Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðbólga, lögregla og leigubifreiðar á Alþingi Þingmaður Flokks fólksins segir öfugsnúið að berjast gegn verðbólgu með hækkun vaxta sem auki greiðslubyrði heimilanna og verðbólguna. Fjármálaráðherra segir vaxtahækkanir Seðlabankans hins vegar hafa dregið úr hækkun húsnæðisverðs og nú fari verðbólga minnkandi. 27.9.2022 19:42
Tugir segja sig úr Ferðafélaginu á „ákaflega sorglegum degi“ Stjórn Ferðafélags Íslands hafnar alfarið ásökunum fráfarandi forseta félagsins, sem sakar stjórnina meðal annars um að hafa þaggað niður kynferðisofbeldismál. Varaforseti segir vantraustsyfirlýsingu gegn forsetanum hafa verið í undirbúningi. 61 hefur sagt sig úr Ferðafélaginu vegna málsins í dag. 27.9.2022 19:31
Um tvö þúsund manns mættu í bólusetningu Í fyrsta sinn í hálft ár var stólum raðað upp fyrir fjöldabólusetningu og hjúkrunarfræðingar gengu um með bakka fulla af sprautum. Hluti þeirra sem mættu fengu bæði inflúensubólusetningu og örvunarskammt af nýju bóluefni gegn ómíkrón afbrigðinu. 27.9.2022 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Evrópuríki gruna Rússa um að hafa sprengt upp göt á Nord Stream gasleiðsluna sem flytur gas frá Rússlandi til Evrópu. Búist er við að Pútín tilkynni á næstum dögum um innlimun úkraínskra héraða sem Rússar hafa náð tökum á. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27.9.2022 18:02
Ekki í anda trúarinnar að tvístra nemendahópum Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur við Laugarneskirkju vísar á bug ásökunum um að kirkjan sé að kynda undir ófriðarbál með því að afþakka kirkjuheimsóknir á vegum grunnskólanna í aðventunni. Ákvörðunin hafi verið tekin sérstaklega til að slökkva ófriðarbál því andstaða hafi við skipulagðar kirkjuheimsóknir hafi farið stigvaxandi. Þá sé það ekki í anda kirkjunnar að skilja börn út undan. 27.9.2022 17:08
Orðin lenska að taka langan tíma í kjarasamninga Yfir 99 prósent kjarasamninga á Íslandi renna út áður en nýr samningur er gerður. Þetta er of hátt hlutfall sem skapar óvissu fyrir launafólk og atvinnurekendur að mati ríkissáttasemjara. Hann vonar að hægt verði að breyta þessari hefð í náinni framtíð. 27.9.2022 16:39
Konan sem leitað var að er komin í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti síðdegis í dag eftir 25 ára konu. Innan við klukkustund eftir tilkynningu lögreglu var konan komin í leitirnar. 27.9.2022 16:33
Vilja enn að Alþingi biðji ráðherra í landsdómsmáli afsökunar Fjórir þingmenn Mið- og Sjálfstæðisflokksins lögðu fram ályktun um að Alþingi biðji Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og tvo aðra ráðherra afsökunar vegna ákæru til landsdóms. Í þingsályktunartillögu þeirra segir að rangt hafi verið að leggja fram ályktun um að höfða mál gegn þeim. 27.9.2022 15:21
Afgreiðsla forsætisnefndar á máli Sigurðar Inga sögð skrípaleikur Þingmenn stjórnarandstöðunnar sóttu hart að stjórnarliðum vegna afgreiðslu forsætisnefndar á siðanefndakæru á hendur Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra á Alþingi í dag. 27.9.2022 14:29
Lögregla fann manninn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. 27.9.2022 14:00
Tómas vísar ásökunum Önnu Dóru á bug og segir öllu á haus snúið Tómas Guðbjartsson, læknir og útivistarmaður, stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann mótmælir harðlega því sem hann vill meina að séu alvarlegar ásakanir í sinn garð af hálfu fráfarandi forseta FÍ; Önnu Dóru Sæþórsdóttur. 27.9.2022 13:23
Hafnar því að hún harmi skipan þjóðminjavarðar Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segist ekki harma skipan þjóðminjavarðar, líkt og haldið var fram í Fréttablaðinu í morgun. Hins vegar hefði mátt auglýsa stöðuna til að halda sátt um skipanina. Ekki standi til að draga hana til baka. 27.9.2022 12:55
Gríðarlegt tjón í tugum íbúða eftir fordæmalausa rafmagnsbilun Margra milljóna króna tjón varð í tæplega hundrað íbúðum í Urriðaholti á föstudag þegar bilun kom í rafmagnsgötukassa og allt of há spenna komst inn á íbúðirnar. Gríðarlegur fjöldi heimilistækja skemmdist og dæmi eru um að lyftur í stigagöngum séu óvirkar. 27.9.2022 12:44
Stjórn FÍ vísar á bug ásökunum og lýsingum forsetans Stjórn Ferðafélags Íslands lýsir yfir vonbrigðum og furðu með hvernig Anna Dóra Sæþórsdóttir, fráfarandi forseti félagsins, lýsir viðskilnaði sínum við félagið. Stjórnin vísar algjörlega á bug þeim ásökunum og lýsingum sem hún setur fram í yfirlýsingu sinni. 27.9.2022 12:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Skipun þjóðminjavarðar, stórfellt rafmagnstjón, kirkjuheimsóknir barna og efnahagskrísa Breta verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 27.9.2022 11:38
Ekki þannig að myndavélar verði settar í hvert horn og hver sem er hleraður Umræðan um frumvarp um rannsóknarheimildir lögreglu ber keim af áróðri að sögn dómsmálaráðherra. Frumvarpið hefur sætt nokkurri gagnrýni en ráðherrann segir ekki nógu skýr ákvæði um heimildir lögreglu til staðar. Það standi alls ekki til að setja myndavélar í hvert horn og hlera fólk sem ekkert hafi af sér gert heldur þurfi einfaldlega að tryggja öryggi borgara. 27.9.2022 11:14
Aflýsa hættustigi á Austur- og Suðurlandi vegna óveðursins Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra á Austurlandi og Suðurlandi hefur ákveðið að aflýsa hættustigi almannavarna vegna veðurs sem fór yfir umdæmin 24. til 26. september. 27.9.2022 09:49
Þetta er uppáhalds sundlaug Íslendinga Sundlaug Akureyrar er uppáhalds sundlaug Íslendinga, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fréttastofa sótti tvær vinsælustu laugar landsins heim í dag. Heildarniðurstöður má nálgast neðst í fréttinni. 27.9.2022 09:42
Hættir sem forseti FÍ: Segir Tómas hafa barist fyrir endurkomu Helga Anna Dóra Sæþórsdóttir hefur sagt af sér sem forseti Ferðafélags Íslands (FÍ) sem og úr félaginu sjálfu. Hún segir stjórnarhætti ganga þvert á hennar gildi. Stjórnarmaður hafi barist hart fyrir því að koma vini sínum aftur til starfa sem hafði sagt sig úr stjórn félagsins vegna ásakana um kynferðisofbeldi. 27.9.2022 09:30
Breyta fyrirkomulagi launagreiðslna ríkisstarfsmanna eftir gagnrýni Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur heimilað Fjársýslunni að breyta fyrirkomulaginu á launagreiðslum ríkisstarfsmanna eftir mikla gagnrýni á fyrirkomulagið. Með breytingunni verða laun greidd út fyrsta hvers mánaðar, óháð því hvort dagsetningin lendi á helgi eða lögbundnum frídegi. 27.9.2022 09:11
Munu reisa Angró á nýjum stað í bænum Til stendur að reisa sögufræga húsið Angró á Seyðisfirði á nýjum stað í bænum eftir að það féll saman í óveðrinu um helgina. Múlaþing vinnur nú að því í samvinnu við Minjastofnun að undirbúa aðgerðir á svæðinu en það hefur lengi staðið til að flytja húsið á nýjan stað. 27.9.2022 07:35
„Þetta varð alltaf verra og verra“ Talið er að um fimm þúsund börn hafi dvalið á um þrjátíu vistheimilum á vegum hins opinbera frá síðustu öld. Þá er ótalið öll þau börn sem dvöldu á sveitabæjum. Nú hafa sanngirnisbætur verið greiddar eða eru á leiðinni fyrir dvöl á næstum öðru hverju heimili. Umsjónarmaður sanngirnisbóta segir að algjört eftirlits-og stefnuleysi hafi ríkt í málaflokknum á sínum tíma. Það sé því miður raunin að nokkru leyti ennþá. 27.9.2022 07:02
Rólegt veður í dag og á morgun eftir illviðri síðustu daga Haglætis veður verður á landinu í dag og á morgun eftir illviðri síðustu daga og hefur vindur gengið niður á Austurhluta landsins. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. 27.9.2022 06:42
Segir Lilju harma skipun þjóðminjavarðar en ekki geta dregið hana til baka Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður Íslandsdeildar International Council of Museums (ICOM), segir Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra hafa harmað skipun þjóðminjavarðar án auglýsingar á Safnaþingi á Austfjörðum í síðustu viku. 27.9.2022 06:26
Ekið á sextán ára strák á rafmagnshlaupahjóli í Hlíðunum Sextán ára strákur á rafmagnshlaupahjóli varð fyrir bíl í Hlíðunum í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi en vitni sá strákinn fljúga í loftinu með alla anga úti áður en hann lenti á götunni, að því er kemur fram í dagbók lögreglu. 27.9.2022 06:25
Leit að stúlku í Vesturbæ Fjölmargir björgunarsveitarmenn hafa í samstarfi við lögreglu leitað að unglingsstúlku í Vesturbæ frá því klukkan ellefu í kvöld. 27.9.2022 00:45
„Þetta var svakalegt“ Ljóst er að mikið tjón varð á húsum og búnaði á Oddeyrinni á Akureyri í miklu sjávarflóði sem þar varð í gær. Rekstaraðilar á svæðinu eru þó ekki af baki dottnir, þrátt fyrir tímabundið bakslag. 26.9.2022 22:31
Hvetur almenning að líta upp Júpíter, stærsta reikistjarna sólkerfisins, hefur ekki verið nær jörðinni í tæp sextíu ár. Hann er ægibjartur og verður áberandi á næturhimninum næstu daga. Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og vísindamiðlari, hvetur almenning til að líta upp. 26.9.2022 22:06
Segir hund nágrannans hafa ráðist á litla stelpu: „Maður bara fékk sjokk“ Íbúi á Akureyri segist ráðalaus vegna hunds sem börnum stafi ógn af. Hundurinn hafi glefsað í litla stelpu fyrr í dag, og kallað hafi verið á lögreglu. Hún segir hundinn sitja bundinn úti í garði heilu og hálfu dagana og gelta stanslaust. Íbúinn vill hundinn burt. 26.9.2022 21:11
Ef við hefðum ekki átt nál værum við öll nakin út í móa „Margt verður til í kvenna höndum“ er yfirskrift á sýningu, sem konur í Kvenfélaginu Einingu í Hvolhreppi eru með í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Saumnálin spilar þar stærsta hlutverkið. 26.9.2022 20:05
„Ég var skelfingu lostinn“ Bandarískur ferðamaður sem setið hefur fastur á Möðrudalsöræfum í tæpan sólarhring varð skelfingu lostinn þegar rúður í bílnum hans sprungu í óveðrinu í gær. Hann segist heppinn að hafa ekki stórslasast í látunum. Rúmlega sjötíu ferðamenn leituðu skjóls hjá Ferðaþjónustunni Fjalladýrð í Möðrudal eftir að þeir urðu strand vegna veðurs. 26.9.2022 19:35
Tilkynnt um torkennilegan hlut við Sæbraut Lögreglu barst í dag milli klukkan fimm og sex tilkynning um torkennilegan hlut við Olís við Sæbraut. Sprengjusveit ríkislögreglustjóra var send á svæðið. 26.9.2022 19:05
„Þetta voru losaraleg tímamörk“ Almenningur þarf enn að bíða eftir Íslandsbankaskýrslunni. Nú er gert ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber í október en í upphafi var stefnt að því að skýrslan fengi að líta dagsins ljós í júní. Yfirferð Ríkisendurskoðunar hefur tekið töluvert meiri tíma en áætlað var í upphafii en íkisendurskoðandi segir að töfin eigi sér málefnalegar skýringar. 26.9.2022 18:51
Brjálað að gera á Höfn Hornfirðingar fengu heldur betur að finna fyrir lægðinni sem gekk yfir landið í gær. Appelsínugul viðvörun var í gildi á suðausturlandi en 40 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðunum, sem gengu vel. 26.9.2022 18:07
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bandarískur ferðamaður sem hefur setið fastur á Möðrudalsöræfum í tæpan sólarhring varð skelfingu lostinn þegar rúður í bílnum hans sprungu í gær vegna veðurs. Hann segist heppinn að hafa ekki stórslasast í látunum. 26.9.2022 17:58
Ráðuneytið blæs frekari umræðu um hjólhýsin út af borðinu Innviðaráðuneytið telur ekki tilefni til að fjalla aftur formlega um ákvörðun Bláskógabyggðar að krefja eigendur hjólhýsa og tengdra mannvirkja um að fjarlæga þau af hjólhýsabyggð við Laugarvatn. Þetta kemur fram í bréfi ráðuneytisins eftir kvörtun sem barst í lok ágúst. 26.9.2022 16:01
Stefna á að veita upplýsingar á blaðamannafundi á miðvikudag Ríkislögreglustjóri stefnir á að halda blaðamannnafund á miðvikudaginn vegna sakamáls þar sem tveir karlmenn á þrítugsaldri eru grunaðir um að hafa ætlað að skipuleggja hryðjuverk. Lögregla horfir frekar til upplýsingafunda til að veita fjölmiðlum upplýsingar heldur en að svara fyrirspurnum fjölmiðla daglega. 26.9.2022 14:23
Bíða enn af sér vonskuveður á Austurlandi Lítið sem ekkert ferðaveður er á Austurlandi og ekki gert ráð fyrir að um hægist fyrr en líður á daginn. Lokanir vega frá í gær standa enn frá Fáskrúðsfirði til suðurs að Skaftafelli, á Fagradal og Fjarðarheiði. Lítið sem ekkert ferðaveður er um Möðrudalsöræfi. 26.9.2022 13:11
Aflýsa óvissustigi vegna óveðursins á Norðurlandi Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjóra á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna veðurs sem gekk yfir umdæmin um helgina. 26.9.2022 13:11
Aflýsa óvissustigi vegna skjálftavirkni úti fyrir Norðurlandi Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra hefur aflýst óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. 26.9.2022 12:55
Röð óheppilegra atvika leiddi til rafmagnsleysis á hálfu landinu Gríðarlegt eignatjón varð í fyrstu haustlægð þessa árs sérstaklega austanlands þar sem veðrið var verst. Tré rifnuðu upp með rótum, rúður sprungu og heilu þökin fuku af. Þá varð rafmagnslaust á hálfu landinu eftir röð óheppilegra atvika. 26.9.2022 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ofsaveður og rafmagnsleysi, bólusetningar, hjúkrunarheimili og snörp hægrisveifla á Ítalíu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 26.9.2022 11:45
Búast við þrjú til fjögur þúsund manns í Laugardalshöll á dag Bólusetningarátak í Laugardalshöll hefst á morgun þar sem einstaklingum sextíu ára og eldri verður boðið fjórða skammt bóluefnis gegn Covid og inflúensubólusetningu samhliða því. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á von á allt að þrjú til fjögur þúsund manns á dag í höllina en sambærilegt átak er að fara af stað víðar á landinu. 26.9.2022 11:31
Bíða eftir nýjum bílum fyrir strandaglópana Rúmlega sjötíu ferðamenn sem fengu skjól hjá Ferðaþjónustunni Fjalladýrð í Möðrudal bíða þess nú að fá nýja bíla senda frá bílaleigum sínum. Vertinn í Fjalladýrð segir fjöldann allan af bílum á svæðinu með ekki einni heilli rúðu. 26.9.2022 10:21
Segir lítið gert í „áratugalangri plágu“ Varaformaður umhverfis og skipulagsráðs borgarinnar telur fólk veigra sér við að kaupa rafmagnshjól af ótta við að þeim verði stolið. Lögregla verði að taka málin fastari tökum - þó það væri ekki nema til að leggja baráttunni við loftslagsvandann lið. 26.9.2022 10:21