Lægsta tilboð í Arnarnesveg 718 milljónum undir áætlun
Lægsta boð í umdeilda gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist ríflega sjö hundruð milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna.