Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bættu rúmlega tveggja áratuga met ÍBV Stórsigur Breiðabliks á KR í Bestu deild karla á fimmtudag fer í sögubækurnar. Var Breiðablik þar að vinna sinn 16. heimaleik í röð í efstu deild. Síðasta tap liðsins á Kópavogsvelli kom í fyrstu umferð síðasta tímabil þegar KR vann þar 2-0 útisigur. 24.6.2022 12:01
Valskonur og Blikar höfðu heppnina með sér Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks leika bæði í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þar leika einnig nokkur Íslendingalið. Nú er verið að draga í riðla. 24.6.2022 11:23
Sextán dagar í EM: Elskar fisk og hefur unnið söngvakeppni Kópavogs Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn, og leikmaður Bayern München, Glódís Perla Viggósdóttir er næst í röðinni. 24.6.2022 11:01
„Spurning hvort maður eigi einhverjar vinkonur þarna eftir EM“ „Mér fannst þetta alltaf vera ótrúlega áhugavert,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, sem í morgun var kynnt sem nýjasti leikmaður fimmfaldra Ítalíumeistara Juventus. 24.6.2022 10:31
„Ef að Sara getur byrjað þá byrjar hún“ Sara Björk Gunnarsdóttir hefur ekki verið í byrjunarliði í fótboltaleik síðan í mars árið 2021 en sérfræðingar Bestu markanna telja engu að síður að hún verði í byrjunarliði Íslands á EM í Englandi. 24.6.2022 10:01
Sú markahæsta óvænt til Mexíkó og ekki með á EM Spænska landsliðið hefur orðið fyrir miklu höggi í aðdraganda Evrópumótsins sem fram fer í Englandi í júlí. Stórstjarnan Jennifer Hermoso verður ekki með liðinu á mótinu og það sem meira er, hún yfirgefur stórlið Barcelona fyrir lið í Mexíkó. 24.6.2022 09:30
Sara semur við Juventus Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, hefur samið við Ítalíumeistara Juventus. 24.6.2022 09:16
Ronaldo íhugar að yfirgefa Man United vegna metnaðarleysis á leikmannamarkaðnum Stórstjarnan Cristiano Ronaldo er langt því frá ánægður með metnaðarleysi Manchester United á leikmannamarkaðnum. Félagið á enn eftir að festa kaup á sínum fyrsta leikmanni síðan Erik ten Hag tók við. 24.6.2022 09:01
Í fyrsta sinn hægt að fá klippingu á fótboltaleik í kvöld Knattspyrnudeild Aftureldingar býður upp á skemmtilega nýjung á leiknum við Þór í Mosfellsbæ í kvöld. Hægt verður að fá klippingu á meðan á leik stendur. 24.6.2022 08:30
Mistækir KR-ingar gáfu toppliðinu hvert markið á fætur öðru Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, gerði sér lítið fyrir og vann KR 4-0 í gær. Gestirnir gerðu sér einkar erfitt fyrir en segja má að fyrstu tvö mörk leiksins hafi verið hrein og bein gjöf. Mörkin má sjá hér að neðan. 24.6.2022 08:00
Segir umboðsmenn leikmanna reyna að græða á ástandinu í Úkraínu Sergei Palkin, framkvæmdastjóri úkraínska knattspyrnufélagsins Shakhtar Donetsk, hefur ásakað hina ýmsu umboðsmenn um að reyna græða á ástandindu í Úkraínu. 24.6.2022 07:30
Englandsmeistarabikarinn til sýnis í nýja Framheimilinu Áhugafólk um fallega og sögulega verðlaunagripi ætti að taka kvöldið í kvöld frá því Englandsmeistarabikarinn verður til sýnis í nýja Framheimilinu í Úlfarsárdal. 24.6.2022 07:00
„Mér finnst búin að vera ógeðslega léleg mæting á vellina í sumar“ Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar Bestu markanna fóru yfir áhorfendatölur á leikjum Bestu-deildar kvenna í fótbolta í síðasta þætti sínum. Þær stöllur voru sammála því að mögulega væri áhorfendum að fækka á Íslandi, þvert á það sem er að gerast annars staðar í Evrópu. 23.6.2022 23:31
FIFA samþykkir stækkun leikmannahópa á HM Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur samþykkt reglubreytingu sem gerir þjóðum kleift að mæta með 26 manna leikmannahóp á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Katar í lok árs. 23.6.2022 23:00
Umfjöllun, viðtal og myndir: Breiðablik-KR 4-0 | Toppliðið vann stórsigur gegn gamla stórveldinu Breiðablik er nú með 11 stiga forskot á toppi Bestu-deildar karla eftir afar öruggan 4-0 sigur gegn KR á Kópavogsvelli í kvöld. 23.6.2022 22:43
Tindastóll lyfti sér upp í annað sæti | Fjölnir sótti sinn fyrsta sigur Lengjudeild kvenna í knattspyrnu bauð upp á tvo leiki í kvöld. Tindastóll lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með 3-0 sigri gegn Augnabliki og Fjölnir vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið lagði Hauka, 1-2, í botnslag deildarinnar. 23.6.2022 22:17
HK á toppinn og Fylkir upp í annað sæti Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. HK-ingar tylltu sér á toppinn með 3-1 sigri gegn Kórdrengjum og Fylkir eltir þá upp í annað sætið eftir 2-5 sigur gegn Gróttu. 23.6.2022 21:25
Fullyrðir að Pogba sé búinn að ná endanlegu samkomulagi við Juventus Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá því að nú sé það endanlega frágengið að Paul Pogba sé á leið til Juventus á nýjan leik frá Manchester United. 23.6.2022 20:31
KA-menn fá danskan sálfræðing Knattspyrnudeild KA hefur ráðið danska íþróttasálfræðinginn Thomas Danielsen til starfa og mun hann koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla auk þess að vinna þróunaráætlun fyrir yngri flokka félagsins. 23.6.2022 17:00
„Ekki þannig að við séum að skilja leikmann eftir“ Þó að vissulega geri fleiri leikmenn tilkall til þess að komast í EM-hóp Íslands þá höfðu sérfræðingarnir í Bestu mörkunum ekkert út á val Þorsteins Halldórssonar landsliðsþjálfara að setja. 23.6.2022 16:31
Framlengdi í Þýskalandi þrátt fyrir áhuga Chelsea og Man United Christopher Nkunku hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarfélagið RB Leipzig til ársins 2026. Nkunku vakti mikla athygli á síðustu leiktíð og voru ensku úrvalsdeildarfélögin Chelsea og Manchester United bæði á eftir honum. 23.6.2022 16:02
Breiðablik í flokki með risum á morgun og Valur einnig í efri flokki Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks verða í efri styrkleikaflokkum þegar dregið verður í fyrri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna á morgun. 23.6.2022 15:52
„Myndi vilja sjá okkur fara upp úr riðlinum“ „Ótrúlega gaman, erum allar búnar að vera bíða eftir þessu og ég held að það séu allar mjög spenntar,“ sagði Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður Eintracht Frankfurt og íslenska landsliðsins, um undirbúning íslenska landsliðsins fyrir EM í fótbolta sem fram fer í júlí. 23.6.2022 15:30
Sigurður leysir Sigurvin af hólmi KV hefur ráðið nýjan þjálfara í stað Sigurvins Ólafssonar eftir að Sigurvin kvaddi félagið til að gerast aðstoðarþjálfari FH. 23.6.2022 15:14
Gaf mikið að sjá íslensku skrúðgönguna og ein úr henni komst í landsliðið Harpa Þorsteinsdóttir segir aðra stemningu í kringum íslenska landsliðið í fótbolta fyrir EM kvenna í Englandi í næsta mánuði heldur en var fyrir síðasta stórmót, EM í Hollandi 2017. 23.6.2022 14:01
Segir fertugan Zlatan athyglissjúkan Það fer ekkert á milli mála að sænski framherjinn Zlatan Ibrahimović elskar sviðsljósið. Einn af hans fyrrverandi samherjum, Hakan Çalhanoğlu, hefur litla þolinmæði er kemur að skrípalátum Svíans. 23.6.2022 13:30
Geta endanlega kveðið KR-grýluna í kút og sparkað henni út á hafsauga Breiðablik vann loks sigur á KR er liðin mættust í Bestu deild karla í fótbolta þann 25. apríl síðastliðinn. Þau mætast á nýjan leik á Kópavogsvelli í kvöld og getur topplið deildarinnar endanlega kveðið KR-grýlu sína í kútinn. 23.6.2022 13:00
Ísland stendur í stað á heimslista FIFA Nýr heimslisti Alþjóðaknattspyrnusambandsins var birtur í dag. Íslenska karlalandsliðið stendur í stað í 63. sæti listans. 23.6.2022 12:30
KSÍ fékk aukamiða á EM Knattspyrnusamband Íslands hefur tilkynnt að hægt sé að fá miða á Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Englandi. Fékk sambandið nokkuð óvænt fleiri miða upp í hendurnar. 23.6.2022 12:11
„Íslenska leiðin er ekkert þannig lengur“ Harpa Þorsteinsdóttir segir að það eigi ekki lengur við íslenska kvennalandsliðið í fótbolta að liggja bara í vörn gegn sterkum mótherjum. Hún telur Ísland eiga að geta stjórnað leikjunum gegn Belgíu og Ítalíu á EM í næsta mánuði. 23.6.2022 12:00
Sautján dagar í EM: „Spilaði á þverflautu frá sex ára aldri út fyrsta árið í Verzló“ Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Næst í röðinni er hin lunkna Agla María Albertsdóttir sem leikur með BK Häcken í Svíþjóð. 23.6.2022 11:00
Maðurinn bakvið kaup Liverpool undanfarin ár gæti farið til Chelsea eða Man Utd Michael Edwards er einn færasti maður Englands og eflaust víðar í sínu fagi. Hann hefur séð um kaup og sölur leikmanna hjá Liverpool undanfarin ár en gæti nú fært sig um set til Manchester eða Lundúna. 23.6.2022 09:31
Stúkan um innkomu Antons Loga í byrjunarlið Blika: „Smellur bara eins og flís við rass“ „Mér fannst hann spila eins og hann væri þrítugur,“ sagði Reynir Leósson, sérfræðingur Stúkunnar um frammistöðu hins 19 ára gamla Antons Loga Lúðvíkssonar í 4-1 sigri Breiðabliks á KA í 10. umferð Bestu deildar karla. 23.6.2022 09:00
Stelpurnar okkar gætu mest unnið 290 milljónir króna Innan við tvær vikur eru í að flautað verði til leiks á EM kvenna í fótbolta og þar er eftir mun hærri fjárhæðum að slægjast en nokkru sinni í sögu mótsins. 23.6.2022 08:01
Vill reka Arteta og ráða Pochettino Fjölmiðlamaðurinn og yfirlýstur stuðningsmaður Arsenal, Piers Morgan, hefur áhyggjur af liðinu undir stjórn Mikel Arteta og biðlar til félagsins að ráða fyrrum knattspyrnustjóra Totteham, Maurico Pochettino til Arsenal. 23.6.2022 07:01
Gummi Ben skammar KR-inga: „Þetta er barnalegt“ Sparkspekingurinn Guðmundur Benediktsson er ekki sáttur með sitt fyrrum félag í Vesturbænum en Guðmundur lætur KR-inga heyra það eftir tilkynningu félagsins um starfslok Sigurvins Ólafssonar hjá KR. 22.6.2022 23:30
Skúrkurinn í Newcastle gæti orðið hetjan í Derby Mike Ashley er sagður líklegastur til að verða næsti eigandi knattspyrnuliðsins Derby County á Englandi. Ashley seldi Newcastle United í október 2021 eftir að hafa orðið einn óvinsælasti maður í Norður-Englandi. 22.6.2022 22:46
Arsenal og Juventus berjast um undirskrift Söru Bjarkar Sara Björk Gunnarsdóttir getur nánast valið með hvaða stórliði hún vill spila með á næsta leiktímabili. Stærstu lið Evrópu vilja fá Söru Björk til liðs við sig. 22.6.2022 22:00
Sigurvin kveður með jafntefli Sigurvin Ólafsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari FH, stýrði KV í sínum lokaleik með félagið í kvöld gegn Þrótti Vogum. Liðin gerðu 1-1 jafntefli en KV lék manni fleiri síðasta korterið. 22.6.2022 21:30
Leeds og Chelsea gætu skipt á leikmönnum Leeds býst við því að missa Raphinha frá sér í sumar og horfir liðið nú til Hakim Ziyech, leikmanns Chelsea, sem hugsanlegan arftaka Raphinha á vængnum hjá Leeds. 22.6.2022 20:45
Íslendingar í aðalhlutverki í norska bikarnum Það var nóg af íslenskum mínútum í norska bikarnum í fótbolta í dag. Tvö íslenskt mörk ásamt einni stoðsendingu litu dagsins ljós en allir íslensku strákarnir spiluðu á útivelli í umferðinni. 22.6.2022 20:01
PSG ætlar að selja Neymar Luis Campos, nýr yfirmaður knattspyrnumála hjá Paris Saint-Germain, ætlar að taka til hendinni hjá félaginu í sumar. Campos hefur sett saman lista yfir þá sem munu yfirgefa félagið í sumar og Neymar er efstur á þeim lista. 22.6.2022 18:31
Fornir fjendur hlutu sameiginlegan styrk frá UEFA til að aðstoða flóttafólk og hælisleitendur KR og Valur hlutu í vikunni styrk frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, vegna verkefnis tengdu málefnum flóttafólks og hælisleitenda. Frá þessu er greint á vef Knattspyrnusambands Íslands. 22.6.2022 15:30
„Mögulega frábært fyrir landsliðið að fólk sé að setja þessa pressu á hana“ „Ég held að hún sé einn mest spennandi leikmaður mótsins,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir um Sveindísi Jane Jónsdóttur, í sérstökum EM-upphitunarþætti Bestu markanna. 22.6.2022 15:01
Átján dagar í EM: Næringarfræðingurinn fær fjölskylduna á fjórða stórmótið Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Eyjakonan Elísa Viðarsdóttir er sú sjötta í röðinni. 22.6.2022 14:00