn bætir við manni og Píratar missa sinn Vinstri græn missir sinn kjördæmakjörna þingmann í Suðurkjördæmi og Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, nær inn sem kjördæmakjörinn. 26.9.2021 07:38
Sameiningu hafnað í Ásahreppi en naumlega samþykkt annars staðar Tillögu um sameiningu Skaftárhrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps var hafnað með miklum mun í Ásahreppi í kosningum sem fram fóru samhliða þingkosningum í gær. 26.9.2021 07:16
Bíður milli vonar og ótta: „Ég skil ekkert í þessum tölum“ Sigmar Guðmundsson, sem situr í öðru sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, er einn þeirra jöfnunarmanna sem eru afar tæpir inn á þing. Hann hefur verið inni í jöfnunarsæti í síðustu tveimur tölum sem birtar voru úr kjördæminu en hvort hann komist inn sem kjördæmakjörinn þingmaður mun ráðast þegar lokatölur úr Suðvesturkjördæmi verða birtar, líklega á næsta klukkutímanum. 26.9.2021 06:46
Ók á þrjá bíla og missti framdekkið undan bílnum Ökumaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt eftir að hann hafði ekið á þrjá bíla og misst annað framdekkið undan bíl sínum. Maðurinn er grunaður um ölvunarakstur. 26.9.2021 06:07
Þrír handteknir vegna líkamsárásar í Árbæ Þrír karlmenn voru handteknir á tólfta tímanum í gærkvöldi grunaðir um líkamsárás í Árbæ. Mennirnir eru nú vistaðir í fangageymslum lögreglu fyrir rannsókn málsins. Einn maður var fluttur á slysadeild til aðhlynningar fyrir vistun en ekki er vitað um áverka. 26.9.2021 06:05
Lokatölur úr Reykjavík norður: Ásmundur Einar þingmaður í Reykjavík Ásmundur Einar Daðason er nýr þingmaður Reykvíkinga eftir eftir stórbætingu flokksins frá því í kosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn fékk 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Um er að ræða langþráðan þingmann flokksins í kjördæminu. Píratar náðu tveimur mönnum inn á þing í kjördæminu. 26.9.2021 04:55
Ásmundur fyrsti þingmaður Framsóknar í Reykjavík norður síðan 2013 Ásmundur Einar Daðason, barna- og félagsmálaráðherra, er fysti Framsóknarmaðurinn sem kemst á þing í Reykjavíkurkjördæmi norður síðan árið 2013. Ásmundur segist hæstánægður með framgang flokksins í kosningunum. 26.9.2021 04:53
Lokatölur úr Reykjavík suður: Birgir náði inn en Miðflokkurinn tapaði manni Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður var á pari við fyrir fjórum árum en flokkurinn bætti engu að síður við sig þingmanni í kjördæminu. Samfylkingin missir mann en Vinstri græn halda sínum tveimur. 26.9.2021 04:41
„Við hefðum viljað sjá meira“ Tilfinningar formanns Viðreisnar við tölunum eins og þær standa núna eru blendnar. Flokkurinn er að fá mun minna upp úr kjörkössunum heldur en flestar skoðanakannanir gerðu ráð fyrir en er þó einn þriggja flokka sem hafa bætt við sig þingmanni. 26.9.2021 03:17
Verið í samskiptum við Facebook vegna umdeildrar kosningaáminningar Líkt og í fyrri kosningum birti Facebook á kjördag sérstaka kosningaáminningu sem var ætlað hvetja Íslendinga til að nýta kosningarétt sinn. 26.9.2021 02:40
Bein útsending: Talningarfólk vinnur af kappi í Laugardalshöll Starfsfólk í kjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norður og suður stendur vaktina í Laugardalshöll langt fram eftir nóttu. Talið er í öllum kjördæmum fram á nótt en í Laugardalshöll er beint streymi. 26.9.2021 02:36
„Rífandi traustsyfirlýsing“ við stjórnina Staða ríkistjórnarflokkanna á þingi miðað við núverandi stöðu er „rífandi traustsyfirlýsing“ við stjórnina að mati Eiríks Bergmanns Einarssonar, stjórnmálafræðings. 26.9.2021 02:32
Konur í meirihluta á Alþingi í fyrsta sinn? Eins og sakir standa eru fleiri konur en karlar inni á þingi. Ef kynjahlutföllin haldast óbreytt verður þetta í fyrsta sinn sem konur eru í meirihluta á Alþingi. 26.9.2021 01:59
Sigmundur Davíð: „Ekki tilefni til að fara á taugum“ Þegar fyrstu tölur liggja fyrir í öllum kjördæmum stefnir í að Miðflokkurinn missi alla sína þingmenn fyrir utan formann sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson. 26.9.2021 00:51
Ekki verður af sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi Ekkert verður af sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi eftir að Ásahreppur kolfelldi tillögu um að sameinast Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. 26.9.2021 00:36
Fyrstu tölur í öllum kjördæmum: Stefnir í stórsigur ríkisstjórnarinnar Helstu tíðindi eftir að fyrstu tölur hafa borist úr öllum kjördæmum landsins eru þau að hvorki Sósíalistaflokkur né Miðflokkur ná manni inn á þing og þá bæta ríkisstjórnarflokkarnir samtals við sig sex mönnum. 26.9.2021 00:30
Inga snortin yfir stuðningnum: „Ég er nú ekki að fara að skæla eins og áður“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist hæstánægð með þann stuðning sem hún hefur fundið fyrir, og hefur komið fram í nýjustu tölum í kvöld. Miðað við fyrstu tölur og með þeim fyrirvörum sem fylgja, er Flokkur fólksins með 11,7% á landsvísu, og átta þingmenn. 26.9.2021 00:23
Ásmundur inni í fyrstu tölum: „Takk Reykjavík“ Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, nær inn á þing miðað við fyrstu tölur úr kjördæminu. 26.9.2021 00:18
Katrín sátt við fyrstu tölur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segist sátt með fyrstu tölur. Samkvæmt fyrstu tölum eru Vinstri græn með um 11% fylgi. 25.9.2021 23:41
Rak eiginmanninn út á gaddinn til að upplifa töfrabragð kjörstjóra Dagný Guðjónsdóttir þurfti að hafa aðeins meira fyrir því að nýta kosningaréttinn í dag en flestir aðrir. Kjördagur lenti á sjöunda degi einangrunar og áður en hún vissi af var fresturinn til að sækja um heimakosningu runninn út. 25.9.2021 23:29
Eiríkur Bergmann: Flokkur fólksins „á rífandi siglingu“ Miðað við fyrstu tölur er Flokkur fólksins að bæta verulega við sig. Eiríkur Bergmann segir flokkkinn á „rífandi siglingu“ og Ingu Sæland stefna í að verða eina af stærstu stjörnum stjórnmálanna. 25.9.2021 23:26
„Ekki bara eldri karlar í Framsóknarflokknum“ Sigurður Ingi Jóhannsson segir það alls ekki svo að bara eldri karlar séu í Framsóknarflokknum. Stór hjörð ungs fólks hafi bæst í lið við flokkinn undanfarið kjörtímabil og ungar konur séu sérstaklega áberandi í hópnum. 25.9.2021 23:20
„Auðvitað ekki hægt að tapa“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var sigurreifur í ræðu sem hann hélt yfir flokksmönnum sínum á kosningavöku flokksins á Hótel Nordica, eftir að fyrstu tölur kvöldsins bárust úr Norðvesturkjördæmi. 25.9.2021 23:00
Kristján Ara glaður að vera laus við nafnlausu rógsmyndböndin Kristján Arason og Sunna Birna Helgadóttir, makar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ásmundar Einars Daðasonar, mættu í spjall við Þórdísi Valsdóttur í kosningavöku Stöðvar 2. Þar sögðust þau bæði hafa upplifað jákvæða og skemmtilega kosningabaráttu. 25.9.2021 22:30
„Endurreisn meðal jafnaðarmanna á Íslandi“ Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður segir tíma til kominn að Jafnaðarmenn og vinstriflokkar fái að stýra landinu. Hún upplifi mikla endurreisn meðal Jafnaðarmanna á Íslandi. 25.9.2021 22:29
Kári Árna fagnar titlinum á kosningakvöldi: „Við náðum að klára okkar og ég vona að minn flokkur nái að klára sitt“ „Þetta er bara lyginni líkast og eitthvað sem við bjuggumst ekki við svona snemma í ferlinu, en við erum búnir að klára þetta og ánægjan eftir því.“ 25.9.2021 21:53
Fetti sig fyrir agndofa áhorfendur á Höfn Rostungurinn Valli mætti enn og aftur á bryggjuna á Höfn í Hornafirði í morgun. Börn í bænum hafa tekið við hann ástfóstri - og gárungar velta því upp hvort hann sé kominn að taka út alþingiskosningarnar. 25.9.2021 20:03
Bjartsýni, bjartsýni og aftur bjartsýni Formenn stjórnmálaflokkanna eru sumir búnir að ákveða hvert þeir ætla að leita fyrst til í stjórnarmyndunarviðræðum þegar niðurstöður kosninga verða ljósar. Aðrir halda þétt að sér spilunum. 25.9.2021 19:50
Hlýddi mömmu og skellti sér með bjór á kjörstað Zakarías Friðriksson var á meðal þeirra sem skelltu sér á kjörstað í Smáranum í dag. Zakarías er harður stuðningsmaður Breiðabliks og skaust af leik sinna manna gegn HK í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í dag til að kjósa. 25.9.2021 19:46
Kosninga- og skemmtiþáttur Stöðvar 2 Kosninga- og skemmtiþáttur Stöðvar 2 hefst á slaginu 20.30. Þegar tölur byrja að birtast úr kjördæmum víða um land tekur fréttastofan síðan við keflinu. 25.9.2021 19:16
„Það hefði liðið yfir fólk ef það hefði komið í einhverjum druslum á kjörstað“ Hinni 95 ára Bertu Maríu þykir miður að sjá útganginn á sumu kjósendum nú til dags. Hún segir nauðsynlegt að fólk haldi í hátíðleikann þegar gengið er til kosninga og gagnrýnir joggingklædda kjósendur. 25.9.2021 19:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verða Alþingiskosningarnar í forgrunni. Við förum yfir kjörsóknina, sjáum formennina kjósa, greinum kosningatískuna, heyrum í kjósendum á kjörstað og ræðum við afmælisbarn sem fékk að kjósa í fyrsta sinn í dag. 25.9.2021 18:02
„Held að fólk þrái breytingar“ Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins, varði deginum á fjalli. Hann greiddi atkvæði utan kjörfundar fyrr í vikunni og fór því í staðinn í góðan göngutúr með Benedikt Jóhannessyni, mági hans. 25.9.2021 15:50
Ólíkar ríkisstjórnir í boði Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, vonast til þess að ríkisstjórnin falli og ný stjórn jafnaðarmanna verði mynduð. Hann segir kvöldið leggjast ágætlega í sig. 25.9.2021 15:29
Brot úr prósenti getur haft mikil áhrif á möguleg stjórnarmynstur Litlar hreyfingar á fylgi geta haft miklar afleiðingar í för með sér, að sögn Eiríks Bergmann, stjórnmálafræðings. Hann telur Alþingiskosningarnar nú þær mest spennandi í langan tíma. Mesta spennan sé hvort að ríkisstjórnin haldi og hvaða flokkar ná yfir fimm prósent þröskuldinn. 25.9.2021 13:58
„Bara þessi eina skoðanakönnun sem gildir“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir kosningabaráttuna hafa gengið ljómandi vel. Hún hafi farið hægt af stað en verið snörp og skemmtileg. 25.9.2021 13:49
Lúmskt bjartsýnn og valið aldrei auðveldara Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, sagði valið hafa verið auðvelt í kjörklefanum í þetta sinn. 25.9.2021 12:33
Telur að niðurstöður muni koma skemmtilega á óvart Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur myndað ákveðnar hefðir á kjördag. Að byrja á kaffibolla áður en hann fer á kosningamiðstöðvarnar. 25.9.2021 12:12
Eitthvað borið á erfiðleikum með rafræn ökuskírteini í Reykjavík Borið hefur á einhverjum erfiðleikum með að staðreyna rafræn ökuskírteini kjósenda sem hafa vísað þeim fram á kjörstöðum í Reykjavík í morgun. Oddviti yfirkjörstjórnar segist þó ekki hafa heyrt af neinum verulegum vandkvæðum. 25.9.2021 12:05
Segir mikilvægt að fella ríkisstjórnina Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir kjördaginn hafa byrjað vel. Hún hafi hitt fólk á kosningaskrifstofu Viðreisnar og dagurinn hafi verið góður. Hún vonast til þess að ríkisstjórnin falli og frjálslynd miðjustjórn taki við. 25.9.2021 12:01
Ekki betra að hlutir gerist hratt, heldur vel Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, býst við spennandi kosningu og að niðurstaðan muni ekki liggja fyrir fyrr en seint í nótt. Húnmun verja deginum í að heimsækja kosningamiðstöðvar, hitta fólk og hringja í kjósendur og ræða við þá sem koma í kosningamiðstöðvarnar. 25.9.2021 11:44
Fyrsti valkostur að reyna á núverandi ríkisstjórn „Maður er svona aðeins að ná andanum eftir þennan mikla kosningasprett,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir að hann kaus í morgun. „Svo bara vaknaði tilhlökkun í manni.“ 25.9.2021 11:36