Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eins umhverfisvænn bílabruni og hægt er Jens Heiðar Ragnarsson, slökkviliðsstjóri Akraness og Hvalfjarðarsveitar, segir bílabrunann sem varð á gámasvæði Terra rétt fyrir utan Akranes í dag vera eins umhverfisvænan og hægt er. Stillt veður hefur komið í veg fyrir að reykur leggist yfir bæinn. 27.10.2022 18:43
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Svartur reykur hefur legið yfir Akranesi og nærliggjandi svæði eftir að mikill eldur kom upp í um eitt hundrað bílhræjum við bæjarmörkin í dag. Framkvæmdastjóri Málma endurvinnslu segir eldinn hafa breiðst hratt út og að stoltið sé sært vegna atviksins. Við verðum í beinni þaðan í kvöldfréttum og ræðum við slökkvilið um stöðu mála. 27.10.2022 18:01
Lækka hámarkshraða í Múlunum og Háaleitisbraut Hámarkshraði verður lækkaður í Múlunum og Háaleitisbraut samkvæmt tillögu sem var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í gær. Lækkunin er sögð í samræmi við hámarkshraðaáætlun borgarinnar sem á að bæta umferðaröryggi og koma í veg fyrir alvarleg slys á fólki. 27.10.2022 16:31
Vildu banna forsetanum að ræða við stjórn og starfsfólk Ferðafélagsins Tillaga sem stjórn Ferðafélagsins lagði fram við Önnu Dóru Sæþórsdóttur, þáverandi forseta þess, gerði ráð fyrir að hún ætti hvorki að vera í samskiptum við framkvæmdastjóra, stjórn né starfsfólks á skrifstofu félagsins. Hún segist hafa litið á tillöguna sem „þöggunarsamning“. 27.10.2022 15:59
Svandís fari með fleipur um erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur, sérfræðingur um laxfiska, segir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra hreinlega fara með rangt mál þegar hún heldur því fram að ekki liggi fyrir staðfest erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa. 27.10.2022 15:48
Hilmar þriðji varaforseti ASÍ Hilmar Harðarson hefur verið kosinn þriðji varaforseti Alþýðusambands Íslands. Hann var kjörinn með öllum greiddum atkvæðum á fundi miðstjórnar ASÍ í gær, þann 26. október. 27.10.2022 15:23
Undrandi á hugmyndum um að hætta að flagga á Sigló „Ég var nú mest hissa og undrandi á þessu,“ segir Siglfirðingurinn Kristján L. Möller um hugmyndir bæjarráðs Fjallabyggðar um að hætt verði að flagga íslenska fánanum í hálfa stöng við ráðhúsið við andlát og útför íbúa sveitarfélagsins. 27.10.2022 15:02
Fönguðu lifandi leðurblöku Leðurblaka, svokölluð trítilblaka, fannst um borð í skipi á veiðum djúpt suðaustur af Íslandi í síðustu viku. Skipverjar fönguðu hana lifandi og komu til Náttúrustofu Austurlands. 27.10.2022 14:53
Stál í stál: Fáir að biðja um að allir borgi segir Bjarni um lífeyrissjóðina Það kemur ekki til greina að lífeyrissjóðirnir slái af kröfum sínum á ÍL-sjóð, segir framkvæmdastjóri Landsambands lífeyrissjóða. Á sama tíma segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lífeyrissjóðina ekki munu komast upp með það að stilla ríkissjóði upp við vegg. 27.10.2022 14:37
Fjöldi kvenna muni yfirgefa F.Í. ef vantrauststillaga verður felld Kristín I. Pálsdóttir, félagi í Ferðafélagi Íslands, mun á félagsfundi í kvöld leggja fram vantrauststillögu á hendur stjórn félagsins. Hún segir stjórnina ekki hafa skilning á ofbeldis-og áreitnismálum. Hún mun sjálf segja sig úr félaginu ef tillagan verður felld og telur mjög líklegt að fleiri konur muni fylgja með því konur vilji almennt ekki dvelja á stöðum þar sem ekki er hugað að öryggi þeirra. 27.10.2022 14:37
Gríðarlegur reykur eftir að kviknaði í hundrað bílhræjum Gríðarlega mikill reykur streymir til himins vestur af Akrafjalli eftir að kviknaði í hrúgu af bílhræum á gámasvæði Terra rétt fyrir utan Akranes. 27.10.2022 14:36
Ekki hægt að ræða fundinn vegna almannahagsmuna Dómsmálaráðherra segir almannahagsmuni koma í veg fyrir að hann geti upplýst um efni fundarins sem aðstoðarmaður hans sat um Samherjamálið með namibískri sendinefnd. Hann hafnar gagnrýni yfirmanns vinnuhóps OECD gegn mútum um að staða rannsóknarinnar sé nánast vandræðaleg fyrir Ísland. 27.10.2022 13:30
Sýknuð af lyfjaakstri vegna ávísunar fra lækni Kona hefur verið sýknuð af því að aka undir áhrifjum slævandi lyfja. Konan var sýknuð á þeim grundvelli að læknir hafði ávísað lyfinu, hún hafi byggt upp þol gagnvart því og að ósannað væri að konan hafi verið undir áhrifum umræddra lyfja við aksturinn. 27.10.2022 13:12
Alvarlegt að jaðarsetja trú og skilning á henni hjá börnum Kristrún Heimisdóttur, fyrsti varaforseti kirkjuþings þjóðkirkjunnar segir nauðsynlegt að börn læri að skilja menningu Íslands og þar á meðal trúna. Skilgreina þurfi einnig hvað flokkist sem trúfélag. Kristrún vakti athygli á máli sínu á nýliðnu kirkjuþingi. 27.10.2022 12:38
Bjarni segir allt forystufólk bera ábyrgð á stöðu Sjálfstæðisflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson útilokar ekki að hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund flokksins í næstu viku enda væri flokkurinn í alvarlegri stöðu fylgislega séð. Bjarni Benediktsson segir fylgi flokksins á ábyrgð allra frambjóðenda sem hver um sig þurfi að horfa á útkomuna í sínu kjördæmi. 27.10.2022 12:25
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um mögulegan formannsslag í Sjálfstæðisflokknum, tannréttingar barna, málefni Ferðafélags Íslands og vendingar á Alþingi frá því í morgun. 27.10.2022 11:31
Ráðin framkvæmdastjóri Loftslagsráðs Þórunn Wolfram Pétursdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Loftslagsráðs. Hún er starfandi sviðsstjóri hjá Landgræðslunni og hefur verið staðgengill landgræðslustjóra. Þórunn mun hefja störf hjá Loftslagsráði í byrjun næsta árs. 27.10.2022 11:21
Guðlaugur Þór spyrji sig hvernig hafi gengið að afla fylgis Það er sameiginlegt verkefni allra sjálfstæðismanna að hífa fylgið flokksins upp aftur, ekki bara formannsins, að mati Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann ráðleggur Guðlaugi Þór Þórðarsyni að líta í eigin barm og spyrja sig hvernig honum hafi gengið að afla flokknum fylgis í borginni. 27.10.2022 11:13
Bein útsending: Sérstök umræða um Samherjamálið Sérstök umræða um rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands fer fram á Alþingi klukkan ellefu í dag. Horfa má á umræðuna í beinni útsendingu hér að neðan. 27.10.2022 10:30
Öll óvissa með ráðherrastól skapi ekki gott andrúmsloft Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir enn óákveðið hvort hann bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann ætli að greina Bjarna Benediktsson formanni fyrst frá framboði verði það lendingin. 27.10.2022 10:26
Fundaði með fjölmennum hópi úr baklandinu í Grafarvogi Fjölmennt var á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með stuðningsmönnum sínum í Grafarvogi í gærkvöldi samkvæmt heimildum fréttastofu. Hugur var í fólki. Fundi lauk þó án þess að Guðlaugur Þór ákveddi hvort hann ætlaði fram til formanns á landsfundi Sjálfstæðisflokksins aðra helgi. 27.10.2022 09:18
Fjórða kæran í ferli vegna meintra kynferðisafbrota sama einstaklings Enn ein konan hefur stigið fram vegna karlmanns sem hefur þegar verið kærður í þrígang fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum. Málin þrjú eru fyrnd en ekki mál konunnar sem nú stígur fram. 27.10.2022 09:01
Vill svör um samskipti Katrínar við Björk og Gretu Thunberg Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar vill fá svör frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um samskipti hennar, Bjarkar Guðmundsdóttir og sænska loftslagsaðgerðasinnans Gretu Thunberg. 27.10.2022 08:58
„Það væri náttúrulega bara stórslys“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það yrði menningarlegt stórslys ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur veröldina alla ef íslensk tunga dæi út og enska væri tekin upp hér á landi. Katrín ræddi málefni íslenskunnar í Íslandi í dag, sem sjá má hér að ofan. Í innslaginu er að sönnu farið um víðan völl – líkt og fyrirsögnin ber með sér. 27.10.2022 08:56
Greiðsluþátttaka vegna tannréttinga ekki aukist í 20 ár Umboðsmaður barna segir að til sín hafi leitað foreldrar sem hafa neyðst til þess að neita börnum sínum um tannréttingar, vegna fjárhags fjölskyldunnar. Raunkostnaður við tannréttingar sé 900 til 1.500 þúsund krónur en niðurgreiðsla sjúkratrygginga aðeins 150 þúsund. 27.10.2022 07:21
„Afglöpum“ Eflingarstarfsmanna um að kenna að mál Ólafar Helgu tapaðist Fyrrverandi stjórnandi og starfsmaður Eflingar gerðu afglöp þegar þeir létu ekki endurnýja trúnaðarmannskosningu Ólafar Helgu Adolfsdóttur hjá Icelandair, að mati Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Félagsdómur dæmdi Icelandair í vil þar sem hann taldi að Ólöf Helga hefði ekki lengur notið verndar sem trúnaðarmaður. 27.10.2022 07:00
Bjarni segir engin átök hafa verið á milli hans og Guðlaugs Þórs „Við höfum ekki rætt þessi mál. Það hafa ekki verið nein átök á milli okkar, bara ágætis samstarf verð ég að segja. Að því leytinu til kæmi mér á óvart ef þetta endaði með einhverjum átökum um forystuna í flokknum,“ segir Bjarni Benediktsson um mögulegt formannsframboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. 27.10.2022 06:50
Akureyringar fundu vel fyrir skjálfta af stærðinni 4 í nótt Klukkan 02.13 í nótt mældist skjálfti af stærðinni 4 um það bil 30 kílómetra austsuðaustur af Grímsey. Skjálftinn fannst vel á Akureyri, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu. 27.10.2022 06:35
Sinnti ekki stöðvunarmerkjum og ók á lögreglubifreið Lögregla á höfuðborgarsvæðinu fór eftirför á eftir bifreið í nótt þegar ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum. Í stuttum eltingaleik var meðal annars ekið á lögreglubifreið, segir í tilkynningu. 27.10.2022 06:19
Saknar leikskólans og foreldrarnir vita ekki hvernig þeir tækla næstu viku Mæður leikskólabarna sem ekki hafa komist á leikskólann síðustu daga vegna manneklu og mygluvanda segja Reykjavíkurborg treysta á að foreldrar hafi gott bakland. Foreldrar verði fyrir tekjutapi og segjast ekki hafa hugmynd um hvernig þær ætli að tækla næstu viku. 26.10.2022 22:33
Óþrifnaður við gosstöðvarnar Mörg hundruð manns leggja leið sína að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli á hverjum degi þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá goslokum. Klósettskortur á svæðinu hefur verið til vandræða þar sem þreyttir göngugarpar hafa gert þarfir sínar úti í náttúrunni og skilið ummerkin eftir. 26.10.2022 21:02
Vill ekki leyfa sveitarfélögum að rukka ökumenn á nagladekkjum Samgönguráðherra segir ekki standa til að veita sveitarfélögum heimild til að hefja gjaldtöku á þá sem nota nagladekk líkt og Umhverfisstofnun vill. Skiptar skoðanir eru á hugmyndum um gjaldtöku og segir ráðherra að gæta þurfi hófs í viðbrögðum. 26.10.2022 20:00
Kristrún og Bjarni saka hvort annað um fáfræði um efnahagsmál Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. 26.10.2022 19:20
„Það á ekki að fara að gera neitt“ Óvissa ríkir um hvort ríkið muni taka Kumbaravog til leigu fyrir á sjötta tug hælisleitenda. Bæjarráð Árborgar fékk tilkynningu um að búið væri að ákveða það og bókaði í framhaldinu að það hefði verið gert án samráðs við sig. Rekstaraðili er tvísaga um hvað sé að gerast á Kumbaravogi. 26.10.2022 19:01
Sagðist vera klæddur sprengjuvesti við Keflavíkurflugvöll Aðgerðaáætlun lögreglu og Keflavíkurflugvallar var virkjuð síðdegis í dag vegna sprengjuhótunar sem birtist á Twitter. Hótunin reyndist tilhæfulaus. 26.10.2022 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. 26.10.2022 18:01
Kraumar undir niðri í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins Orðrómur um hugsanlegt framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi er enn ein vísbending um að Guðlaugur Þór og formaðurinn Bjarni Benediktsson gangi ekki í takt. Og að innan flokks skipist menn í sveitir. Líklega er um að ræða eitt verst geymda leyndarmál í íslenskum stjórnmálum. 26.10.2022 15:35
Mótmælt í Hörpu: Sólveig Anna sögð grafa undan erlendum konum á vinnumarkaði Hópur erlendra kvenna mótmælti veru Sólveigar Önnu Jónsdóttur á jafnréttisþingi í morgun og gekk út undir ræðu hennar. Þær segja hana seka um að grafa undan þátttöku erlendra kvenna á vinnumarkaði og gefa henni rauða spjalið. 26.10.2022 14:24
Hætt verði að flagga í hálfa við ráðhúsið við andlát og útför íbúa Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt tillögur um að hætt verði að flagga íslenska fánanum við ráðhús sveitarfélagsins við andlát og útför íbúa sveitarfélagsins. 26.10.2022 14:10
Hreyfihömluð börn komist oft ekki í bekkjarafmæli Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra, fær reglulega ábendingar um að fötluð börn verði út undan þegar barnaafmæli eru haldin á stöðum þar sem aðgengismál eru í ólestri. Þau fái boð en komist ekki líkt og hin börnin. Framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar segir að í dag sé engin afsökun fyrir lélegu aðgengi. 26.10.2022 13:35
Í eina sæng fyrir kjaraviðræður við SA Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Starfsgreinasambandið munu taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í viðræðum um nýjan kjarasamning. 26.10.2022 13:34
Katrín telur hatursorðræðu hafa aukist og von á þingsályktunartillögu Forsætisráðherra telur að hatursorðræða hafi aukist í samfélaginu og von er á þingsályktunartillögu með aðgerðum gegn henni eftir áramót. Hún segir málið þó snúið og að greina þurfi á milli hvassrar gagnrýni og hatursorðræðu. 26.10.2022 13:00
Vantrauststillaga lögð fram gegn stjórn FÍ á morgun Kristín I. Pálsdóttir, félagi í Ferðafélagi Íslands til margra ára, hyggst leggja fram vantrauststillögu á hendur stjórnar félagsins á félagsfundi á morgun, í kjölfar fundar með stjórninni í gær. Hún var boðuð á fundinn eftir að hafa sent stjórninni fyrirspurn um áreitni- og ofbeldismál innan félagsins. 26.10.2022 12:59
Verða að láta duga að horfa á upptökuna hjá lögreglu Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að lögregla þurfi ekki að afhenda manni, sem ákærður er fyrir líkamsárás, og lögmanni hans upptöku úr öryggismyndavél. Þeim stendur hins vegar til boða að skoða upptökurnar hjá lögreglu. 26.10.2022 12:32
Firra að „nagladekkjalöggur“ ætli að skattleggja sjálfsögð öryggistæki Bæjarstjóri Ölfuss segir hugmyndir um að sveitarfélög fái heimild til að leggja gjald á notendur nagladekkja fráleitar. Hann segir nagladekk öryggisatriði og því sé firra að leggja öryggisskatt á íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Hann hefur enga trú á því að hugmyndirnar verði að veruleika. 26.10.2022 11:57