Þurfti ítrekað að þvertaka fyrir að Rússar réðu nú yfir Bakhmút
Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu réði lögum og lofum á leiðtogafundi G7 sem lauk í dag, eftir ströng fundahöld og afgerandi stuðningsyfirlýsingar vesturveldanna við Úkraínu. Selenskí þurfti ítrekað að hafna fullyrðingum Rússa um yfirráð yfir úkraínsku borginni Bakhmút á lokadegi fundarins.