Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rykský skyggði á reginrisann Betelgás Stjörnufræðingar telja sig nú hafa leyst ráðgátuna um hvers vegna risastjarnan Betelgás dofnaði svo á næturhimninum að það var greinanlegt með berum augum. Rykský sem stjarnan sjálf spýtti frá sér skyggði á hana frá jörðinni séð. 16.6.2021 15:39
Þyngdartap Kim vekur upp spurningar um heilsu hans Nýlegar myndir benda til þess að Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafi grennst töluvert að undanförnu. Þær hafa vakið miklar vangaveltur um heilsufar leiðtogans. 16.6.2021 14:32
Klukkustunda langur fundur Biden og Pútín í Genf hafinn Joe Biden Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti skiptust á kurteisisheitum þegar þeir hittust til fundar á sveitasetri við Genf í Sviss í dag. Búist er við því að fundur þeirra standi yfir í allt að fimm klukkustundir og þeir fari yfir breitt svið umræðuefna. 16.6.2021 13:28
Nuuk einangruð næstu vikuna Landsstjórn Grænlands hefur bannað allar ferðir frá höfuðborginni Nuuk og til annarra staða í landinu í tilraun til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í höfuðborginni. Þó er kannað hvort mögulegt sé að opna á ferðir frá Nuuk og til Danmerkur. 16.6.2021 13:26
Ísland ekki með í fyrstu tilnefningum Biden til sendiherra Fyrstu tilnefningar Joes Biden Bandaríkjaforseta til sendiherraembætta voru gerðar opinberar á þriðjudag en sendiherraefni fyrir Ísland er ekki á meðal þeirra. Biden tilnefnir meðal annars flughetju sem fulltrúa sinn gagnvar Alþjóðaflugmálastofnuninni. 16.6.2021 12:43
Evrópsk lögregluyfirvöld handtaka 73 í tengslum við mansal Lögregluyfirvöld í Evrópu hafa handtekið 73 einstaklinga fyrir mansal og telja sig hafa fundið 630 möguleg fórnarlömb mansals og misnotkunar af ýmsu tagi. Tuttugu og þrjú ríki tóku þátt í umræddum aðgerðum. 16.6.2021 10:29
Castillo lýsir yfir sigri í Perú Pedro Castillo hefur lýst yfir sigri í forsetakosningum í Perú. Andstæðingur Castillo, Keiko Fujimori, hefur sakað hann um kosningasvindl. 16.6.2021 10:22
Ný mótefnameðferð gegn Covid-19 gefur góða raun Vísindamenn segja nýja mótefnameðferð munu bjarga lífi sex af hverjum hundrað sem fá meðferð vegna alvarlegs sjúkdóms af völdum kórónuveirunnar, SARS-CoV-2. 16.6.2021 08:19
Hófstilltar væntingar um árangur fundar Biden og Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti hittir í dag kollega sinn Vladimír Pútín Rússlandsforseta á fundi í svissnesku borginni Genf. 16.6.2021 07:02
Ísraelsmenn varpa aftur sprengjum á Gasa Ísraelsmenn gerðu loftárás á Gasa-svæðið í kvöld eftir að íkveikjusprengjur voru sendar með blöðrum frá svæðinu til Ísraels. BBC greinir frá þessu. 15.6.2021 23:05
Þrýstu á ráðuneyti að taka undir lygar um kosningasvik Nánustu ráðgjafar Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, þrýstu á æðstu embættismenn í dómsmálaráðuneytinu til að fá þá til að taka undir stoðlausar ásakanir Trump um stórfelld kosningasvik. Þeir kiknuðu þó ekki undan þrýstingnum. 15.6.2021 16:53
Loka á alla flug- og skipaumferð frá Nuuk vegna fimm nýrra smita Fimm hafa greinst með kórónuveiruna í grænlensku höfuðborginni í gærkvöldi og í nótt. Búið er að loka á allt flug frá Nuuk vegna smitanna. 15.6.2021 13:44
Suðurkóreskur dómstóll segir munnmök tveggja karla jaðra við nauðgun Suðurkóreskur herdómstóll hefur dæmt tvo menn í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stundað munnmök. Mennirnir eru sagðir hafa brotið gegn ákvæðum herlaga, sem banna endaþarmsmök og aðrar „ósæmilegar“ athafnir. 15.6.2021 12:13
Uppljóstrari hjá þjóðaröryggisstofnun laus úr fangelsi Ung kona sem vann fyrir Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna og var sakfelld fyrir að leka leynilegum upplýsingum til fjölmiðla árið 2018 er laus úr fangelsi. Lögmaður hennar segir að henni hafi verið sleppt vegna góðrar hegðunar. 15.6.2021 11:07
„Afar ólíklegt“ að Biden fengi að skipa hæstaréttardómara 2024 Mitch McConnell, leiðtogi minnihluta bandarísku öldungadeildarinnar, segir afar ólíklegt að hann myndi gera Joe Biden Bandaríkjaforseta kleift að skipa nýjan hæstaréttardómara árið 2024 ef repúblikanar næðu aftur meirihluta. 15.6.2021 09:00
Erfðabreytt E coli umbreytir plastflöskunum í vanillubragðefni Vísindamönnum hefur tekist að framleiða vanillubragðefni úr endurunnum plastflöskum með aðstoð erfðabreyttra baktería. 15.6.2021 08:08
Tveir til viðbótar smitaðir á Grænlandi Tveir greindust smitaðir af kórónuveirunni í grænlensku höfuðborginni Nuuk í gærkvöldi. Báðir þeir sem smituðust tengjast fyrra hópsmiti í tengslum við verktakafyrirtækið Munck sem stendur að framkvæmdum á flugvellinum í Nuuk. 15.6.2021 08:07
Fresta afléttingum um mánuð Lokaskrefi í afléttingaráætlun Englendinga hefur verið frestað til 19. júlí. Allar samkomutakmarkanir átti að afnema þann 21. júní en vegna bakslags í faraldrinum var tekin ákvörðun um að bíða með það í heilan mánuð. 14.6.2021 20:56
Handtekni blaðamaðurinn birtist opinberlega Hvítrússneski blaðamaðurinn Roman Prótasevits sem var handtekinn um borð í flugvél Ryanair kom fram á blaðamannafundi í fylgd með embættismönnum í dag. Þar neitaði Prótasevits að hafa verið beittur ofbeldi í haldi yfirvalda og lýsti iðrun vegna meintra glæpa sinna. Stjórnarandstaðan telur að hann hafi verið þvingaður til að koma fram opinberlega. 14.6.2021 16:21
Ákærður fyrir hryðjuverk vegna árásarinnar í Ontario Ríkissaksóknari Kanada hefur gefið út ákæru vegna hryðjuverka á hendur tvítugum karlmanni sem drap fernt þegar hann ók vísvitandi á fólkið í Ontario í síðustu viku. Lögregla telur að maðurinn hafi ráðist á fólkið sem tilheyrði allt sömu fjölskyldu vegna þess að það var múslimar. 14.6.2021 15:41
Segir Bandaríkin hafa „helga skyldu“ til að verja Evrópu Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti þátttöku Bandaríkjanna í sameiginlegum vörnum Evrópu, Kanada og Tyrklands sem „helgri skyldu“ þeirra við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í morgun. Lagði hann áherslu á mikilvægi bandalagsins. 14.6.2021 13:40
G7-ríkin héldu að sér höndum um kolabruna Engin ákvörðun var tekin um hvenær bruna á kolum verður alfarið hætt á fundi sjö helstu iðnríkja heims sem lauk í gær. Ríkið sammæltust aðeins um að hætta fjármögnun nýrra kolaorkuvera sem búa ekki yfir tækni til að binda kolefni. 14.6.2021 12:57
NATO kvartar undan Kínverjum sem skjóta til baka á „lítil bandalög“ sem vilja ráða öllu Jens Stoltenberg, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerði aukin umsvif Kínverja að umtalsefni við upphaf leiðtogafundar NATO í Brussel í dag. 14.6.2021 12:52
Maðurinn á bak við „stærstu fjölskyldu heims“ látinn Ziona Chana, maðurinn á bakvið eina stærstu fjölskyldu heims, er látinn. Chana, sem er sagður hafa átt 38 konur, 89 börn og 36 barnabörn, var 76 ára. 14.6.2021 12:27
Suu Kyi dregin fyrir dóm Réttarhöld yfir Aung San Suu Kyi, sem herinn í Búrma steypti af stóli í febrúar, hófust í dag. Mannréttindasamtök telja ákærurnar uppspuna og að herforingjastjórnin vilji ryðja henni úr vegi. 14.6.2021 11:58
Herferð Ortega gegn stjórnarandstöðunni heldur áfram Yfirvöld í Níkaragva handtóku fimm þekkta stjórnarandstæðinga á sunnudaginn í því sem gagnrýnendur Daniels Ortega forseta kalla herferð gegn andstæðingum hans. Fyrrverandi bandamenn Ortega eru á meðal þeirra handteknu. 14.6.2021 10:52
Wasabi krýndur verðugastur voffa á Westminster-hundasýningunni Smáhundurinn Wasabi var krýndur verðugastur allra hunda á Westminster-hundasýningunni í Bandaríkjunum í gær. Um er að ræða virtustu hundasýningu heims og titillinn afar eftirsóttur. 14.6.2021 10:41
Vitorðsmenn í flótta Ghosn játa sig seka Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. 14.6.2021 10:00
Vilja geta bannað ráðherrum að sinna hagsmunagæslu í allt að fimm ár Ein af siðanefndum breska þingsins hefur lagt til að hægt verði að banna ráðherrum að sinna hagsmunagæslu fyrir einkaaðila í allt að fimm ár eftir að þeir hafa hætt í stjórnmálum. 14.6.2021 09:19
Pottaplanta selst á 2,3 milljónir króna Níu blaða pottaplanta seldist í gær á jafnvirði 2,3 milljóna íslenskra króna á nýsjálenskri uppboðssíðu. Um er að ræða dýrustu inniplöntu sem selst hefur á síðunni. 14.6.2021 08:23
Faraldurinn virðist í rénun... í bili Kórónuveirufaraldurinn virðist nú í rénun víðast hvar í Bandaríkjunum en sérfræðingar eru engu að síður uggandi vegna þess hversu margir hyggjast ekki ætla að þiggja bólusetningu. 14.6.2021 07:51
Nýr forsætisráðherra heitir því að sameina þjóðina Nýr forsætisráðherra Ísraels, Naftali Bennett, hét því í sinni fyrstu ræðu að sameina þjóðina eftir fernar kosningar á tveggja ára tímabili. 14.6.2021 07:04
Fresta afléttingu allra aðgerða vegna Delta afbrigðisins Bresk yfirvöld hafa ákveðið að fresta boðuðum tilslökunum vegna kórónufaraldursins um fjórar vikur á Englandi. 14.6.2021 06:35
Samþykktu myndun nýrrar ríkisstjórnar án Netanjahús Ísraelska þingið samþykkti fyrir skemmstu myndun nýrrar ríkisstjórnar undi forystu Naftali Bennett og Jaír Lapíd. Benjamín Netanjahú, sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra Ísraels síðustu tólf ár, er því á leið úr embætti. 13.6.2021 18:25
Attenborough fundar með leiðtogum G7 í dag Náttúruvísinda- og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough mun tala á fundi G7 ríkjanna í dag. Hann hefur þegar biðlað til leiðtoga ríkjanna að grípa til drastískra aðgerða ef forðast á náttúruhamfarir. Ríkin munu ræða umhverfismál á fundi sínum í dag. 13.6.2021 08:56
Örlög Netanjahús ráðast í dag Ísraelska þingið mun greiða atkvæði um nýja ríkisstjórn í dag. Verði ríkisstjórnin samþykkt af meirihluta þingsins markar það endalok 12 ára stjórnartíð Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels. 13.6.2021 08:13
Vonar að Biden verði ekki jafn hvatvís og Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti segist vona að kollegi hans, Joe Biden Bandaríkjaforseti, verði ekki jafn hvatvís og forveri þess síðarnefnda í starfi, Donald Trump. 12.6.2021 20:30
Konur á Spáni mótmæla kynbundnu ofbeldi Konur á Spáni hafa mótmælt á götum úti eftir að lík hinnar sex ára Oliviu fannst á sjávarbotni undan ströndum Tenerife í fyrradag. 12.6.2021 14:42
Minnst 13 særðir eftir skotárás í Texas Minnst 13 særðust í skotárás í miðbæ Austin í Texas í nótt. Skotárásin var gerð í skemmtanahverfi í borginni þar sem mikill mannfjöldi var saman kominn. Enginn dó í árásinni en tveir eru alvarlega særðir. 12.6.2021 13:43
Loftlagsmótmæli við G7 leiðtogafundinn Umhverfisverndarsamtökin Extinction rebellion blésu í gær til fjölmennra mótmæla í Cornwall þar sem leiðtogafundur G7 ríkjanna fer fram um helgina. 12.6.2021 13:06
G7 ríkin mynda bandalag gegn Kína Leiðtogar G7 ríkjanna hafa samþykkt áætlun um að fara í aukna uppbyggingu innviða í þróunarríkjum til þess að stemma stigu við vaxandi áhrif Kína í þróunarríkjum. Joe Biden, Bandaríkjaforseti, lagði þetta til og ber verkefnið yfirskriftina „Byggjum aftur betri heim“ eða Build Back Better World upp á ensku. 12.6.2021 13:03
Johns Snorra minnst á toppi Everest Fjallagöngugarpurinn Colin O'Brady hélt í gær tilfinningaþrungna minningarathöfn til heiðurs fallinna félaga sinna. 12.6.2021 10:08
„Guð minn góður, ég er í gini hvals“ Bandarískur humarsjómaður lenti í því magnaða atviki að vera gleyptur af Hnúfubaki, sem virðist ekki hafa líkað bragðið og spýtti honum aftur út. Hann slapp vel þrátt fyrir martraðakennda sögu og virðist aðeins hafa farið úr öðrum hnjálið. 12.6.2021 08:39
Lýðræðisbaráttukona leyst úr fangelsi Lýðræðisbaráttukonan Agnes Chow losnaði úr fangelsi í Hong Kong í dag, laugardag, eftir sjö mánuði á bak við lás og slá. Chow var handtekin eftir að hún tók þátt í skipulagningu ósamþykktra mótmæla í borginni árið 2019. 12.6.2021 08:08
Unglingsstúlkan sem tók upp morðið á Floyd fær Pulitzer-verðlaun Unglingsstúlkan sem tók morðið á George Floyd upp á myndband hefur hlotið sérstök blaðamannaverðlaun frá stjórn hinna virtu Pulitzer verðlauna. Darnella Frazier, sem nú er átján ára gömul, hlaut verðlaunin vegna hugrekkisins sem hún sýndi að sögn Pulitzer-nefndarinnar. 12.6.2021 07:38