Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Hann er að setja alla í sínu nærumhverfi í stórhættu“ Strætóbílstjóri sem tók upp myndband fyrir samfélagsmiðla undir stýri fær ekki að aka á meðan unnið er úr máli hans innan Strætó bs. Fordæmi eru fyrir því að bílstjórar séu áminntir eða reknir fyrir annað eins. 20.10.2021 20:31
Covid kreppunni lokið að mati Landsbankans Covid kreppunni er lokið samkvæmt þjóðhagsspá Landsbankans sem birt var í dag þar sem gert er ráð fyrir miklum hagvexti á þessu ári og því næsta. Ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af húsnæðismarkaðnum þar sem framboð á íbúðum muni aukast á næstu árum. 20.10.2021 19:20
Segir ekki hægt að halda úti góðu skólastarfi verði sóttkvíarreglur óbreyttar Skólastjóri Norðlingaskóla segir sóttvarnaaðgerðir verulega íþyngjandi fyrir nemendur grunnskóla. Margir þeirra séu þjakaðir af kvíða um að vera sendir í sóttkví, en sumir nemenda skólans hafa farið í sóttkví í allt að þrjú skipti. Verði sóttkvíarreglum ekki breytt segir hann ekki hægt að halda úti skólastarfi svo vel fari. 20.10.2021 19:03
Starfsfólk sagðist ekkert hafa átt við kjörgögnin Ekkert bendir til að átt hafi verið við kjörgögn úr Norðvesturkjördæmi sem skilin voru eftir óinnsigluð á talningarsalnum á Hótel Borgarnesi sunnudaginn 26. september. Starfsfólk hótelsins gekk hins vegar um salinn, sem gögnin voru geymd í, án þess að nokkur úr kjörstjórn væri viðstaddur. 20.10.2021 18:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögregla getur ekki fullyrt út frá upptökum úr öryggismyndavélum hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningasalnum á Hótel Borgarnesi. Formaður kjörbréfanefndar segir þetta mikilvægar upplýsingar frá lögreglu en að nefndin þurfi þó að skoða málið í heild. 20.10.2021 18:01
Leita að hentugra bráðabirgðahúsnæði fyrir börnin á Efstahjalla Kópavogsbær vinnur nú að því að finna nemendum í leikskólanum Efstahjalla í Kópavogi húsnæði innan hverfis, en börnunum hefur verið ekið með rútu á þrjá staði síðan myglu varð vart í húsnæði skólans fyrr í mánuðinum. 20.10.2021 16:50
Tafir á umferð vegna áreksturs og malbikunar Malbikun hefur staðið yfir á hægri akrein á Vesturlandsvegi til vesturs, á milli Víkurvegar og Suðurlandsvegar eftir hádegið í dag. Nokkur töf er á umferð inn í Reykjavík af þessum sökum. Sömuleiðis er töf á umferð út úr bænum vegna áreksturs. 20.10.2021 15:40
Lögregla segir ekki hægt að útiloka að átt hafi verið við kjörgögn Lögreglan á Vesturlandi getur ekki fullyrt út frá upptökum úr öryggismyndavélum hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi. Á upptökum sést fólk ganga inn og út úr salnum eftir að fyrri talningu lauk. Þetta kemur fram í lögregluskýrslu sem fréttastofa hefur undir höndum. 20.10.2021 14:17
Áfram grímuskylda á Landspítala þrátt fyrir afléttingar Farsóttanefnd Landspítalans telur ekki tímabært að aflétta takmörkunum á spítalanum þrátt fyrir að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið að slaka á takmörkunum í samfélaginu með breytingum á reglugerð. 20.10.2021 14:15
Dómur kveðinn upp í Rauðagerðismálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Rauðagerðismálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 8:50 í fyrramálið. Fjórir eru ákærðir í málinu þeirra á meðal Angjelin Sterkaj sem er sakaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar. 20.10.2021 13:52
Leggja til verulega fækkun presta á landsbyggðinni Tillaga um fækkun stöðugilda presta hjá Þjóðkirkjunni um 10,5 verður lögð fyrir kirkjuþing sem fram fer í um helgina og í byrjun næstu viku. Flest stöðugildin sem lagt er til að verði aflögð eru á landsbyggðinni. Samkvæmt tillögum verða stöðugildi presta á landinu þá alls 134,7 og fækkar þeim um 10,5. 20.10.2021 13:48
Óvissa hvert nemendur fara vegna myglunnar í Myllubakkaskóla Útlit er fyrir að 370 nemendur í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ verði fluttir yfir í nokkur önnur húsnæði þegar umfangsmiklar framkvæmdir við að ráða bug á myglu í húsnæðinu hefjast. Bæði starfsfólk og nemendur hafa fundið fyrir einkennum vegna myglunnar. 20.10.2021 13:47
Þau sækja um stöðu upplýsingafulltrúa Heilsugæslunnar Níu hafa sótt um stöðu upplýsingafulltrúa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem auglýst var laus til umsóknar í lok ágústmánaðar. 20.10.2021 13:47
Fjögur kíló af kókaíni í leynihólfi bíls í Norrænu Karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri hafa setið í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur grunuð um stórtækt fíkniefnasmygl hingað til landsins með Norrænu. Fjögur kíló af kókaíni fundust í sérútbúnu hólfi í bíl. 20.10.2021 13:45
Hvorki slakað á smitrakningu né sýnatöku Sóttvarnalæknir sér hvorki fyrir sér að slakað verði á smitrakningu eða sýnatökum á næstunni þó verulega sé verið að létta á sóttvarnaaðgerðum. Verið er að skoða leiðir til að einfalda sóttkví. 20.10.2021 13:37
Eiríkur á Omega dæmdur til greiðslu 109 milljóna sektar fyrir meiriháttar skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjónvarpsmanninn Eirík Sigurbjörnsson, oftast kenndur við kristilegu stöðina Omega, í tíu mánaða fangelsi og greiðslu 108,9 milljóna króna sektar fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum. 20.10.2021 13:16
Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar. 20.10.2021 12:01
Ræddu gang stjórnarmyndunarviðræðna Guðni Th. Jóhannesson forseti og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, áttu fund á Bessastöðum í morgun þar sem rætt var um gang viðræðna stjórnarflokkanna þriggja um áframhaldandi samstarf. 20.10.2021 11:34
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um þá ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að bjóða meðlimum yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi að gangast undir sektargreiðslu vegna vankanta sem voru á talningu í kjördæminu í síðustu Alþingiskosningum. 20.10.2021 11:32
66 greindust með kórónuveiruna í gær 66 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 38 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 58 prósent. 28 voru utan sóttkvíar, eða 42 prósent. 20.10.2021 10:45
Segja öryggismyndavélar sýna fólk ganga inn og út úr salnum Kjarninn hefur greint frá því að á öryggismyndavélum við tvo innganga í sal þar sem óinnsigluð kjörgögn voru geymd í Norðuvesturkjördæmi sjáist fólk ganga inn og út á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar. 20.10.2021 10:28
Lögregla telur yfirkjörstjórn hafa brotið kosningalög Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar framkvæmd atkvæðatalningar í kjördæminu með sekt. 20.10.2021 10:22
Anna Sigrún lætur í veðri vaka að Páll Vilhjálmsson sé siðblindur Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala, ritar grein þar sem hún lætur að því liggja að Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari sé siðblindur. 20.10.2021 09:15
VG í snúinni stöðu vegna heilbrigðismála Ekkert hefur bent til annars en að sitjandi ríkisstjórn haldi áfram störfum sínum á næsta kjörtímabili. Formenn flokkanna þriggja hafa fundað reglulega frá kosningum og má búast við að stjórnarmyndunarviðræðurnar haldi áfram næstu vikurnar en eins og prófessor í stjórnmálafræði bendir á liggur þeim alls ekkert á að semja stjórnarsáttmálann og geta tekið sér allan þann tíma sem þeim hentar. 20.10.2021 09:00
40 nemendur í einangrun eða sóttkví vegna smita í Háteigsskóla Um 40 nemendur í Háteigsskóla og nokkrir kennarar eru ýmist í einangrun eða sóttkví en smit hafa greinst meðal óbólusettra nemenda í fjórða, fimmta og sjötta bekk skólans. 20.10.2021 06:40
Veittust að konu fyrir utan heimili hennar Lögregla handtók tvo unga menn í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um ránstilraun í Kópavogi. Mennirnir höfðu veist að konu við heimili hennar, ógnuðu henni með eggvopni og heimtuðu af henni síma og peninga. 20.10.2021 06:17
Þessar afléttingar tóku gildi á miðnætti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti skömmu fyrir hádegi í gær að ráðist yrði í þrekaskiptar afléttingar á innanlandstakmörkunum vegna Covid-19 með að markmiði að öllum takmörkunum verði aflétt 19. nóvember. Fyrstu afléttingarnar tóku gildi á miðnætti. 20.10.2021 00:01
Mygla í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ Mygla hefur fundist í Myllubakkaskóla í Keflavík. Nokkrir starfsmenn og nemendur eru sagðir hafa fundið fyrir verulegum einkennum. Lagfæringar hafa ekki skilað árangri. 19.10.2021 23:48
Sýknaður af því að hafa beitt blekkingum til að öðlast veiðirétt í sunnlenskri á Karlmaður sem sakaður var um að hafa beitt blekkingum til að koma því til leiðar að félag í hans eigu væri með gildandi leigusamning um veiðirétt í ótilgreindri sunnlenskri á hefur verið sýknaður af ákæru þess efnis. 19.10.2021 21:27
Þurfa að sanna raunverulegar útsölur sem mega ekki vara lengur en sex vikur Reglur um útsölur eru á þann veg að sýna þarf fram á að um raunverulegan afslátt sé að ræða. Þá má útsala ekki vara lengur en í sex vikur. Þetta sagði Þórunn Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 19.10.2021 21:13
Grófur dyraatsfaraldur skekur heilu hverfin Íbúum í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi er hætt að litast á blikuna vegna nýstárlegs dyraatsfaraldurs, sem gerir oft vart við sig seint á kvöldin. Þetta er sérstaklega gróft dyraat, sem virðist innblásið af TikTok. 19.10.2021 21:00
Kynntu sér aðstæður á talningarstað í Borgarnesi Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis segir nefndina enn vera að afla gagna og reiknar með að hún fundi stíft þessa vikuna. 19.10.2021 20:30
Nýtt íbúðahverfi rís milli Suðurlandsbrautar og Ármúla Íslenskar fasteignir ehf. hafa keypt orkureitinn svo kallaða af Reitum fyrir rúma 3,8 milljarða króna. Mikil uppbygging íbúða og þjónustustarfsemi er framundan á reitnum allt í kring um gamla Rafmagnsveituhúsið þar sem skimun eftir kórónuveirunni hefur farið fram undanfarin misseri. 19.10.2021 20:01
Íbúar í Fellunum lögðu verktaka í tugmilljóna deilu Verktakafyrirtækið Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf. hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Torfufelli 23-35 í Breiðholti 34 milljónir króna í nærri áratuga langri deilu um framkvæmdir á fjölbýlishúsinu. 19.10.2021 19:32
Laufléttir gervihnettir á stærð við þvottavél skoða Reykjanesgosið Fjórtán gervihnettir á stærð við þvottavél auðvelduðu íslenskum vísindamönnum að meta umfang og hegðun eldgossins á Reykjanesi betur en fyrri eldgos. Tæknin getur einnig nýst vð mat á áhrifum loftslagsbreytiinganna. 19.10.2021 19:21
„Það sem öll njósnakerfi heimsins ganga út á“ Formaður Viðreisnar vill fund með ráðherrum til að ganga úr skugga að þjóðaröryggi Íslendinga sé ekki ógnað með sölu á Mílu, dótturfélagi Símans, til fransks fyrirtækis. Tryggja verði að viðkvæmar upplýsingar rati ekki í rangar hendur. 19.10.2021 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tvö þúsund fá að koma saman, grímuskyldu verður aflétt og opnunartími skemmtistaða lengist um klukkutíma á miðnætti í kvöld. Slakað verður á reglunum í tveimur skrefum, fyrst núna á miðnætti og svo með allsherjar afléttingu innanlands eftir fjórar vikur. 19.10.2021 18:00
Sigmundur vill að ríkisstjórnin grípi inn í Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vill að ríkisstjórnin grípi inn í fyrirhugaða sölu Símans á Mílu. 19.10.2021 17:39
Vilja gróðurbrýr sem víðast Vistlok eða gróðurbrýr svokallaðar eru meðal tillagna sem kynntar hafa verið fyrir íbúum í Háaleitis- og Bústaðahverfis. Tillögurnar eru hluti af fyrirhuguðum róttækum breytingum á hverfinu en skiptar skoðanir eru uppi um sumar tillagnanna. 19.10.2021 14:42
Framkvæmdum við nýja leikskólann með lerkiklæðningu og torf á þaki ljúki næsta haust Framkvæmdir við nýjan leikskóla við Kleppsveg 150-152, sem áður hýsti meðal annars arkitektastofu og kynlífstækjabúðina Adam & Evu, eru hafnar og er gert ráð fyrir að framkvæmdum við leikskólann ljúki fyrir næsta haust. 19.10.2021 14:37
Sprengjusérfræðingar frá fimmtán löndum æfa á Keflavíkurflugvelli Hátt í þrjú hundruð sérfræðingar munu koma að Northern Challenge, árlegri alþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga, sem hefst á Keflavíkurflugvelli í dag og stendur fram í næstu viku. 19.10.2021 14:04
Ótrúleg fjölgun hnúðlaxa er hulin ráðgáta Finnskur rannsóknarprófessor segir enga leið að spá fyrir um afleiðingar hinnar gríðarlegu aukningar í stofni hnúðlaxa í Norður Atlantshafinu. Hún gæti orðið drastísk ef vöxtur stofnsins heldur áfram á sömu braut og hann hefur verið á en hann virðist hafa tífaldast milli ára. 19.10.2021 13:34
Fanney Birna hætt í Silfrinu eftir allt saman Fanney Birna Jónsdóttir er hætt sem stjórnandi í umræðuþættinum Silfrinu á RÚV, sem hún hefur stjórnað ásamt Agli Helgasyni um nokkurt skeið. Þetta staðfestir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV í samtali við fréttastofu. 19.10.2021 13:22
Salan á Mílu ásættanleg að uppfylltum ákveðnum skilyrðum Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir það ásættanlegt að Míla sé seld til erlendra aðila að því gefnu að gengið sé frá ákveðnum úrlausnarefnum sem stjórnvöld telja upp á borði. Viðræður ráðherra og fulltrúa söluaðilans, Símans, eru nýhafnar og er forsætisráðherra með löggjöf í undirbúningi sem ætlað er taka á innviðasölu til erlendra aðila. 19.10.2021 13:01
„Covid er ekki búið” Kórónuveirufaraldrinum er ekki lokið þrátt fyrir að verið sé að ráðast í umfangsmiklar afléttingar, að sögn sóttvarnalæknis. Hann tekur fram að ekki sé hægt að líta á faraldurinn eins og hefðbundna flensu og segir metfjölda smitaðra í gær áhyggjuefni. 19.10.2021 12:00