Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu. 3.5.2021 13:29
Danir hætta notkun á bóluefni Janssen Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta notkun á bóluefni Johnson & Johnson, Janssen, gegn kórónuveirunni. 3.5.2021 13:26
Repúblikanar í Utah bauluðu á Romney Fulltrúar á þingi Repúblikanaflokksins í Utah bauluðu á Mitt Romney, öldungadeildarþingmann flokksins í ríkinu, um helgina. Tillaga um að ávíta Romney fyrir að hafa greitt atkvæði með því að sakfella Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir embættisbrot var felld með naumum meirihluta. 3.5.2021 12:21
Segja ebólufaraldri lokið í Austur-Kongó Austur-Kongó lýsti því yfir í dag að ebólufaraldri, sem herjað hefur á landið undanfarin misseri, sé lokið. Tólf smituðust af veirunni í norður Kivu héraðinu í austurhluta landsins og sex létust. 3.5.2021 11:16
Fjórir handteknir í tengslum við rannsókn á risastórum barnaníðshring Þrír hafa verið handteknir í Þýskalandi og einn í Paragvæ í tengslum við rannsókn lögrelgu á einum stærsta barnaníðshring sem starfræktur hefur verið á netinu. Um er að ræða samfélag á djúpvefnum (e. dark net) sem ber heitið Boystown. 3.5.2021 11:09
Modi tapaði lykilríki þrátt fyrir umdeilda kosningabaráttu Flokkur Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, tapaði ríkisþingskosningum í Vestur-Bengal þrátt fyrir að hann hefði lagt ofurkapp á það í kosningabaráttunni. Modi var jafnvel sakaður um að láta kosningarnar sig meiru varða en kórónuveirufaraldurinn sem geisar nú stjórnlaust víða um landið. 3.5.2021 10:57
Þrír fórust þegar smyglbát hvolfdi við strendur San Diego Þrír fórust og tugir slösuðust þegar bátur hvolfdi og strandaði við strendur San Diego í Bandaríkjunum í morgun. Talið er að báturinn hafi verið notaður til að smygla farþegum til Bandaríkjanna. 3.5.2021 10:43
Eiga yfir höfði sér fimm ára fangelsi fyrir að snúa heim frá Indlandi Yfirvöld í Ástralíu hafa boðað algert bann við ferðum frá Indlandi til Ástralíu frá og með deginum í dag. Allir Ástralar sem hyggjast ferðast heim frá Indlandi geta átt yfir höfði sér háar fjársektir og allt að fimm ár í fangelsi. Gagnrýnendur segja ferðabannið rasískt og mannréttindabrot. 3.5.2021 09:59
Um 30 prósent jarðarbúa neikvæð gagnvart bólusetningu árið 2020 Samkvæmt niðurstöðum nýrrar Gallup-könnunar segjast 68 prósent jarðarbúa munu þiggja bólusetningu vegna Covid-19 ef hún býðst ókeypis en 29 prósent segjast ekki munu láta bólusetja sig. Þrjú prósent eru óákveðin. 3.5.2021 09:08
Breskir læknar að bugast undan álaginu og margir íhuga að hætta Þúsundir breskra lækna íhuga að láta af störfum í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Helstu ástæðurnar eru gríðarlegt álag og áhyggjur af andlegu heilbrigði. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar á vegum Bresku læknasamtakanna (BMA). 3.5.2021 08:32
Gætu þurft að halda í þekktar reglur þrátt fyrir afléttingu takmarkana Ekki er útilokað að fjarlægðartakmörk og grímunotkun verði enn í gildi sumsstaðar í Bretlandi þrátt fyrir að nær öllum takmörkunum verði aflétt innanlands. Utanríkisráðherra Bretlands segir engar ákvarðanir liggja fyrir í þessum efnum, en samkvæmt áætlun stjórnvalda er stefnt að allsherjar afléttingu þann 21. júní. 2.5.2021 14:40
Aldrei fleiri dauðsföll á einum degi Alls létust 3.689 manns úr kórónuveirunni á Indlandi í gær. Er þetta mesti fjöldi sem hefur látist í landinu á einum degi frá því að faraldurinn hófst og fundaði forsætisráðherra landsins með heilbrigðisráðherranum í morgun til að fara yfir stöðu mála. 2.5.2021 11:14
Vonast til að setja nýtt lyf við Covid-19 á markað fyrir lok árs Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, er bjartsýnn á að nýtt lyf við kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum verði komið á markað fyrir lok ársins. Lyfið, sem enn er á tilraunastigi, er í töfluformi og yrði notað þegar fyrstu einkenni gera vart við sig. 2.5.2021 09:09
Hvetja Breta til að sýna biðlund Vísindalegur ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segir landsmenn þurfa að vera þolinmóða í aðdraganda næstu tilslakana þar sem enn eigi eftir að bólusetja töluverðan fjölda. Þrátt fyrir góðan gang í bólusetningum er ekki útilokað að ný bylgja geti farið af stað. 1.5.2021 14:49
Hafa borið kennsl á 32 hinna látnu Kennsl hafa verið borin á 32 þeirra sem létust í átroðningi á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael í fyrrakvöld. Minnst 45 létust í slysinu og á annað hundrað særðust. 1.5.2021 13:48
Leita enn að móður ungbarns sem fannst yfirgefið í almenningsgarði Lögreglan í Birmingham á Englandi hefur birt myndir af ungbarninu sem fannst yfirgefið í almenningsgarði í borginni fyrir helgi. Það var almennur borgari sem var á göngu með hunda í Kings Norton almenningsgarðinum í Birmingham sem fann litla drenginn vafinn inn í teppi síðdegis þann 22. apríl. 1.5.2021 12:51
Sjá fram á skort á bóluefni og súrefni samhliða versnandi stöðu faraldursins Tæplega 3.600 létust af völdum Covid-19 á Indlandi síðastliðinn sólarhring. 400 þúsund greindust með veiruna á einum degi, en er það í fyrsta skipti sem það gerist í einu landi. Indland hefur farið einna verst út úr kórónuveirufaraldrinum, en rúmlega 19 milljónir hafa greinst með veiruna þar í landi frá upphafi faraldursins. 1.5.2021 12:32
Berlusconi útskrifaður af sjúkrahúsi og dvelur í lúxusvillu sinni Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið útskrifaður eftir 24 daga dvöl á sjúkrahúsi. Berlusconi útskrifaðist á föstudag en þá hafði hann dvalið á San Raffaele sjúkrahúsinu síðan 6. apríl hvar hann undirgekkst fjölda rannsókna. 1.5.2021 11:35
Sakar Marilyn Manson um kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar Leikkonan Esmé Bianco hefur kært söngvarann Marilyn Manson fyrir kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar. Leikkonan, sem er hvað frægust fyrir hlutverk sitt í Game of Thrones, segir söngvarann hafa neytt hana til samfara árið 2011 með því að þvinga í hana eiturlyf og beita hana valdi. 1.5.2021 09:45
Mæla með að bóluefni Moderna fái neyðarheimild Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur mælt með því að bóluefni Moderna gegn kórónuveirunni fái neyðarheimild til notkunar. Moderna hefur sagst ætla að stórauka framleiðslugetu sína þannig að fyrirtækið geti framleitt allt að þrjá milljarða skammta á næsta ári. 30.4.2021 23:47
Rannsaka atlögu Giuliani að sendiherranum í Kænugarði Bandarísk alríkisyfirvöld rannsaka nú hlut Rudys Giuliani, persónulegs lögmanns Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í því að ryðja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr vegi árið 2019. Húsleit var gerð á heimili og skrifstofu Giuliani vegna rannsóknarinnar í vikunni. 30.4.2021 22:15
Námsmenn á meðal þrjátíu látinna í bílsprengjuárás Þrjátíu manns féllu þegar bílsprengja sprakk við gistiheimili í borginni Pul-e-Alam í austanverðu Afganistan í dag. Á meðal þeirra látnu voru framhaldsskólanema sem voru í borginni til að þreyta inntökupróf í háskóla. 30.4.2021 19:35
Takmarka ferðalög frá Indlandi til Bandaríkjanna Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að takmarka ferðalög frá Indlandi til Bandaríkjanna vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi í næstu viku. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna er sögð hafa mælt með aðgerðunum til að koma í veg fyrir að smit berist til Bandaríkjanna. 30.4.2021 18:45
Skortur á bóluefnum í héruðum Indlands Nokkur ríki Indlands eru uppiskroppa með bóluefni, degi áður en bólusetningarátak á að hefjast í landinu. Samkvæmt opinberum tölum hafa 7,7 milljónir manna fengið Covid-19 í síðustu tveimur mánuðum. Áður tók það nærri því hálft ár að greina 7,7 smitaða á Indlandi. 30.4.2021 15:50
Pence stígur aftur á svið og fer fögrum orðum um Trump Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu pólitísku ræðu í gær eftir að ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, lét af völdum í upphafi árs. Þrátt fyrir að samband þeirra beið verulega hnekki undir lok ríkisstjórnarinnar og að stuðningsmenn Trumps kölluðu eftir því að Pence yrði myrtur, fór hann fögrum orðum um fyrrverandi yfirmann sinn. 30.4.2021 13:38
Þjóðarsorg eftir versta slys í sögu Ísraels Minnst 44 eru látin eftir að fjöldi tróðst undir á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael í gærkvöldi. Á annað hundrað slasaðist. 30.4.2021 13:16
Vinur Gaetz vildi náðun og viðurkenndi kynlíf með sautján ára stúlku Joel Greenberg, kjörinn fulltrúi í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, skrifaði í bréfi til Rogers Stone, fyrrverandi ráðgjafa Donalds Trump, fyrrverandi forseta, að hann og Gaetz hefðu greitt fyrir kynlíf með mörgum konum, þeirra á meðal sautján ára stúlku. 30.4.2021 12:09
Lögmaður samtaka Navalnís handtekinn í Moskvu Ívan Pavolv, lögmaður and-spillingarsamtaka Alexeis Navalní, hefur verið handtekinn. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum um rannsókn og var handtekinn nokkrum klukkustundum áður en hann átti að mæta í dómsal þar sem hann er verjandi fyrrverandi blaðamanns sem hefur verið sakaður um landráð. 30.4.2021 10:34
Tvær mögulegar „örbylgjuárásir“ til skoðunar í Hvíta húsinu Talsmenn Hvíta hússins segja tvö „óútskýrð heilbrigðistilvik“ til rannsóknar en greint hefur verið frá því að tveir embættismenn í Washinton hafi skyndilega upplifað einkenni á borð við þau sem þjáð hafa einstaklinga sem unnu í sendiráðinu á Kúbu. 30.4.2021 10:11
Grjótkast varð að snörpum átökum Yfirvöld í Kirgistan segja að minnst þrettán manns hafa fallið í átökum við hermenn Tadsíkistan. Þá hafi vel yfir hundrað manns særst, þar af tveir í alvarlegu ástandi. 30.4.2021 09:41
Fimm ákærð vegna árásarinnar á aðstoðarmann Lady Gaga Fimm hafa verið handteknin og ákærð vegna árásar á aðstoðarmann Lady Gaga í febrúar og hafa þau verið ákærð fyrir morðtilraun og aðild að morðtilraun. Þrír voru handteknir á þriðjudaginn og eru þeir sakaðir um morðtilraun. Í kjölfarið voru tvö handtekin til viðbótar og ákærðir fyrir aðild að morðtilraun. 30.4.2021 08:24
Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna bannar sölu mentól sígaretta Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur ákveðið að banna sölu mentól sígaretta. Mannréttinda- og heilbrigðissamtök hafa löngum barist fyrir banninu, þar sem mentól sígarettur valda hlutfallslega meiri skaða meðal svartra Bandaríkjamanna. 30.4.2021 08:08
150 milljónir smitast af Covid-19 á heimsvísu Rúmlega hundrað og fimmtíu milljónir manna á heimsvísu hafa nú smitast af kórónuveirunni ef marka má samantekt AFP fréttastofunnar en sömu sögu er að segja ef litið er á teljara Johns Hopkins háskólans sem frá upphafi faraldursins hefur haldið utan um tölur um smitaða. 30.4.2021 07:48
Drottningin látin fáeinum vikum eftir lát konungsins Shiyiwe Mantfombi Dlamini Zulu, drottning Súlúmanna í Suður-Afríku, er látin, 65 ára að aldri. Hún lést einungis fáeinum vikum eftir að eiginmaður hennar, Goodwill Zwelithini konungur, lést. 30.4.2021 07:42
Tugir látnir á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael Að minnsta kosti fjörutíu og fjórir eru látnir á fjölmennri trúarhátíð í norðausturhluta Ísraels. Tugir eru slasaðir að auki en fólkið tróðst undir í mannmergðinni. Um árlega samkomu er að ræða sem haldin er í hlíðum Meron fjalls. 30.4.2021 06:49
Óttast að óhefðbundin endurtalning grafi undan trausti Yfirmenn kjörstjórna í Bandaríkjunum óttast að ákvörðun repúblikana í Arizona um að láta telja aftur atkvæði í stærstu sýslu ríkisins frá því í kosningunum í nóvember verði að fordæmi sem grafi undan trú kjósendur á kosningum í framtíðinni. Donald Trump, fyrrverandi forseti, er sagður haldinn þráhyggju fyrir niðurstöðu endurtalningarinnar. 29.4.2021 23:57
Stefna brasilískum yfirvöldum fyrir meiðyrði vegna Spútnik V Framleiðandi rússneska kórónuveirubóluefnisins Spútnik V ætlar að stefna brasilísku heilbrigðiseftirlitsstofnuninni sem hafnaði beiðni nokkurra ríkja um að flytja efnið inn fyrir meiðyrði. Stjórnendur stofnunarinnar vísa ásökununum um meiðyrði á bug. 29.4.2021 23:17
Vilja gefa unglingum bóluefni Pfizer Lyfjafyrirtækin Pfizer og BioNTech ætla að óska eftir leyfi til að gefa unglingum á aldrinum tólf til fimmtán ára kórónuveirubóluefni sitt í Evrópu í sumar. Tilraunir standa einnig yfir með bóluefnið í börnum. 29.4.2021 22:25
Þýsk loftslagslög talin brjóta á rétti ungs fólks Stjórnlagadómstóll Þýskalands komst að þeirri niðurstöðu í dag að loftslagslög þýsku ríkisstjórnarinnar gangi ekki nægilega langt og brjóti gegn grundvallarréttindum fólks með því að koma því á herðar yngri kynslóða að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Stjórnvöld þurfa að endurskoða lögin fyrir lok árs. 29.4.2021 21:27
Horaður Navalní lokar skrifstofum til að forða bandamönnum Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, var krúnurakaður og lítið meira en skinn og bein þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti frá því að hann var fangelsaður í dag. Á sama tíma tilkynnti náinn samverkamaður hans að skrifstofum samtaka hans víða um Rússland yrði lokað til að vernda félaga og bandamenn. 29.4.2021 18:18
Bandaríkjamönnum sagt að koma sér frá Indlandi Bandaríkjastjórn hvetur borgara sína til þess að yfirgefa Indland eins fljótt og mögulegt er vegna kórónuveirufaraldursins sem geisar nú sem aldrei fyrr í landinu. Sendiráð Bandaríkjanna á Indlandi segir að aðgangur að hvers kyns heilbrigðisþjónustu sé að vera verulega takmarkaður. 29.4.2021 17:32
Telur Kínverja undirbúa innrás Utanríkisráðherra Taívans sagði í dag að útlit væri fyrir að Kínverjar væru að undirbúa innrás á eyjuna. 29.4.2021 17:30
NATO byrjar brottflutning frá Afganistan Atlantshafsbandalagið er byrjað að flytja hermenn og búnað frá Afganistan, samhliða Bandaríkjunum. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nýverið að aðkomu Bandaríkjanna að stríðinu í Afganistan verði lokið fyrir 11. september, á tuttugu ára afmæli árásarinnar á Tvíburaturnana. 29.4.2021 16:06
Búlgarar bendla Rússa við sprengingar þar í landi Utanríkisráðuneyti Búlgaríu tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins ætlaði að vísa einum rússneskum erindreka úr landi, til viðbótar við þá tvo sem voru reknir úr landi fyrir njósnir í síðasta mánuði. 29.4.2021 15:05
Afglæpavæða þungunarrof í kjölfar nauðgunar Stjórnlagadómstóll Ekvador hefur komist að þeirri niðurstöðu að lagaákvæði sem banni þungunarrof í kjölfar nauðgunar brjóti gegn stjórnarskrá landsins. Sjö dómarar voru á þessu máli, gegn tveimur en rætur þess má rekja til baráttu kvennréttindasamtaka í Ekvador. 29.4.2021 11:51