Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20.9.2021 10:21
Hraunstraumurinn gleypir fjölmörg hús á La Palma Yfirvöld á Kanaríeyjum segja að um fimm þúsund manns, þar af fimm hundruð ferðamenn, þurft að flýja heimili sín og dvalarstaði vegna eldgossins á La Palma. Talið er að um eitt hundrað hús hafi þegar eyðilagst í eldgosinu. 20.9.2021 10:19
Býflugur drápu 63 mörgæsir Krufning á 63 mörgæsum sem fundust dauðar í Simon's Town, nærri Höfðaborg í Suður-Afríku, hefur leitt í ljós að þær létust af völdum býflugnastunga. Sérfræðingar segja um ólíkindaviðburð að ræða. 20.9.2021 10:10
Átta féllu í skotárás í rússneskum háskóla Byssumaður skaut átta til bana og særði marga til viðbótar í háskóla í rússnesku borginni Perm í morgun. Að sögn innanríkisráðuneytis landsins er árásarmaðurinn í haldi en talsmaður skólans segir að hann hafi verið felldur. 20.9.2021 08:56
Pútín vinnur öruggan sigur en mikið rætt um kosningasvindl Flokkur Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, Sameinað Rússland, virðist öruggur með þægilega sigur í þingkosningunum sem fram fóru um helgina þar í landi. 20.9.2021 06:52
Þingsætum flokks Pútíns fækkar miðað við fyrstu tölur Þegar tíu prósent atkvæða í rússnesku þingkosningunum hafa verið talin er Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútín, með 38 prósent atkvæða. Í síðustu kosningum hlaut flokkurinn 54 prósent atkvæða. 19.9.2021 21:35
Eldgos hafið á La Palma Eldgos er hafið á La Palma á Kanaríeyjum. Reykjarsúlur stigu upp til himins klukkan korter yfir þrjú á staðartíma í fjallinu Rajada, nálægt Cabeza de Vaca í Cumbre Vieja þjóðgarðinum á suðurhluta eyjunnar. 19.9.2021 14:40
Sakar Ástrala og Bandaríkjamenn um tvífeldni og lygar Franski utanríkisráðherrann hefur lýst yfir neyðarástandi í samskiptum Frakklands við Ástralíu og Bandaríkin vegna ákvörðunar Ástrala um að rifta skyndilega samkomulagi um kaup á frönskum kafbátum. Frakkar kölluðu sendiherra sína í ríkjunum heim á föstudag. 19.9.2021 14:04
Danski þjóðarflokkurinn: Pia Kjærsgaard útilokar ekki endurkomu í formannsstólinn Pia Kjærsgaard, fyrrverandi formaður Danska þjóðarflokksins, útilokar ekki að hún muni aftur gera tilkall til forystu flokksins, batni pólitískt gengi hans ekki á næstunni. 19.9.2021 11:31
Vildi sýna að venjulegt fólk gæti farið út í geim Fjórir almennir borgarar sem skotið var á braut um jörðu á miðvikudag sneru aftur heilu og höldnu í nótt þegar SpaceX Crew Dragon geimfar þeirra lenti á sjó nærri strönd Flórída. 19.9.2021 10:01
Fámennt og tíðindalítið á mótmælunum í Washington Svo fór sem margan grunaði að mótmælin í Washingtonborg í gær voru fámenn og tíðindalítil. 19.9.2021 09:59
Fyrrverandi forseti Alsír er allur Tilkynnt var um andlát Abdelaziz Bouteflika, fyrrverandi forseta Alsír, í gær. Hann varð 84 ára gamall og gegndi embætti forseta í tvo áratugi, frá 1999 til 2019. 18.9.2021 23:31
Norskur ráðherra: Segir af sér vegna skattaklandurs Kjell Ingolf Ropstad, barna-. fjölskyldu og kirkjumálaráðherra og formaður Kristilega þjóðarflokksins (KrF) í Noregi, sagði af sér á blaðamannafundi í morgun eftir að fjölmiðlar höfðu flett ofan af skattamisferli hans. 18.9.2021 13:24
Þinghúsið girt af vegna fyrirhugaðra mótmæla í dag Mikill viðbúnaður er við þinghús Bandaríkjanna í Washington vegna fyrirhugaðrar samkomu í dag til stuðning þeirra sem sæta rannsókn og gæsluvarðhaldi vegna óeirðanna hinn 6. janúar sl. 18.9.2021 12:09
Stúlkum bannað að sækja miðskóla í Afganistan Stjórn Talibana í Afganistan tilkynnti í gær að miðskólar yrðu opnaðir á ný eftir mánaðarlangt hlé. Hvergi er minnst á stúlkur í yfirlýsingunni og er talið að stjórnarliðar vilji þar með banna stelpum að sækja miðskóla í landinu. 18.9.2021 12:00
Auðkýfingurinn Robert Durst sakfelldur fyrir að myrða bestu vinkonu sína Robert Durst, sem er 78 ára gamall, var í dag sakfelldur fyrir að myrða Susan Berman árið 2000. Meðal sönnunargagna í málinu var atriði úr heimildarþætti um hann þar sem hann heyrðist segja „Þarna kom það. Þeir náðu þér.“ 17.9.2021 23:57
Bandaríkjaher játar mistök vegna drónaárásar í Kabúl Þann 29. ágúst síðastliðinn framkvæmdi Bandaríkjaher drónaárás í Kabúl sem grandaði tíu almennum borgurum, þar af sjö börnum úr sömu fjölskyldu. Hershöfðinginn Kenneth McKenzie sagði á upplýsingafundi í dag að hann telji nú að þau sem létust í árásinni hafi ekki tengst Ríki Íslams né verið hættuleg hermönnum á flugvellinum í Kabúl. 17.9.2021 23:17
Ásakandi Andrésar getur birt honum stefnu vestra Dómari í New York í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu að kona sem sakar Andrés prins um að hafa níðst á sér þegar hún var undir lögaldri geti birt honum stefnu þar vestra. Lögmenn Andrésar reyna að þræta fyrir að honum hafi verið birt stefna konunnar í Bretlandi á lögmætan hátt. 17.9.2021 15:01
Réttarhöld hafin í milljóna króna skaðabótamáli vegna Ischgl Réttarhöld hófust í dag í Vín þar sem til skoðunar er hve seint austurrísk yfirvöld brögðust við útbreiðslu kórónuveirunnar í skíðabæjum á borð við Ischgl. Málshefjendur segja hæg viðbrögð hafa orðið til þess að fjöldi fólks fékk Covid-19 og lét í sumum tilfellum lífið. 17.9.2021 14:09
Breyta reglunum vegna fjörugs ástarlífs Madsen í fangelsi Dönsk stjórnvöld hyggjast banna sakamönnum sem sitja í lífstíðarfangelsi að hefja ný ástarsambönd á meðan þeir dúsa í fangelsi. Frumvarp þess efnis var lagt fram eftir að í ljós kom að sautján ára gömul stúlka féll fyrir Peter Madsen, morðingja blaðakonunnar Kim Wall, þrátt fyrir að hann væri í fangelsi. 17.9.2021 13:07
Hættir á þingi og segir „eitraða hreyfingu“ innan Repúblikanaflokksins Fulltrúardeildarþingmaður Repúblikanaflokksins sem greiddi atkvæði með því að kæra Donald Trump fyrir embættisbrot í vetur ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Hann vísar meðal annars til „eitraðrar hreyfingar“ innan Repúblikanaflokksins. 17.9.2021 11:54
Stjóri gjaldeyrissjóðsins í klandri vegna þjónkunar við Kína Fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans og núverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er talinn hafa sett óeðlilegan þrýsting á starfsmenn bankans um að fegra stöðu Kína á lista um hvar er best að stunda viðskipti í heiminum. 17.9.2021 10:05
Allir á vinnumarkaði verða að framvísa „grænum passa“ Allir einstaklingar á vinnumarkaði á Ítalíu verða að sýna fram á bólusetningu, neikvætt Covid-próf eða vottorð um fyrri sýkingu til að mega mæta til vinnu. Um er að ræða einar hörðustu reglur sinnar tegundar í heiminum. 17.9.2021 09:10
Tæknirisar láta undan þrýstingi Kremlverja og fjarlægja kosningaforrit Bæði Google og Apple, tvö af stærstu tæknifyrirtækjum heims, hafa orðið við kröfum rússneskra stjórnvalda og fjarlægt snjallforrit Alexeis Navalní sem átti að hjálpa kjósendum að finna frambjóðendur til að kjósa sem gætu skákað stjórnarflokki Pútín forseta. 17.9.2021 08:53
Litlar líkur á breytingum þegar Rússar ganga að kjörborðinu Rússar ganga að kjörborðinu í dag þar sem kosið verður um 450 sæti á rússneska þinginu, Dúmunni. Allar líkur eru á að stjórnarflokkurinn Sameinað Rússland muni þar vinna sigur, þó að flokkurinn hafi aldrei mælst minni í könnunum. 17.9.2021 08:33
Hyggjast vefja „hershöfðingjann“ í eldvarnateppi Slökkviliðsmenn í Kalíforníu hafa brugðið á það ráð að vefja stærsta tré heims inn í eldvarnateppi til að freista þess að forða því frá skógareldum sem geisa í nágrenninu. 17.9.2021 06:55
Færeysk fiskeldisfyrirtæki fordæma leiftursdrápin Havbúnaðarfelagið, samtök stærstu fiskeldisfyrirtækja Færeyja fordæmdi stórfellt dráp á leiftrum, hvölum af ætt höfrunga, sem átti sér stað í Skálafirði um síðustu helgi. Þar voru 1.428 dýr drepin. Atburðurinn hefur vakið mikla reiði utanlands sem innan, en landsstjórnin í Færeyjum hyggst taka reglur um höfrungaveiðar til gagngerrar endurskoðunar. 16.9.2021 23:54
Norður-Kórea kynnti færanlegan lestarskotpall Spenna fer vaxandi á Kóreu-skaga eftir að bæði Suður- og Norður-Kórea hafa sýnt mátt sinn með því að skjóta eldflaugum á loft. Myndband sýnir að Norður-Kórea hefur nú þróað færanlegan eldflaugaskotpall. Elflaugunum er skotið af lestarvagni. 16.9.2021 23:30
101 árs humarveiðikempa hvergi nærri hætt Virginia Oliver lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að vera orðin 101 árs gömul og rær enn til humarveiða undan ströndum Maine-ríkis í Bandaríkjunum, ásamt syni sínum, Max að nafni, sem er 78 ára. 16.9.2021 21:58
Piers Morgan til Fox Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan gekk í dag til liðs við Rupert Murdoch og félög hans, News Corp og Fox News Media. Morgan mun framleiða efni þvert á miðla News Corp sem mun birtast um allan heim. 16.9.2021 18:20
Frakkar reiðir og líkja Biden við Trump Ráðamenn í Frakklandi hafa brugðist reiðir við eftir að varnarsamstarf Bandaríkjanna, Ástralíu og Bretlands í Kyrrahafinu var opinberað í gær. Tilkynnt var að Ástralar myndu kaupa átta kjarnorkuknúna kafbáta af Bandaríkjunum en samhliða því slitu yfirvöld í Ástralíu stórum samningi við franskt fyrirtæki um kaup á nýjum flota dísel-kafbáta. 16.9.2021 16:02
Felldu leiðtoga ISIS í Sahel Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að franskir hermenn hafi fellt leiðtoga Íslamska ríkisins í Sahel. Adnan Abu Walid al-Sahrawi var meðal annars eftirsóttur af vesturlöndum vegna mannskæðra árása á bandaríska hermenn og hjálparstarfsmenn. 16.9.2021 11:40
Hafa ekki skotið geimfari hærra en gert var í nótt Starfsmenn SpaceX skutu í nótt fjórum geimförum í um 585 kílómetra hæð yfir jörðu. Þar munu þau verja þremur dögum á braut um jörðina. 16.9.2021 10:54
Duterte hafnar samvinnu í rannsókn á fíkniefnastríði hans Stjórnvöld á Filippseyjum ætla ekki vinna með fulltrúum Alþjóðsakamáladómstólsins (ICC) á hvort að þau hafi framið glæpi gegn mannkyninu í stríði Rodrigo Duterte forseta gegn fíkniefnagengjum. 16.9.2021 08:27
Umsvifamesti miðlari grófs barnaníðsefnis dæmdur í 27 ára fangelsi Eric Eoin Marques, 36 ára, hefur verið dæmdur í 27 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að setja upp og reka vefþjóna sem hýstu 8,5 milljónir mynda og myndskeiða af barnaníð. Þarlend yfirvöld segja Marques umsvifamesta miðlara barnakláms sem sögur fara af. 16.9.2021 07:52
Ekki á réttri leið í losun eftir faraldurinn Ekkert bendir til töluverður samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda í kórónuveirufaraldrinum í fyrra hafi nokkur varanleg áhrif á loftslagsbreytingar á jörðinni. Losun vegna orkuframleiðslu og iðnaðar var þegar orðin jafnmikil eða meiri á fyrri helmingi þessa árs en fyrir faraldurinn. 16.9.2021 07:01
Hafnar orðrómi um ósætti og segir talíbana bundna sterkum böndum Aðstoðarforsætisráðherra talíbana í Afganistan og einn valdamesti maður landsins, Mullah Abdul Ghani Baradar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar algjörlega sögusögnum um mikið ósætti á milli helstu leiðtoga talíbana. 16.9.2021 07:00
Þríhöfða samkomulag til höfuðs Kína á Kyrrahafi Bandaríkin, Bretland og Ástralía tilkynntu í dag þríhliða öryggissamstarf ríkjanna á Indlands- og Kyrrahafi, sem felur meðal annars í sér að Ástralía komi sér upp kjarnorkuknúnum kafbátum á næstu misserum. 15.9.2021 23:55
Blása á bábiljur Nicki Minaj um bóluefni og bólgin eistu Heilbrigðisráðherra Trínidad og Tóbagó er hreint ekki ánægður með bandarísku tónlistarkonuna Nicki Minaj, eftir að hún tísti um að frændi hennar í Trínidad hefð hætt við að láta bólusetja sig vegna þess að vinur hans sagðist vera getulaus eftir bólusetningu gegn Covid-19. Ráðherrann segir ekkert til í sögunni. 15.9.2021 22:56
Það var ég eða hann segir lögreglumaður sem skaut kollega sinn eftir rifrildi Réttarhöld eru hafin yfir kanadískum lögreglumanni sem var skotinn af öðrum lögreglumanni eftir rifrildi þeirra á milli úti á vettvangi. Lögreglumaðurinn sem var skotinn er ákærður fyrir mótþróa við handtöku, líkamsárás með vopni og árás á lögregluþjón. Sá sem skaut segir að um sjálfsvörn hafi verið að ræða. 15.9.2021 22:08
Simone Biles fyrir þingnefnd: Átelur níðinginn og kerfið í heild Fimleikagoðsögnin Simone Biles var ómyrk í máli þegar hún bar vitni fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag. Þar sakaði hún Alríkislögregluna (FBI) og forsvarsmenn bandaríska leikfimisambandsins um að hafa litið framhjá glæpum Larrys Nassar sem misnotaði á fjórða hundrað stúlkna og ungra kvenna kynferðislega, sem liðslæknir bandaríska fimleikalandsliðsins. 15.9.2021 20:12
Netflix-geimskotið: Senda borgara í þriggja daga geimferð Til stendur að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu í kvöld. Starfsmenn SpaceX munu nota Falcon 9 eldflaug til að skjóta Crew Dragon geimfari á loft. Geimfararnir þar um borð verða svo á braut um jörðu í þrjá daga og mun Netflix sýna þætti um geimferðina. 15.9.2021 19:45
Stigmagnandi spenna vegna eldflaugaæfinga á Kóreuskaga Eldflaugatilraunir stjórnvalda í Norður Kóreu hafa valdið vaxandi spennu í samskiptum Kóreuríkjanna. Kínverjar, Japanir og Bandaríkjamenn hafa einnig lýst áhyggjum af þróun mála. 15.9.2021 19:20
Stórslasaðar á gjörgæslu en ekki í lífshættu Eiginmaður konu sem slasaðist alvarlega þegar króna féll úr pálmatré á veitingastað á Tenerife á sunnudaginn segir eiginkonu sína og vinkonu hennar enn á gjörgæslu. Konurnar séu ekki í lífshættu en mikið slasaðar. 15.9.2021 16:38
Johnson hreinsar út úr ráðuneytum Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, gerði í dag talsverðar breytingar á ríkisstjórn sinni. Meðal annars vék hann Dominic Raab úr embætti utanríkisráðherra og gerði hann í staðinn að dómsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra. 15.9.2021 15:14