Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
82 milljarðar dala í baráttuna gegn sárafátækt Ríki heims hafa heitið Alþjóðaframfarastofnuninni jafnvirði tíu þúsund milljarða króna til að berjast gegn sárafátækt í heiminum. Framlaginu er ætlað til að styrkja grunnviði, auka hagvöxt og efla getuna til að bregðast við áföllum vegna náttúruhamfara og loftslagsbreytinga. Ísland leggur sitt af mörkum. 23.12.2019 11:00
Ísland styður við kyn- og frjósemisheilbrigði stúlkna og kvenna í Malaví Þann 18. desember var undirritaður samstarfssamningur milli Sendiráðs Íslands í Lilongwe fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í Malaví. Samningurinn snýr að þriggja ára verkefni um að efla kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi unglingsstúlkna og kvenna í Mangochi héraði. 19.12.2019 13:30
Ísland áfram í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti Ísland situr ellefta árið í röð í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum. Samkvæmt nýútkominni skýrslu ráðsins mun það taka tæpa öld að ná fram fullkomnu kynjajafnrétti í heiminum ef fram fer sem horfir. 18.12.2019 09:00
Ísland og UNESCO gera samkomulag um Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna UNESCO, undirrituðu í gær, samkomulag um að Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfi undir merkjum UNESCO sem sjálfstæð stofnun. 17.12.2019 09:30
Rúmlega 53 milljónum ráðstafað til alþjóðlegra mannúðarverkefna Utanríkisráðuneytið hefur falið þremur frjálsum félagasamtökum að ráðstafa rúmlega 53 milljónum króna til þriggja mannúðarverkefna, í Sýrlandi, Jemen og meðal þjóðanna sem urðu verst úti í fellibylnum Idai fyrr á árinu. 16.12.2019 13:15
Neyðarsöfnun vegna þurrka í Namibíu Talið er að tæplega 290 þúsund íbúar Namibíu þurfi á mataraðstoð að halda vegna gífurlegra þurrka. Söfnun er hafin á vegum Rauða krossins á Íslandi til að bregðast við neyðinni. 13.12.2019 14:45
Ósýnilegu börnin: Eitt af hverjum fjórum ekki skráð við fæðingu Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í fæðingaskráningu barna um allan heim og skráning aukist um 20 prósent á einum áratug telur UNICEF að 166 milljónir barna undir fimm ára aldri séu óskráð. 12.12.2019 14:30
Þróunarsamvinna: Sjö íslenskum félagasamtökum falið að ráðstafa rúmum 200 milljónum Utanríkisráðuneytið hefur gefið vilyrði fyrir styrkjum til sjö íslenskra félagasamtaka um ráðstöfun rúmlega 210 milljóna króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu. 11.12.2019 14:45
Ungt fólk í brenndepli á degi mannréttinda Í dag, á alþjóðlegum degi mannréttinda, heiðra Sameinuðu þjóðirnar ungt fólk með átaki sem hefur yfirskriftina „Ungt fólk rís upp í þágu mannréttinda.“ António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir í yfirlýsingu að samtökin fagni mikilvægu hlutverki ungs fólks við að gæða mannréttindi nýju lífi. 10.12.2019 12:30
Íslendingar í sjötta sæti á nýjum lífskjaralista SÞ Þrátt fyrir framfarir á heimsvísu í baráttunni gegn fátækt, hungri og sjúkdómum er ójöfnuður víða í heiminum sem setur til dæmis mark sitt á aðstæður ungu kynslóðarinnar, segir í nýrri skýrslu um lífskjaravísitölu Sameinuðu þjóðanna. 9.12.2019 10:15
Malaría: Mest um vert að ná til barnshafandi kvenna og barna Á síðasta ári sýktust 228 milljónir einstaklinga af malaríu, þar af létust rúmlega 400 þúsund, flestir í Afríku sunnan Sahara. 6.12.2019 14:15
UNICEF ætlar að mæta þörfum 59 milljóna barna á næsta ári Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur metið neyðarþörf fyrir árið 2020. Stofnunin kveðst þurfa rúmlega 520 milljarða íslenskra króna til að mæta brýnum þörfum 59 milljóna barna í 64 þjóðríkjum víðs vegar um veröldina. 5.12.2019 09:45
Mannúðarþörf í heiminum aldrei meiri og fer vaxandi Á næsta ári þurfa 168 milljónir manna að reiða sig á mannúðaraðstoð og vernd, einn af hverjum 45 jarðarbúum. 4.12.2019 13:30
Loftslagsvandinn: 20 milljónir hrekjast burt af heimilum sínum árlega Ofsaveður og skógareldar hröktu að jafnaði rúmlega tuttugu milljónir manna burt af heimilum sínum ár hvert síðastliðinn áratug. Þessi vandi á aðeins eftir að aukast nema því aðeins að þjóðarleiðtogar bregðist skjótt við ógninni sem felst í loftslagsbreytingum, að mati góðgerðarsamtakanna Oxfam. 3.12.2019 14:00
Stuðningur við sameiningu fjölskyldna í Gíneu SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent styrk til ungmennaheimilis samtakanna í Kankan, stærstu borgar Vestur-Afríkuríkisins Gíneu. Styrknum er ætlað að sameina fjölskyldur á nýjan leik en mörg börn í fátækum ríkjum eins og Gíneu alast upp utan fjölskyldunnar vegna örbirgðar. 3.12.2019 11:00
Stjórnvöld í Albaníu kalla eftir alþjóðlegum stuðningi Hópur sérfræðinga hefur unnið að samhæfingu björgunaraðgerða í Albaníu eftir stóra jarðskjálftann í síðustu viku þar sem 51 týndi lífi, þar af sjö börn. Leitar- og björgunaraðgerðum lauk á laugardagskvöld. 2.12.2019 14:45
Mislingar í Kongó: 5 þúsund látin þar af 4.500 börn Það sem af er ári hafa rúmlega fimm þúsund manns, þar af 4.500 börn yngri en fimm ára, látið lífið af völdum mislinga í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Í austurhluta landsins hefur á árinu geisað ebólufaraldur sem hefur leitt til rúmlega tvö þúsund dauðsfalla og fengið mikla alþjóðlega athygli. 2.12.2019 10:00