Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kórónuveiran í sókn í Evrópu Kórónuveirutilfellum og dauðsföllum á heimsvísu fjölgar nú á ný í fyrsta sinn í tvo mánuði. Fjölgunina má að mestu rekja til nýrrar bylgju í Evrópu. 29.10.2021 19:03
Skoða þarf metorkudrykkjaneyslu íslenskra ungmenna Heilbrigðisráðherra segir met íslenskra ungmenna í orkudrykkjaneyslu áhyggjuefni. Ráðherrann hyggst ræða málið við landlækni. 29.10.2021 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stór skemmtanahelgi virðist fram undan þrátt fyrir mikla uppsveiflu í faraldrinum þar sem aldrei hafa fleiri mætt í hraðpróf vegna viðburða en í dag.Við fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum og verðum í beinni útsendingu frá sýnatökustað og frá miðbænum - þar sem allt iðar af lífi 29.10.2021 18:15
Farsóttanefnd hefur áhyggjur af fjölda smitaðra Farsóttanefnd Landspítala hefur áhyggjur af fjölda smita í samfélaginu og þeim fjölda innlagna sem óhjákvæmilega leiðir af því. Því hafa breyttar reglur tekið á Landspítalanum, meðal annars hvað varðar heimsóknir. 29.10.2021 18:04
Sparkaði af krafti í brjóstkassa sambýliskonu sinnar Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa veist að fyrrverandi sambýliskonu sinni og sparkað af afli í brjóstkassa hennar. Landsréttur þyngdi dóminn yfir manninum í héraði hvar hann hlaut þriggja mánaða dóm fyrir sparkið. 29.10.2021 16:58
Bréfberi fær engar skaðabætur frá Íslandspósti vegna hálkuslyss Íslandspóstur þarf ekki að greiða bréfbera skaðabætur vegna vinnuslys sem hann varð fyrir í desember 2015. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. 29.10.2021 16:04
Víkingaskip aftur við Bessastaðanes tólf öldum síðar „Líklega eru um 12 aldir eða svo frá því að knörr sást fyrst við Bessastaðanes og senn verða liðnar fjórar aldir frá því að skip sjóræningja frá Alsír strandaði þar um stundarsakir.“ 29.10.2021 15:37
Fjölgun smitaðra orðin áþreifanleg á Selfossi Nokkuð hefur verið um smitaða einstaklinga á Selfossi undanfarna daga en meðal þeirra sem hafa smitast eru kennarar og nemendur við Fjölbrautarskóla Suðurlands og starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Þá hafa einnig starfsmenn leikskóla smitast. 29.10.2021 15:37
Dagur segir næstu tíu ár verða áratug Reykjavíkur Næstu tíu ár verða áratugur Reykjavíkur í uppbyggingu íbúðarhúsnæði að sögn borgarstjóra. Nægt framboð sé af lóðum og þúsundir íbúða verði byggðar á næstu mánuðum og árum. 29.10.2021 14:27
Urður verðlaunuð fyrir störf sín í þágu fólks með ADHD Urður Njarðvík prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands var sæmd hvatningarverðlaunum ADHD-samtakanna á málþinginu Orkuboltar og íþróttir sem samtökin standa fyrir í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. 29.10.2021 13:55
Stofna félag til höfuðs meintu samráðsleysi í Kópavogi Stofnfundur félagsins Vinir Kópavogs var haldinn í gær. Húsfyllir var á fundinum en markmið félagsins er stofna vettvang til að veita bæjaryfirvöldum í Kópavogi aðhald í skipulagsmálum. Nýkjörinn stjórnarmaður segir reynsluna vera þá að lítið sé hlustað á Kópavogsbúa í slíkum málun. 29.10.2021 13:31
Áhyggjuefni þegar „Pétur og Páll“ eru byrjaðir í offramleiðslu Formaður Hundaræktarfélag Íslands telur dýralækni hafa gengið fulllangt með því að ráða fólki frá því að kaupa sér flatnefjuð gæludýr. Hann telur ræktendur almennt ábyrga, vandamálið liggi í óskráðri offramleiðslu á dýrunum. 29.10.2021 13:24
Bein útsending: Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, er heiðursgestur á málþingi um loftslagskreppuna og framtíðina sem er haldið í Þjóðminjasafni Íslands í dag. Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi hér á Vísi. 29.10.2021 13:00
Leiðrétting frá Þórólfi: Níu fullbólusett börn greinst með Covid-19 Níu af rúmlega 12 þúsund fullbólusettum börnum á aldrinum tólf til fimmtán ára hafa greinst með Covid-19, eða 0,07 prósent. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir frá þessu og leiðréttir þar með upplýsingar sem bárust frá heilbrigðisráðuneytinu fyrr í vikunni þar sem sagði að ekkert barn í umræddum hópi hafi greinst með Covid-19. 29.10.2021 12:58
„Við verðum bara að treysta fólki“ Heldur færri greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær heldur en dagana þar áður en áfram er þó að greinast nokkur fjöldi smitaðra. Sóttvarnalæknir segir ekki von á minnisblaði í dag og hvetur þess í stað fólk til að fara varlega um helgina. 29.10.2021 12:20
Skýrist um áramótin hvort bólusetja megi 5-11 ára börn á Íslandi Það skýrist væntanlega ekki fyrr en eftir tvo mánuði hvort að bóluefni Pfizer verði leyft hér á landi fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára. Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu er með málið til umfjöllunar. 29.10.2021 12:15
Bein útsending: Orkuboltar og íþróttir Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður en tilgangur hans er að vekja athygli á aðstæðum einstaklinga með ADHD. Í tilefni þess standa ADHD samtökin fyrir málþingi er nefnist „Orkuboltar og íþróttir“ sem haldið er í dag frá klukkan 13-16. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á stöðu einstaklinga með ADHD í íþrótta- og tómstundastarfi. 29.10.2021 12:15
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um uppbyggingaráform í Reykjavík en árviss ráðstefna um það efni fór fram í ráðhúsinu í morgun. 29.10.2021 11:36
Skárri kostur en algjört bann sem hafi verið til umræðu Rjúpnaveiðimenn sýna hertum veiðireglum skilning þrátt fyrir að vilja hafa þær óbreyttar. Veiðibann er á meðal þeirra leiða sem skoðað var að fara. 29.10.2021 11:28
Ráðning Andra framlengd og Stefán Hrafn snúinn aftur Tímabundin ráðning Andra Ólafssonar í starf upplýsingafulltrúa hjá Landspítalanum hefur verið framlengd til 1. febrúar. Stefán Hrafn Hagalín, sem er deildarstjóri samskiptadeildar, hefur snúið aftur til starfa. 29.10.2021 11:14
Sagði fullar vínflöskur af amfetamíni óvæntan vinning í skemmtun á Spáni Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til innflutnings á um rúmum einum og hálfum lítra af amfetamínbasa ætluðum til söludreifingar hér á landi. Efnið flutti maðurinn, Friðrik Hansson, með flugi frá Barcelona til Keflavíkurflugvallar í mars 2019. 29.10.2021 11:01
Telja blekkjandi að tala um tengitvinnbíla sem „nýorkubíla“ Íslensk stjórnvöld ættu að hætta að nota hugtakið nýorkubíla þar sem undir það falla bílar sem brenna bensíni- og olíu. Náttúruverndarsamtök Íslands telja hugtakið blekkjandi og að það hjálpi ekki til við orkuskipti. 29.10.2021 10:21
78 greindust innanlands í gær 78 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 48 þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 62 prósent. Þrjátíu voru utan sóttkvíar, eða 38 prósent. 29.10.2021 10:20
Aðalmeðferð í máli eldri borgara gegn Tryggingastofnun hefst í dag Félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldri borgara um lífeyrismál, mættu í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun til að fylgjast með aðalmeðferð í máli félaga hópsins gegn Tryggingastofnun. 29.10.2021 10:10
Einungis einn getur nú vitjað sjúklings á dag Landspítalinn hefur ákveðið að herða heimsóknarreglur á spítalanum enn frekar vegna þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu vegna faraldurs kórónuveirunnar. 29.10.2021 08:39
Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu vísindastarfs á Landspítala Stjórn Læknaráðs Landspítalans hefur lýst yfir þungum áhyggjum af bágri stöðu vísindastarfs á spítalanum, en hann vermir nú botnsætið meðal norrænu háskólasjúkrahúsanna þegar kemur að tilvitnunum og er kominn langt undir heimsmeðaltal. 29.10.2021 07:45
Landlæknir áréttaði við heilsugæsluna að láta konur njóta vafans Öll leghálssýni sem fyrst voru sett til hliðar vegna gruns um ofskimum voru á endanum send til rannsóknar í Danmörku. Örfá einkennasýni voru þeirra á meðal. Þetta er meðal þess sem kemur fram í gögnum sem Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu sendi Embætti landlæknis í sumar og svörum þeirra við fyrirspurnum Vísis. 29.10.2021 07:30
Slökkvilið kallað út vegna brennds popps ellefu ára stráka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar tilkynnt var um eld í örbylgjuofni í húsi í austurborg Reykjavíkur í gær. 29.10.2021 07:12
Enn á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ Karlmaður á fimmtugsaldri er á gjörgæsludeild Landspítala eftir að hann varð fyrir alvarlegri líkamsárás fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjanesbæjar á aðfaranótt síðastliðins laugardags. 29.10.2021 07:01
83 hvali rekið á land í 34 atburðum Það sem af er ári hefur 83 hvali rekið á land í 34 atburðum. Þar af eru 59 grindhvalir og sjö búrhvalir. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í morgun. 29.10.2021 06:20
Börn þurft að leita á bráðamóttöku eftir neyslu orkudrykkja Börn hafa þurft að leita á bráðamóttöku eftir neyslu orkudrykkja en íslensk börn drekka meira af þeim en jafnaldrar annars staðar. Sérfræðingur í eiturefnafræði segir langtímaneyslu ungmenna á orkudrykkjum áhyggjuefni þar sem efnin í þeim hækka meðal annars blóðþrýsting og skaða æðakerfið. 28.10.2021 23:03
Keppast við vegabætur áður en holskefla ferðamanna ríður yfir Vestfirðingar gleðjast yfir því í dag að ferðabókaútgefandinn Lonely Planet hafi sett fjórðunginn í efsta sæti yfir þau svæði heims sem best sé að heimsækja á næsta ári. Ferðamanna bíða hins vegar holóttir malarvegir og einbreiðar brýr fyrir vestan og það stefnir í bið eftir næsta áfanga á Dynjandisheiði. 28.10.2021 22:46
Fimmtíu manna sendinefnd á leið á loftslagsráðstefnuna í Glasgow Umhverfissamtök segja íslensk stjórnvöld þurfa að gera mun betur í loftslagsmálum og krefjast þess að atvinnugreinum verði sett skýr losunarmörk. Þetta kemur fram í afdráttarlausri áskorun þeirra í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar COP26 í Glasgow. 28.10.2021 22:16
Fær ekki að ávísa lyfinu Ivermectin við Covid-19 Læknir krafðist þess fyrr á árinu að honum yrði veitt heimild til að ávísa lyfinu Ivermectin sem meðferð gegn Covid-19. Heilbrigðisráðuneytið staðfesti ákvarðanir Lyfjastofnunar nýlega, sem gáfu lækninum ekki undanþáguheimild til að ávísa lyfinu. 28.10.2021 22:03
Ræður fólki frá því að kaupa sér flatnefjuð gæludýr Örkumlun og styttri lífími er á meðal þess sem getur fylgt flötu trýni, sem ræktað hefur verið upp í ýmsum gæludýrategundum. Dýralæknir ræður fólki frá því að fá sér slík dýr og kallar eftir stefnubreytingu hjá ræktendum. 28.10.2021 21:00
Smit á bráðamóttöku sjúkrahússins á Selfossi Einstaklingur greindist með Covid-19 á sjúkrahúsinu á Selfossi í gærkvöldi. Sjúklingurinn lá á bráðamóttöku vegna annarra veikinda en er einkennalaus eins og stendur. 28.10.2021 20:13
Takmarkar tímann sem veiðimenn hafa til að veiða rjúpu Umhverfisráðherra ákvað í dag að stytta tímann sem veiðimenn fá til að veiða rjúpu yfir daginn til að bregðast við stöðu stofnsins. Verður óheimilt að hefja leit og veiðar fyrir hádegi þá daga sem leyft verður að veiða. Veiðitímabilið hefst þann 1. nóvember. 28.10.2021 19:16
Fjölga í kynferðisbrotadeild vegna holskeflu mála Málum á borði kynferðisbrotadeildar lögreglu hefur fjölgað um tæpan þriðjung milli ára á höfuðborgarsvæðinu. Mesta fjölgunin er í flokki mála þar sem brotið er gegn börnum, auk þess sem málin eru erfiðari í rannsókn en áður. Bætt verður við mannskap til að anna álaginu. 28.10.2021 19:01
Verulega ólíklegt að af fullri afléttingu verði 18. nóvember Heilbrigðisráðherra telur verulega ólíklegt að sóttvarnatakmörkunum innanlands verði aflétt að fullu 18. nóvember líkt og stjórnvöld höfðu boðað. Ráðherra hefur verulega áhyggjur af stöðunni þó enn sé ekki hugað að hertum aðgerðum. 28.10.2021 18:31
Þingmenn fundu gilt atkvæði í röngum bunka í Borgarnesi á miðvikdag Gilt atkvæði fannst í bunka sem var merktur auðum atkvæðum í vettvangsferð sem hluti undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa fór í Borgarnes á miðvikudag. 28.10.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heilbrigðisráðherra telur verulega ólíklegt að sóttvarnatakmörkunum innanlands verði aflétt að fullu 18. nóvember líkt og stjórnvöld höfðu boðað. Ráðherra hefur miklar áhyggjur af stöðunni þó enn sé ekki hugað að hertum aðgerðum. 28.10.2021 18:00
Rafmagn komið aftur á Rafmagnslaust er nú við Hlíðarenda, í Skerjafirði og miðbæ Reykjavíkur. Rafmagnsleysið má rekja til háspennubilunar en unnið er að viðgerð. 28.10.2021 17:15
Rafrænir fylgiseðlar lyfja gætu orðið að veruleika með nýrri löggjöf Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur efnt til opins samráðs um endurskoðun á lyfjalöggjöf sambandsins. Norðurlöndin hafa farið þess á leit við sambandið að fylgiseðlar með lyfjum verði gerðir rafrænir. 28.10.2021 16:48
Segir rétt viðbrögð hafa skipt sköpum Rétt viðbrögð skiptu sköpum eftir að eldur kom upp í ísfisktogaranum Vestmannaey VE í gær. Það segir skipstjóri togarans en eldurinn hófst á sprengingu í vélarrúminu var skipið þá austur af landinu. Það var dregið til hafnar í Norðfirði. 28.10.2021 15:35
Fordæma yfirlýsingu bæjarstjórnar á Hornafirði vegna kynferðisbrotamáls Nokkrir tugir íbúa og aðila tengdum sveitarfélaginu Hornafirði fordæma yfirlýsingu bæjarstjórnar í kjölfar dóms í kynferðisbrotamáli aðila tengdum bæjarstjóra sveitarfélagsins. Telja þeir illa hafa verið staðið að málum á meðan rannsókn lögreglu stóð og vísa til þess að starfsmanni, sem grunaður var um kynferðisbrot, hefði ekki verið vikið frá störfum. 28.10.2021 15:19