Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
101 árs humarveiðikempa hvergi nærri hætt Virginia Oliver lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að vera orðin 101 árs gömul og rær enn til humarveiða undan ströndum Maine-ríkis í Bandaríkjunum, ásamt syni sínum, Max að nafni, sem er 78 ára. 16.9.2021 21:58
Piers Morgan til Fox Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan gekk í dag til liðs við Rupert Murdoch og félög hans, News Corp og Fox News Media. Morgan mun framleiða efni þvert á miðla News Corp sem mun birtast um allan heim. 16.9.2021 18:20
Frakkar reiðir og líkja Biden við Trump Ráðamenn í Frakklandi hafa brugðist reiðir við eftir að varnarsamstarf Bandaríkjanna, Ástralíu og Bretlands í Kyrrahafinu var opinberað í gær. Tilkynnt var að Ástralar myndu kaupa átta kjarnorkuknúna kafbáta af Bandaríkjunum en samhliða því slitu yfirvöld í Ástralíu stórum samningi við franskt fyrirtæki um kaup á nýjum flota dísel-kafbáta. 16.9.2021 16:02
Felldu leiðtoga ISIS í Sahel Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að franskir hermenn hafi fellt leiðtoga Íslamska ríkisins í Sahel. Adnan Abu Walid al-Sahrawi var meðal annars eftirsóttur af vesturlöndum vegna mannskæðra árása á bandaríska hermenn og hjálparstarfsmenn. 16.9.2021 11:40
Hafa ekki skotið geimfari hærra en gert var í nótt Starfsmenn SpaceX skutu í nótt fjórum geimförum í um 585 kílómetra hæð yfir jörðu. Þar munu þau verja þremur dögum á braut um jörðina. 16.9.2021 10:54
Duterte hafnar samvinnu í rannsókn á fíkniefnastríði hans Stjórnvöld á Filippseyjum ætla ekki vinna með fulltrúum Alþjóðsakamáladómstólsins (ICC) á hvort að þau hafi framið glæpi gegn mannkyninu í stríði Rodrigo Duterte forseta gegn fíkniefnagengjum. 16.9.2021 08:27
Umsvifamesti miðlari grófs barnaníðsefnis dæmdur í 27 ára fangelsi Eric Eoin Marques, 36 ára, hefur verið dæmdur í 27 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að setja upp og reka vefþjóna sem hýstu 8,5 milljónir mynda og myndskeiða af barnaníð. Þarlend yfirvöld segja Marques umsvifamesta miðlara barnakláms sem sögur fara af. 16.9.2021 07:52
Ekki á réttri leið í losun eftir faraldurinn Ekkert bendir til töluverður samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda í kórónuveirufaraldrinum í fyrra hafi nokkur varanleg áhrif á loftslagsbreytingar á jörðinni. Losun vegna orkuframleiðslu og iðnaðar var þegar orðin jafnmikil eða meiri á fyrri helmingi þessa árs en fyrir faraldurinn. 16.9.2021 07:01
Hafnar orðrómi um ósætti og segir talíbana bundna sterkum böndum Aðstoðarforsætisráðherra talíbana í Afganistan og einn valdamesti maður landsins, Mullah Abdul Ghani Baradar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar algjörlega sögusögnum um mikið ósætti á milli helstu leiðtoga talíbana. 16.9.2021 07:00
Þríhöfða samkomulag til höfuðs Kína á Kyrrahafi Bandaríkin, Bretland og Ástralía tilkynntu í dag þríhliða öryggissamstarf ríkjanna á Indlands- og Kyrrahafi, sem felur meðal annars í sér að Ástralía komi sér upp kjarnorkuknúnum kafbátum á næstu misserum. 15.9.2021 23:55
Blása á bábiljur Nicki Minaj um bóluefni og bólgin eistu Heilbrigðisráðherra Trínidad og Tóbagó er hreint ekki ánægður með bandarísku tónlistarkonuna Nicki Minaj, eftir að hún tísti um að frændi hennar í Trínidad hefð hætt við að láta bólusetja sig vegna þess að vinur hans sagðist vera getulaus eftir bólusetningu gegn Covid-19. Ráðherrann segir ekkert til í sögunni. 15.9.2021 22:56
Það var ég eða hann segir lögreglumaður sem skaut kollega sinn eftir rifrildi Réttarhöld eru hafin yfir kanadískum lögreglumanni sem var skotinn af öðrum lögreglumanni eftir rifrildi þeirra á milli úti á vettvangi. Lögreglumaðurinn sem var skotinn er ákærður fyrir mótþróa við handtöku, líkamsárás með vopni og árás á lögregluþjón. Sá sem skaut segir að um sjálfsvörn hafi verið að ræða. 15.9.2021 22:08
Simone Biles fyrir þingnefnd: Átelur níðinginn og kerfið í heild Fimleikagoðsögnin Simone Biles var ómyrk í máli þegar hún bar vitni fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag. Þar sakaði hún Alríkislögregluna (FBI) og forsvarsmenn bandaríska leikfimisambandsins um að hafa litið framhjá glæpum Larrys Nassar sem misnotaði á fjórða hundrað stúlkna og ungra kvenna kynferðislega, sem liðslæknir bandaríska fimleikalandsliðsins. 15.9.2021 20:12
Netflix-geimskotið: Senda borgara í þriggja daga geimferð Til stendur að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu í kvöld. Starfsmenn SpaceX munu nota Falcon 9 eldflaug til að skjóta Crew Dragon geimfari á loft. Geimfararnir þar um borð verða svo á braut um jörðu í þrjá daga og mun Netflix sýna þætti um geimferðina. 15.9.2021 19:45
Stigmagnandi spenna vegna eldflaugaæfinga á Kóreuskaga Eldflaugatilraunir stjórnvalda í Norður Kóreu hafa valdið vaxandi spennu í samskiptum Kóreuríkjanna. Kínverjar, Japanir og Bandaríkjamenn hafa einnig lýst áhyggjum af þróun mála. 15.9.2021 19:20
Stórslasaðar á gjörgæslu en ekki í lífshættu Eiginmaður konu sem slasaðist alvarlega þegar króna féll úr pálmatré á veitingastað á Tenerife á sunnudaginn segir eiginkonu sína og vinkonu hennar enn á gjörgæslu. Konurnar séu ekki í lífshættu en mikið slasaðar. 15.9.2021 16:38
Johnson hreinsar út úr ráðuneytum Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, gerði í dag talsverðar breytingar á ríkisstjórn sinni. Meðal annars vék hann Dominic Raab úr embætti utanríkisráðherra og gerði hann í staðinn að dómsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra. 15.9.2021 15:14
Málið sem hóf MeToo í Kína fellt niður og umræða þögguð Dómari í Kína felldi í gærkvöldi niður lögsókn Zhou Xiaoxuan gegn vel þekktum sjónvarpsmanni fyrir meint kynferðisbrot. Máli Zhou er sagt hafa leitt til MeToo-hreyfingar í Kína en strax í kjölfar úrskurðarins hófu ritskoðendur internetsins í Kína að fjarlægja færslur þar sem ákvörðunin var gagnrýnd af samfélagsmiðlum. 15.9.2021 14:40
Sagði ekkert „persónulegt“ við hryðjuverkin í París Eini eftirlifandi liðsmaður Ríkis íslams úr hryðjuverkaárásinni í París árið 2015 sagði þau ekki hafa haft neitt persónulegt gegn þeim 130 manns sem þau myrtu. Fyrir dómi í Frakklandi sagði hann hryðjuverkin hafa verið hefnd fyrir loftárásir Frakka í Sýrlandi og Írak. 15.9.2021 12:52
Stórfellt höfrungadráp í Færeyjum vekur reiði Dýraverndunarsinnar beina nú spjótum sínum að Færeyingum sem veiddu hundruð höfrunga um helgina. Rúmlega fjórtán hundruð höfrungum var smalað með bátum upp í fjörur Skálafjarðar á sunnudag þar sem heimamenn slátruðu þeim og skáru. 15.9.2021 11:04
Saksóknari bað um að forsætisráðherra Haítí yrði ákærður og var fljótt rekinn Ríkissaksóknari Haítí var rekinn í skyndi eftir að hann fór fram á að forsætisráðherra landsins yrðu ákærður í tengslum við rannsókn á morði fyrrverandi forseta landsins. Sérfræðingar segja brottreksturinn sjónarspil og að ástandið í Haítí sé ruglingslegt vegna baktjaldamakks. 15.9.2021 09:37
Fjórir handteknir vegna morðs á norðurírskri blaðakonu Lögreglan á Norður-Írlandi handtók fjóra karlmenn í tengslum við morðið á blaðakonunni Lyru McKee í morgun. McKee var skotin til bana þegar hún fylgdist með óeirðum í Londonderry árið 2019. 15.9.2021 09:04
Metfjöldi umsagna um frumvarp sem bannar bælingarmeðferð Metfjöldi umsagna hefur borist um frumvarp stjórnvalda á Nýja-Sjálandi sem bannar svokallaðar bælingarmeðferðir (e. conversion therapy) gegn samkynhneigð. Stuðningsmenn eru vongóðir um að meirihluti umsagnaraðila séu fylgjandi frumvarpinu. 15.9.2021 08:48
Gaf sig fram eftir 29 ár á flótta Maður sem flúði úr áströlsku fangelsi fyrir nærri þrjátíu árum hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hann missti heimili sitt í kjölfar faraldurs kórónuveirunnar. 15.9.2021 08:43
Fremur leiðinleg kosningabarátta og litlausir frambjóðendur Innan við tvær vikur eru nú til kosninga til sambandsþings Þýskalands sem munu leiða í ljós hver verður arftaki Angelu Merkel sem mun senn láta af embætti kanslara eftir um sextán ár í starfi. Stjórnmálafræðiprófessor segir að mörgum þyki kosningabaráttan hafa verið fremur leiðinleg og marga helstu frambjóðendur vera litlausa. 15.9.2021 08:20
Bandarískir háskólar hyggjast rannsaka tengslin milli bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna Rannsakendur við fimm bandarískir háskólar hyggjast nú gera langtíma rannsókn á mögulegum tengslum bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna. Margar konur hafa greint frá breytingum í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19 en enn sem komið er hefur ekki verið sýnt fram á að um orsakasamband sé að ræða. 15.9.2021 08:02
Vetrarbrautin verr blönduð en talið var Samsetning Vetrarbrautarinnar okkar er ekki eins einsleit og vísindamenn hafa talið til þessa. Niðurstöður rannsóknar stjarneðlisfræðings sem nam við Háskóla Íslands benda til þess að endurskoða þurfi líkön um myndun og þróun vetrarbrauta. 15.9.2021 08:00
Norðurkóreumenn sagðir hafa gert tilraun með sprengjuflaug Norðurkóreumenn virðast enn og aftur hafa skotið flugskeytum í tilraunaskyni og nú virðist sem um sprengjuflaug hafi verið að ræða, að sögn yfirvalda í Suður-Kóreu. Undir þetta taka stjórnvöld í Japan. 15.9.2021 07:11
Newsom stendur af sér áhlaupið í Kaliforníu Repúblikönum í Kalíforníu hefur mistekist að hrekja ríkisstjórann Gavin Newsom úr embætti. Kosið var í ríkinu um hvort Newsom ætti að víkja en mikill meirihluti þáttakenda í kjörinu var á því að Newsom ætti að sitja áfram. 15.9.2021 06:51
Hitti móður sína aftur eftir 14 ára aðskilnað Ung kona frá Flórída í Bandaríkjunum hitti móður sína í gær, í fyrsta sinn í 14 ár. Faðir hennar er sagður hafa rænt henni og farið með hana til Mexíkó árið 2007. Hún hafði samband við móður sína í gegnum Facebook á dögunum. 14.9.2021 22:12
Leiðtogar Talibana sagðir hafa hnakkrifist í forsetahöllinni Leiðtogar Talibana eru sagðir hafa hnakkrifist yfir því hvernig ný bráðabirgðaríkisstjórn þeirra í Afganistan er skipuð. Hávaðarifrildi er sagt hafa brotist út í forsetahöllinni í Kabúl. 14.9.2021 21:01
Grínistinn Norm MacDonald látinn Kanadíski grínistinn Norm MacDonald er látinn eftir níu ára glímu við krabbamein. McDonald var 61 árs gamall. Hann er helst þekktur fyrir árin sem hann var hluti af leikaraliði Saturday Night Live, auk þess sem hann var mikilsvirtur uppistandari. 14.9.2021 18:58
Urðu undir hundruð kílóa trjátoppi á meðan þær skoðuðu matseðilinn Ein íslensku kvennanna sem varð undir hluta af pálmatré á spænsku eyjunni Tenerife segir að toppur trésins hafi hrunið fyrirvaralaust á þær á meðan þær skoðuðu matseðilinn. Tvær þeirra liggja nú á gjörgæslu. 14.9.2021 15:21
Kínverskir námsmenn reiðir yfir því að vera bendlaðir við njósnir Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa meinað hundruðum kínverskra nemenda um vegabréfsáritun eða rift þeim að undanförnu. Það hefur verið gert á grundvelli stefnu frá stjórnartíð Donalds Trump, fyrrverandi forseta, sem ætlað var að gera Kínverjum erfiðara að stunda njósnir í Bandaríkjunum. 14.9.2021 14:41
Pútín einangrar sig vegna smitaðra í hans innsta hring Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur ákveðið að einangra sig eftir að fólk í hans innsta hring greindist með Covid-19. Forsetinn ku vera við góða heilsu en hann hefur fengið tvo skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V. 14.9.2021 10:04
Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra. 14.9.2021 09:14
Lögmaður Andrésar segir samkomulag Giuffre og Epstein fría prinsinn ábyrgð Lögmaður Andrésar, hertogans af York, segir kæru Virginiu Giuffre á hendur prinsinum rakalausa og óframfylgjanlega. Hann segir sátt Giuffre við Jeffrey Epstein leysa Andrés undan allri ábyrgð og þá hafi honum ekki verið birt stefna með réttum hætti. 14.9.2021 09:13
Móðir breska forsætisráðherrans látin Charlotte Johnson Wahl, móðir breska forsætisráðherrans Boris Johnson, er látin, 79 ára að aldri. 14.9.2021 08:51
Fjöldi daga þar sem hitinn nær 50 gráðum hefur tvöfaldast Fjöldi þeirra daga þar sem hitastigið nær 50 gráðum eða meira einhversstaðar á jörðinni hefur tvöfaldast frá 9. áratugi síðustu aldar. Þetta sýnir ný rannsókn sem breska ríkisútvarpið lét vinna á heimsvísu. 14.9.2021 06:41
Tíu ára fangelsi fyrir að sprauta ókunnuga konu með sæði Thomas Stemen var í síðustu viku dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að ráðast á konu í matvöruverslun í fyrra og sprauta sæði í hana. Stemen stakk Katie Peters í rassinn með sprautu sem innihélt sæði úr honum og sprautaði í hana. 13.9.2021 23:30
Handtekinn með sveðju og byssusting nálægt þinghúsinu Lögreglan í þinghúsi Bandaríkjanna handtók í dag mann sem var með fjölda hnífa í bíl sínum. Hann var með ýmis pólitísk tákn máluð á bíl sinn, sem sum teljast til haturstákna. 13.9.2021 23:11
Sigurreifur Gahr Støre: „Við getum loksins sagt að okkur tókst það“ Jonas Gahr Støre, formaður norska Verkamannaflokksins, var sigurreifur er hann ávarpaði flokksmenn sína eftir að ljóst var að vinstri blokkin í norskum stjórnmálum hafði unnið sigur í norsku þingkosningunum í kvöld. Erna Solberg forsætisráðherra og formaður Íhaldsflokksins hefur viðurkennt ósigur. 13.9.2021 22:40
Breska leikkonan fannst heil á húfi Breska leikkonan Tanya Fear er fundin, heil á húfi. Lögreglan í Los Angeles mun ekki aðhafast meira vegna málsins. 13.9.2021 21:02
Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13.9.2021 20:09
Fyrstu tölur benda til þess að átta ára valdatíð Solberg sé á enda Fyrstu tölur í þingkosningunum í Noregi benda til þess að Verkamannaflokkur Jonasar Gahr Støre verði stærsti flokkurinn á þingi. Útlit er fyrir að ríkisstjórn Ernu Solbergs forsætisráðherra muni falla. 13.9.2021 19:33