Fleiri fréttir

Alicja Kwade sýnir í i8

Sýning Alicja Kwade samanstendur af skúlptúrum og innsetningum. Sýningin verður opnuð í Galleríi i8 í dag.

Bjarki enn á toppnum

Ljóðabók Bjarka Karlssonar, Árleysi alda, trónir á toppi metsölulista Eymundsson aðra vikuna í röð.

Myndaði miðbæinn

Ljósmyndabókin Reykjavík í hnotskurn er umfangsmikil samtímaheimild um grafík og hönnun í miðbæ Reykjavíkur. Bókin inniheldur ljósmyndir sem Annetta Scheving, grafískur hönnuður með ljósmyndadellu, hefur tekið undanfarin fjögur ár.

Nýr einleikur um eldklerkinn

Eldklerkurinn, nýr einleikur eftir Pétur Eggerz, verður frumsýndur á Kirkjubæjarklaustri um helgina. Verkið er byggt á ritum séra Jóns Steingrímssonar, eldklerksins úr Skaftáreldum. Sýningar verða í Hallgrímskirkju næstu þrjár helgar.

Listamenn segja fjárlagafrumvarpi stríð á hendur

Bandalag íslenskra listamanna undirbýr aðgerðaráætlun sem miðar að því að upplýsa stjórnmálamenn og almenning um afleiðingar fyrirhugaðs niðurskurðurar til starfssjóða listamanna.

Ástir og örvænting í Hörpu

Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona og Antonía Hevesi píanóleikari halda hádegistónleika í Norðurljósasal Hörpu í dag.

Spánverjar elska Arnald

Arnaldur Indriðason fær lofsamlega dóma í El Mundo fyrir Skuggasund og er þar meðal annars talað um frásagnarsnilld.

Jóhann Sigurðarson orðinn "Stefaníubarn“

Viðurkenning Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur var veitt á Litla sviði Borgarleikhússins á lokasýningu verksins Rautt, en það hefur verið sýnt um 60 sinnum fyrir fullu húsi

Átök alþýðukonu og listfræðings

Leikritið Pollock? eftir Stephen Sachs verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á miðvikudagskvöld. Það fjallar um átök alþýðukonu og listfræðings og í forgrunni er spurningin um það hvað sé ekta og hvað svikið.

Bláskjár enn á ferð

Illugi Jökulsson var sjö ára þegar hann sá vagnalest rómafólks á ferð í Grikklandi og hafði djúp áhrif á hann. Nýlegar fréttir af bláeygu barni rifjuðu líka upp gamla barnabók.

Getur alveg leikið illmenni

Ólafía Hrönn Jónsdóttir er kona ekki einhöm. Hún er jafnvíg á að leika konur og karla, syngur, málar og semur tónlist, skýtur hreindýr og eldar ofan í börnin sín.

Æfir sig í að breytast

Heimsendir fylgir þér alla ævi er fyrsta ljóðabók Evu Rúnar Snorradóttur. Hún segist hafa skrifað ljóð alla ævi en farið með það eins og mannsmorð, það hafi ekki þótt töff í Neðra-Breiðholtinu.

Viðhalda tuttugu ára hefð

Nemendur Söngskólans í Reykjavík syngja við guðsþjónustur í kirkjum Reykjavíkursvæðisins.

Svolítið eins og að spila með Bítlunum

Í nóvember er væntanlegt úrval ljósmynda Ragnars Axelssonar í ritröðinni Photo Poche, sem álitin er áhrifamesta ritröð um sögu ljósmyndunar í heiminum.

Fönixinn rís enn á ný úr öskunni

Dansleikhúskonsertinnn Ferðalag Fönixins – um listina að deyja og fæðast á ný verður sýndur á Álandseyjum í á laugardaginn. María Ellingsen, sem fer fyrir hópnum sem að sýningunni stendur, segir áhorfendur hrífast mjög af verkinu.

Sverðið vísar til sæmdar og hugrekkis

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur á morgun fyrir málþingi um ævi og ritstörf Jorges Luis Borges í Þjóðminjasafninu. Meðal fyrirlesara er Jón Hallur Stefánsson sem fjallar um sverð í verkum Borges.

Ragnar með gjörning í Tate Modern-safninu

Listamaðurinn Ragnar Kjartansson flytur gjörninginn Variation of Meat Joy í Tate Modern-safninu í London í kvöld. Áhorfendur um heim allan geta fylgst með í rauntíma á netinu, spjallað og spurt listamanninn spurninga.

Ljóðabók í efsta sæti metsölulista

Það er fáheyrt að í efsta sæti á Metsölulista Eymundsson sitji ljóðabók, en Árleysi alda eftir Bjarka Karlsson vermir nú toppsætið.

Þarf ekki hrotta til að leika hrotta

Hús Bernörðu Alba í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur ætlar að reynast umdeild. Ummæli leikstjórans áður en til frumsýningar kom valda uppnámi innan leikhúsgeirans.

Maður er aldrei búinn með listaverk

Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður verður gestur Guðna Tómassonar listsagnfræðings í Hannesarholti annað kvöld. Þau munu ræða verk Guðrúnar, hugmyndirnar að baki þeim og aðferðirnar við vinnslu þeirra.

Sjaldgæft ferðalag Íslendings á 17. öld

Illugi Jökulsson var að blaða í gömum pappírum og rakst þá á sjaldgæfa ævisögu sem snikkarasveinn frá Barðaströnd skrifaði um mikil ævintýri sín í Evrópu fyrir 350 árum.

Ekki fengið neitt bréf um að hætta að ögra

Mánasteinn, nýjasta skáldsaga Sjóns, kemur út á þriðjudaginn. Sagan lýsir bæjarlífinu í Reykjavík árið 1918 þegar Kötlugos og spænska veikin umturna lífi bæjarbúa. Söguhetjan er sextán ára drengur, Máni Steinn, sem lifir á jaðri samfélagsins af ýmsum ástæðum.

Mistökin eru af hinu góða

Hildur Berglind Arndal útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskólans í vor og þreytir frumraun sína í verkinu Hús Bernhörðu Alba í Borgarleikhúsinu. Þegar leikkonan steig fyrst á svið segist hún hafa upplifað frelsi til að fá að vera asnaleg.

Enginn getur verið eins vondur við mann og maður sjálfur

Dísusaga – konan með gulu töskuna er skáldævisaga Vigdísar Grímsdóttur þar sem hún lýsir þeim afleiðingum sem nauðgun þegar hún var tíu ára hefur haft á líf hennar. Sagan er engin venjuleg ævisaga enda skrifuð af tveimur ólíkum persónum, Dísu og Gríms.

Hefur ekki reynt sambönd á eigin skinni

Ríkharður Hjartar Magnússon frumsýnir sitt fyrsta leikstjórnarverkefni, Saum, í Borgarleikhúsinu í kvöld. Verkið fjallar um stormasamt ástarsamband.

Danir hrifnir af Einari Má

Skáldsaga Einars Más Guðmundsonar, Íslenskir kóngar, hefur fengið mjög góða dóma í Danmörku síðan hún kom þar út um miðjan ágúst.

Ekki bara ástardrama

Carmen, ein ástríðuþrungnasta ópera allra tíma, verður frumsýnd annað kvöld í Eldborgarsal Hörpu. Hanna Dóra Sturludóttir syngur titilhlutverkið þá.

Telur tilfinningar vanmetnar í sagnfræði

Hver var réttur Íslendinga til að elska, á fyrstu öldum byggðar í landinu? Það kryfur Gunnar Karlsson sagnfræðingur í bókinni Ástarsaga Íslendinga að fornu.

Stórhættulegt að setja grindverk milli kynja

Hús Bernhörðu Alba eftir Federico Garcia Lorca verður frumsýnt í Gamla bíói annað kvöld. Kristín Jóhannesdóttir, leikstjóri sýningarinnar, vill koma á samtali milli nútímans og tíma Lorca, þegar fasistar voru að taka völdin á Spáni.

Sjá næstu 50 fréttir