Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fela ráðherra að endurskoða styrki í ljósi fjölmiðlaumræðu Meirihluti fjárlaganefndar beinir því til ráðherra að endurskoða reglur um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um ákvörðun nefndarinnar um hundrað milljón króna styrk til framleiðslu sjónvarpsefnis. 14.12.2022 20:53
Hafa ekki í nein hús að venda eftir að íbúðin skemmdist í gríðarlegum leka Par hefur ekki í nein hús að venda eftir að gríðarlegt magn af vatni flæddi inn í íbúð þeirra með þeim afleiðingum að heimilið er óíbúðarhæft. Þau vita ekki hvar þau ætla að verja nóttinni og segja Kópavogsbæ ekkert vilja gera fyrir þau. 14.12.2022 19:45
Fór hörðum orðum um Ríkisútvarpið og hefur lagt fram kæru Arnþrúður Karlsdóttir eigandi Útvarps Sögu hefur lagt fram kæru á hendur íslenska ríkinu vegna hindrana í samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Hún segir fjölmiðlastyrki hins opinbera vera orðnir að geðþóttaákvörðun stjórnvalda hverju sinni, eins og sýni sig í því að N4 geti fengið fjárlaganefnd til að bæta við 100 milljóna styrk, en að Útvarp Saga fái engan. 14.12.2022 19:31
Sakar stjórnarþingmenn um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils Þingmaður Samfylkingarinnar sakar meirihluta fjárlaganefndar um að kaupa sér velvild eins fjölmiðils með hundrað milljón króna styrk sem hún leggur til að verði í fjárlögum næsta árs. Ákvörðun um styrkinn hafi ekki byggt á leikreglum í lögum. 14.12.2022 19:17
Vildi ekki kanna hvort bílnum hefði verið stolið vegna kulda Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um að bíl hefði verið stolið við verslun í Kópavogi. Eigandi bílsins vildi ekki fara út og ganga úr skugga um að bílnum hefði verið stolið vegna þess hve kalt var, samkvæmt dagbók lögreglu. 14.12.2022 18:45
„Mikill fjöldi er að taka smálán“ Töluvert fleiri hafa sótt um jólaaðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar nú fyrir jólin en undanfarin ár. Félagsráðgjafi segir neyðina mikla og erfiða stöðu á húsnæðismarkaði hafa mikið að segja. Þá leiti nú fjölmargir skjólstæðingar hjálparstarfsins í smálán til að reyna að bjarga sér. 14.12.2022 18:40
Vilja tryggja brotaþolum sálfræðistuðning eftir skýrslutöku Dóms- og heilbrigðisráðherra ætla að vinna að því að tryggja brotaþolum kynferðisofbeldis stuðning hjá sálfræðingi að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu. Einnig ætla þeir að auka samvinnu lögreglu og heilbrigðiskerfisins um þjónustu vegna kynferðisofbeldis. 14.12.2022 18:33
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Par hefur ekki í nein hús að venda eftir að gríðarlegur vatnsflaumur flæddi inn í íbúð þeirra með þeim afleiðingum að heimilið er óíbúðarhæft. Þau vita ekki hvar þau ætla að verja nóttinni og segja Kópavogsbæ ekkert vilja gera fyrir þau. Við hittum parið í íbúðinni sem skemmdist í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 14.12.2022 18:19
Jón Ársæll sýknaður í Hæstarétti Hæstiréttur hefur sýknað sjónvarpsmanninn Jón Ársæl af skaðabótakröfum dánarbús konu sem hann tók viðtal við fyrir sjónvarpsþættina Paradísarheimt sem sýndir voru hjá Ríkissjónvarpinu. Landsréttur dæmdi Jón fyrr á árinu til að greiða konunni átta hundrað þúsund krónur í miskabætur og þrjár milljónir í málskostnað. 14.12.2022 18:06
Rafmagnslaust í Garðabæ og Hafnarfirði Rafmagni sló út í hluta Garðabæjar og Hafnarfjarðar á sjötta tímanum nú síðdegis. Það virðist hafa komist á í Garðabæ nú rétt fyrir klukkan 18. 14.12.2022 17:57
Skora á rekstraraðila að loka spilakössum yfir jól og áramót Samtök áhugafólks um spilafíkn skora á rekstraraðila spilakassa að loka spilakössum sínum dagana yfir jólahátíðina og áramót. Samtökin benda á að jól og áramót eru hátíð kærleika, friðar og samveru með fjölskyldu, börnum og ástvinum og að með þessu móti geti allir sameinast um að láta spilakassana ekki spilla hátíðunum. 14.12.2022 17:00
Þingmaður tók þátt í að samþykkja beiðni mágkonu sinnar Þingmaður Framsóknarflokksins stóð að tillögu fjárlaganefndar um hundrað milljóna króna styrk til fjölmiðla á landsbyggðinni. Þingmaðurinn er mágur framkvæmdastjóra N4 sem sendi nefndinni bréf og óskaði eftir styrknum. 14.12.2022 16:27
Eingreiðslan skipti miklu máli í ljósi hækkandi verðlags Á fjórða tímanum í dag var eingreiðsla upp á 60.300 krónur til örorku og endurhæfingarlífeyrisþega samþykkt á Alþingi. 14.12.2022 16:18
Ráðherra láti eins og hann sé „hvítþveginn af glæp sem ríkisstjórnin framdi“ Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, vandaði félags- og vinnumarkaðsráðherra og öðrum stjórnarliðum ekki kveðjurnar á Alþingi í dag. Það væri stundum eins og fólk í stjórnarliðinu ætti erfitt með að skilja á milli veruleika og ímyndunar. Umdeilt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verður ekki á dagskrá þingsins fyrir jól, sem Píratar fagna. 14.12.2022 15:38
„Ákveðið viðbragð“ í gang eftir að mönnunum var sleppt Embætti ríkislögreglustjóra hefur sett af stað „ákveðið viðbragð“ nú þegar mennirnir tveir, sem ákærðir eru fyrir undirbúning hryðjuverka, hafa verið látnir lausir samkvæmt úrskurði Landsréttar í gær. 14.12.2022 15:00
Lækka hámarkshraða um gjörvalla Reykjavíkurborg Hámarkshraði verður lækkaður um alla Reykjavíkurborg á næsta ári. Götur, þar sem hámarkshraði var áður 50 kílómetra hraði á klukkustund, fer ýmist niður í 30 eða 40 kílómetra hraða. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti breytingarnar í morgun. 14.12.2022 14:53
Nístingskuldi í kortunum: Skoða aftur á morgun hvort ástæða sé til að loka sundlaugum Notkun á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu náði sögulegu hámarki í gær. Í nótt mældist átján gráðu frost í Húsafelli og ekki er útlit fyrir að kuldakast síðustu daga nái hámarki fyrr en á föstudaginn. Staðan verður metin á morgun varðandi hvort einstaka sundlaugum verði lokað tímabundið til að spara heita vatnið. 14.12.2022 14:46
Sjálfstæðismenn vilja að borgarhátíðir beri íslensk nöfn Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja að borgarhátíðir beri íslensk nöfn. Borgarsjóður styrkir hátíðir á borð við Reykjavik Dance Festival og Reykjavik Film Festival. Styrkur úr borgarsjóði nemur samtals fimmtíu milljónum króna. 14.12.2022 14:37
Spilavítishugmyndinni kastað fram en ekki skoðuð nánar Hugmynd HHÍ um að setja á laggirnar spilavíti hér á landi var einungis pæling sem kastað var fram við gerð tillaga um breytingar á lögum og reglugerðum um happdrætti. Forstjóri HHÍ segir að stjórnvöld þurfi að breyta reglugerðum um fjárhættuspil á netinu ef bregðast á við tekjutapi og leggja upp úr heilbrigðari spilun. 14.12.2022 14:00
Sendi stúlku undir lögaldri kynferðisleg skilaboð Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítugan karlmann í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn barni. 14.12.2022 13:43
Tvö börn fótbrotin og Rush breytti reglunum Trampólíngarðurinn Rush hefur tilkynnt breytingar á reglum sínum til að auka öryggi gesta. Eldri systkini barna fimm ára og yngri mega ekki fylgja þeim í krakkatíma án forráðamanns. Þar að auki mega börn á þessum aldri einungis sækja garðinn þegar fyrrnefndir krakkatímar eru. 14.12.2022 12:56
Laun félagsmanna VR á taxta hækka um ellefu prósent að meðaltali Félagsmenn hjá VR sem eru á taxta fá að meðaltali ellefu prósenta hækkun á launum sínum frá því sem var í apríl síðastiðnum verði nýr kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins samþykktur. VR er fjölmennasta stéttarfélag landsins með yfir fjörutíu þúsund félagsmenn. Samningurinn er til fimmtán mánaða. 14.12.2022 12:50
Mótmæla áformum um hækkun skrásetningargjalds: „Örvæntingarfull tilraun til þess að plástra blæðandi sár“ Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af fjármögnun Háskóla Íslands í ljósi umræðna um fjárlög á þingi og gagnrýnir harðlega beiðni háskólayfirvalda um hækkun skrásetningargjaldsins. Hækkun skrásetningargjaldsins yrði gríðarlega íþyngjandi fyrir stúdenta og væri aðeins skammtímalausn sem myndi hafa í för með sér fleiri vandamál en hún myndi leysa. 14.12.2022 12:11
Tekist á um Jóladagatalið á Alþingi Skiptar skoðanir eru á Alþingi um útspil Útlendingastofnunar vegna Jóladagatals Ríkisútvarpsins. Þingmenn Miðflokksins eru hæstánægðir með upplýsingasíðu stofnunarinnar en þingmaður Pírata spurði hvort að eðlilegt gæti talist að starfsmaður stofnunarinnar hafi verið settur í þá vinnu að horfa á Jóladagatalið. 14.12.2022 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um ákæruna á hendur tvímenningunum sem lögregla telur hafa áformað að fremja hryðjuverk hér á landi. 14.12.2022 11:37
Sögulega mikil notkun á heitu vatni í kuldanum: „Þetta er ekki óþrjótandi auðlind“ Kuldinn sem landsmenn hafa fundið fyrir síðustu daga er áfram í kortunum næstu daga. Forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum segir álagið mikið vegna aukinnar uppbyggingar og fólksfjölgunar á ákveðnum svæðum. Notkun á heitu vatni náði sögulegu hámarki í gær og er fólk hvatt til að fara sparlega með auðlindina. 14.12.2022 11:23
Vanskil heimila og fyrirtækja lægri en fyrir faraldurinn Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum þremur eru nú lægri en fyrir heimsfaraldurinn. Þá er atvinnuleysi lítið í kjölfar kraftmikillar fjölgunar starfa að undanförnu. 14.12.2022 11:20
Kaldavatnslaust á Kársnesi og heitavatnslaust í Laugarnesi Kaldavatnslaust er víða á Kársnesi og truflana á vatnsflæði gætir víðar í Kópavogi eftir að kaldavatnslögn við Kársnesbraut rofnaði. Þá er heitavatnslaust á Laugarnesvegi í Laugardalnum vegna bilunar. 14.12.2022 11:14
„Sviðsettur blaðamannafundur“ hafi verið gróf atlaga að æru Áslaugar Thelmu Áslaug Thelma Einarsdóttir og Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður hennar, segja blaðamannafund sem Orkuveita Reykjavíkur (OR) hélt um vinnustaðamenningu og mannauðsmál sín hafa verið sviðsettan. Markmiðið með fundinum hafi verið að vega gróflega gegn æru Áslaugar Thelmu og til að upphefja OR, dótturfélög fyrirtækisins og stjórnendur þeirra. 14.12.2022 09:21
Flæddi inn í tvö hús þegar vatnslögn rofnaði á Kársnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir að vatnslögn rofnaði á Kársnesi í Kópavogi á sjötta tímanum í morgun. Kaldavatnslaust er á Kársnesi. 14.12.2022 08:14
Brutust inn í geymslu og stálu gömlum dúkkuvagni og fleiru Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út um klukkan 18 í gær þegar tilkynnt var um innbrot í geymslu í fjölbýlishúsi í hverfi 109 í Reykjavík. Þar var meðal annars búið að stela gömlum dúkkuvagni og fleiri verðmætum. 14.12.2022 06:17
Eldur kom upp í vinnuskúr og bíl á Kjalarnesi Lögregla og slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út eftir að tilkynnt var um eld í vinnuskúr og bíl á Kjalarnesi í gærkvöldi. 14.12.2022 06:15
Tveir fengu tíu milljónir Tveir ljónheppnir miðahafar hlutu tíu milljónir hvor í Happdrætti Háskóla Íslands. Dregið var út fyrr í kvöld. 13.12.2022 23:51
Vill ekki að hótanir séu notaðar til að afvegaleiða umræðu um völd lögreglu Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir að ef hann yrði myrtur væri það síðasta sem hann myndi vilja að minning hans yrði notuð til að draga úr frelsi fólks og auka ofríki yfirvalda. Það fari gegn öllum hans hugsjónum vill hann ekki að hótanir í hans garð séu notaðar til að afvegaleiða umræðuna um lögreglu- og öryggismál hér á landi. 13.12.2022 23:25
„Óásættanleg“ framganga leigufélaga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir framgöngu sumra leigufélaga óásættanlega. Hún hvetur leigufélög til að axla ábyrgð og sýna hófstillingu. Vinna við endurskoðun húsaleigulaga hefst fljótlega. 13.12.2022 22:57
Sagður hafa viljað lögreglubúning fyrir skotárás Annar mannanna sem ákærður er fyrir tilraun til hryðjuverka er sagður hafa reynt að nálgast lögreglufatnað og lögregluskilríki, til að villa um fyrir fólki í tengslum við skotárás. Lögregla segir mennina tvo hafa rætt verknaðaraðferðir þekktra hryðjuverkamanna. Hálfsjálfvirkir rifflar á borð við AK-47 og AR-15 voru gerðir upptækir, auk skotfæra og íhluta í þrívíddarprentaðar byssur. 13.12.2022 22:14
Bílskúr brann á Kjalarnesi Kalla þurfti slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins út í kvöld eftir að eldur kviknaði í bílskúr á Kjalarnesi. Bílskúrinn er nánar tiltekið við gamla bæinn í Saltvík en eldurinn var bundinn við bílskúrinn og bíl sem stóð við hann. 13.12.2022 21:57
Árás ekki talin mjög líkleg eða yfirvofandi Landsréttur segir að gögn máls mannanna tveggja, sem grunaðir eru um tilraun til hryðjuverka, bendi ekki til þess að árás væri yfirvofandi eða að minnsta kosti mjög líkleg. Ítarleg matsgerð dómkvadds manns virðist hafa haft mikil áhrif. 13.12.2022 20:28
„Ég reikna ekki með því að samningurinn verði felldur“ Formaður VR segist hvorki geta mælt með né á móti nýgerðum kjarasamningum en telur þó að þeir verði samþykktir af félagsmönnum. Verkalýðshreyfingin þurfi nú að líta inn á við og þétta raðirnar svo hægt sé að ná fram raunverulegum breytingum. 13.12.2022 19:23
Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári. 13.12.2022 18:29
Mannanafnanefnd gefur grænt ljós á Askalín, Kappa og Jesúdóttur Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Askalín, Þórínu, Miguel, Díon, Sammy, Kappa, Hófí, Hrími, Scott, Sigurboga og Jakey. 13.12.2022 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður VR segist hvorki geta mælt með né á móti nýgerðum kjarasamningum en telur þó að þeir verði samþykktir af félagsmönnum. Verkalýðshreyfingin þurfi nú að líta inn á við og þétta raðirnar svo hægt sé að ná fram raunverulegum breytingum. 13.12.2022 18:00
Skoða að loka fimm sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu Fimbulkulda er spáð á öllu landinu út vikuna og getur hann haft áhrif á sundlaugar landsins. Forsvarsmenn Veitna íhuga nú hvort loka þurfi Vesturbæjarlaug, Sundhöll Reykjavíkur, Dalslaug, Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug vegna áskorana í flutningskerfum. 13.12.2022 16:57
Guðlaug Rakel í heilbrigðisráðuneytið Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, hefur verið ráðin til tímabundinna verkefna hjá heilbrigðisráðuneytinu. 13.12.2022 16:49
Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp á geðdeild Landspítala Hjúkrunarfræðingur á geðdeild Landspítalans hefur verið ákærður fyrir manndráp og brot í opinberu starfi. Hjúkrunarfræðingnum er gefið að sök að hafa banað sjúklingnum með því að neyða mat ofan í hana. 13.12.2022 16:21