Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Myndasyrpa: Barnsgrátur og brunasár á flugslysaæfingu í Keflavík Fyrsta flugslysæfingin var haldin á Íslandi í fimm ár. Þar var öllu tjaldað til, kveikt í ýmsu braki, sem átti að vera úr flugvél og 150 leikurum, sem léku slaða flugfarþega, komið fyrir víða á stóru svæði við Keflavíkurflugvöll. 23.10.2021 17:32
Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sparkað í lögreglumann Maður var dæmdur í sextíu daga fangelsi fyrir brot gegn valdastjórninni Héraðsdómi Reykjaness í gær. Manninum var gefið að sök að hafa sparkað í lögreglumann og þar að auki sparkað í fætur fangavarðar á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. 23.10.2021 13:21
Eyþór segir hlut sinn í Mogganum verst geymda leyndarmálið í íslenskri pólitík Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segist engar beinagrindur hafa í skápum sínum. Hann keypti hlutabréf í fjölmiðlum Árvakurs fyrir fjórum árum síðan en hlutabréfin keypti hann af Samherja. 23.10.2021 13:01
„Það sem má ekki fara á hausinn á ekki að vera í frjálsri eigu“ Drífa Snædal, forseti ASÍ, telur að sala Símans á Mílu geti haft alvarlegar afleiðingar. Viðræðum um söluna lauk í nótt með undirritun kaupsamnings við franska sjóðstýringarfyrirtækið Ardian á hundrað prósent hlutafé í Mílu. 23.10.2021 11:50
Lyfjastofnun borist 4.144 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir bóluefna Embætti landlæknis hefur sent Lyfjastofnun fjölmargar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefna. Tilkynningarnar varða allar einstaklinga sem hafa verið bólusettir, en síðar greinst með Covid-19 smit. Skráning tilkynninganna stendur nú yfir. 23.10.2021 10:08
Ríkissaksóknari skoðar hvort áfrýja eigi Rauðagerðisdóminum Ríkissaksóknari fer nú yfir dóminn í Rauðagerðismálinu og önnur gögn, áður en tekin verður ákvörðun um hvort áfrýja eigi dóminum. 23.10.2021 09:52
Aðstoðarvarðstjóri á eftirlaunum átti ref og skilur ekkert í Matvælastofnun „Ég skil ekkert í Matvælastofnun að hafa ruðst inn til greyið stráksins til að reyna taka af honum refinn,“ segir Hlöðver Magnússon, fyrrverandi aðstoðarvarðstjóri hjá lögreglunni. Og kona hans, Ástríður Sveinsdóttir, eða Ásta, tekur undir með honum: „Já, mér finnst það bara dónaskapur,“ segir hún. Hjónin áttu sjálf ref árið 1993 og voru þekkt fyrir að ganga um með hann í bandi. 23.10.2021 08:00
Börðu eldri mann og spörkuðu í höfuð hans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Samkvæmt dagbók lögreglunnar réðust tveir ungir menn á ölvaðan eldri mann. Haft er eftir vitnum að árásinni að þeir hafi barið manninn og sparkað í höfuð hans þar sem hann lá í götunni. 23.10.2021 07:50
Öll í faginu taka slysaskotið til sín Bandaríski leikarinn Alec Baldwin segist í ólýsanlegu áfalli eftir að hafa orðið kvikmyndatökustjóra að bana á tökustað. Leikmyndahönnuður segir slysið víti til varnaðar fyrir kvikmyndaiðnaðinn. 22.10.2021 21:01
Rúmlega níræð kona ökklabrotin eftir harkalegt dyraat Kona á tíræðisaldri slasaðist alvarlega þegar gert var dyraat á heimili hennar í upphafi viku. Lögreglu hafa verið að berast tilkynningar undanfarið um dyraat, sem er óvenjulega harkalegt vegna tísku á TikTok. 22.10.2021 20:00
Þing ekki kallað saman fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hefur lokið störfum Viðræður formanna stjórnarflokkanna um nýjan stórnarsáttmála ganga vel að þeirra sögn og flest bendir til að þeir muni ná saman um nýja stjórn. Forsætisráðherra segir Alþingi ekki koma saman fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hafi lokið störfum. 22.10.2021 19:00
Edition vill vera hjartslátturinn í nýrri miðborg Reykjavíkur Nóttin í svítu á nýjasta hótelinu í Reykjavík kostar á bilinu 117 þúsund upp í rúma eina og hálfa milljón. Þar er boðið upp á einstakt útsýni yfir gömlu höfnina og ýmsa aðra þjónustu sem prýðir fimm stjörnu hótel. 22.10.2021 19:00
Ósammála gagnrýni dómarans um skort á hlutlægni Lögregla er ósammála því sem héraðsdómari hélt fram í gær um að hún hefði ekki gætt hlutlægni í rannsókn sinni í Rauðagerðismálinu. Þeir þrír sem voru grunaðir um samverknað við morðið voru allir sýknaðir. 22.10.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö í kvöld segjum við frá því að lögregla er ósammála héraðsdómara um að hún hafi ekki gætt hlutlægni í rannsókn sinni í Rauðagerðismálinu. Vinnubrögð hennar voru harðlega gagnrýnd í dómsal í gær. 22.10.2021 18:00
Dr. Football sektaður um hálfa milljón Fjölmiðlanefnd sendi stefnuvott að heimili Hjörvars Hafliðasonar, eiganda hlaðvarpsins Dr. Football, því hann svaraði ekki ítrekuðum erindum nefndarinnar. 22.10.2021 16:48
Þrjú ár fyrir nauðgun: Sagðist mjög kinkí í rúminu en fór fram með ofbeldi Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga vinkonu sinni haustið 2018. Landsréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra sem áður hafði verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. 22.10.2021 16:25
Kvöldfréttir lengri um helgar Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar býður nú upp á lengri fréttatíma á Stöð 2 um helgar. Fréttatíminn, sem samanstendur af kvöldfréttum og sportpakka, verður nú 25 mínútur alla daga vikunnar. 22.10.2021 15:56
Reiðhjólaslys varð til þess að SÍ endurskoðar bætur afturvirkt Sjúkratryggingar Íslands munu fara yfir allar ákvarðanir sem teknar hafa verið síðustu fjögur árin sem tengjast bótagreiðslum úr sjúklinga- og slysatryggingum vegna miska eða læknisfræðilegrar örorku. Tilefnið er dómur Hæstaréttar frá því í sumar, þar sem tekist var á um uppgjör bóta vegna reiðhjólaslyss árið 2015. 22.10.2021 15:00
Kannast ekkert við byrlunarfaraldur í Reykjavík Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu og eigendur skemmtistaða og pöbba í miðbæ Reykjavíkur kannast ekki við það að byrlunarfaraldur geysi í miðbæ Reykjavíkur. Eigandi Bankastræti Club í Reykjavík segist vita um nokkur tilvik sem upp hafi komið á staðnum undanfarnar vikur og fleiri stöðum. 22.10.2021 14:57
Hætta á að tölvuþrjótar hafi komist yfir tölvupósta starfsmanna Mögulegt er að tölvuþrjótar sem gerðu árás á póstþjón Háskólans í Reykjavík (HR) í síðustu viku hafi komist yfir tölvupósta starfsmanna. 22.10.2021 14:50
Lögin loks farin að virka og fleiri mál komin í kæruferli Tvö mál eru nú til rannsóknar og komin í kæruferli vegna óviðunandi brunavarna en í sumar féll dómur í sambærilegu máli. Þetta kom fram í erindi fagstjóra forvarnasviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á námstefnunni Á vakt fyrir Ísland, en málin sem kærð hafa verið eru talin mjög alvarleg. 22.10.2021 14:14
Telja að jafnvægi náist ekki nema meira sé byggt Sérfræðingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru ósammála hagfræðingum Landsbankans um að jafnvægi sé mögulegt á húsnæðismarkaðnum á næstunni. Telja þeir margt benda til að slíkt jafnvægi náist ekki nema núverandi byggingaráform verði aukin. 22.10.2021 14:01
Lögregla enn að rannsaka mál hjúkrunarfræðingsins Rannsókn lögreglu á máli hjúkrunarfræðings sem sakaður er um að hafa orðið sjúklingi á geðdeild Landspítalans að bana miðar vel að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni. 22.10.2021 12:13
Endurbótum á Kilo á Keflavíkurflugvelli lokið Endurbótum á einni af meginakbrautunum í flugbrautakerfi Keflavíkurflugvallar, svokallaðri Kilo, sem hófust í sumar, er nú lokið. 22.10.2021 12:02
Skrýtið að Angjelin fái sömu refsingu og tíðkast við ástríðuglæp Afbrotafræðingur telur margt sérstakt við dóminn sem féll í Rauðagerðismálinu í gær. Hann furðar sig á því að dómurinn hafi ekki verið fjölskipaður í svo víðfeðmu og alvarlegu sakamáli þar sem svo margir höfðu réttarstöðu sakbornings. 22.10.2021 12:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við afbrotafræðing um dómsniðurstöðuna í Rauðagerðismálinu svokallaða sem féll í gær. 22.10.2021 11:27
Margt í boði í borginni í tilefni af haustfríi Haustfrí hófst í grunnskólum Reykjavíkur í morgun og af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í söfnum borgarinnar. Fullorðnir fá frítt inn í fylgd með börnum meðan haustfríið varir. Sérstakur vefur hefur verið opnaður með allri dagskrá í Reykjavík. Það sama er upp á teningnum í Menningarhúsum Kópavogs. 22.10.2021 11:19
Bændasamtökin enn í viðræðum við ríkið um Hótel Sögu Viðræður standa enn yfir á milli Bændasamtaka Íslands og ríkisins um kaup á Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands. Þá er enn rætt við tvo aðila í hótelgeiranum, að sögn Gunnars Þorgeirssonar, formanns Bændasamtakanna. 22.10.2021 11:17
66 greindust innanlands í gær 66 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 24 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 36 prósent. 42 voru utan sóttkvíar, eða 64 prósent. 22.10.2021 10:13
Bein útsending: Á vakt fyrir Ísland Í dag og á morgun fer fram málþingið „Á vakt fyrir Ísland“, sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir. Á dagskrá eru ýmis erindi sem tengjast störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og umfjöllun um nokkur af stærri verkefnum þeirra síðasta ár. 22.10.2021 09:20
Stálu tveimur 170 þúsund króna úlpum úr verslun Bláa lónsins Lögregla á Suðurnesjum var kölluð út fyrr í vikunni þegar tilkynnt var um þjófnað á tveimur úlpum úr verslun Bláa lónsins. 22.10.2021 09:06
Sjötíu send heim vegna smits í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni Senda þurfti sjötíu nemendur í níunda bekk grunnskóla heim úr Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni í gær eftir að nemandi í búðunum greindist með Covid-19. 22.10.2021 09:00
Breyttar ábendingar um notkun magnýls gegn kransæðasjúkdóm „Þetta er nokkurn veginn í takt við það sem við höfum verið að gera hérna á Íslandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða kemur upp og það hefur verið að skýrast á undanförnum árum að aspirín er ekki jafn hættulítið og ávinningurinn kannski ekki jafn mikill og talið var.“ 22.10.2021 07:22
Létu sig hverfa án þess að borga reikninginn en skildu tösku eftir í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt en fyrsta verkefnið á vaktinni voru afskipti sem hafa þurfti af manni á heimili hans í Vesturbænum þar sem fíkniefni voru handlögð. 22.10.2021 06:55
Vilja kjarnaþjónustu í húsnæði við ný íþróttamannvirki KR Bygginganefnd Knattspyrnufélags Reykjavíkur, KR, hefur kynnt tillögur að viðamikilli uppbyggingu athafnasvæðis KR og er gert ráð fyrir að fyrsta skóflustungan að nýju knatthúsi og nýjum KR velli á næsta ári. Formaður knattspyrnudeildar KR segir meira felast í uppbyggingunni en nýr fótboltavöllur og áhorfendastúkur. 21.10.2021 23:00
Jóhannes uppljóstrari verðlaunaður í Svíþjóð Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, fékk sjálfbærnisverðlaun Gautaborgar í dag, sem kallast Win Win. hann fékk um fimmtán milljónir króna í verðlaunafé. 21.10.2021 22:37
Frekari sannanir fyrir því að Íslendingar voru í Ameríku löngu á undan Kólumbusi Enginn þarf lengur að velkjast í vafa um að fornsögurnar um fund Vínlands í kringum árið þúsund eru sannar. Vísindamönnum hefur núna tekist að tímasetja mjög nákvæmlega hvenær norrænir menn dvöldu í Ameríku nærri fimmhundruð árum á undan Kristófer Kólumbusi. 21.10.2021 22:22
Graðhestaskyr á Brúnastöðum: Skyrland opnað á Selfossi „Við krakkarnir fengum alltaf graðhestaskyr á Brúnastöðum“, sagði Guðni Ágústsson, fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna og fyrrverandi ráðherra þegar nýjasta upplifundarsýning, Skyrland, var opnuð á Selfossi í kvöld í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss. 21.10.2021 22:01
Aðalatriðið að fara ekki í „ásakanaleik fram og til baka“ Prófessor segir að óreiða í kringum endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi geti rýrt traust kjósenda á stjórnmálum. Aldrei muni nást algjör sátt um niðurstöðuna. 21.10.2021 21:30
Kynjakvóti tekinn upp í Versló Kynjakvóti hefur formlega verið tekinn upp hjá Verslunarskóla Íslands til að reyna að sporna gegn fækkun pilta í skólanum. Skólastjórinn segir nýjar reglur tryggja að hlutfall pilta í skólanum fari ekki undir fjörutíu prósent. 21.10.2021 20:20
Beiðnum um leit að börnum og ungmennum fjölgaði í september Talsverð aukning varð á beiðnum um leit að börnum og ungmennum sem bárust lögreglu í september en mánuðina þrjá á undan. Hegningarlagabrotum fækkaði hins vegar á milli mánaða. 21.10.2021 20:14
Þéttingarstefnan skapi íbúðaskort í Reykjavík Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins í Reykjavík segja þéttingarstefnu meirihutans í húsnæðismálum eiga sinn þátt í að skapa skort á nýjum íbúðum í borginni. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir hins vegar met hafa verið slegið í fjölda íbúða á undanförnum árum. 21.10.2021 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö verður farið yfir dóm sem kveðinn var upp í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í Rauðagerðismálinu svokallaða. Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að bana Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar. Fréttamaður okkar Birgir Olgeirsson var í dómssal og fer yfir helstu atriði. 21.10.2021 18:02
Átök á Pablo Discobar: Rekstrarstjóri réðst að gesti með vínflösku Rektrarstjóri Pablo Discobar, skemmtistaðar sem nýlega var opnaður að nýju eftir eldsvoða í mars í fyrra, missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi. Lögreglan er með málið til rannsóknar. Rekstrarstjórinn er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum. 21.10.2021 17:16
Læsa hliðum til að bregðast við áreiti karlmanns í Laugardal Knattspyrnufélagið Þróttur í Reykjavík hefur ákveðið að loka öllum nema einum aðgangi að gervigrasvelli sínum í Laugardal til að sporna við áreiti karlmanns gagnvart börnum í Dalnum. Íþróttastjóri Þróttar lýsir algjöru úrræðaleysi því þótt maðurinn sé endurtekið handtekinn er hann mættur jafnharðan á svæðið. 21.10.2021 15:50