Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Ég er í engum vafa um að ég braut engin lög“ Ritstjóri Kjarnans segir yfirheyrslu yfir sér, sem fram fór í gær, fyrst og fremst hafa snúist um störf fjölmiðla og heimildamenn í tengslum við Samherjamálið. Ekki hafi verið spurt um meinta dreifingu á kynferðislegu efni, sem rannsóknin var áður sögð snúast um. 12.8.2022 14:01
Reiknað með leikskóla og neðansjávarveitingastað við Gufunesbryggju Borgarráð hefur samþykkt að hefja viðræður við Þorpið-Vistfélag á grundvelli verðlaunatillögu um uppbyggingu við Gufunesbryggju, sem felur meðal annars í sér byggingu leikskóla og veitingastað sem verði að hluta til neðansjávar. Kanna á hvort raunhæft sé að staðsetja leikskóla á umræddu svæði. 12.8.2022 12:16
Forstjórar ættu að sýna ábyrgð og lækka laun sín Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda vill að forstjórar stærstu fyrirtækja landsins lækki laun sín og sýni gott fordæmi fyrir kjaraviðræður. Honum þykir mörg stórfyrirtæki hafa sýnt ábyrgðarleysi í verðbólguástandinu. 12.8.2022 12:01
Carbfix vinnur að byltingarkenndri lausn í kolefnisbindingu Carbfix mun á næstunni hefja tilraunir með að nota sjó til að steinrenna koltvísýringi í berglögum neðanjarðar. Mikil tækifæri felast í tilraunum Carbfix fyrir lönd og landsvæði sem hafa takmarkað aðgengi að ferskvatni en eru nálægt sjó. 12.8.2022 11:44
Bíl ekið inn í verslun Nettó Bíl var ekið inn um rúðu á verslun Nettó í Búðakór í Kópavogi rétt í þessu. 12.8.2022 11:41
Íbúar á landsbyggðinni neikvæðari í garð túrista Íbúar landsbyggðarinnar virðast ívið neikvæðari gagnvart túristum en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Maskínu sem snýr að viðhorfi Íslendinga til ferðamanna. 12.8.2022 10:59
Ferðamaðurinn sækir í eldgos og dónaskap Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins segir bóksölu til erlendra ferðamanna aldrei hafa verið meiri en nú selst helmingi meira af bókum til þeirra en 2019. 12.8.2022 10:52
Óttast að ofbeldismenning taki yfir verkalýðshreyfinguna Stjórn Bárunnar, stéttarfélags, hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem hún fordæmir allar tegundir ofbeldis og tilburði til eineltis. Báran segir ömurlegt að fylgjast með forystumönnum innan verkalýðshreyfingarinnar fagna afsögn Drífu Snædal. 12.8.2022 10:14
Villtust af gönguleiðinni í nótt Viðbragðsaðilar á vakt við gosstöðvarnar aðstoðu átján manns sem villst höfðu af gönguleið A að eldgosinu í nótt. 12.8.2022 10:11
Setja upp vefmyndavél til að fylgjast með skarðinu Til stendur að setja upp vefmyndavél í Eystri-Meradölum til þess að vakta það skarð sem líklegast er talið að hraun flæði upp úr dalnum og í átt til Suðurstrandarvegs. 12.8.2022 07:53
Vilja ekki tjá sig um viðræður um gagnaver á Bakka Mikil leynd hvílir yfir viðræðum sem standa yfir milli Norðurþings og erlenda fyrirtækinu Tesseract um áætlanir um að koma upp gagnaveri á iðnaðarsvæðinu á Bakka. 12.8.2022 07:34
Skortur á tækifærum og fjölbreytileika fæli nýja lækna frá Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir það fæla fólk frá því að koma heim eftir læknanám erlendis að tækifæri til að stunda rannsóknir hérlendis séu hverfandi. 12.8.2022 07:21
Beraði sig fyrir framan fólk í miðbænum Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 12.8.2022 06:34
„Nei mér finnst það ekki boðlegt“ Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir stöðuna ekki boðlega. 11.8.2022 23:00
Edda fór yfir fimmtíu ára feril í fréttamennsku Edda Andrésdóttir á fimmtíu ára feril að baki í fjölmiðlum og hefur lesið kvöldfréttir á Stöð 2 í þrjátíu ár. Í kvöld las hún kvöldfréttir Stöðvar 2 í síðasta sinn og fór yfir feril sinn í Íslandi í dag hjá Sindra Sindrasyni í kjölfarið. 11.8.2022 22:08
Krakkar ósáttir með bann á gosstöðvum: „Mér finnst það ekki í lagi“ Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um ákvörðun hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Börn segja ósanngjarnt að sumir megi ekki skoða gosið. 11.8.2022 22:01
Hestar í torfhúsi á Lýtingsstöðum í Skagafirði Fallegt torfhesthús er á bænum Lýtingsstöðum í Skagafirði þar sem nokkrir hestar geta verið inni. Þar er líka mikið af gömlum reiðtygjum, sem gestir og gangandi geta fengið að skoða. Íslenski fjárhundurinn er líka í hávegum hafður á bænum. 11.8.2022 21:48
Ákærður fyrir að ráðast á annan Íslending í London Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir stórfellda líkamsárás á annan Íslending í London. Atvikið átti sér stað í nóvember árið 2018. 11.8.2022 21:19
Nafn mannsins sem lést við Langasand Maðurinn sem lést við sjósund við Langasand á Akranesi hét Elías Jón Sveinsson. 11.8.2022 20:45
Biðjast afsökunar á að hafa sigað lögreglu á hinsegin mótmælendur Stjórn Hinsegin daga hefur beðist afsökunar á því að hafa nafngreint Elínborgu Hörpu og Önundarburs við lögreglu fyrir Gleðigönguna árið 2019. Á leið sinni í gönguna var Elínborg handtekið. 11.8.2022 20:28
„Þetta er algjör skrípaleikur“ Foreldrar barna í Reykjavík sem hafa ekki fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. 11.8.2022 20:20
Hópur fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum Formaður Öldunnar, stéttarfélags innan Alþýðusambandsins (ASÍ), segir framtíð verkalýðshreyfingarinnar svarta eftir sviptingar innan hennar undanfarið. Hann segir hóp fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum, sem fáir séu spenntir að vinna með. 11.8.2022 19:00
Blaðamennirnir boðaðir í yfirheyrslu á ný Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað blaðamennina fjóra sem eru með réttarstöðu sakbornings eftir umfjöllun um „skæruliðadeild Samherja“, aftur í skýrslutöku. 11.8.2022 18:17
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Talsverður hiti var í fólki þegar það ræddi málin við borgarstjóra og borgarfulltrúa. Við sýnum frá mótmælunum í kvöldfréttatíma Stöðvar 2. 11.8.2022 17:57
Matvælastofnun og Fiskistofa muni sinna eftirliti um hvalveiðar Matvælaráðherra hefur sett reglugerð um eftirlit við hvalveiðar. Matvælastofnun er falið að hafa reglubundið eftirlit til að farið sé að lögum um velferð dýra við hvalveiðar og mun Fiskistofa sjá um framkvæmd eftirlitsins. Eftirlitið mun hefjast samstundis. 11.8.2022 17:48
Virðast hafa komið hingað til lands einungis til að svíkja fé Rannsókn lögreglu á fjársvikamáli sem viðskiptavinir Landsbankans urðu fyrir í síðasta mánuði miðar vel. Talið er að hópur brotamanna hafi verið að verki en framkvæmdar hafa verið bæði handtökur og húsleitir við rannsóknina. 11.8.2022 17:20
Formenn innan SGS harma aðstæður sem urðu til afsagnar Drífu Ellefu formenn aðildarsambanda innan Starfsgreinasamband Íslands hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir þakka Drífu Snædal, sem sagði af sér embætti formanns Alþýðusambands Íslands í gær, fyrir farsælt og gefandi samstarf. 11.8.2022 16:26
Tölvuárás á Fréttablaðið litin alvarlegum augum Blaðamannafélaga Íslands fordæmir tölvuárás sem gerð var á Fréttablaðið í morgun sem og tilraunir rússneska sendiráðsins til að hafa áhrif á fréttaflutning íslenskra fjölmiðla af stríðinu í Úkraínu. 11.8.2022 15:46
Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða. 11.8.2022 14:59
Umboðsmaður vill skýringar á barnabanni Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna ákvörðunar hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. 11.8.2022 13:57
Bein útsending: Eldgosið í nærmynd Vísir sýnir beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. 11.8.2022 13:25
Ekkert bendi til þess að mávar séu árásargjarnari nú en áður Engin breyting er á hegðun máva og ekkert sem bendir til þess að þeir séu árásargjarnari nú en áður. Fuglafræðingur segir að ef bæjarfélög vilji hafa græn svæði í byggð verði þeir að lifa með mávnum. 11.8.2022 12:30
Undarlegt ár að baki hjá verkalýðshreyfingunni Fyrrverandi ríkissáttasemjari segir það mjög óvenjulegt að forseti Alþýðusambandsins segi af sér vegna deilna inna verkalýðshreyfingarinnar. Átökin hafi verið óvenju opinber síðasta árið. Sviptingarnar gætu haft nokkur áhrif á gerð kjarasamninga í haust. 11.8.2022 12:29
Netárás á vef Fréttablaðsins Netárás var gerð í morgun á vef Fréttablaðsins. Hótun barst ritstjórn blaðsins um að vefnum yrði lokað í kvöld verði hún ekki við beiðni um opinbera afsökun vegna myndar sem birtist í Fréttablaðinu í gær. 11.8.2022 12:02
Tímaspursmál hvenær hraun rennur suður úr Meradölum Hraun er enn ekki farið að flæða úr Meradölum en jarðeðlisfræðingur segir tímaspursmál hvenær það gerist. Þá muni hraunið renna í átt að Suðurstrandavegi, rúmlega fjögurra kílómetra leið. 11.8.2022 11:40
Komust á brott með fokdýrar merkjavörur Bíræfnir innbrotsþjófar brutust inn í verslunina Attikk á Laugavegi í morgun. Framkvæmdastjórinn telur þjófana hafa stolið varningi, sem er í eigu þriðju aðila, að andvirði einnar milljónar króna. 11.8.2022 11:20
Segir rússneska sendiherrann vilja afvegaleiða umræðuna Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur vert að dusta rykið af lagafrumvarpi þar sem lagt er til að grein sem snýr að banni við því að móðga þjóðhöfðingja og smána fána þjóðríkja verði máð úr hegningarlögum. 11.8.2022 11:19
Hádegisfréttir Bylgjunnar Leikskólamál, kjaramál, mávagarg og eldgos verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 11.8.2022 11:14
Myndaveisla: Ferðamenn trúa ekki eigin augum í Meradölum Þeir ferðamenn sem ljósmyndari okkar, Vilhelm Gunnarsson myndaði við gosstöðvarnar í Meradölum trúðu ekki sínum eigin augum þegar þeir sáu tilkomumikið sjónarspilið í dalnum í fyrsta sinn. Það er enda ekki á hverjum degi sem fólk víðs vegar að kemst í tæri við eldgos. 11.8.2022 10:19
Edda les sinn síðasta fréttatíma í kvöld Edda Andrésdóttir hefur lesið kvöldfréttir á Stöð 2 í næstum þrjátíu ár en á fimmtíu ára feril að baki í fjölmiðlum. Á þeim tímapunkti hefur hún ákveðið að hætta að lesa fréttir en hún er ekki endilega hætt í fjölmiðlum. 11.8.2022 08:00
Engin breyting á gosinu og meinlaust veður fyrri hluta dags Engin breyting hefur orðið á eldgosinu í Meradölum og álitlegra veður verður á svæðinu í dag en hann rignir með kvöldinu. 11.8.2022 07:05
Stórt hlutfall íslenskra lækna útskrifast erlendis Tæplega helmingur lækna frá Íslandi útskrifast nú úr grunnámi við erlenda háskóla. 11.8.2022 06:56
Uppvís að gripdeild og reyndi að skalla lögreglumann Maður var handtekinn í gær eftir að hafa reynt að skalla lögreglumann sem hafði afskipi af honum vegna gripdeildar. 11.8.2022 06:30
Tveir unnu fimm milljónir á sama miðanúmeri Tveir einstaklingar með sama miðanúmer unnu fimm milljónir hvor í ágústútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands (HHÍ). Allt að fjórir geta átt miða með sama miðanúmeri. 10.8.2022 23:08
Sölvi Tryggvason snýr aftur með fjóra þætti Fjórir nýir þættir af hlaðvarpinu Podcast með Sölva Tryggva eru komnir á áskriftarsíðu Sölva sem sett var í loftið nýlega. Sölvi hefur ekki birt nýjan þátt síðan tvær konur sökuðu hann um ofbeldi í maí á síðasta ári. 10.8.2022 22:22