Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rigning og kuldi á Suðvesturhorninu í dag Suðlægar áttir leika um landið í dag og næstu daga. Þeim fylgir talsverð væta sunnan- og vestanlands. Fremur kalt er í veðri en á norðausturhluta landsins verður áfram þurrt að mestu með sólarköflum og hlýindum. 30.5.2021 07:57
Gul viðvörun gefin út fyrir Breiðafjörð Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Breiðafjörð vegna sunnan hvassviðris eða storms. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta í kvöld og stendur til fimm í fyrramálið. 29.5.2021 13:41
Áfram skýjað og rigning Mjög hefur lægt yfir landinu eftir veðurofsa gærdagsins. Aðeins ein gul veðurviðvörun er í gildi fyrir miðhálendið. Suðlægar áttir munu ríkja nú um mánaðarmótin en búast má við að það fari að hlýna þegar líður á vikuna. 29.5.2021 08:20
Gular viðvaranir og útlit fyrir lægðagang næstu daga Undanfarnar vikur hefur öflugt hæðarsvæði staðsett fyrir norðan og norðaustan land stjórnað veðrinu og haldið lægðum frá landinu en núna hefur hæðin gefið eftir og útlit fyrir nokkurn lægðagang næstu daga. 28.5.2021 07:26
Hámarkshiti um átján stig en lægðir þjarma að úr suðvestri Hæð norðaustur af landinu stjórnar enn veðrinu hér á landi og víða er vindur fremur hægur og léttskýjað. Lægðir þjarma að landinu úr suðvestri og valda því að nokkur vindstrengur er með suðurströndinni, þrettán til tuttugu metrum á sekúndur í kvöld og á morgun. 27.5.2021 07:24
Hiti allt að sextán stigum og hlýjast inn til landsins Veðurstofan spáir fremur hægri suðaustlægri eða breytilegri átt í dag, en átta til þrettán metrum á sekúndu sunnantil á landinu. 26.5.2021 07:18
Hiti nær allt að fjórtán stigum yfir daginn Veðurstofan spáir suðaustan golu í dag, en strekkingi við suður- og suðvesturströndina. Víða bjartviðri, en það verður skýjað að mestu á Austurlandi, og einnig má búast við skýjum af og til sunnantil á landinu. 25.5.2021 07:13
Hækkandi hitatölur og allt að sautján stig í vikunni Útlit er fyrir austlæga eða breytileg átt í dag, skýjað með köflum og skúrir í flestum landshlutum. Þá er spáð þremur til átta metrum á sekúndu, hita þrjú til tólf stig og mildast suðvestanlands. 24.5.2021 07:38
Víða bjartviðri en dálitlar skúrir um landið austanvert Veðurstofan spáir norðlægri átt, golu eða kalda í dag. Spáð er víða bjartviðri, en skýjað um landið austanvert og dálitlar skúrir eða slydduél. Hiti á landinu eitt til ellefu stig yfir daginn, mildast suðvestantil, en allvíða næturfrost. 21.5.2021 07:16
Von á stöku skúr sunnanlands Stöðugleikinn sem hefur einkennt veðrið undanfarið er áfram til staðar og á landinu er nú fremur hæg norðlæg eða breytileg átt með stöku él norðaustantil. Annars en annars bjart að mestu þó að von sé á stöku skúr sunnanlands. 19.5.2021 07:12
Norðaustlægar áttir ríkjandi eitthvað fram í vikuna með svölu veðri Hæðin á Grænlandi heldur áfram að stjórna veðrinu á landinu og ekki er útlit fyrir að hún sleppi tangarhaldi sínu á næstu dögum. Því munu norðaustlægar áttir vera ríkjandi eitthvað fram í vikuna með svölu veðri. 18.5.2021 07:15
Hæðin yfir Grænlandi heldur köldum loftstraumi að landinu Hæðin yfir Grænlandi ræður enn veðrinu hér á landi og heldur fremur köldum loftstraumi að landinu. Hitinn yfir daginn sunnanmegin á landinu getur rofið tíu stiga múrinn ef nægilega bjart verður en um landið norðanvert verða plúsgráðurnar mun færri. 17.5.2021 07:22
Austlægar áttir og gengur á með skúrum eða slydduéljum Enn liggur víðáttumikið hæðasvæði yfir Grænlandi og Íslandi, en dýpkandi lægð, langt suður í hafi þokast austur. Austlægar áttir leika því um landið og gengur á með skúrum eða slydduéljum, síst þó fyrir norðan. 14.5.2021 07:25
Áfram hægur vindur og bjart veður Veðurstofan reiknar með hægum vindi og björtu veðri, en smáskúrum á víð og dreif sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu eitt til níu stig, en víða frost í nótt. 12.5.2021 07:16
Líkur á skúrum og slydduéljum suðaustan- og austantil Reikna má með fremur hægum vindi og víða björtu veðri í dag. Líkur eru á stöku skúrum eða slydduéljum á Suðaustur- og Austurlandi í dag og á stöku stað á sunnanverðu landinu á morgun. 11.5.2021 07:07
Sitjum áfram í köldum loftmassa af norðlægum uppruna Það eru í grunninn litlar breytingar á veðri næstu daga frá því sem verið hefur undanfarið. Víðáttumikil hæð er ennþá yfir Grænlandi og við sitjum í köldum loftmassa af norðlægum uppruna. 7.5.2021 07:16
Hiti um tíu stig suðvestanlands en annars fremur kalt Útlit er fyrir norðan golu eða kalda í dag og á morgun, en austlægari vindi syðst á landinu. Bjartviðri vestanlands, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil él eða skúrir. 6.5.2021 07:27
Hægar og svalar norðlægar áttir fram yfir helgi Veðurspáin er eindregin fram yfir helgi að minnsta kosti. Er spáð fremur hægum en svölum norðlægum áttum, þar sem skýjað verður norðan- og austanlands og stöku skúrir eða él. Annars verður yfirleitt léttskýjað. 5.5.2021 07:14
Áfram svalt loft yfir landinu og víða næturfrost Áfram er háþrýstisvæði og svalt loft yfir landinu og því víða næturfrost. Hiti fer þó upp í tíu stig suðvestanlands að deginum. Norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og hvassast austast á landinu. 4.5.2021 07:12