Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bretar fá að heimsækja krár að nýju Búðir, hárgreiðslustofur, líkamsræktarstöðvar og krár munu opna dyr sínar fyrir gestum í Englandi á morgun. Þetta tilkynnti Boris Johnson, forsætisráðherra, í gær. Hann sagði um stórt skref í átt að „frelsi undan oki takmarkana vegna faraldursins“ að ræða. 11.4.2021 23:12
Spennan í kanslarakapphlaupinu magnast Spenna færðist í kapphlaupið um embætti kanslara Þýskalands í dag þegar Markus Söder, ríkisstjóri Bæjarlands og formaður Kristilegra demókrata í Bæjarlandi (CDS), tilkynnti framboð sitt til embættisins í dag. Armin Laschet, formaður Kristilegra demókrata (CDU), hefur þegar gefið kost á sér í embættið. 11.4.2021 21:36
Segja hryðjuverkaárás hafa verið gerða á kjarnorkuver í Íran Kjarnorkustofnun Íran segir að Natanz kjarnorkuverið hafi orðið fyrir hryðjuverkaárás í dag, aðeins tæpum sólarhring eftir að nýjar skilvindur, sem notaðar eru til þess að auðga úran, voru teknir í notkun í verinu. 11.4.2021 19:15
Lýsa blóðbaði þegar stjórnaherinn skaut sprengjum á mótmælendur Fleiri en áttatíu manns féllu þegar öryggissveitir herforingjastjórnarinnar í Búrma skutu sprengjum á mótmælendur nærri Yangon á föstudag. Nákvæm tala látinna liggur ekki fyrir þar sem herinn safnaði líkunum saman í herstöð og girtu svæðið af. 11.4.2021 12:03
Fresta fyrsta þyrlufluginu á Mars Ákveðið hefur verið að fresta fyrstu tilraunaflugferð þyrilvængjunnar Ingenuity á reikistjörnunni Mars. Til stóða að fljúga henni í fyrsta lagi í dag en eftir að hnökrar komu í ljós við undirbúning á föstudag var ákveðið að seinka því. 11.4.2021 11:11
Rafmagns- og vatnslaust eftir aðra sprengingu í eldfjallinu Meirihluti eyjunnar Sankti Vinsent í Karíbahafi er án rafmagns eftir að önnur sprenging varð í eldfjallinu La Soufriere. Þá er búið að loka fyrir vatn vegna öskufalls. 11.4.2021 10:03
Bóluefni Pfizer kunni að virka verr gegn suðurafríska afbrigðinu Virkni bóluefnis Pfizer gegn svokölluðu suðurafrísku afbrigði kórónuveirunnar virðist nokkru minni en gegn öðrum afbrigðum, ef marka má niðurstöður ísraelskrar rannsóknar á bóluefninu. Útbreiðsla afbrigðisins er þó lítil í Ísrael og niðurstöður rannsóknarinnar hafa ekki verið ritrýndar. 11.4.2021 09:57
Fyrrum forsætisráðherrann stofnar nýjan flokk Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, ætlar að stofna nýjan stjórnmálaflokk sem á að vera á miðju danskra stjórnmála. Hann sagði skilið við flokkinn Vinstri fyrr á þessu ári. 11.4.2021 08:25
Telja virkni kínverskra bóluefna gegn veirunni litla Æðsti embættismaður sóttvarna í Kína viðurkennir að virkni bóluefna sem hafa verið þróuð þar gegn kórónuveirunni sé lítil. Yfirvöld íhugi af þessum sökum að blanda efnunum saman til þess að freista þess að auka virknina. 11.4.2021 08:04
Þeldökkum hermanni ógnað af lögreglumönnum: „Þú ættir að vera hræddur“ Þeldökkum bandarískum hermanni, sem stöðvaður var af lögreglu við umferðareftirlit og ógnað með byssum, segist hafa verið logandi hræddur við að stíga út úr bílnum. Lögreglumennirnir svöruðu honum: „þú ættir að vera það,“ eins og sést á upptökum úr búkmyndavélum lögreglumannanna og símaupptöku mannsins. 10.4.2021 23:35
Fóru út að borða og fá 2,3 milljóna króna sekt Meira en 100 gestir á veitingastað í París hafa verið sektaðir fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur. Þá hefur veitingastjórinn á staðnum verið handtekinn vegna málsins. 10.4.2021 22:49
Saknar pabba síns og þakkar fyrir kveðjurnar Karl Bretaprins ávarpaði í dag bresku þjóðina vegna fráfalls föður hans, Filippusar prins, sem lést í gærmorgun 99 ára að aldri. Hann segir viðbrögðin hreyfa við fjölskyldunni sem sé þakklát öllum þeim sem minnist prinsins. 10.4.2021 17:33
Rassía á heimili blaðamanns sem afhjúpaði vellystingar Kremlarvina Rússneska lögreglan handtók þekktan rannsóknarblaðamann og lagði hald á síma, raftæki og gögn í rassíu á heimili hans. Dagblað sem hefur birt umfjallanir blaðamannsins segir að lögregluaðgerðin sé hefnd vegna rannsókna hans á áhrifafólki sem tengist stjórnvöldum í Kreml. 10.4.2021 14:45
Segir „ögranir“ Rússa geta leitt til átaka Varnarmálaráðherra Úkraínu segir að stjórnarherinn gæti dregist inn í harðari átök í austurhluta landsins vegna ögrana Rússa. Vaxandi spenna er nú í Úkraínu vegna vaxandi vígbúnaðar Rússa nærri landamærunum. 10.4.2021 14:12
Kanna hvort þingmaður hafi sýnt nektarmyndir í þingsal Siðanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings kannar nú ásakanir um að Matt Gaetz, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Flórída, hafi sýnt myndir af nöktum konum í þingsal, framið kynferðisbrot og neytt ólöglegra lyfja. Dómsmálaráðuneytið rannsakar einnig hvort að Gaetz hafi greitt fyrir kynlíf og stundað mansal. 10.4.2021 12:38
Klúður í Tyrklandsheimsókn rænir forseta leiðtogaráðsins svefni Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segist missa svefn vegna þess að hann lét hjá líða að mótmæla því að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, fengi ekki sæti með þeim Recep Erdogan, forseta Tyrklands, í heimsókn þeirra í vikunni. 10.4.2021 10:31
Afhending á bóluefnum til snauðra ríkja nær stöðvast Nær ekkert hefur verið afhent af bóluefni gegn kórónuveirunni til fátækustu ríkja heims frá því á mánudag og nú stefnir í að allt að sextíu ríki geti ekki gefið seinni skammt af bóluefni fyrr en í júní. Forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar gagnrýnir harðlega misskiptingu í bólusetningum á milli ríkra þjóða og snauðra. 10.4.2021 10:02
Eðlisfræðingar spenntir yfir niðurstöðum sem storka staðallíkani Niðurstöður úr tveimur ólíkum tilraunum með svonefndar mýeindir eru sagðar gefa vísbendingar um mögulegt frávik frá staðallíkani öreindafræðinnar og hugsanlegt nýtt náttúruafl. Íslenskur eðlisfræðingur segir niðurstöðurnar spennandi en að of snemmt sé að tala um nýja og áður óþekkta víxlverkun. 10.4.2021 09:00
Telja að gagnrýnandi Pútín hafi verið kyrktur Nikolai Glushkov, rússneskur athafnamaður og gagnrýnandi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, er talinn hafa verið kyrktur í London í mars árið 2018. Að mati dánardómstjóra í Bretlandi eru vísbendingar um að morðingi Glushkov hafi reynt að láta dauða hans líta út fyrir að hafa verið sjálfsvíg. 10.4.2021 08:08
Rússar óttast að borgarstríð brjótist út í Úkraínu Yfirvöld í Rússlandi segjast óttast það að átök muni brjótast út af fullum krafti að nýju í austurhluta Úkraínu. Rússar segjast þegar hafa hafið undirbúning á því að vernda rússneskan almenning á svæðinu. 9.4.2021 23:22
„Aðgerðir lögreglumannanna leiddu til dauða Floyds“ Aðgerðir lögreglu voru það sem leiddu George Floyd til dauða. Þetta sagði réttarmeinafræðingur í vitnastúku í réttarhöldunum gegn lögregluþjóninum Derek Chauvin í dag. 9.4.2021 21:42
Drottningarmaður í tæp sjötíu ár Filippus Bretaprins lést í morgun, 99 ára að aldri. Margir syrgja prinsinn, sem var giftur Elísabetu drottningu í 73 ár. 9.4.2021 20:00
Malta borgar ferðamönnum til að koma í sumar Yfirvöld í Möltu stefnir á að greiða erlendum ferðamönnum, sem halda til á eyjunni í meira en þrjá daga í sumar, allt að 200 evrur, sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Þau segja aðgerðirnar til þess gerðar að koma ferðaþjónustu eyjunnar á réttan kjöl en atvinnugreinin hefur tekið dýfu niður á við vegna kórónuveirufaraldursins. 9.4.2021 19:26
Meintur mannræningi handtekinn á Íslandi Pólskur karlmaður sem var handtekinn á Íslandi um páskana hefur samþykkt að vera framseldur til Noregs. Maðurinn er grunaður um aðild að alræmdu mannráns- og líkamsárásmáli í Noregi fyrir sex árum. 9.4.2021 15:38
Sprengigos hafið á eyjunni Sankti Vinsent Sprengigos er hafið í eldfjallinu La Soufrière á eyjunni Sankti Vinsent í Karíbahafi. Mikið öskufall er á nærliggjandi svæði en ekki hafa borist tilkynningar um manntjón. 9.4.2021 15:00
Grófu glataða gullaldarborg upp úr sandinum í Egyptalandi Fornleifafræðingar í Egyptalandi tilkynntu í dag að þeir hefðu fundið þrjú þúsunda ára gamla borg sem hefur legið grafið undir sandi. Fundurinn er sagður einn sá stærsti frá því að gröf Tútankamons faraós fannst á fyrri hluta 20. aldar. 9.4.2021 14:00
Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna. 9.4.2021 12:42
Filippus prins er látinn Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar er látinn. Hann lést í morgun í Windsor-kastala að því er segir í tilkynningu frá bresku konungshöllinni. Hann varð 99 ára. 9.4.2021 11:09
Óeirðirnar á Norður-Írlandi halda áfram enn eina nóttina Til átaka kom á milli ungmenna og lögreglu í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Köstuðu ungmennin steinum og flugeldum að lögreglumönnum sem svöruðu með háþrýstivatnsbyssum. Óeirðir hafa brotist út daglega frá því um páskana. 9.4.2021 10:43
15 prósent Breta nota gæludýranöfn sem aðgangsorð Milljónir Breta nota nöfn gæludýra sem aðgangsorð ef marka má nýja könnun National Cyber Security Centre (NCSC). Könnunin leiddi í ljós að um 15 prósent nota gæludýranöfn sem leyniorð, 14 prósent nafn fjölskyldumeðlims og 13 prósent einhverja markverða dagsetningu. 9.4.2021 09:19
Solberg gert að greiða 300 þúsund króna sekt fyrir sóttvarnabrotin Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, hefur verið gert að greiða 20 þúsund norskra króna sekt, um 300 þúsund íslenskar, vegna sóttvarnabrota í skíðabænum Geilo í lok febrúar. 9.4.2021 08:17
Rýmingar vegna yfirvofandi hættu á sprengigosi Vísindamenn telja nú stutt í að sprengigos kunni að hefjast í eldfjallinu La Soufrière á eyjunni Sankti Vinsent í Karíbahafi. Yfirvöld fyrirskipuðu í nótt þúsundum að yfirgefa heimili sín vegna yfirvofandi hættu. 9.4.2021 07:39
Fjórir af milljón gætu fengið blóðtappa: Missti bróður sinn en hvetur fólk samt til að þiggja bólusetningu Systir manns sem lést eftir að hafa fengið sjaldgæfan blóðtappa í heila í kjölfar bólusetningar með bóluefninu frá AstraZeneca, segir hann hafa verið ótrúlega óheppinn og hvetur fólk til að þiggja bólusetningu. 9.4.2021 06:50
Fyrst til að fá lungnaígræðslu úr lifandi líffæragjafa Japönsk kona varð í dag sú fyrsta til þess að fá lungnaígræðslu frá líffæragjafa sem er á lífi. Konan hafði orðið fyrir því að líffæri hennar biluðu í kjölfar þess að hún smitaðist af kórónuveirunni og fékk hún hluta úr lungum sonar síns og eiginmanns. 8.4.2021 22:57
Útlit fyrir hjarðónæmi í Bretlandi á mánudag Allt bendir til þess að hjarðónæmi við kórónuveirunni náist í Bretlandi á mánudag. Spár gera nú ráð fyrir því að 73,4 prósent Breta verði komnir með mótefni við veirunni, annað hvort vegna fyrra smits eða bólusetningar. 8.4.2021 21:07
Fimmtíu lögregluþjónar hafa særst á Norður-Írlandi Minnst fimmtíu lögregluþjónar hafa særst í átökum í róstum á Norður-Írlandi síðustu sex nætur. Kveikt var í strætisvagni í nótt. 8.4.2021 20:01
Sérfræðimat útilokar fíkniefnanotkun sem dánarorsök Dánarorsök George Floyd var súrefnisskortur en ekki fíkniefnanotkun eða undirliggjandi hjartakvillar. Þetta er niðurstaða sérfræðiálits Dr. Martin Tobin, lungna- og gjörgæslulæknis sem bar vitni í réttarhöldum gegn lögregluþjóninum Derek Chauvin í dag. 8.4.2021 19:53
Heimilt að gera bólusetningu að skilyrði fyrir leikskólavist Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að skilyrða inngöngu barna á leikskóla við að þau hafi verið bólusett. Þrátt fyrir að það rjúfi friðhelgi einkalífs fólks sé það nauðsynlegt til að vernda lýðheilsu. 8.4.2021 12:15
Tyrkir neita því að þeir hafi snuprað von der Leyen Utanríkisráðherra Tyrklands segir fráleitt að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hafi verið sýnd óvirðing vegna kynferðis hennar á fundi með Recep Erdogan forseta á þriðjudag. Von der Leyen var látin sitja á sófa til hliðar við Erdogan og Charles Michel, forseta leiðtogaráðs ESB. 8.4.2021 11:21
Sakar Trump um að hafa æst til „blóðugrar uppreisnar“ Einn af fyrrverandi leiðtogum Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi segir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafi æst til blóðugrar uppreisnar þegar æstur múgur réðst á þinghúsið 6. janúar. Hann segir að uppreisnin hefði átt að vekja repúblikana aftur til heilbrigðrar skynsemi. 8.4.2021 08:54
Segir Navalní vera að missa tilfinningu í fótleggjum og höndum Heilsu rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní hrakar enn og hefur hann verið að missa tilfinningu í fót- og handleggjum. Þetta segir lögfræðingur Navalnís, en Navalní er nú í fanganýlendu þar sem hann afplánar nú dóm vegna fjársvika. 8.4.2021 08:27
Hefur hafnað samstarfssamningum að andvirði 17 milljónum dala Ljóðskáldið Amanda Gorman segist hafa hafnað samstarfssamningnum fyrir um 17 milljónir Bandaríkjadala, þar sem umrædd fyrirtæki hafi ekki „talað til hennar“. 8.4.2021 08:23
Hvatt til stillingar eftir fjórðu nótt óeirða á Norður-Írlandi Óeirðarseggir kveiktu í rútu sem þeir stálu og köstuðu bensínsprengjum að lögreglumönnum í Belfast í nótt. Þetta var fjórða nóttin í röð sem til óeirða kemur í borginni. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi óeirðirnar og hvatti til stillingar. 8.4.2021 08:14
Var læstur úti í eigin sendiráði og varði nóttinni í bílnum Sendiherra Mjanmar í London þurfti að eyða nóttinni í bíl sínum eftir að honum var neitað um inngöngu í sendiráðið þar sem hann alla jafna ræður ríkjum. 8.4.2021 06:51
Búa sig undir fyrsta þyrluflugið á öðrum hnetti Undirbúningur fyrir fyrsta flug þyrilvængjunnar Ingenuity á Mars er nú í fullum gangi. Flygildið var losað undan könnunarjeppanum Perseverance um helgina og stefnt er að fyrstu flugferðinni á sunnudag. Það verður fyrsta farartæki manna sem flýgur á annarri reikistjörnu undir eigin afli. 7.4.2021 23:57
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent