Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur kviknaði í bíl á Hringbraut Eldur kviknaði í Toyotu-bifreið á Hringbraut rétt eftir hálf sex síðdegis í dag. Steinþór Darri, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn. 1.11.2022 17:56
Fullyrðingar um mansal og stórfelldan launaþjófnað rökleysa Forsvarsmenn veitingastaðanna Flame og Bambus segja kolrangt að starfsfólk veitingastaðanna hafi unnið í tíu til sextán tíma, sex daga vikunnar. Ljóst sé að fullyrðingar um mansal og stórfelldan launaþjófnað eigi ekki við rök að styðjast. Undirbúningur að stefnu á hendur Matvís, félagi iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, er hafinn. 1.11.2022 17:47
„Alræðisöfl virðast vera að eflast“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum á þingi Norðurlandaráðs í dag. Umræðuefnið var framtíð norræns samstarfs og hlutverk Norðurlanda í umheiminum. Þingið sem er hið 74. í röðinni stendur fram á fimmtudag. 1.11.2022 17:14
Omega braut fjölmiðlalög Fjölmiðlanefnd hefur sektað fjölmiðilinn Kristniboðskirkjan Omega um 350 þúsund krónur. Frá seinni hluta júlí til byrjun ágúst á þessu ári miðlaði fjölmiðillinn erlendur efni án íslensks texta eða tals. 1.11.2022 16:45
Bjarni lagði áherslu á áhrifin en Guðlaugur Þór sagði tóninn slæman Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að undir hans stjórn hafi flokkurinn haft mikil áhrif á íslenskt samfélag með samfelldri ríkisstjórnarsetu undanfarin ár. Guðlaugur Þór Þórðarson, mótframbjóðandi Bjarna í formannsembættið, vísaði hins vegar í að undir stjórn Bjarna væri ekkert í kortunum sem gæfi til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn gæti náð fyrri styrk. 1.11.2022 15:50
Segja orðræðu gagnvart starfsfólki óvægna Matvælastofnun (MAST) segir orðræðu í garð starfsfólks stofnunarinnar hafa verið óvægna og því þurfi að grípa til andsvara. Stofnunin telur sig ekki seka um aðgerðaleysi. 1.11.2022 15:32
Sammælast um að efla þurfi grasrót Sjálfstæðisflokksins Mikil spenna er fyrir landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fer fram um helgina. Þrjú berjast um embætti ritara en öll segja þau að auka þurfi tengingu flokksmanna við forystuna og styrkja flokkinn innanfrá til að auka fylgi hans. 1.11.2022 14:03
Læknafélagið telur fækkun millistjórnenda jákvæða þróun Formaður Læknafélags Íslands telur að boðaðar skipulagsbreytingar á Landspítalanum séu jákvæðar og muni koma til með að færa völd og ákvarðanatöku nær þeim sem vinna á gólfinu og í návígi við sjúklinga. Í nýju skipuriti eru meðal annars tíu stöðugildi forstöðumanna lögð niður. 1.11.2022 13:19
Segir millitekjufólk í vandræðum Formaður Starfsgreinasambandsins segir kröfugerð Eflingar raunhæfa og vel unna. Nauðsynlegt væri að ná fram krónutöluhækkun enda hafi framfærslukostnaður launafólks hækkað svo gríðarlega að nú væri millitekjufólk að berjast í bökkum. 1.11.2022 13:16
Engir nýir starfsmenn nema nauðsyn beri til Útkomuspá á rekstri A-hluta borgarinnar gerir ráð fyrir rúmlega fimmtán milljarða króna halla í ár. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaðan verði orðin jákvæð frá og með árinu 2024. Fyrsta fjárhagsáætlun meirihluta borgarstjórnar var kynnt í dag. 1.11.2022 13:08
Bjarni og Guðlaugur Þór tókust á í Pallborðinu Formannsslagur í Sjálfstæðisflokknum var umfjöllunarefni Pallborðsins á Vísi klukkan 14 í dag. Þar mættust Bjarni Benediktsson, sitjandi formaður, og Guðlaugur Þór Þórðarson, keppinautur Bjarna um formannsembættið, í beinni útsendingu. 1.11.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Vilhjálm Birgisson formann Starfsgreinasambandsins, frambjóðendur til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins og formann Læknafélags Íslands. Einnig verður fjallað um þingkosningarnar í Danmörku sem fram fara í dag. 1.11.2022 11:36
Letti sem kvaðst hafa snúið við blaðinu hér á landi framseldur heim Landsréttur hefur staðfest ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni lettneskra yfirvalda um framsal á lettneskum ríkisborgara sem búsettur hefur verið hér á landi í þrjú ár. Þarlend yfirvöld vilja að maðurinn afpláni fimm ára dóm fyrir að hafa verslað með átján grömm af amfetamíni. Maðurinn kvaðst hafa snúið við blaðinu hér á landi. 1.11.2022 10:37
Ekki brotið á lögreglumönnunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Nefnd um eftirlit með lögreglu brutu ekki á tveimur lögreglumönnum sem sinntu lögreglustörfum í Ásmundarsal á Þorláksmessu árið 2020. Lögreglumennirnir kvörtuðu yfir því að meðferð á upptökum úr búkmyndavélum þeirra hafi verið brot á persónuverndarlögum. 1.11.2022 08:53
„Konur“ í miklum meirihluta meðal þeirra 128 sem nú eru skráðir „kynsegin/annað“ Mun fleiri einstaklingar sem voru áður skráðir sem „konur“ í Þjóðskrá hafa látið breyta kynskráningu sinni í „kynsegin/annað“ en einstaklingar sem voru áður skráðir „karlar“. 1.11.2022 07:39
Skráðar gistinætur aldrei fleiri og framboð á gistirýmum aldrei meira Skráðar gistinætur fyrstu níu mánuði ársins voru 7.144.438 og er þetta í fyrsta sinn sem fjöldinn fer yfir sjö milljónir. Framboð af gistirýmum hefur aldrei verið meira en í september síðastliðnum, eða 11.677 herbergi en þörf er á enn fleirum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. 1.11.2022 06:37
Dalamanni ársins sagt upp fyrir að tala of mikið Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld, sem útnefnd var Dalamaður ársins 2022, var í gær sagt upp störfum í Krambúðinni í Búðardal. Formleg ástæða uppsagnarinnar var skipulagsbreyting en verslunarstjórinn sagði Rebeccu einfaldlega tala of mikið við viðskiptavini. 1.11.2022 06:00
„Bolsonaro var hræðilegur á alla vegu“ Brasilíumaður búsettur á Íslandi segir stærsta verkefni nýkjörins forseta að draga úr fátækt, sem hafi aukist á valdatíð Jairs Bolsonaro. Valdatíð fráfarandi forseta hafi verið stórslys á öllum sviðum. 31.10.2022 23:02
„Þetta vatt heldur betur upp á sig“ Hauskúpur og skrýtið munstur á auglýsingaskiltum í höfuðborginni vöktu mikla athygli borgarbúa í morgun. Útlit var fyrir að tölvuþrjótar hefðu átt sök að máli en í ljós kom að um auglýsingaherferð TM var að ræða. 31.10.2022 22:21
Kosið um miklu meira en bara formann Sjálfstæðisflokksins Stjórnarþingmenn telja ólíklegt að hægt verði að halda stjórnarsamstarfinu áfram verði Guðlaugur Þór kjörinn nýr formaður Sjálfstæðisflokksins næstu helgi. Stjórnmálaskýrandi segir formannsslaginn hreinlega snúast um hvort blása eigi til þingkosninga í ár. 31.10.2022 21:40
„Ekkert annað en eðlilegt og réttlátt“ Efling krefst 167 þúsund króna krónutöluhækkunar allra launa á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í kröfugerð sem félagið hefur afhent Samtökum atvinnulífsins. Þá krefst félagið þrjátíu daga orlofs fyrir alla félagsmenn auk þess sem ræða þurfi af fullri alvöru um styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum. Formaður Eflingar telur kröfur þess sanngjarnar og raunsæjar. 31.10.2022 21:16
Veðmangarar telja Bjarna í betri stöðu Veðbankar eru farnir að taka við veðmálum um niðurstöðu formannskjörs á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Allavega einn þeirra spáir Bjarna Benediktssyni sigri gegn Guðlaugi Þór Þórðarsyni. 31.10.2022 21:10
Meira þurfi svo að náttúruvársérfræðingar fari í viðbragðsstöðu Náttúruvársérfræðingur segir að meira þurfi til að koma svo að sérfræðingar í jarðhræringum fari í viðbragðsstöðum. Skjálftavirkni í Bárðarbungu sé eðlileg enda hafi stærri skjálftar mælst reglulega í öskjunni síðustu ár. 31.10.2022 20:19
„Ég óttast nákvæmlega ekki neitt“ Guðlaugur Þór Þórðarson segist ekki óttast um ráðherrastól sinn tapi hann formannskjöri gegn Bjarna Benediktssyni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina. Bjarni segir að spyrja þurfi að því að leikslokum og að hann trúi því að kosningabaráttan verði drengileg. 31.10.2022 19:57
Tæplega tvö hundruð látist af völdum Covid-19 hér á landi það sem af er ári Hundrað og áttatíu hafa látist af völdum Covid-19 hér á landi það sem af er ári og hafa dauðsföll af völdum sjúkdómsins aldrei verið fleiri. Sóttvarnalæknir segir að sjúkdómurinn valdi mun meiri usla en aðrir smitsjúkdóma á borð við inflúensu. 31.10.2022 19:44
Stjórnendum fækkað á Landspítalanum Tíu stöðugildi forstöðumanna falla niður samkvæmt nýju skipuriti á Landspítalanum. Markmið skipulagsbreytinganna er að styrkja klíníska starfsemi og að hagræða í rekstri. 31.10.2022 18:04
Guðlaugur segist ekki hafa hótað Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson orkumálaráðherra segir allsendis ósatt að hann hafi verið reiðubúinn að falla frá áformum sínum um formannsframboð gegn því að Bjarni myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra. 31.10.2022 17:19
Leynd yfir sætaskiptingu á landsfundi í Laugardalshöll Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um helgina í Laugardalshöll. Mikil spenna er meðal meðlima flokksins enda fer formannskjör fram á sunnudeginum. Þá kemur í ljós hvort Bjarni Benediktsson fái að halda áfram að leiða flokkinn eða hvort Guðlaugur Þór Þórðarson steypi formanni til þrettán ára af stóli. 31.10.2022 15:45
Stór skjálfti í Bárðarbungu Stór skjálfti varð í Bárðarbungu rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. 31.10.2022 15:34
Sér eftir að hafa klínt sniglinum á Spán Erling Ólafsson skordýrafræðingur segist ósáttur með sjálfan sig fyrir að hafa tengt Spán við tegund snigla sem eru Spáni óviðkomandi. Spánarsnigilinn skal nú kalla vargsnigil. 31.10.2022 13:42
Gulli plús Kata talið ganga illa upp Framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins teflir ríkisstjórnarsamstarfinu í tvísýnu að mati stjórnarþingmanna. Þeir óttast margir að líftími ríkisstjórnarinnar verði talinn í vikum nái Guðlaugur Þór kjöri. 31.10.2022 13:36
Efling krefst 167 þúsund króna hækkunar allra launa á þremur árum Efling hefur afhent Samtökum atvinnulífsins kröfugerð fyrir komandi kjarasamningsviðræður sem hljóðar meðal annars upp á 167 þúsund króna hækkun allra mánaðarlauna á þriggja ára samningstíma. 31.10.2022 13:16
Skoða hvað gerðist ef allir sæstrengirnir til Íslands rofnuðu Áhættumat hefur verið unnið vegna mögulegs tjóns á sæstrengjunum sem liggja frá Íslandi. Að sögn Guðmundar Arnars Sigmundssonar, sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofu og forstöðumanns netöryggissveitar CERT-IS, er fjarskiptasamband Íslands við umheimin ekki í hættu eins og er. 31.10.2022 12:46
Íslandsbankaskýrslunni enn og aftur frestað Afhendingu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka hefur verið frestað á ný. Til stóð að afhenda skýrsluna fyrir helgi en ekkert verður úr því. 31.10.2022 12:40
Bolsonaro sé eins og kórdrengur við hlið Lula Miklar vendingar urðu í brasilískum stjórnmálum í gær þegar Jair Bolsonaro, forseti til fjögurra ára, tapaði í forsetakosningum. Mikil fagnaðarlæti brutust út á götum úti þegar tap Bolsonaro var orðið ljóst. 31.10.2022 12:33
Enginn hrekkjavökuhakkari á ferð Tölvuþrjótar bera ekki ábyrgð á óskýrum skilaboðum á auglýsingaskiltum borgarinnar. Einungis er um að ræða auglýsingaherferð sem verður útskýrð betur seinna í dag. 31.10.2022 12:19
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um yfirvofandi formannsslag í Sjálfstæðisflokknum, úrslit kosninga í Brasilíu og ástandið í Úkraínu. 31.10.2022 11:29
Sakaður um tryggingasvik en hafði betur og fær bætur Ökumaður sem tryggingafélagið Vörður sakaði um tryggingasvindl, án árangurs, á rétt á greiðslu bóta úr slysatryggingu sem maðurinn var með hjá félaginu. Ökumaðurinn hafði betur gegn tryggingafélaginu í Landsrétti og í héraðsdómi. 31.10.2022 11:16
„Það angrar mig að verið sé að taka stöðuna á valdafólki í flokknum“ „Það angrar mig að verið sé að taka stöðuna á valdafólki í flokknum,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Ég er búin að fara á landsfund síðan ég var unglingur. Ég var að fara þangað til að gefa kjörnum fulltrúum línuna, ekki fá línur frá þeim.“ 31.10.2022 10:59
Framboð Guðlaugs krókur á móti bragði Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, telur að hægt sé að tengja framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar við orðróm um að ráðherrastóll hans væri í hættu. Hann segir að erfitt sé að spá fyrir um úrslit kosninganna. 31.10.2022 10:42
Munaði einungis tveimur atkvæðum Kristrún Frostadóttir hlaut 94,59 prósent atkvæða er hún var kjörin formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um helgina. Jón Grétar Þórsson hlaut 139 atkvæði í kosningu til gjaldkera flokksins en Stein Olav Romslo 137 atkvæði. 31.10.2022 09:11
„Þetta var algjör hörmung“ Samgönguverkfræðingur segir ekkert því til fyrirstöðu að á höfuðborgarsvæðinu verði til almenningssamgöngur á pari við þær sem finna má í borgum á borð við Lundúnir og Kaupmannahöfn - en halda þurfi rétt á spöðunum. Fréttastofa tók snúning á samgöngumálunum og ræddi við ferðamenn, sem sögðu farir sínar ekki sléttar af Strætó. 31.10.2022 09:00
Jóhannes Tómasson er látinn Jóhannes Tómasson, blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi, er látinn, sjötugur að aldri. Hann starfaði lengi sem blaðamaður á Morgunblaðinu en tók árið 2006 við starfi upplýsingafulltrúa samgönguráðuneytisins, síðar innanríkisráðuneytisins, og starfaði þar í tólf ár með níu ráðherrum. 31.10.2022 07:32
Veiðibann hefur áhrif á jólamatinn Humarveiðibann kemur til með að hafa áhrif á jólamatinn hjá fjölda landsmanna þetta árið sem þarf að sætta sig við innfluttan humar. Kílóið kostar allt að þrjátíu þúsund krónur. 31.10.2022 07:01
Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokks styðja Bjarna Að minnsta kosti níu af fimmtán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins styðja Bjarna Benediktsson í formannsslagnum sem framundan er í aðdraganda landsfundar flokksins um næstu helgi. 31.10.2022 06:36