Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandarískur flugmaður sem vann í Kína handtekinn í Ástralíu Bandarískur maður sem var flugmaður í landgönguliði Bandaríkjanna var nýverið handtekinn í Ástralíu og stendur til að framselja hann í Bandaríkjunum. Kínverjar eru sagðir hafa leitað til vestrænna flugmanna varðandi þjálfun í Kína. 25.10.2022 11:54
Sunak segist skipaður til að leiðrétta mistök Liz Truss sem var óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá því mælingar hófust hefur látið af völdum og Rishi Sunak er tekinn við. Hann segist hafa hlotið embættið leiðtoga og forsætisráðherra til að leiðrétta mistök en á grundvelli þess málaefnagrundvölls sem Boris Johnson fékk umboð til að koma í framkvæmd í síðustu kosningum. 25.10.2022 11:54
Bolsonaro sakaður um að kaupa sér atkvæði með fjárútlátum Skoðanakannanir benda til þess að umdeildar fjárveitingar ríkisstjórnar Jairs Bolsonaro til velferðarmála fátækustu íbúa Brasilíu á lokametrum kosningabaráttu skili honum auknum stuðningi. Ásakanir eru um að fjárútlátin stangist á við kosningalög. 25.10.2022 11:46
„Kokkur Pútins“ ræddi við hann og gagnrýndi leiðtoga hersins Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gengið hefur undir nafninu „kokkur Pútíns“, ræddi nýverið við Vladimír Pútin, forseta Rússlands, og gagnrýndi það hvernig haldið hefði verið á spöðunum varðandi innrás Rússa í Úkraínu. Gagnrýnin beindist mest að leiðtogum rússneska hersins en Prigozhin og aðrir hafa gagnrýnt herinn opinberlega að undanförnu. 25.10.2022 10:28
Blóðugar ættbálkaerjur á „Ástareyjunni“ Rúmlega þrjátíu manns liggja í valnum eftir harðar ættbálkaerjur á eyjunni Kiriwina í Papúa Nýju-Gíneu. 25.10.2022 08:50
Vilja að öryggisráðið ræði staðlausar áhyggjur af„skítugri sprengju“ Rússnesk yfirvöld hafa ekki gefist upp á að halda því fram að Úkraínumenn ætli sér að sprengja geislavirka sprengju, þrátt fyrir verulegar efasemdir vestrænna ríkja. Þeir vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki málið fyrir. 25.10.2022 07:28
Sunak til fundar við Karl í dag og verður formlega forsætisráðherra Íhaldsmaðurinn Rishi Sunak mun ganga á fund Karls III Bretakonungs í dag og mun formlega taka við embætti forsætisráðherra Bretlands af Liz Truss. 25.10.2022 06:29
Bandaríkjamenn saka Kínverja um njósnir Bandaríkjamenn hafa sakað þrettán kínverska ríkisborgara um njósnir og ólögleg afskipti. Dómsmálaráðherra greindi frá meintum tilraunum Kínverja á blaðamannafundi í dag. 24.10.2022 23:28
Segja Littlefeather hafa logið til um ættir sínar Systur aðgerðarsinnans Sacheen Littlefeather segja hana hafa logið til um að vera af ættum innfæddra í Bandaríkjunum. Faðir hennar eigi ekki rætur að rekja til Apache- og Yaqui-þjóðflokkanna, heldur sé hann frá Mexíkó. 24.10.2022 23:19
Þrír látnir eftir skotárás í skóla í Bandaríkjunum Þrír eru látnir og sex særðir eftir skotárás í skóla í Missouri í Bandaríkjunum. Meintur árásarmaður er meðal látinna. 24.10.2022 22:41
Segir fáránlegt að vopn Rússa séu á þrotum Fyrrverandi forseti Rússlands segir fáránlegt að miðlar lýsi því yfir að birgðir Rússa klárist hratt. Vopnaframleiðsla gangi vonum framar. 24.10.2022 22:13
Erfiður vetur framundan: „Þetta var náttúrulega algjör sneypuför“ Prófessor í stjórnmálafræði segir mjög erfiðan vetur framundan fyrir nýjan forsætisráðherra Bretlands. Kostnaður fylgi sneypuför Liz Truss og efnahagskrísa á Vesturlöndum muni hafa mikil áhrif á Bretland. Stjórnarandstaðan kallar eftir kosningum og segir Íhaldsmenn ekki geta teflt fram nýjum leiðtoga í hverjum mánuði. 24.10.2022 21:44
Fundu um fjögur hundruð ára systurskip Vasaskipsins á hafsbotni Sjávarfornleifafræðingar hafa staðfest að systurskip eins af þjóðargersemum Svíþjóðar hafi fundist á hafsbotni í Stokkhólmssundi. Skipið, sem ber nafnið Eplið eða Äpplet á sænsku, mun áfram hvíla á botni skerjagarðsins þar sem það hefur verið í um 370 ár. 24.10.2022 16:31
Sunak nýtt andlit á gömul gildi Kjör Rishis Sunak sem leiðtoga breska Íhaldsflokksins markar tímamót á ýmsan hátt. Hann verður yngsti forsætisráðherrann í meira en tvær aldir og sá fyrsti sem er ekki hvítur. Inn við beinið er Sunak þó klassískur íhaldsmaður sem dáir Margaret Thatcher og aðhyllist lága skatta. 24.10.2022 16:01
Réttarhöldin gegn fyrirtæki Trumps hefjast Réttarhöld í skattsvikamáli New York-ríkis gegn Trump Organization, fyrirtækis Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefjast í dag. Fyrsta verkefnið í dómsal mun að öllum líkindum reynast gífurlega erfitt en það er að finna ellefu kviðdómendur sem hafa ekki sterka skoðun á forsetanum fyrrverandi. 24.10.2022 15:07
Nýir flokkar hrista hressilega upp í danska stjórnmálalandslaginu Það stefnir í spennandi þingkosningar í Danmörku eftir rúma viku og benda kannanir til að tveir nýir flokkar muni hrista hressilega upp í hinu pólitíska landslagi. 24.10.2022 14:01
Sunak verður næsti forsætisráðherra Breta Rishi Sunak verður nýr leiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi og þar með forsætisráðherra. Hann stóð einn eftir í keppninni um sætið eftir að Penny Mordaunt steig til hliðar rétt fyrir klukkan eitt að íslenskum tíma. 24.10.2022 13:03
Gjalda varhug við torkennilegu drónaflugi við norska borpalla Norsk stjórnvöld hafa aukið eftirlit varðskipa og orrustuþotna við borpalla í Norðursjó vegna óþekktra dróna sem hafa sést á flugi nærri þeim upp á síðkastið. Óttast þau að þar kunni að vera spellvirki og bellibrögð Rússa í uppsiglingu. 24.10.2022 12:49
Niðurskurður og skattahækkanir í farvatninu nái Sunak kjöri Prófessor í stjórnmálafræði segir ljóst að nýjum forsætisráðherra bíði það erfiða verkefni að skera niður og hækka skatta til að ná ríkisfjármálunum í eðillegt horf. Mestar líkur eru nú taldar á því að Rishi Sunak verði næsti leiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi og þar með forsætisráðherra, jafnvel strax í dag. 24.10.2022 12:23
Tæplega tvö hundruð sluppu ómeidd úr flugslysi Tæplega tvö hundruð sluppu ómeidd eftir að flugvél sem þau voru um borð í brotlenti á flugvelli á Filippseyjum. Flugstjórarnir höfðu gert tvær tilraunir til að lenda vélinni áður en það loks tókst en þá lenti vélin út af flugbrautinni og skemmdist. 24.10.2022 09:52
Biðst afsökunar á að kalla eftir að úkraínskum börnum yrði drekkt Sjónvarpsþáttastjórnandi í Rússlandi baðst afsökunar á því að hafa kallað eftir því að úkraínskum börnum yrði drekkt í dag. Ummæli hans eru sögð til sakamálarannsóknar. 24.10.2022 09:02
Gæti átt 140 ár í fangelsi í vændum Kvikmyndaframleiðandinn og Hollywood mógúllinn Harvey Weinstein er enn og aftur mættur fyrir dómara í Bandaríkjunum sakaður um kynferðisofbeldi. Weinstein gæti átt yfir höfði sér allt að 140 ára dóm en hann afplánar nú 23 ára fangelsisdóm fyrir kynferðisofbeldi og nauðgun. 24.10.2022 09:01
Tvö lík fundist eftir flugslysið undan strönd Kosta Ríka Fimm þýskir ríkisborgarar og svissneskur flugmaður eru talin af eftir að flugvél fórst í Karíbahafi, undan strönd Kosta Ríka, á föstudaginn. Þýski auðjöfurinn Rainer Schaller, stofnandi líkamsræktarstöðvanna McFit, var um borð í vélinni. 24.10.2022 08:40
Brasilískur stjórnmálamaður kastaði handsprengju að lögreglumönnum Brasilískur stjórnmálamaður er í haldi lögreglu eftir að hann særði tvo lögreglumenn sem ætluðu að handtaka hann. 24.10.2022 08:18
Karl selur fjórtán af hestum drottningarinnar Karl III Bretakonungur hefur ákveðið að selja nokkra þeirra hesta sem hann erfði frá móður sinni, Elísabetu II drottningar, sem lést í byrjun síðasta mánaðar. 24.10.2022 07:37
Úkraínumenn fordæma dylgjur Rússa um „skítuga sprengju“ Úkraínumenn fordæma fullyrðingar rússneskra ráðamanna þess efnis að til standi að sprengja geislavirka sprengju. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússa lét þessi orð falla í samtali við breska kollega sinn Ben Wallace. 24.10.2022 07:15
Skotum hleypt af milli Norður- og Suður-Kóreu Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum í átt að norðurkóresku skipi í nótt eftir að það sigldi inn á svæði sem ríkin tvö deila um. Norður-Kórea svaraði í sömu mynt en spenna hefur aukist gífurlega milli ríkjanna undanfarin misseri. 24.10.2022 07:10
Sunak gæti hreppt hnossið strax í dag Mestar líkur eru nú taldar á því að Rishi Sunak verði næsti leiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi og þar með forsætisráðherra, jafnvel strax í dag. 24.10.2022 06:53
Köstuðu kartöflumús á málverk Monet Franski listmálarinn Claude Monet er orðinn nýjasta viðfangsefni loftslagsaðgerðasinna en þýskir aktívistar köstuðu kartöflumús á verk eftir málarann á Potsdam safninu í Berlín í gær. Þetta er annað klassíska málverkið sem verður fyrir barðinu á matvælamótmælum á stuttum tíma. 24.10.2022 06:43
Rússar að missa tökin á Kherson: Skilja eftir sig íbúa án matar, vatns og rafmagns Rússar eru að missa tökin á stríðshrjáðu Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Flótti hefur verið frá borginni frá því að Úkraínumenn skipuðu íbúum að koma sér þaðan tafarlaust vegn gagnárasar. Sú árás hefur skilað árangri og um leið birtist hermönnum og blaðamönnum sviðin jörð sem Rússaher skilur eftir sig. 24.10.2022 00:24
Boris Johnson gefur ekki kost á sér Boris Johnson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér fyrir leiðtogakjör breska Íhaldsflokksins. Allar líkur eru nú á því að Rishi Sunak verði næsti forsætisráðherra Bretlands. 23.10.2022 20:15
Xi Jinping með nær einræðisvald eftir nýjustu hrókeringar Xi Jinping, forseti Kína er orðinn enn valdameiri að loknu flokksþingi kínverska Kommúnistaflokksins. Með nýjustu hrókeringum er hann sjálfskipaður aðalritari forsætisnefndar og hefur fært landið á einræðisbraut eftir að hafa deilt völdum með hæstráðendum innan flokksins síðustu ár. 23.10.2022 18:34
Blindur á öðru auga og máttlaus í hendi eftir árásina Rithöfundurinn Salman Rushdie missti sjón á öðru auga og allan mátt í annarri hendinni eftir hnífaárás. Ráðist var á rithöfundinn á meðan hann hélt fyrirlestur í New York í ágúst. 23.10.2022 16:40
„Það er mjög alvarleg staða komin upp“ Rússar hafa lagt sérstaka áherslu á orkuinnviði í árásum sínum í Úkraínu síðustu daga. Kynding er af skornum skammti í landinu og veturinn nálgast óðfluga. Prófessor segir að mjög alvarleg staða sé komin upp. 23.10.2022 15:01
Mögulegt að „týnda rafmyntadrottningin“ hafi fengið veður af fyrirhuguðum aðgerðum Talið er mögulegt að Ruja Ignatova, stofnandi rafmyntarinnar OneCoin, sem nefnd hefur verið hin týnda rafmyntadrottning, hafi fengið veður af lögregluaðgerðum gegn henni áður en að hún lét sig hverfa. 23.10.2022 14:46
Enskan tröllríður verslunum á Spáni Mikill meirihluti verslana og fyrirtækja í helstu verslunargötu Madrid, höfuðborgar Spánar, ber ensk heiti og notar ensk slagorð. Útbreiðsla ensku í spænsku verslunarlífi hefur tífaldast á síðustu árum. 23.10.2022 14:00
Aftur hrapaði rússnesk herþota á íbúðarhús Rússnesk herþota hrapaði til jarðar á íbúarhús í Irkutsk í Síberíu í nótt. Tveir flugmenn vélarinnar létust. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna herþotuna hrapa til jarðar. 23.10.2022 13:36
Fordæma Rússa fyrir rán á forstöðumönnum kjarnorkuvers Leiðtogar G7 ríkjanna fordæma Rússa fyrir rán á forstöðumönnum kjarnorkuvers í Zaporizhzhia. Rússar eru hvattir til að láta kjarnorkuverið tafarlaust af hendi til réttmætra eigenda. 23.10.2022 10:27
Sunak staðfestir framboð Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, hefur formlega tilkynnt að hann muni bjóða sig fram í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins. Hann sækist þar með eftir því að verða næsti forsætisráðherra Bretlands. 23.10.2022 10:21
Stofnandi Red Bull látinn Austurríski milljarðamæringurinn Dietrich Mateschitz, stofnandi orkudrykkjaframleiðandans Red Bull, er látinn 78 ára að aldri. 23.10.2022 08:35
Úkraínskur auðjöfur grunaður um landráð Úkraínska öryggislögreglan hefur handtekið Vyacheslav Boguslaev, einn ríkasta auðjöfur Úkraínu og fyrrverandi eiganda umsvifamikillar hreyflaverksmiðju. Hann er grunaður um landráð. 23.10.2022 08:15
Leynilegur fundur Johnson og Sunak Frestur til að gefa kost á sér sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins nálgast óðfluga. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Rishi Sunak, sem nýtur mesta fylgis þingliðs Íhaldsflokksins, eru sagðir leggja á ráðin um leiðtogakjör flokksins. 23.10.2022 00:02
Sagði af sér bæjarstjóraembætti eftir skróp í Hörpu Fyrrverandi bæjarstjóri kanadísks smábæjar ætlaði sér að sækja Hringborð norðurslóða í síðustu viku og var ferð hans kostuð af bænum. Hann skrópaði hins vegar á hringborðið og lofaði því að endurgreiða bænum tæpa eina og hálfa milljón króna sem ferðin kostaði. Það hefur hann hins vegar enn ekki gert. 22.10.2022 23:20
Einn alvarlega særður eftir skotárás í úthverfi Óslóar Að minnsta kosti einn hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir skotárás í Tøyen í Ósló. Enn er árásarmannsins leitað. 22.10.2022 22:54
Forvera Kínaforseta „leið ekki vel“ Hinum 79 ára gamla Hu Jintao leið ekki vel þegar hann var leiddur á brott af flokksþingi kínverska Kommúnistaflokksins, að sögn ríkismiðla í Kína. Áður höfðu engar skýringar borist á brotthvarfi Jintao. 22.10.2022 17:03