Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjáðu mörkin þegar Belgar kláruðu Dani á Parken Danir þurftu á sigri að halda þegar Belgar mættu í heimsókn á Parken í Kaupmannahöfn á Evrópumótinu í knattspyrnu í dag. Danir byrjuðu með látum en innkoma Kevin De Bruyne skilaði Belgum 2-1 sigri. 17.6.2021 18:05
Þá segir maður miðjumanninum að þruma einhvern niður og hleypa leiknum upp í bál og brand Munurinn á miðju Vals og Breiðabliks í Pepsi Max deild karla var ræddur í Stúkunni í gærkvöld að loknum 3-1 sigri Vals. Ólafur Jóhannesson hefði viljað sjá miðjumenn Breiðabliks fara í eins og eina tæklingu til að koma sér inn í leikinn. 17.6.2021 16:00
Samherji Söru Bjarkar semur við Arsenal Enska landsliðskonan Nikita Parris hefur náð samkomulagi við Arsenal og mun skrifa undir hjá félaginu á næstu dögum. 17.6.2021 15:46
Úkraínumenn halda í vonina eftir mikilvægan sigur gegn Norður-Makedóníu Úkraína og Norður-Makedónía mættust í fyrsta leik dagsins á Evrópumótinu í knattspyrnu. Bæði lið brenndu af vítaspyrnu í leiknum, en það voru Úkraínumenn sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Lokatölur 2-1, og mikilvæg þrjú stig í hús fyrir Úkraínu. 17.6.2021 15:23
Gekkst undir sex klukkutíma aðgerð eftir meiðslin gegn Rússum Timothy Castagne, bakvörður Leicester City og belgíska landsliðsins, var heppinn að ekki fór verr er hann meiddist í leik Belga og Rússa í fyrstu umferð Evrópumótsins í síðustu viku. 17.6.2021 14:30
Útskýrði hvað hann á við þegar hann talar um „kanallinn“ Skemmtilegt atvik átti sér stað eftir leikgreiningu Ólafs Kristjánssonar á 3-0 sigri Portúgals á Ungverjalandi í EM í dag. Freyr Alexandersson spurði þá Ólaf hvort hann gæti útskýrt hugtak sem sá síðarnefndi notar óspart án þess þó að ef til vil allir skilji hvað átt er við. 17.6.2021 14:01
Maguire segist klár í slaginn fyrir leikinn gegn Skotlandi Harry Maguire, miðvörður enska landsliðsins, segist klár í slaginn fyrir leikinn gegn Skotlandi. Stóra spurningin er hvort Gareth Southgate hrófli í varnarlínunni sem hélt hreinu gegn Króötum. 17.6.2021 13:30
Millwall tilbúið að hlusta á tilboð í Jón Daða Svo virðist sem íslenski landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson gæti verið á förum frá enska B-deildarliðinu Millwall. 17.6.2021 13:01
Höfuðverkurinn varðandi íslenska markið: Fyrri hluti Hannes Þór Halldórsson hefur verið mark íslenska karlalandsliðsins undanfarin ár. Hann fór með liðinu á Evrópumótið í Frakklandi, heimsmeistaramótið í Rússlandi og er mögulega besti landsliðsmarkvörður sem Ísland hefur átt. 17.6.2021 12:01
Markasúpa gærdagsins: Valur skoraði þrjú, KA nýtti vindinn, Stjarnan sótti stig og loks skoraði Gibbs Fjórir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær. Mörkin úr leikjunum fjórum má sjá hér að neðan. 17.6.2021 11:16
Bjargráður Blind hafði andleg áhrif frekar en líkamleg gegn Úkraínu Það fór um alla sem horfðu á Christian Eriksen hníga til jarðar í leik Danmerkur og Finnlands í fyrstu umferð Evrópumótsins í knattspyrnu. Eriksen er heill á húfi en fyrir Daley Blind var þetta sem hitti aðeins of nálægt hjartastað. 17.6.2021 10:45
Bjargráður verður græddur í Eriksen Christian Eriksen, danski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem fékk hjartastopp í leik Dana og Finna á Evrópumótinu síðustu helgi, mun fara í aðgerð og fá græddan í sig svokallaðan bjargráð. 17.6.2021 10:08
Sjáðu markasyrpu gærdagsins á EM: Ítalir á flugi, Bale getur bara lagt upp og Rússar komnir á blað Alls voru sex mörk skoruð í leikjunum þremur á EM í gær. Þau má öll sjá hér að neðan. 17.6.2021 09:01
Lof og last 8. umferðar: Allt er fertugum fært, Nikolaj Hansen, andlausir FH-ingar og veðrið upp á Skaga Áttundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Þó enn eigi eftir 7. umferð mótsins þá var sú áttunda kláruð í gær. Hún hófst þann 12. júní og lauk svo í gær með tveimur leikjum. 17.6.2021 08:01
Þurftum að fara í grunnvinnuna Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals var léttur í lund eftir 3-1 sigur sinna manna á Blikum í kvöld. 16.6.2021 22:59
Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 1-1 | Gestirnir snúið genginu við á meðan ekkert gengur upp hjá Hafnfirðingum Stjarnan sótti stig í Kaplakrika er liðið mætti FH í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 sem þýðir að Stjarnan hefur nú náð í fjögur stig gegn Val og FH í síðustu tveimur leikjum á meðan FH hefur ekki unnið í síðustu fjórum. 16.6.2021 22:10
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 3-1 | Íslandsmeistararnir aftur á beinu brautina Íslandsmeistarar Vals unnu góðan 3-1 sigur á Breiðablik þegar liðin mættust á Origo-vellinum fyrr í kvöld. 16.6.2021 22:05
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - HK 2-0 | Joey Gibbs tryggði heimamönnum sigur í fallslagnum Keflavík vann frábæran 2-0 sigur á HK er liðin mættust í botnslag í Pepsi Max deild karla í dag. Joey Gibbs skoraði bæði mörk heimamanna sem lyfta sér upp úr botnsætinu með sigrinum. 16.6.2021 21:50
Fram rúllaði yfir Þrótt Fram valtaði yfir nágranna sína í Þrótti Reykjavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld, lokatölur 5-1. 16.6.2021 21:45
„Við vorum heppnir að tapa bara 2-0 í dag“ Stefan Alexander Ljubicic, leikmaður HK, segir að Kópavogsbúar hafi ekki átt neitt skilið út úr leiknum sem það spilaði við botnlið Keflavíkur í dag. 16.6.2021 21:30
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - KA 0-2 | Gestirnir fara heim með þrjú stig KA hafði ekki spilað leik í 24 daga er liðið heimsótti Skipaskaga í dag. Það kom ekki að sök en liðið vann öruggan 2-0 sigur á ÍA í Pepsi Max deild karla. 16.6.2021 21:15
Tíu sigrar í röð og aftur skora þeir þjú mörk Ítalía byrjar EM af krafti. Annan leikinn í röð vinnur liðið 3-0 sigur sem þýðir að liðið hefur nú unnið tíu leiki í röð og það sem meira er, liðið hefur ekki fengið á sig mark í þessum tíu leikjum. 16.6.2021 20:55
Staða sem við viljum vera í Leikur ÍA og KA fór fram á Akranesi í kvöld. Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA-manna í kvöld, var að vonum ánægður með 2-0 sigur sinna manna. 16.6.2021 20:45
Ramos yfirgefur Real eftir 16 ára veru í Madríd Spænska stórveldið Real Madrid tilkynnti í dag að á morgun yrði haldinn blaðamannafundur þar sem Sergio Ramos, fyrirliði liðsins, myndi tilkynna að hann yrði ekki áfram í herbúðum liðsins. 16.6.2021 20:36
Alfons lagði upp í risasigri á Íslendingaliði Strømsgodset Það voru vægast sagt ólík úrslit Íslendingaliðanna í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 16.6.2021 18:45
Wales í góðum málum á meðan möguleikar Tyrkja eru úr sögunni Wales vann frábæran 2-0 sigur á Tyrkjum í Bakú, Aserbaísjan, í A-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu. Tyrkir þurftu á sigri að halda í dag en eftir leik dagsins er liðið úr leik á meðan Wales er svo gott sem komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar. 16.6.2021 18:00
Benítez gæti orðið næsti stjóri Gylfa Til greina kemur að Rafael Benítez, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, verði næsti stjóri Everton. Nuno Espirito Santo er þó talinn líklegastur til að taka við starfinu. 16.6.2021 17:30
„Þessi mál hefur borið á góma áður“ Guðni Bergsson, formaður KSÍ, kveðst bjartsýnn á að Eiður Smári Guðjohnsen komi af fullum krafti aftur inn sem aðstoðarlandsliðsþjálfari í haust. Þeir hafa þó áður þurft að ræða saman vegna áfengisneyslu Eiðs. 16.6.2021 17:01
FH-ingar hafa ekki tapað fjórum leikjum í röð í 26 ár FH-ingar hafa ekki unnið leik í næstum því mánuð en geta endað óvenju langa bið sína eftir sigri á móti Stjörnunni á heimavelli í Kaplakrika í kvöld klukkan 20:15. 16.6.2021 16:00
Eiður Smári í tímabundið leyfi: Mun svo sannarlega taka á mínum málum Knattspyrnusamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi Eið Smára Guðjohnsen þar sem segir að hann sé kominn í tímabundið leyfi frá starfi sínu sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í fótbolta. 16.6.2021 15:09
Rússar komnir á blað eftir sigur á Finnum í St. Pétursborg Rússar fengu sín fyrstu stig á Evrópumótinu í fótbolta karla þegar þeir unnu Finna, 0-1, í St. Pétursborg í dag. 16.6.2021 14:55
„Hann hefði ekki komist í Brimborgarboltann“ Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og strandblakliðseigandi, var svo sannarlega ekki hrifinn af fyrirliða Ungverja, Ádám Szalai, í tapinu gegn Portúgölum á EM í gær. 16.6.2021 14:31
Í bann fyrir að móðga mótherja en ekkert aðhafst vegna meints bits Marko Arnautovic má ekki spila með Austurríki gegn Hollandi á EM á morgun. Hann hefur verið úrskurðaður í leikbann fyrir níð í garð andstæðinga. 16.6.2021 14:15
FH færi til Noregs og Breiðablik til Austurríkis en Stjarnan heppnari Nú er orðið ljóst hvaða liðum íslensku liðin fjögur sem leika í Evrópukeppnum í fótbolta karla í sumar geta mætt vinni þau fyrstu mótherja sína. 16.6.2021 12:05
Talaði við Eriksen í mánuð um hvernig hann ætlaði að nota hann í Belgíuleiknum Kasper Hjulmand, þjálfari danska landsliðsins í knattspyrnu, var búinn að hugsa upp nýtt hlutverk fyrir Christian Eriksen í leiknum á móti Belgum á EM en ekkert verður að því að Eriksen spili þann leik. 16.6.2021 11:30
Óli Kristjáns fór yfir sigurmark Frakka í teiknitölvunni Frakkar unnu Þjóðverja á EM í gær án þess að skora sjálfir því leikurinn vannst á sjálfsmarki en franska liðið gerði frábærlega í sigurmarki sínu eins og Ólafur Kristjánsson fór yfir í EM-teiknitölvunni í gær í kvöldþætti EM í dag. 16.6.2021 11:01
Bjórþyrsti spéfuglinn sem Finnar geta reitt sig á Markvörðurinn Lukas Hradecky fagnaði einu sinni sigri finnska landsliðsins með því að þamba heilt bjórglas frá stuðningsmanni. Það er eiginlega alltaf stutt í grínið hjá þessari þjóðhetju Finna en hann viðurkennir að minna hafi verið um grín eftir fyrsta leikinn á EM, sigurinn á Dönum þar sem Christian Eriksen fór í hjartastopp. 16.6.2021 10:02
Færu líklega á hausinn ef þau ætti að borga konunum það sama og körlunum Cindy Parlow Cone, forseti bandaríska knattspyrnusambandsins, segir að sambandið myndi ekki ráða við það fjárhagslega að verða við kröfum leikmanna kvennalandsliðsins sem hafa stefnt sambandinu. 16.6.2021 09:31
Sjáðu markasyrpu gærdagsins á EM og flottustu mörk fyrstu umferðarinnar Cristiano Ronaldo bætti markametið á EM í draumabyrjun Portúgala og heimsmeistarar Frakka skoruðu ekki sjálfir en unnu samt. Mörg flott mörk hafa verið skoruð á EM til þessa. 16.6.2021 09:00
Liverpool byrjar næsta tímabil á móti Norwich eins og þegar liðið varð meistari Enska úrvalsdeildin í fótbolta gaf í morgun út leikjadagskrá sína fyrir komandi tímabil. 16.6.2021 08:17
Paul Pogba: Óþarfi að refsa Rudiger fyrir nartið Franski landsliðsmaðurinn Paul Pogba segir að Þjóðverjinn Antonio Rudiger hafi bitið í öxlina á honum í leik Frakklands og Þýskalands á EM í gær. 16.6.2021 08:00
Fimm sem stálu fyrirsögnunum í fyrstu umferð Nú þegar fyrstu umferð Evrópumótsins í knattspyrnu er lokið er vert að skoða hvaða fimm leikmann hafa komið mest á óvart og í raun stolið fyrirsögnunum á mótinu til þessa. 16.6.2021 07:01
Spánarmeistarar Atlético að styrkja sig Spánarmeistarar Atlético Madríd og ítalska félagið Udinese hafa náð samkomulagi um kaup fyrrnefnda liðsins á Rodrigo de Paul. 15.6.2021 23:30
Missti meðvitund í sigri Frakka á Þjóðverjum Hægri bakvörðurinn Benjamin Pavard missti meðvitund í 10 til 15 sekúndur í 1-0 sigri Frakklands á Þýskalandi er liðin mættust í lokaleik fyrstu umferðar Evrópumótsins í knattspyrnu í kvöld. 15.6.2021 22:55
Arnór og Hörður Björgvin fá nýjan þjálfara Ivica Olic, þjálfari rússneska knattspyrnuliðsins CSKA Moskvu, hefur sagt starfi sínu lausu. Íslensku landsliðsmennirnir Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson leika með liðinu. 15.6.2021 22:30