Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiríkur nýr samskiptastjóri Hugverkastofunnar Eiríkur Sigurðsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri Hugverkastofunnar. Hann var áður forstöðumaður samskiptasviðs Háskólans í Reykjavík. Eiríkur tekur við stöðu samskiptastjóra af Jóni Gunnarssyni sem hefur hafið störf við Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) í Alicante. 5.9.2022 15:54
Danir reyni að eigna sér heiðurinn af gamalli nammihefð Íslendinga Það er mikill misskilningur að Danir hafi fundið upp á þeirri vinsælu framleiðsluaðferð sælgætis, að húða lakkrís með súkkulaði, líkt og forsvarsmenn danska fyrirtækisins Lakrids by Bülow virðast halda fram. Þetta segir framkvæmdastjóri Freyju. 5.9.2022 11:27
Arion banki og Íslandsbanki hækka vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánavaxta bankans sem taka gildi í dag, en vaxtahækkanir hjá Íslandsbanka munu taka gildi á föstudaginn. Tilkynnt er um hækkunina í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans 24. ágúst síðastliðinn. 5.9.2022 10:53
Ráðinn forstjóri Skaginn 3X og BAADER Ísland Sigsteinn Grétarsson hefur verið ráðinn í stöðu forstjóra Skaginn 3X og BAADER Ísland. 5.9.2022 10:46
Skýrslan um söluna á Íslandsbanka á lokametrunum Skýrsla ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu ríkisins á hluta sínum í Íslandsbanka, er væntanleg innan tíðar. Mikil eftirvænting ríkir innan sem utan þings vegna skýrslunnar. 5.9.2022 10:42
Neytendur eigi inni talsverðar lækkanir á eldsneytisverði Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir eldsneytisverð hér á Íslandi hæst í Evrópu. Neytendur eigi inni talsverðar verðlækkanir og kallar eftir því að stjórnvöld beiti sér fyrir lækkuðu verði. 5.9.2022 09:55
Gestur tekur við af Rúnari hjá PCC BakkiSilicon Gestur Pétursson, fyrrverandi forstjóri Veitna og Elkem, hefur verið ráðinn nýr forstjóri PCC BakkiSilicon. Hann tekur við starfinu af Rúnari Sigurpálssyni sem mun halda áfram störfum fyrir PCC samstæðuna og einbeita sér að þróunarverkefnum á Íslandi. 2.9.2022 14:36
Guðrún ráðin forseti Gray Line Worldwide Guðrún Þórisdóttir, sölu- og markaðsstjóri Gray Line á Íslandi, hefur verið ráðin í starf forseta Gray Line Worldwide. 2.9.2022 13:55
Engar hópuppsagnir í ágúst Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í núliðnum ágústmánuði. 2.9.2022 12:48
Fresta vaxtahækkunum þar sem gleymdist að tilkynna viðskiptavinum Arion banki hefur ákveðið að vaxtahækkun óverðtryggðra neytendalána með breytilegum vöxtum sem taka átti gildi 29. júlí síðastliðinn muni ekki taka gildi fyrr en 25. september næstkomandi. Þetta sé vegna þess að bankanum hafi misfarist að tilkynna viðskiptavinum um breytinguna með beinum hætti. 2.9.2022 12:02
Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. 2.9.2022 07:58
Mountain Dew í dósum snýr aftur Mountain Dew í dósum er komið aftur í búðir eftir fimm ára fjarveru. Fyrstu dósirnar lentu í verslunum í vikunni og það er aldrei að vita hvort fleiri nýjungar séu væntanlegar á næstu mánuðum. 1.9.2022 18:21
Sveinn Friðrik nýr rekstrarstjóri Arctic Trucks International Sveinn Friðrik Sveinsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Arctic Trucks International ehf. 1.9.2022 13:18
Garðar ráðinn forstjóri Valitor Garðar Stefánsson hefur verið ráðinn forstjóri greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor. Garðar tekur við stöðunni af Herdísi Fjeldsted, frá og með deginum í dag. 1.9.2022 10:56
Auglýsa eftir 150 flugliðum og 55 flugmönnum Flugfélagið Play hefur ákveðið að auglýsa eftir 150 flugliðum fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf, auk 55 flugmanna, bæði með og án reynslu. 1.9.2022 09:53
Lánveitendur þurfi að aðstoða fólk sjái það fram á tímabundna erfiðleika Fjármála- og fyrirtækjaráðgjafi segir fólk mun verndaðra gagnvart lánveitendum en fyrirtæki. Hægt sé að leita til bankanna, sjái fólk fram á tímabundna greiðsluörðugleika, sem verði að koma til móts við lántaka. 1.9.2022 09:19
Beggi Dan, Eydís Ögn og Oscar til liðs við Svartagaldur Beggi Dan Gunnarsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra markaðs- og tæknifyrirtækisins Svartagaldurs. Auk hans hafa Eydís Ögn Uffadóttir og Oscar Lopez verið ráðin til fyrirtækisins. 1.9.2022 08:13
Landsbankinn fyrstur til að hækka vextina Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,75 prósentustig og verða þeir eftir breytingu sjö prósent. 1.9.2022 07:41
Boðar fleiri tugi þúsunda í sparnað með debetkortum Fleiri þúsund manns eru á biðlista, en tvö hundruð manns hafa þegar tekið í notkun greiðslukort frá nýja samfélagsbankanum - eða sparisjóðnum - Indó. Greiðslukortunum fylgja ekki færslugjöld og framkvæmdastjóri sparisjóðsins segir viðskiptavini hæstánægða. 1.9.2022 07:01
Framkvæmdastjóri Krónunnar kaupir hlut í Festi fyrir tæplega 20 milljónir Framkvæmdastjóri Krónunnar, Ásta Sigríður Fjeldsted hefur keypt tæplega 20 milljóna króna hlut í smásölufyrirtækinu Festi en hún greiddi 208 krónur á hlut. Festi rekur verslanir Krónunnar. 31.8.2022 23:28
Miðar á jólahlaðborð seldust upp á mettíma Strax er orðið uppselt á jólahlaðborðið hjá hótel Geysi í Haukadal en ef marka má Facebook síðu hótelsins seldust miðarnir upp á rétt rúmlega tveimur klukkustundum. 31.8.2022 22:11
Jón nýr í stjórn og Petrea verður stjórnarformaður Petrea Ingileif Guðmundsdóttir var í dag kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi sem fór fram í höfuðstöðvum félagsins við Suðurlandsbraut í hádeginu í dag. Jón Skaftason kemur einn nýr inn í stjórn félagsins. Fjórir af fimm fyrri stjórnarmönnum sóttust eftir endurkjöri og hlutu allir kjör. 31.8.2022 11:51
Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. 31.8.2022 08:50
Stjórnvöld geti gert meira en hlusti ekki: „Það þarf ekki bara að treysta á Seðlabankann til að glíma við verðbólguna“ Verðbólga minnkaði á milli mánaða í fyrsta sinn í rúmt ár og merki eru um viðsnúning á fasteignamarkaði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir verðbólguna þó enn allt of háa og sakar stjórnvöld um áhugaleysi gagnvart því að ná verðbólgunni frekar niður. 30.8.2022 23:02
Íbúðaframboð eykst hratt Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt undanfarið. Á höfuðborgarsvæðinu hefur framboð aukist um 45 prósent á einum mánuði. 30.8.2022 11:41
Katrín segir upp störfum hjá SFF Katrín Júlíusdóttir hefur sagt starfi sínu, sem framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, lausu eftir tæplega sex ára starf fyrir samtökin. Þetta kemur fram á vef SFF þar sem segir að hún hafi upplýst stjórn samtakanna um þetta fyrr í mánuðinum. 29.8.2022 16:38
Um 34% aukning á hreinum nýjum bílalánum á milli ára Um 34% aukning er á hreinum nýjum bílalánum heimilanna á milli ára. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir þetta benda til þess að enn sé talsverður neysluvilji til staðar. 29.8.2022 12:49
BHM styrkir sig fyrir komandi kjaraviðræðuvetur BHM hefur ráðið þau Willard Nökkva Ingason, Þóru Kristínu Þórsdóttur, Ingvar Sverrisson og Karitas Marý Bjarnadóttur til starfa innan bandalagsins. 29.8.2022 11:22
Ráðin framkvæmdastjóri VBM Halldóra G. Hinriksdóttir, forstöðumaður hjá RB hf., hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Verðbréfamiðstöðvar Íslands og tekur við starfinu 1. september. 29.8.2022 09:32
Össur kaupir hið bandaríska Naked Prosthetics Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hf. hefur gengið frá kaupum á Naked Prosthetics sem sérhæfir sig í stoðtækjum fyrir einstaklinga sem misst hafa framan af fingri eða hlut af hendi. 29.8.2022 08:03
Sextán „fyrirmyndarfyrirtækjum“ veitt viðurkenning Sextán fyrirtæki hlutu í dag viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ við hátíðlega athöfn á Nauthóli. 26.8.2022 17:00
Tekur við sem forstjóri EY á Íslandi Guðjón Norðfjörð hefur verið ráðinn forstjóri EY á Íslandi. Hann tekur við starfinu af Margréti Pétursdóttur, sem hefur verið forstjóri síðastliðin þrjú ár og mun hún nú vinna að því að koma nýjum forstjóra inn í starfið. 26.8.2022 14:25
Hugi Halldórsson nýr markaðsstjóri Ísorku Hugi Halldórsson, best þekktur sem Ofur-Hugi, hefur hafið störf sem markaðsstjóri hjá Ísorku, rafhleðslufyrirtæki, en hann kemur þangað frá markaðsdeild Play. 25.8.2022 09:53
Bára Mjöll nýr meðeigandi hjá Langbrók Bára Mjöll Þórðardóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafafyrirtækið Langbrók sem meðeigandi. 25.8.2022 08:21
Stýrivaxtahækkanir komi verst við þá sem keyptu húsnæði í Covid Þingmaður Samfylkingarinnar kallar eftir því að stjórnvöld ráðist í sértækar aðgerðir til að bregðast við stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem kynnt var í dag. Hækkunin komi sérstaklega illa niður á þeim sem keyptu húsnæði í heimsfaraldri með hvatningu fjármálaráðherra og seðlabankastjóra. 24.8.2022 21:35
Konráð til aðstoðar SA í kjaraviðræðunum framundan Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis, hefur tímabundið verið ráðinn sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins í aðdraganda komandi kjarasamningsgerðar. Hann mun jafnframt taka sæti í samninganefnd SA. 24.8.2022 15:22
Simon tekur við heimilisbókhaldinu af Georgi Meniga hefur ráðið Simon Shorthose í starf forstjóra. Hann tekur við af Georg Lúðvíkssyni, meðstofnanda Meniga, fyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilisbókhaldshugbúnaði. 24.8.2022 14:16
Þykkvabæjarfranskar heyra sögunni til eftir 36 ára framleiðslu Matvöruframleiðandinn Þykkvabæjar tilkynnti í morgun að eftir 36 ára framleiðslu sé fyrirtækið hætt að framleiða franskar kartöflur. Rekstrarstjóri segir bilun í tækjabúnaði hafa leitt til þessarar ákvörðunar. 24.8.2022 13:09
Koma í veg fyrir „æsing í kerfinu“ Stýrivextir voru hækkaðir í morgun til þess að koma í veg fyrir ofþenslu og æsing í kerfinu að sögn seðlabankastjóra. Fólk eigi að taka minna af lánum, fyrirtæki síður að ráðast í fjárfestingar og stjórnvöld að halda að sér höndum. Vextirnir voru hækkaðir um 75 punkta og hafa ekki verið hærri í sex ár 24.8.2022 12:03
Vetraráætlunin á pari við þá sem var fyrir faraldur Vetraráætlun Icelandair er nokkurn veginn á pari af því framboði sem var veturinn 2019 til 2020, fyrir heimsfaraldur. Mest er tíðni flugferða félagsins til Kaupmannahafnar, London, New York og Boston. 24.8.2022 10:16
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 75 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,75 prósentustig. 24.8.2022 09:00
Engar pappaskeiðar með skyri frá MS í Hollandi Pappaskeiðar sem fylgja skyri frá Ísey skyr hafa verið umdeildar um nokkurt skeið, það sama má segja um tréskeiðar sem hafa dúkkað upp á síðustu misserum. Þó virðast pappaskeiðarnar valda sérstökum ama ef marka má ummæli netverja. Á dögunum barst Vísi ábending þess efnis að annars staðar í Evrópu væri boðið upp á tréskeiðar með skyrinu í stað þeirra úr pappa sem Íslendingar kannast við. 24.8.2022 08:50
Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,75 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 4,75 prósent í 5,5 prósent. Þetta er áttunda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. 24.8.2022 08:30
Diljá ráðin hagfræðingur SAF Samtök ferðaþjónustunnar hafa ráðið Diljá Matthíasardóttur í starf hagfræðings samtakanna og hefur hún þegar hafið störf. 24.8.2022 07:26
Launahækkanir nái ekki að halda í við verðbólguþróun Launahækkanir ná ekki lengur að halda í við verðbólguþróun og er kaupmáttur því á niðurleið. Þetta segir í nýrri skýrslu frá greiningardeild Landsbankans. Launavísitalan lækkaði um 0,1 prósentustig á milli júní og júlímánaðar en síðustu tólf máuði hefur launavísitala hækkað um 8,1 prósent. 23.8.2022 17:34