Þvílík englarödd á Selfossi
Þótt Bryndís Embla Einarsdóttir á Selfossi sé ekki nema tólf ára hefur hún sungið í kórum í fimm ár. Hún hefur vakið athygli fyrir rödd sína og er fengin til að syngja við hin ýmsu tækifæri. Henni finnst "Faðir vorið" vera fallegasta lagið sem hún syngur.