Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
NASA deildi óhugnanlegri hljóðupptöku af svartholi NASA deildi síðastliðinn sunnudag hljóðupptöku af svartholi úr miðju Perseusar-stjörnuþokuklasanum sem er meira en tvö hundruð milljón ljósár frá jörðinni. 23.8.2022 09:02
Níu ára stúlka skotin til bana í Liverpool Níu ára stúlka var skotin til bana í íbúð í ensku borginni Liverpool í gær. Auk stúlkunnar urðu karl og kona í íbúðinni einnig fyrir skotum og voru þau flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, en árásarmannsins er leitað. 23.8.2022 07:52
Google lokar á föður sem tók myndir af syni sínum til að senda lækni Netrisinn Google hefur neitað að opna aftur fyrir aðgang manns sem lokað var á eftir að hann tók myndir af kynfærum sonar síns til að fylgjast með bólgu sem var að angra hann. 23.8.2022 07:48
Yfirmenn ungversku Veðurstofunnar reknir vegna rangrar veðurspár Tveir æðstu yfirmenn ungversku Veðurstofunnar hafa verið reknir eftir að veðurspá stofnunarinnar gekk ekki eftir. 23.8.2022 07:35
Trump vill að þriðji aðili fari yfir gögnin úr húsleitinni Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur höfðað mál vegna húsleitarinnar í Mar-a-Lago, sveitarklúbbinum í Flórída þar sem Trump býr. Hann vill að utanaðkomandi aðili verði fenginn til að fara yfir gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á í húsleitinni. 22.8.2022 23:36
Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb. 22.8.2022 22:17
Segja morðingjann hafa verið með tólf ára dóttur sinni Ráðamenn í Rússlandi saka leyniþjónustu Úkraínu um að bera ábyrgð á því að rússnesk kona dó í bílasprengju nærri Moskvu um helgina. Úkraínsk kona er sögð hafa gert árásina og flúið til Eistlands. Yfirlýsingar Rússa hafa mætt miklum efasemdum. 22.8.2022 22:00
Sprengja fannst í miðborg Stokkhólms í gær Lögreglan í Stokkhólmi hefur staðfest að sprengja fannst í bakpoka í Kungsträdgården í miðborg Stokkhólms í gær. Sprengjusveit tókst að gera sprengjuna óvirka á vettvangi. 22.8.2022 18:04
Fauci fetar í fótspor Þórólfs Sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna, Anthony Fauci mun láta af störfum í desember á þessu ári. Fauci mun því feta í fótspor kollega síns, Þórólfs Guðnasonar, sem lætur af störfum sem sóttvarnarlæknir hér á landi í byrjun september. Báðir hafa þeir háð hetjulega baráttu við veiruna skæðu. 22.8.2022 16:19
Sanna sannar að hún hafi ekki tekið eiturlyf Niðurstöður úr fíkniefnaprófi sem Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, tók fyrir helgi sýna að hún hafi ekki tekið nein eiturlyf síðustu daga. 22.8.2022 15:09
Lögreglumenn létu höggin dynja á manni sem þeir héldu niðri Tveir lögreglumenn hafa verið sendir í leyfi eftir að myndband af þeim að kýla og sparka í mann sem þeir héldu niðri fór í dreifingu á samfélagsmiðlum. 22.8.2022 14:29
Herskip, Búddastyttur og ýmsar fornminjar komið í ljós vegna þurrka Hitabylgjur og þurrkar um Evrópu og í Kína hafa leitt til þess að vatnsborð í ám og stöðuvötnum hefur lækkað gríðarlega. Við það hafa ýmsar gersemar, sem áður voru á bólakafi, komið í ljós. Þar á meðal forsögulegir spænskir bautasteinar, kínverskar búddastyttur og fornminjar úr seinni heimsstyrjöldinni. 22.8.2022 13:01
Útilokar friðarviðræður og segir langt stríð framundan Gennady Gatilov, fastafulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, segir beinar viðræður milli Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Vólódimírs Selenskís Úkraínuforseta ekki koma til greina. 22.8.2022 12:18
Konur dansa til stuðnings Sönnu Myllumerkið #SolidarityWithSanna, lauslega þýtt sem samstaða með Sönnu, hefur slegið í gegn á Twitter í kjölfar þess að myndbönd af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, dansa láku á netið. Undir myllumerkinu hafa konur byrjað að birta myndbönd af sér að dansa til stuðnings við forsætisráðherrann. 22.8.2022 11:31
Telja sig hafa fundið móður barnanna í ferðatöskunum Lögreglan í Seúl í Suður-Kóreu telur sig hafa fundið móður barnanna sem fundust látin í ferðatöskum í borginni Auckland í Nýja-Sjálandi í síðustu viku. Við krufningu kom í ljós að börnin voru á aldursbilinu fimm til tíu ára. 22.8.2022 10:47
Krókódíll synti meðfram brú með lík í kjaftinum Gestum Carpintero-lónsins í Mexíkó brá í brún þegar krókódíll synti meðfram og undir göngubrú með lík í kjaftinum. Stranglega bannað er fyrir fólk að synda í lóninu vegna fjölda krókódíla sem búa þar. 22.8.2022 09:01
Rauðpanda kom eins og kraftaverk í heiminn mánuði eftir dauða föðurins Fæðingu rauðpöndu í dýragarði í Bretlandi í síðasta mánuði hefur verið lýst sem kraftaverki. Bæði vegna þess að rauðpöndur eru í útrýmingarhættu og af því að faðir dýrsins lést fyrir mánuði síðan eftir margra ára æxlunarátak dýragarðsins. 22.8.2022 09:00
Svíþjóðardemókratar mælast stærri en Moderaterna Fylgi Svíþjóðardemókrata mælist umtalsvert meira en hægriflokksins Moderaterna í nýrri könnun, nú þegar um þrjár vikur eru til þingkosninga í Svíþjóð. Jafnaðarmannaflokkurinn, undir stjórn forsætisráðherrans Magdalenu Andersson, mælist sem fyrr stærstur. 22.8.2022 08:22
Ætla að þvinga rigningu úr skýjum í von um að bjarga uppskerum Yfirvöld í Kína hyggjast framkalla rigningu með því að sá efnum í ský til að vernda kornuppskeru landsins. Sumarið í ár er það heitasta og þurrasta frá því mælingar hófust í Kína fyrir 61 ári. Vegna þess hafa uppskerur visnað og uppistöðulón eru helmingi vatnsminni en venjulega. 22.8.2022 07:52
Evrópusambandið ætlar að hefta aukin áhrif Kína og Rússlands í S-Ameríku Evrópusambandið ætlar að ráðast í herferð til að bæta stöðu sína á meðal ríkja Suður-Ameríku. Sambandið þykir hafa vanrækt ríki álfunnar á sama tíma og Rússland og Kína hafa styrkt stöðu sína. 22.8.2022 07:00
Khan ákærður á grundvelli hryðjuverkalaga Lögregla í Pakistan hefur ákært fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Imran Khan, á grundvelli hryðjuverkalaga. 22.8.2022 06:18
Afnema lög sem banna kynlíf milli karlmanna Stjórnvöld í Singapúr munu afnema bann við kynlífi milli karlmanna. Hinsegin samfélagið fagnar ákvörðuninni sem sigri mannréttinda en lögin voru sett þegar Singapúr laut nýlendustjórn Breta. 21.8.2022 23:18
Ætlar til Rússlands til að krefjast lausnar Griner Körfuboltamaðurinn fyrrverandi Dennis Rodman kveðst hafa fengið leyfi til þess að ferðast til Rússlands í þeim tilgangi að krefjast lausnar annarrar körfuboltastjörnu, Brittney Griner, úr fangelsi. 21.8.2022 21:06
Sómalski herinn batt enda á umsátur um hótel í Mogadishu Yfirvöld í Sómalíu bundu í gærkvöldi enda á blóðuga árás á hótel í höfuðborginni Mogadishu. Talið er að um tuttugu manns hafi verið drepnir þegar árásarmenn réðust inn í Hayat hótel og héldu gestum þess í gíslingu í meira en þrjátíu klukkustundir. 21.8.2022 08:40
Dóttir „heila Pútíns“ talin hafa látist í bílasprengju Öflug bílasprenging varð í nágrenni Moskvu í kvöld með þeim afleiðingum að ökumaður bílsins lést. Talið er að ökumaðurinn hafi verið Daria Dugina, þrítug dóttir hins umdeilda heimspekings Alexanders Dugin. Myndband af vettvangi sýnir Dugin í miklu áfalli. 20.8.2022 23:53
Rússar og Úkraínumaður reyndu að brjótast inn í vopnaverksmiðju í Albaníu Tveir rússneskir ríkisborgarar og einn Úkraínumaður voru handteknir í vopnaverksmiðju í Gramsh í Albaníu í kvöld eftir að hafa reynt að brjótast þangað inn. 20.8.2022 21:41
Minnst 32 létust þegar ekið var inn á vettvang tveggja slysa Sextán eru látnir og 21 slasaður eftir að rútu var ekið inn á vettvang fyrra umferðarslyss í Tyrklandi í dag. Meðal látinna eru slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn og fréttamenn sem sendir höfðu verið á vettvang. Fyrr í dag létust aðrir sextán og 29 slösuðust í sambærilegu atviki í Tyrklandi 20.8.2022 19:19
Snekkja ólígarka boðin upp Yfirvöld í Gíbraltar haldlögðu snekkjuna Axioma, sem er í eigu rússneska ólígarkans Dmitrievich Pumpyansky, í mars síðastliðnum. Nú stendur til að bjóða hana upp á þriðjudaginn. 20.8.2022 18:49
Placido Domingo viðriðinn mansalshring í Argentínu Argentínska lögreglan hefur handtekið rúmlega 20 manns sem eru grunaðir um að reka mansalshring, sem rændi konur aleigu þeirra og seldi þær í vændi. Fullyrt er að spænski óperusöngvarinn Placido Domingo sé á meðal viðskiptavina samtakanna. 20.8.2022 14:31
Sá sem var drepinn í skotárásinni í Malmö hátt settur í glæpagengi Karlmaður sem lést í skotárás í verslunarmiðstöð í Malmö í gær er talinn hafa verið skotmark árásarinnar. Samkvæmt sænskum miðlum er maðurinn mikilvægur í glæpagenginu Satudarah. 20.8.2022 11:35
Minnst tólf hafa verið myrtir í gíslatöku á hóteli Minnst tólf hafa verið drepnir af gíslatökumönnum á hóteli í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Árásarmennirnir eru sagðir tengjast hryðjuverkahópnum al Qaeda en þeir hafa haldið hótelgestum í gíslingu í meira en tuttugu klukkustundir. 20.8.2022 10:47
Telja manninn sem lést hafa verið skotmark árásarmannsins Kona sem liggur þungt haldin á sjúkrahúsi í Malmö eftir að hafa verið skotin í verslunarmiðstöðinni Emporia í gær var almennur vegfarandi að sögn lögreglu. Konan er enn á sjúkrahúsi en ástand hennar sagt stöðugt og hún ekki lengur talin í lífshættu. Maður sem lést af sárum sínum í gær er talinn hafa verið skotmark árásarmannsins. 20.8.2022 09:41
Fyrrverandi ríkissaksóknari Mexíkó handtekinn vegna hvarfs stúdenta Fyrrverandi ríkissaksóknari Mexíkó hefur verið handtekinn í tengslum við hvarf 43 stúdenta árið 2014. Saksóknarinn er sakaður um mannrán, pyntingar og að hafa hindrað framgang réttvísinnar. 20.8.2022 09:17
Draumadrengur bandarísks fjármálaheims sakaður um kynferðisofbeldi Dan Price forstjóri Gravity Payments í Bandaríkjunum hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Price hefur lengi vel verið andlit hins andkapítalíska forstjóra í bandarísku samfélagi og vinsæll meðal margra. Hann hefur nú stigið til hliðar vegna ásakana um kynferðisofbeldi. 20.8.2022 08:06
Einn Bítla ISIS dæmdur í lífstíðarfangelsi El Shafee Elsheikh var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum fyrir að hafa komið að dauða fjögurra bandarískra gísla. Hann var hluti alræmds hóps vígamanna Íslamska ríkisins sem gekk undir nafninu Bítlarnir. 19.8.2022 22:15
Ætla að grafa hægt og rólega undan Rússum Dregið hefur úr stórskotaliðsárásum Rússa í suðurhluta Úkraínu samhliða auknum árásum Úkraínumanna á skotfærageymslur, birgðastöðvar, brýr og aðra innviði á Krímskaga og í suðurhluta Kherson. Her Úkraínu virðist hafa breytt um stefnu og vinnur nú með langvarandi átök í huga. 19.8.2022 21:47
Einn er látinn eftir skotárásina Karlmaður lést af sárum sínum sem hann hlaut þegar árásarmaður, sem sagður er vera aðeins fimmtán ára gamall, hóf skothríð í verslunarmiðstöð í Malmö síðdegis. 19.8.2022 20:30
Flugmenn sofnuðu og gleymdu að lenda Tveir flugmenn þotu flugfélagsins Ethiopia Airlines sofnuðu og gleymdu að lenda þotunni á flugvellinum í Addis Ababa í Eþíópíu á dögunum. 19.8.2022 20:06
Tveir alvarlega særðir eftir skotárás í miðbæ Malmö Lögreglan í Malmö var með mikinn viðbúnað við verslunarmiðstöðina Emporia, eftir að tilkynning barst um vopnaðan mann þar síðdegis. 19.8.2022 15:40
Nýju myndbandi af Sönnu Marin lekið Nýju myndbandi af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur verið lekið á netið. Í myndbandinu sést hún dansa þétt upp við finnsku rokkstjörnuna Olavi Uusivirta. Talið er að myndbandið hafi verið tekið sama kvöld og hin myndböndin sem lekið var fyrr í vikunni 19.8.2022 14:58
Sanna Marin fór í fíkniefnapróf Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur farið í fíkniefnapróf til þess að sanna að hún hafi ekki verið á eiturlyfjum í myndbandi sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni. 19.8.2022 14:00
Hafa aldrei mælt meiri hita utan eyðimerkur Ekki hefur rignt minna í Kína að sumri til í um sextíu ár. verksmiðjum víða um landið hefur verið gert að loka dyrum sínum samhliða því að mikið vatn vantar í vatnsból orkuvera og Kínverjar kveikja á loftkælingum sínum í massavís. 19.8.2022 13:40
Selur braust inn á heimili og áreitti heimilisköttinn Selur braust inn á heimili íbúa úthverfisins Mount Maunganui í Nýja-Sjálandi á miðvikudaginn og dvaldi þar í tvær klukkustundir. Áður en hann kom sér fyrir inni í húsinu hafði hann hrellt heimilisköttinn. 19.8.2022 13:00
Apple segir notendum að uppfæra tæki vegna öryggisbrests Tæknirisinn Apple hefur ráðlagt notendum sínum að uppfæra Apple tækin sín þar sem öryggisbrestur hafi komið upp. Öryggisbresturinn leyfi tölvuþrjótum að ná stjórn á tækjum notenda. 19.8.2022 12:40
Fundu „hið spænska Stonehenge“ aftur eftir mikla þurrka Nokkrar hitabylgjur hafa riðið yfir Spán í sumar og miklir þurrkar orðið í kjölfar þeirra. Regnfall hefur verið í lágmarki og hafa hin ýmsu vötn þornað upp eða minnkað verulega, þar á meðal Valdecanas-vatnsbólið í Cacares-héraði. Þar sést nú aftur í steina sem eru kallaðir „hið spænska Stonehenge“ en þeir hafa verið undir vatni síðan árið 1963. 19.8.2022 11:26