Segir það orðið viðurkennt meðal fræðimanna að Thule sé Ísland
Rannsóknarprófessor við Árnastofnun segir nýja kenningu þess efnis að fyrsta nafn Íslands hafi verið Thymele en ekki Thule aðeins skemmtilega hugdettu í ætt við skáldfræði. Hann segir þó almennt orðið viðurkennt meðal fræðimanna að Thule sé Ísland.