Fleiri fréttir

Íslendingar eru klikk

Árið er fjögur eftir hrun. Öll Evrópa er komin undir einn hatt…, æ, afsakið öll. Ein lítil eyja á hjara veraldar unir enn farsæl, fróð og frjáls við ysta haf. Eyjarskeggjar eru eins misjafnir og þeir eru margir, eins og gerist með þjóðir en þeir búa yfir leynivopni sem gerir þá alveg ósigrandi. Þeir eru nefnilega klikk!

230 lítrar af ógn

Stígur Helgason skrifar

Ég get ekki beðið eftir að ganga í Evrópusambandið. Mér er alveg sama um myntsamstarf og álitaefni sem varða sjávarútveg og landbúnað – ég er bara svo spenntur að fylgjast með fólki rogast með sprengfull koffort af rauðvíni um flugvelli í útlöndum og heyra svo vodkaflöskurnar rúlla hverja á eftir annarri úr bakpokunum í handfarangursrýminu á leið yfir hafið.

Fagurbókmenntir eða pabbaklám

Eftir að hafa unnið með fimmtán breskum rithöfundum í sex mánuði að verkum þeirra er mér orðin ljós öll sú flóra áhyggjuefna sem sækir á höfunda er þeir strengja saman orð í setningar. Um er að ræða áhyggjur á borð við:

Helvíti á jörð

Svavar Hávarðsson skrifar

Þetta var einhvern tímann stuttu eftir að ég byrjaði nám í háskóla. Ég leigði litla kjallarakompu í vesturbænum ásamt vini. Eins og lög gera ráð fyrir var lítið sem ekkert lesið en því meira var lífsblómið vökvað. Kjallarakompan góða var oft lokapunkturinn á svallinu. Einn morguninn vaknaði ég svo við að ákveðið var knúið dyra og reyndist það vera nágranni minn að biðja mig um að ganga varlegar um gleðinnar dyr næst þegar ég fengi gesti. Þessu lofaði ég manninum, sem var hinn vinalegasti.

Hárfár

Ég stend á tímamótum. Ég er komin á þann stað í lífinu að dóttir mín er komin með svo sítt hár að það er eiginlega nauðsyn að setja í það teygjur á hverjum morgni. Þar sem ég hef sjálf aldrei verið með sítt hár er ég í smá vandræðum, en hef gert gott úr þessu og set yfirleitt í hana staðlað tagl.

Hinir óhæfustu lifa

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Sú var tíðin að ég taldi mig skilja kapítalismann. Taldi ég leikreglurnar vera á þann veg að þeir hæfustu kæmust af. Markaðurinn var það afl sem úrskurðaði hver væri hæfur og hver ekki. Eftir að markaðurinn úrskurðaði síðan marga af hinum helstu stórlöxum algjörlega óhæfa komst ég að því að þetta hefði verið hinn mesti misskilningur hjá mér.

Ég er bara svo upptekin

Tinna Rós Steinsdóttir skrifar

"Vissir þú að stór hluti fólks á elliheimilum fær aldrei neinn í heimsókn til sín,“ sagði afi minn við mig í barnaafmæli í sumar. "Já, hugsaðu þér,“ svaraði ég hneyksluð á meðan ég hrósaði sjálfri mér í huganum fyrir að vera betri afkomandi en það.

Í þjónustu Nýdanskrar

Björn Þór Sigbjörnsson skrifar

Ert þú eitthvað fyrir skartgripi?“ spurði söngvarinn mig þar sem við sátum hlið við hlið í rútunni. Spurningin kom flatt upp á mig en ég svaraði henni auðvitað neitandi enda hafði ég aldrei nokkurn tíma borið skartgrip. "Ég hef alltaf verið glysgjarn,“ sagði hann þá og lyfti höndunum til að sýna mér hringum prýdda sex eða sjö fingur, til að staðfesta orð sín. Fjólublár hatturinn sagði líka sína sögu svo ekki sé nú talað um pelsinn sem hann klæddist.

Vildi fá sér vænan mann

Friðrika Benónýs skrifar

Þetta er bara svona: Konur vilja öryggi.“ Vinur minn dæsir makindalega og kemur sér betur fyrir í sófanum sannfærður um að þessi fleyga setning muni binda enda á reiðiraus mitt yfir því að nær allar bækur og bíómyndir sem beint er að konum skuli snúast um það eitt að ná sér í mann. Alveg sama hversu miklir töffarar kvenpersónur skáldskaparins eru, allar fá þær í hnén og kasta sér flötum um leið og einhver déskotans draumaprins birtist. Það er fullkomlega óhugsandi að kona öðlist hamingju öðruvísi en í gegnum samband við karlmann. "Þetta er bara svona.“

Mánudagur til mæðu

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Hey! (hátt blístur) Pitsan þín er tilbúin!“ Ungi maðurinn með svuntuna veifaði mér og ýtti til mín kvöldmat fjölskyldunnar þetta mánudagskvöldið. Ég varð hálf hvumsa við hátt blístrið þar sem ég var eini gesturinn fyrir framan borðið hjá honum en stökk auðvitað til og þreif til mín pappakassann. Hér átti greinilega ekkert að hanga lengur en þörf var á. Unga manninum stökk ekki bros og mér sýndist hann hálf súr. Klukkan var orðin margt. Hann langaði greinilega að vera einhvers staðar annars staðar en í gluggalausu pitsueldhúsinu. Það var mánudagur í honum.

Upp úr kafinu

Á ferðalagi í austanverðri Afríku, nánar tiltekið í Vilankulo í Mósambík, bauðst okkur vinkonunum að heimsækja eyjaklasann Bazaruto þar sem er eitt merkilegasta og fallegasta kóralrif heims. Boðið var upp á ferðir út í eyjuna og einnig boðið að snorka eða kafa niður á kóralrifið.

Við erum með eitruð gen

Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Marteinn Lúther negldi skjal á dyr Hallarkirkjunnar í Wittenberg og siðbreyting og siðbót hófust. Hamarshöggin og hugsun Lúthers opinberuðu vitleysur tímans, sem hægt var að leiðrétta. Hallarkirkjan og dyr hennar eru síðan hvetjandi tákn um að fólk sinni lífsleikni og taki á móti Guðsgjöfunum.

Gjörningurinn Chris Brown

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Santiago Sierra heitir listamaður. Hann er þekktastur fyrir að borga fátæku fólki fyrir að gera erfiða og/eða niðurlægjandi hluti, eins og til dæmis að vera ofan í kassa í fjóra daga eða láta múra sig inn í vegg. Hann vill sýna fram á að fólk sé tilbúið að gera ansi margt sér til viðurværis, meðal annars að láta breyta líkama sínum varanlega, og greiddi til dæmis fjórum vændiskonum peningaupphæð sem samsvaraði einum heróínskammti fyrir að láta húðflúra línu á bak sitt. Sierra vill með list sinni sýna notkun kapítalismans á fólki og líkama þess. Í stuttu máli: hann fer illa með fólk til að sýna hversu illa er hægt að fara með einstakling án þess að samfélagið fordæmi það.

Menntun utan skólastofunnar

Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar

Mark Twain sagði eitt sinn í glettni að hann hefði aldrei látið skólagöngu trufla menntun sína. Ég hafði þetta eftir honum einhverju sinni í menntaskóla þegar ég var krafinn svara um af hverju ég hefði mætt seint í frönskutíma. Kennaranum var ekki skemmt. Ég skil það svo sem núna enda ákveðinn hroki gagnvart skólakerfinu fólginn í þessum orðum. Í þeim felst þó einnig sá sannleikur að menntun hvers og eins fer fram víðar en einungis í skólastofunni.

Valdarán

Sif Sigmarsdóttir skrifar

Svertingjar, mikið ósköp eruð þið orðnir þreytandi með þetta jafnréttistal ykkar, það er orðið að þráhyggju. Það má bara ekki ráða hvítan mann í góðu störfin, þá byrjið þið að vola – hvað um verri störfin – þar heyrist ekkert í ykkur. Þið eruð farnir að ganga á rétt hvítra. Hafið þið, svertingjar, hugsað út í það, hvort yfir höfuð stjórnmál séu réttu störfin fyrir svertingja? Hafið þið hugleitt hvort allt ruglið sé af því að þið eruð orðnir of margir í störfum sem þið valdið ekki. Þið skulið hugsa þessi mál, en ekki vera með þennan yfirgang. Lífið á að vera ganga hvers og eins á eigin forsendu, og hver og einn á að vita sín takmörk.

Sjónvarpið mitt

Svavar Hávarðsson skrifar

Stofan mín er á stærð við leikteppi tveggja ára gamals barns. Í öndvegi stendur þar forláta túbusjónvarp af Grundig-gerð, fjórtán ára gamalt. Það er á stærð við tönn á traktorsgröfu og myndgæðin á 29 tommu skjánum eru satt best að segja engin. Þetta tvennt, stofan mín og Grundigginn, eiga illa saman en einhverra hluta vegna fæ ég það ekki af mér að skilja á milli og bjóða nýtt sjónvarp velkomið í húsið. Fyrir því eru fleiri en ein ástæða. Hér verður aðeins fjallað um eina þeirra.

R-O-K

Erla Hlynsdóttir skrifar

"Ég er ekki tilbúin fyrir þetta strax,“ hugsaði ég og dæsti. Nei, ég var ekki að hugsa um hjónaband og aldeilis ekki um að greiða meira í séreignarlífeyrissparnað. Ég var að hugsa um nákvæmlega það sama og allir aðrir Íslendingar í gærmorgun: Veðrið.

Kristilegur kjaftagangur

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar

Spánn er meðal þeirra þjóða þar sem hljóðmengun er hvað mest. Það kemur íslenskum sólarlandaferðalöngum eflaust ekki á óvart sem komið hafa á spænskan bar. Þar talar hver og einn með slíkum raddstyrk að halda mætti að viðmælandinn væri í næsta bæjarfélagi. Þar á ofan þjösnast barþjónninn svo á kaffikvörninni að viðskiptavinurinn fær það fljótlega á tilfinninguna að hann sé staddur í vélsmiðju.

Samfélagið versus heimurinn

Tinna Rós Steinsdóttir skrifar

Það má ekki pissa bak við hurð, ekki henda grjóti oní skurð, hvorki skoða lítinn kall né gefa ketti drullumall og ekki segja ráddi heldur réði. Þessar eru á meðal þeirra lífsreglna sem okkur eru kenndar í Laginu um það sem er bannað, eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson.

2700 límbandsrúllur

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar

Hvað getur maður keypt sér fyrir tæpar 2,3 milljónir á mánuði sem maður gat ekki leyft sér með rúmar 1,8 milljónir í mánaðarlaun? Dýrari bíl? Stærra hús? Lengri utanlandsferð? Fleiri jakkaföt?

Hausthamingjan yfir mér

Friðrika Benónýs skrifar

Bezt eru vorin, ekkert elska ég heitar,“ orti Hannes Pétursson í Söngvum til jarðarinnar og eflaust taka margir sólþyrstir Íslendingar undir með skáldinu.

Í blíðu og stríðu

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar

Ég blótaði sjálfri mér í huganum meðan ég þeytti saman sykur og egg. Skildi ekkert í mér að hafa gleymt þessu.

Vald vaðalsmanna

Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar

Fyrirtæki nokkurt hér í bæ hefur mælt væntingarvísitölu Íslendinga um nokkra hríð. Hún á að sýna hversu mikil bjartsýni einkennir þjóðina og gott ef sama könnun er ekki gerð í fleiri löndum þannig að alþjóðlegur samanburður náist. Ofurtrú ýmissa á hvers kyns skoðanakönnunum er reyndar slík að hún hefur litað pólitískan málflutning meira en góðu hófi gegnir. Um þessa könnun er hins vegar ekkert nema gott að segja, hún mælir hverjar væntingar við höfum til framtíðarinnar. Það hefur enda verið talið órækt merki þess að hlutirnir mjakist eilítið fram á við að þessi blessaða vísitala hefur aukist.

Dýrustu kartöflur á Íslandi

Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Þjóðviljinn flutti eitt sinn þá frétt, að kona í Vesturbænum ræktaði dýrustu kartöflur á Íslandi. Konan var mamma og Þjóðviljinn birti mynd af garðinum á dýrmætri byggingarlóð. Verktakar og lóðaþurfandi framkvæmdamenn komu svo og vildu kaupa. Pabbi vísaði þeim brosandi á mömmu.

Lestur er sexý

Brynhildur Björnsdóttir skrifar

Ég hefði auðvitað getað skrifað Að lesa bók er ævintýri, Lengi býr að fyrstu bók, Lestur er bestur eða eitthvað miklu sniðugra og meira grípandi með lestur eða bók í titlinum. En ég hefði aldrei fengið eins marga til að athuga um hvað þessi pistill er ef ég hefði valið einhverja ofangreindra fyrirsagna. Með því að tengja saman lestur og lostvaka náði ég sennilega til mun breiðari hóps en hefði annars veitt nokkru sem skrifað er um lestur athygli. Kynlíf og allt sem því tengist selur því allir hafa áhuga á kynlífi, ekki satt?

Sjá næstu 50 greinar