Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kláfur sé fyrst og fremst aðgengismál Borgarráð hefur samþykkt að skoða að setja upp Kláf í Esjuhlíðum. Formaður borgarráðs segir málið fyrst og fremst aðgengismál en að í hugmyndinni felist einnig tækifæri fyrir ferðaþjónustuna. 1.12.2022 21:01
Sólborg valin framúrskarandi ungur Íslendingur Sólborg Guðbrandsdóttir hlaut í gær titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2022. Sólborg Guðbrandsdóttir er brautryðjandi í baráttu mannréttinda og réttinda kvenna. Hún hefur barist gegn skaðlegu feðraveldi og nauðgunarmenningu og hvatt ungt fólk til að breyta rétt og veitt þeim innblástur. 1.12.2022 20:56
Staðan í kjaraviðræðum viðkvæm Ríkissáttasemjari ákvað í dag að fresta fundi aðila vinnumarkaðarins til morguns, í stað þess að halda áfram fundarhöldum í Karphúsinu. Að sögn ríkissáttasemjara fer betur á því á þessu stigi að samningsaðilar ræði hver við sitt bakland. Viðræðurnar séu á viðkvæmu stigi. 1.12.2022 20:05
Aðstoðuðu ferðamann í Landmannalaugum Flugbjörgunarsveitin á Hellu aðstoðaði erlendan ferðamann í morgun sem staddur var í Landmannalaugum og hafði fest bíl sinn í á. 1.12.2022 18:38
92 hagræðingar- og umbótatillögur samþykktar í borgarráði Borgarráð samþykkti í dag 92 tillögur meirihlutaflokka Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar um hagræðingu í rekstri borgarinnar á næsta ári upp á vel á annan milljarð króna. Meðal annars er lagt til að leggja niður dagsetrið Vin, hætta styrkjum til áfangaheimila og stöðva rekstur Seljahlíðar. 1.12.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kostnaður almennings vegna samningsleysis á milli sérgreinalækna og sjúkratrygginga hefur numið fimm milljörðum króna á þessu ári að mati Öryrkjabandalagsins. Dæmi eru um að öryrkjar hafi þurft að greiða fimmtíu þúsund krónur á einum mánuði bara í komugjöld og annan aukakostnað. Þetta og margt annað í kvöldfréttum Stöðvar 2. 1.12.2022 17:38
Skoða að setja kláf í Esjuhlíðar Borgarráð hefur samþykkt að skoða það að setja upp farþegaferju í Esjuhlíðum. Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna varar við því að framkvæmdin eigi eftir að hafa varanleg sjónræn áhrif á ásýnd Esjunnar. 1.12.2022 16:34
Vinnumenn senda konur í karlaklefa Vesturbæjarlaugar Á morgun munu kvenkyns sundlaugargestir nota karlaklefann í Vesturbæjarlaug í Reykjavík en karlar nota kvennaklefann. Viðgerðir á loftræstikerfi kvennaklefans fara fram á morgun. 1.12.2022 15:10
Í gæsluvarðhald grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður sem réðst að fyrrverandi eiginkonu sinni með öxi fyrir framan Dalskóla í Úlfarsárdal í gær hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. 1.12.2022 14:51
Sigríður segir Boeing 757 vera uppáhaldsflugvélina Sigríður Einarsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna störfum atvinnuflugmanns. Þegar hún er spurð, að loknum 38 ára starfsferli sem flugmaður og flugstjóri, hver sé uppáhaldsflugvélin er svarið: Boeing 757. 1.12.2022 14:14
Byssumaðurinn í Hafnarfirði metinn ósakhæfur Karlmaður sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í júní á þessu ári er ósakhæfur. Maðurinn hafði verið ákærður fyrir tilraun til manndráps en maður var ásamt syni sínum inni í öðrum bílnum þegar árásin átti sér stað. 1.12.2022 14:13
Fordómar enn til staðar fjórum áratugum síðar Á fjórða tug hafa greinst með HIV hér á landi það sem af er ári en tæplega fjórir áratugir eru liðnir frá því að fyrsti Íslendingurinn greindist. Framkvæmdastjóri HIV-samtakanna á Íslandi segir HIV smitaða enn mismunað þrátt fyrir að margt hafi áunnist í baráttunni. Ef alþjóðasamfélagið hefði brugðist við HIV líkt og gert var með Covid væri staðan mögulega önnur. 1.12.2022 14:01
Funda hver fyrir sig í dag og hittast svo á ný á morgun Fundi Starfsgreinasambandsins, samflots iðn- og tæknimanna og Samtaka atvinnulífsins sem var á dagskrá hjá ríkissáttasemjara í dag hefur verið frestað til morguns. Ríkissáttasemjari segir í samtali við fréttastofu að hann telji tíma samningsaðila betur verið í vinnu með sínu baklandi en að þeir komi síðan aftur saman til fundar hjá sáttasemjara á morgun. 1.12.2022 13:56
Lögreglan lýsir aftur eftir Arturs Jansons Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arturs Jansons, 28 ára, frá Lettlandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Arturs er ekki talinn hættulegur. 1.12.2022 13:24
VG gerir fyrirvara við frumvarp Jóns um lögregluna Þingflokkur VG hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum og sent það til þinglegrar meðferðar. Þingflokkurinn gerði nokkra fyrirvara við frumvarpið, til dæmis hvað varðar heimildir lögreglu til að hafa eftirlit með borgurum. 1.12.2022 13:00
Samfylkingin rifti leigusamningi vegna ónothæfs eldhúss Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Fulltrúaráð Samfylkingarinnar til að greiða Sjónveri ehf. gjaldfallna leigu fyrir einn mánuð en ekki sex eins og upprunalegur leigusamningur kvað á um. 1.12.2022 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaramálin, ný spá Isavia um fjölda ferðamanna og óvenjuleg hlýindi verða á meðal þess sem fjallað verður í hádegisfréttum Bylgjunnar. 1.12.2022 11:32
Gagnrýndu ferðalög meirihlutans og óskuðu svara um kostnað Borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins voru utanlandsferðir fulltrúa meirihlutans nokkuð hugleiknar á borgarráðsfundi í síðustu viku. Í bókunum segir Flokkur fólksins að margt smátt geri eitt stórt og leggur til að fulltrúar notist við fjarfundabúnað. 1.12.2022 11:03
Ræða hvort nafnlaus tindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga jöklafræðing Örnefnanefnd mun síðar í dag taka fyrir tillögu um að nafnlaus fjallstindur í Vatnajökli verði kenndur við Helga Björnsson, helsta jöklafræðing landsins. Í tillögunni er lagt til að Helgi verði heiðraður með þessum hætti, meðal annars vegna kortlagningar hans á botni Vatnajökuls sem sé mikið vísindalegt afrek sem hafi haft „ómetanleg áhrif á þekkingu á jöklafræði á Íslandi og í heiminum.“ 1.12.2022 11:02
Hefja viðgerð á landshring Mílu í Djúpá við birtingu Ekki tókst að hefja viðgerð á ljósleiðarastreng í landshring Mílu við Holt á Mýrum á Suðausturlandi í nótt. Strengurinn er slitinn úti í Djúpá en til stendur að hefjast handa við viðgerðina þegar birtir af degi. 1.12.2022 09:41
Þekktir menn í undirheimunum viti helst hvað komið hafi fyrir Friðfinn „Það er búið að vinna úr öllum ábendingum. Velta öllum steinum. En sorglegu tíðindin eru þau að hann finnst ekki,“ segir Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir Friðfinns Freys Kristinssonar sem hvarf sporlaust þann 10. nóvember síðastliðinn. 1.12.2022 09:01
Engin hitamet þrátt fyrir hlýjasta nóvember á öldinni Nóvembermánuður var sá hlýjasti í Reykjavík og Akureyri á þessari öld. Á hvorugum staðnum var þó slegið met yfir hlýjasta nóvember frá upphafi mælinga. 1.12.2022 08:30
Ísland engan veginn í stakk búið fyrir viðamiklar lyfjarannsóknir Ísland er langt í frá reiðubúið til að taka þátt í umfangsmiklum lyfjarannsóknum, ef marka má umsagnir um þingsályktunartillögu um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbíni (e. psilocybin) í geðlækningum. 1.12.2022 08:11
Þetta eru merkustu sigrar ársins Við erum mætt aftur, fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, með ítarlega yfirferð yfir árið 2022. Það gerðist allskonar, eins og við munum, en við byrjum hér: á fólkinu sem varð ofan á. Sigurvegurum ársins, í sem víðasta skilningi orðsins. 1.12.2022 07:01
Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2022 Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna mann ársins 2022 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 1.12.2022 07:00
Uggur um lífeyrisréttindi heilbrigðisstarfsmanna sem fresta starfslokum „Við viljum alls ekki hafa nein ákvæði um starfslokaaldur í lögum, hvorki hámörk um 67 né 70 ára aldur. Þetta á fyrst og fremst að vera samningsatriði milli þess sem vinnur og þess sem vill hafa fólk í vinnu.“ 1.12.2022 06:59
„Það eru 38 milljónir í heiminum með HIV og það er ekki búið að finna lækningu“ HIV-faraldrinum er ekki lokið í heiminum og sjúkdómnum fylgja enn fordómar, segir Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-samtakanna á Íslandi. 34 hafa komið nýir inn með HIV í þjónustu á göngudeild smitsjúkdóma á þessu ári og Einar gerir ráð fyrir því að fjöldinn nái 40 fyrir árslok. 1.12.2022 06:41
Gestur olli skemmdum á hótelherbergi og hótaði starfsfólki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðborginni í gærkvöldi vegna hótelgests sem hafði valdið skemmdum á hótelherbergi sínu og hafði í hótunum við starfsfólk. Málið er í rannsókn, segir í tilkynningu frá lögreglu um verkefni næturinnar. 1.12.2022 06:12