Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 31-31 | Jafnt í háspennuleik í Suðurlandsslagnum Selfoss og ÍBV gerðu 31-31 jafntefli er liðin mættust í háspennuleik í fjórðu umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. 29.9.2022 21:38
Umfjöllun: Afturelding - Grótta 29-25 | Mosfellingar náðu loksins að brjóta ísinn Afturelding vann Gróttu þegar líðin áttust við í hörkuleik í fjórðu umferð Olís deildar kara í handbolta að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 29 - 25 Aftureldingu í vil. 29.9.2022 21:16
„Tvær lélegar sóknir hjá sitthvoru liðinu sem skilaði jafntefli“ Einar Sverrisson, leikmaður Selfoss, átti stórleik þegar liðið gerði jafntefli gegn ÍBV í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 31-31. Einar skoraði tíu mörk fyrir Selfyssinga og hans fjórða mark í leiknum var hans þúsundasta fyrir félagið í opinberum keppnisleikjum. 29.9.2022 21:10
„Fannst halla mjög mikið á okkur“ Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var svekktur með lokamínútur fyrri hálfleiks í tapinu fyrir Val í kvöld, 26-18. Honum fannst Valsmenn fá að ganga full hart fram í vörninni. 29.9.2022 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 26-18 | Öruggt í auðgleymdum leik Valur vann sinn fjórða sigur í jafn mörgum leikjum í Olís-deild karla þegar liðið lagði KA örugglega að velli, 26-18, í fyrstu viðureign 4. umferðar í kvöld. 29.9.2022 20:20
Ljósleiðaradeildin í beinni: NÚ getur haldið í við toppliðin Þrír leikir eru á dagskrá þegar þriðja umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO klárast í kvöld í beinni útsendingu hér á Vísi og Stöð 2 eSport. 29.9.2022 19:16
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Hörður 35-34 | ÍR-ingar sjóðheitir á nýjum heimavelli ÍR tók á móti Herði í fjórðu umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fór hratt af stað og bæði lið ákveðin að sækja stig. ÍR hafði betur og sigraði með einu marki 35-34. 29.9.2022 19:01
Nýliðinn átti tilþrif kvöldsins Árni Ágúst Daníelsson, sem hóf að æfa pílukast í byrjun þessa árs, sýndi frábær tilþrif á öðru keppniskvöldi Úrvalsdeildarinnar í pílukasti. 29.9.2022 16:31
Var refsað fyrir mjaðmasveiflur: „Þetta er of sexý fyrir NFL-deildina“ Jamaal Williams fékk dæmda á sig athyglisverða óíþróttamannslega villu þegar hann fagnaði snertimarki með Detroit Lions í NFL-deildinni um helgina með mjaðmadansi. Hann segir hreyfingar sínar ekki vera þrykkjur heldur bylgjur. 29.9.2022 16:00
Finnsku meistararnir fá himinháa sekt fyrir „UEFA mafíu“ söngva Finnlandsmeistarar HJK Helsinki hafa verið sektaðir um 18 þúsund evrur vegna óláta áhorfenda liðsins í 2-0 tapi þess fyrir Real Betis frá Spáni í fyrstu umferð í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrr í þessum mánuði. 29.9.2022 15:30
Forseti PSG sagður eiga þátt í mannráni og pyntingum Franska dagblaðið Libération greinir frá því í dag að hinn katarski Nasser Al-Khelaifi, forseti franska fótboltaliðsins Paris Saint-Germain, hafi átt þátt í mannráni franskalsírsks kaupsýslumanns. Sá á að hafa haft undir höndum gögn sem sýndu Al-Khelaifi ekki í góðu ljósi. 29.9.2022 15:01
Útlit fyrir að Ronaldo byrji gegn Man. City Útlit er fyrir að Cristiano Ronaldo verði í byrjunarliði Manchester United, í fyrsta sinn í sjö vikur, þegar liðið mætir meisturum Manchester City í stórleik um helgina í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 29.9.2022 14:30
Fíflagangur eða leið til að hafa óeðlileg áhrif? Í hópi þjálfara, fyrirliða og formanna félaganna tólf í Subway-deild karla eru ákveðnir aðilar sem spáðu algjörlega á skjön við kollega sína í spá um gengi liðanna í vetur, sem birt var í dag. 29.9.2022 14:00
„Engillinn minn, ástin mín, Sean Dyche“ Sean Dyche, fyrrum stjóri Watford og Burnley, átti gott samband við tónlistargoðið Elton John þegar hann var hjá fyrrnefnda liðinu. Elton var eigandi Watford frá 1976 til 1990 og aftur frá 1997 til 2002 og er heiðursforseti félagsins. 29.9.2022 13:31
Keflavík spáð sigri en Hetti og ÍR falli Keflavík endar í efsta sæti Subway-deildar karla í körfubolta en Höttur og ÍR falla niður í 1. deild, samkvæmt árlegri spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna tólf í efstu deild. 29.9.2022 12:51
Yfirvöld í Katar skylda ríkisborgara til vinnu í kringum HM Yfirvöldum í Katar færist mikið í fang að halda utan um eins stóran viðburð og heimsmeistaramótið í fótbolta sem fer fram í smáríkinu í nóvember og desember. Borgarar ríkisins þurfa að sinna þegnskyldu í kringum mótið. 29.9.2022 12:30
Sjáðu Vitor fljúga inn í úrslit: „Ég veit að Matthías er brjálaður“ Vitor Charrua vann óvæntan en afar sannfærandi sigur á öðru keppniskvöldi Úrvalsdeildarinnar í pílukasti. Hann skellti meðal annars Íslandsmeistara síðustu þriggja ára, Matthíasi Erni Friðrikssyni, 3-0. 29.9.2022 12:01
Hvetur Maguire til að hitta sálfræðing Tími hjá sálfræðingi gæti hjálpað Harry Maguire í þeim vandræðum sem hann glímir við um þessar mundir. Þetta segir Gary Neville, fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins. 29.9.2022 11:30
Leikmaður Bayern leitaði til óperusöngvara Þekkt er að fótboltamenn leiti til styrktarþjálfara, næringarfræðinga, sálfræðinga og jafnvel töfralækna til að hjálpa sér að ná hámarksárangri inni á vellinum. En þeir eru ekki margir sem hafa notið aðstoðar óperusöngvara. 29.9.2022 11:01
Karen á von á páskaunga Landsliðskonan Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi og lykilmaður Fram í handbolta, verður ekki með Íslandsmeisturunum í vetur þar sem hún er ólétt að sínu öðru barni. 29.9.2022 10:21
Ódýrara að fá erlenda leikmenn og Íslendingar vilja ekki koma vestur Ekkert gekk hjá Herði að fá íslenska leikmenn til liðsins og því var á leitað á erlend mið. Erlendir leikmenn eru mun ódýrari en Íslendingar að sögn formanns handknattleiksdeildar Harðar. 29.9.2022 10:01
Hvaða lið áttu að styðja í NFL? Bandaríska NFL-deildin í amerískum fótbolta hefur notið aukinna vinsælda hér á landi undanfarin misseri. Margur á hins vegar erfitt með að finna sér lið til að halda með. Ekki þarf þó að örvænta - Lokasóknin er með svör á reiðum höndum. 29.9.2022 09:31
Bjarki Már hermdi stórkostlega eftir Gaupa Bjarka Má Elíssyni er fleira til lista lagt en að spila handbolta. Hann er einnig afbragðs eftirherma eins og hann sýndi í Handkastinu. 29.9.2022 09:00
Stórlaxar síðustu dagana í Stóru Laxá Síðustu hollin eru núna að klára veiðar í Stóru Laxá en áin er þekkt fyrir stóra síðsumars laxa og líklega fáar ár sem státa af jafn mörgum stórlöxum á tímabilinu. 29.9.2022 08:56
Hæstánægður með kollspyrnu Dagnýjar en sagði markið hafa komið of snemma Þjálfari West Ham United var sérstaklega ánægður með markið sem Dagný Brynjarsdóttir skoraði gegn Chelsea í ensku ofurdeildinni í gær. 29.9.2022 08:31
Systir Ronaldos: „Portúgalir eru veikir, sálarlausir, heimskir og eilíflega vanþakklátir“ Systir Cristianos Ronaldo er afar ósátt með stuðningsmenn portúgalska landsliðsins eftir að þeir gagnrýndu bróður hennar. 29.9.2022 08:00
Vanda viðurkennir að hafa rætt við Heimi í sumar Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, viðurkennir að hafa rætt við Heimi Hallgrímsson í sumar. 29.9.2022 07:50
Mörkin of lítil í leik Ajax og Arsenal: „Aldrei upplifað annað eins“ Jonas Eidevall, þjálfari Arsenal, var í raun orðlaus þegar hann mætti í viðtal eftir sigurinn sem tryggði liði hans sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Mörkin á heimavelli Ajax voru nefnilega heilum 10 sentímetrum of lítil á breiddina. 29.9.2022 07:30
Eigendur Jets segja „skyldu sína“ að hjálpa fólki frá Úkraínu Annar af eigendum NFL-liðsins New York Jets hafa gefið eina milljón Bandaríkjadala [145 milljónir íslenskra króna] til góðgerðarmála tengdum Úkraínu og stríðinu þar í landi. 29.9.2022 07:01
Dagskráin í dag: Nýliðaslagur í Olís, Körfuboltakvöld, golf og Ljósleiðaradeildin Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Alls erum við með sjö beinar útsendingar á dagskrá. 29.9.2022 06:00
Gunnar um uppganginn Færeyja: „Margir að toppa á sama tíma“ Færeyska landsliðið í fótbolta vann frækinn sigur á Tyrklandi á sunnudag en um er að ræða stærsta sigur liðsins síðan gegn Grikklandi fyrir sjö árum síðan. Gunnar Nielsen, markvörður FH í Bestu deild karla, segir aðstæður gera það að verkum að stærð sigur sunnudagsins virðist ekki eins mikil. 28.9.2022 23:31
Bjarni: Vorum með plan varnarlega sem gekk upp Haukar fóru illa með Val í 2. umferð Subway deildar-kvenna. Leikurinn endaði með sannfærandi sigri Hauka 77-62 og var Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, afar ánægður með sigurinn. 28.9.2022 22:35
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Haukar - Valur 77-62 | Haukar völtuðu yfir Val Haukar unnu sannfærandi sigur á Val í 2. umferð Subway deildar-kvenna. Öflugur varnarleikur Hauka lagði grunninn að sigrinum. Heimakonur litu aldrei um öxl eftir að hafa komist snemma í tíu stiga forystu og Valur ógnaði aldrei forskoti Hauka sem unnu 15 stiga sigur 77-62. 28.9.2022 22:15
Grétar Rafn orðaður við PSV Grétar Rafn Steinsson er orðaður við starf tæknilegs ráðgjafa hjá PSV sem leikur í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Grétar Rafn starfar í dag fyrir Tottenham Hotspur á Englandi. 28.9.2022 22:00
Íslendingaliðin máttu þola tap í Meistaradeild Evrópu Íslandendingaliðin Magdeburg og Álaborg töpuðu bæði sínum leikjum í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 28.9.2022 21:45
Keflavík vann stórsigur | Fjölnir lagði ÍR Keflavík vann Breiðablik með 30 stiga mun í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 58-88 í Smáranum. Fjölnir lagði ÍR í Breiðholti, lokatölur 50-58. 28.9.2022 21:31
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 77-61 | Meistararnir komnir á blað Aðra umferðina í röð var boðið upp á Suðurnesjaslag í Subway-deild kvenna, en í kvöld mættust Njarðvík og Grindavík í Ljónagryfjunni. Íslandsmeistarar Njarðvíkur töpuðu í opnunarleiknum gegn grönnum sínum Í Keflavík og því eflaust staðráðnar í að sækja sigur í kvöld. Grindvíkingar aftur á móti opnuðu mótið á góðum sigri gegn Fjölni og vildu án vafa byggja ofan á þann árangur. 28.9.2022 21:00
Sara Björk kom Juventus á bragðið með frábærum skalla Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrra mark Juventus í 2-0 sigri liðsins á HB Köge í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. 28.9.2022 20:30
Mark Dagnýjar dugði ekki gegn Englandsmeisturunum Dagný Brynjarsdóttir bar að venju fyrirliðabandið þegar West Ham United heimsótti Englandsmeistara Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Dagný kom West Ham óvænt yfir en heimakonur svöruðu með þremur mörkum og unnu á endanum 3-1 sigur. 28.9.2022 20:01
Pétur eftir tap í Tékklandi: „Ef þetta er virðing, þá er eitthvað mikið að hjá UEFA“ Pétur Pétursson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Vals, var vægast sagt ósáttur með vallaraðstæður í Tékklandi þar sem lið hans féll úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Þá sendi hann Knattspyrnusambandi Íslands einnig tóninn. 28.9.2022 19:01
Veszprém sneri taflinu við í síðari hálfleik Bjarki Már Elísson og félagar í Veszprém unnu Dinamo Búkarest í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, lokatölur 33-30. 28.9.2022 18:31
Guðrún í riðlakeppnina eftir sigur á Svövu Rós Guðrún Arnarsdóttir og stöllur hennar í sænska úrvalsdeildarliðinu Rosengård eru komnar í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir sigur á norska liðinu Brann þar sem Svava Rós Guðmundsdóttir leikur. 28.9.2022 18:00
Varði fimmta vítið í röð Yann Sommer, markvörður Borussia Mönchengladbach og svissneska landsliðsins, hefur varið síðustu fimm vítaspyrnur sem hann hefur fengið á sig í leik með landsliðinu. 28.9.2022 17:00
Danir spila í mótmælatreyjum á HM Danski íþróttavöruframleiðandinn Hummel segir að með hönnun á nýju HM-treyju danska landsliðsins í fótbolta sé ætlunin að mótmæla Katar og mannréttindabrotum þar í landi. 28.9.2022 16:31
Leikmennirnir ánægðir með Heimi: Góður þjálfari og góð manneskja Jamaíka þurfti að þola 3-0 tap fyrir Argentínu í æfingaleik í New York í Bandaríkjunum í nótt í fyrsta leik Heimis Hallgrímssonar við stjórnvölin hjá liðinu. Leikmönnum liðsins lýst vel á Íslendinginn. 28.9.2022 16:01